Morgunblaðið - 12.06.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
meðal annars átt við íbúðir sem upp-
fylla stærðar- og verðmörk sam-
kvæmt reglugerð sem ráðherra setur
og íbúðir sem taka mið af her-
bergjafjölda miðað við fjöl-
skyldustærð. Þá skal horft til þess að
hvetja til nýsköpunar í mannvirkja-
gerð við uppbyggingu minni [og] hag-
kvæmra íbúða fyrir fjölskyldufólk,“
segir meðal annars í frumvarpinu.
Tekið er fram að lánveitingarnar
takmarkist við heimildir í fjárlögum.
Hafi heimildin verið fullnýtt sé HMS
óheimilt að samþykkja umsókn um
lán enda þótt umsækjandi hafi upp-
fyllt skilyrði lánsins.
Ásamt ofangreindum skilyrðum
þarf umsækjandi að leggja fram að
lágmarki 5% kaupverðs. Eigi hann
meira eigin fé kemur það til lækk-
unar á hlutdeildarláni. Hann þarf að
standast greiðslumat og meðal-
afborganir fasteignaláns mega ekki
fara upp fyrir 40% ráðstöfunartekna.
Þá skal lán sem er á undan hlutdeild-
arláni í veðröð að jafnaði ekki vera til
lengri tíma en 25 ára og skal umsækj-
andi verja skattfrjálsri ráðstöfun sér-
eignarsparnaðar til lækkunar á
höfuðstól lánsins. Þó er heimilt að
veita undanþágu frá síðastnefnda at-
riðinu, ef umsækjandi er undir viss-
um tekjumörkum, og heimilt verður
að veita undanþágu frá þessum há-
markslánstíma taki umsækjandi
óverðtryggt lán.
Óheimilt að leigja íbúð út
Lántaka verður óheimilt að endur-
fjármagna lán sem tekin voru til
kaupa á íbúðarhúsnæðinu þannig að
veðhlutfall hækki nema hann endur-
greiði hlutdeildarlánið að fullu.
Þá segir í frumvarpinu að ef tekjur
lántaka á lánstímanum hækki um-
fram tiltekin tekjumörk skuli lántaki
greiða HMS vexti af hlutdeildarlán-
inu, enda hafi hann verið yfir tekju-
mörkum sl. þrjú almanaksár.
Ennfremur skal lántaki eiga lög-
heimili í íbúðarhúsnæðinu og honum
er óheimilt að leigja það út nema með
samþykki HMS.
Ef kaupandi flytur lögheimili sitt
úr íbúðarhúsnæðinu, leigir það út án
heimildar eða kaupir annað íbúðar-
húsnæði er HMS heimilt að gjaldfella
lánið. Sömuleiðis ef veittar eru rang-
ar eða villandi upplýsingar.
Morgunblaðið/Eggert
Á Brynjureit Mörgu ungu fólki hefur reynst erfitt að fjármagna íbúðarkaup.
Hlutdeildarlán til fyrstu kaupenda*
Dæmi um hámarksverð íbúða svo taka megi hlutdeildarlán
Hámarkshlutfall
húsnæðiskostnaðar
30
3835
42,5
50
* Málið er í vinnslu og upphæðir eru ekki endanlegar. Frumvarp liggur fyrir Alþingi.
** Heimilt er að veita allt að 30% hlutdeildarlán til einstaklinga með lægri tekjur
en 5.018.000 kr. á ári eða til sambúðarfólks með samanlagt lægri tekjur en
7.020.000 kr. á ári. Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).1 2 3 4 5+Herbergjafjöldi:
Húsnæðiskostnaður
má ekki vera
umfram 40%
ráðstöfunartekna
Áhersla er lögð á hagkvæmar
nýbyggingar og ákveðið
hámarksverð miðað við
herbergjafjölda
Milljónir kr.
Húsnæðiskostnaður
Önnur útgjöld lántaka
40%60%
5% 75% 20%
Kaupandi greiðir 5% kaupverðs í útborgun ... og tekur húsnæðislán fyrir 75% kaupverðs
HMS veitir hlutdeildarlán
fyrir 20% kaupverðs**
Ríkið lánar allt að 20% kaupverðs
Ríkið veitir hlutdeildarlán til fyrstu kaupa á íbúðum en að uppfylltum margvíslegum skilyrðum
Umsækjendur þurfa að vera innan tiltekinna tekjumarka og íbúðirnar þurfa að vera hagkvæmar
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, kynnti í gær
frumvarp til laga um hlutdeildarlán.
Lengi hafði verið beðið eftir kynn-
ingunni en ráðherrann hafði um
nokkurt skeið boðað slík lán.
Með þeim lánar Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun (HMS) fyrstu
kaupendum undir tilteknum tekju-
mörkum, sem ekki hafa átt íbúðar-
húsnæði síðastliðin fimm ár, allt að
20% af kaupverði eignar. Fleiri en
einn geta sótt um lán í sameiningu.
Frumvarpið felur í sér breytingu á
lögum um húsnæðismál (44/1998).
Markmið hlutdeildarlána er að
gera kaupendum sem ekki hafa til
þess eigin fé kleift að kaupa eignir.
Lánin miðast við tekjumörk sem
eru 7,56 milljónir á ári fyrir einstak-
ling og 10,56 milljónir fyrir hjón, mið-
að við síðastliðna 12 mánuði. Það
gera 630 þúsund krónur fyrir ein-
stakling og 880 þúsund fyrir hjón á
mánuði. Við þessar fjárhæðir bætast
1,56 milljónir fyrir hvert barn eða
ungmenni fram að 20 ára aldri sem
býr á heimilinu. Sú upphæð jafngild-
ir 130 þúsund krónum á mánuði.
Hlutdeildarlán verður veitt á öðr-
um veðrétti á eftir fasteignaláni og
ber hvorki vexti né afborganir á láns-
tímanum. Lánin skulu endurgreidd
við sölu íbúðar eða í síðasta lagi að
liðnum 25 árum frá lánveitingu.
Endurgreiðslufjárhæðin skal nema
sama hlutfalli af söluverði við endur-
greiðslu og upphafleg lánveiting nam
af kaupverði íbúðarinnar.
Ef hlutdeildarlán er endurgreitt
án þess að til sölu komi skal endur-
greiðslan miðast við verðmat óháðs
fasteignasala á eigninni.
Þarfnast samþykkis HMS
Þessu til viðbótar eru lánveiting-
arnar skilyrtar við tiltekið húsnæði:
„Aðeins er lánað fyrir nýjum íbúð-
um sem hafa verið samþykktar af
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
sem hagkvæmar íbúðir á grundvelli
samnings byggingaraðilans við
stofnunina. Með hagkvæmum íbúð-
um samkvæmt ákvæði þessu er
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
ÚRVAL ÚTILJÓSA
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra sagðist í
samtali við mbl.is mundu leggja frumvarpið fram á allra
næstu dögum, mögulega í dag. Rifjað var upp í fréttinni
að aðeins sex fundardagar væru eftir á þingi.
Spurður hve bjartsýnn hann væri á að málið hlyti af-
greiðslu fyrir þinglok sagðist Ásmundur vonast til að
málið yrði unnið hratt og vel en að hann hefði að sama
skapi skilning á því að þingið vildi setja sig vel inn í málið
áður en það yrði afgreitt. Gert er ráð fyrir að framlag
ríkisins vegna íbúðanna, sem verða 400 á ári, verði 4
milljarðar á ári. Horft er til þess að bjóða úrræðið í tíu ár.
Óvíst um afgreiðslu
ÞAÐ STYTTIST Í ÞINGLOK
Ásmundur Einar
Daðason