Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins lagði fram í gær tillögur sín-
ar að opnun innri landamæra sam-
bandsríkjanna frá og með 15. júní
næstkomandi, en stefnt er að því að
opnað verði fyrir ferðalög frá ríkjum
utan Schengen-svæðisins og Bret-
lands í áföngum eftir 1. júlí.
Tillögurnar voru lagðar fram á
sama tíma og Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin varaði við því að heims-
faraldurinn væri enn í fullum gangi
utan Evrópu.
Rúmlega 7,4 milljónir manns hafa
nú smitast og að minnsta kosti
418.000 látist af völdum kórónuveir-
unnar. Í Bandaríkjunum fór fjöldi
skráðra tilfella yfir tvær milljónir í
gær, sem er hið mesta í heimi.
Faraldurinn virðist enn í uppgangi
í ríkjum Suður-Ameríku og hafa nú
rúmlega 70.000 manns látist þar.
Rúmlega helmingur dauðsfallanna
var í Brasilíu, þar sem rúmlega
40.000 manns hafa dáið af völdum
veirunnar.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varaði
einnig við því að þróunin í ríkjum Afr-
íku væri varhugaverð, en fjöldi tilfella
þar hefur stokkið úr 100.000 upp í
200.000 á einungis 18 dögum. Flest
tilfellin hafa komið upp í Suður-
Afríku, þar sem rúmlega 58.000
manns hafa smitast af veirunni og
rúmlega 1.100 manns látist. Auk
Suður-Afríku hafa Alsír, Nígería,
Egyptaland og Súdan orðið illa úti í
faraldrinum, en ríkin fimm eru sam-
tals með um 80% allra tilfella í Afríku.
Veiran enn í uppgangi
Tilfellum kórónuveirunnar fjölgað hratt í Afríku
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Styttur af landkönnuðinum Krist-
ófer Kólumbus hafa átt undir högg
að sækja í mótmælaaðgerðum vítt og
breitt um Bandaríkin síðustu daga.
Mótmælendur í Boston afhöfðuðu
styttu hans þar aðfaranótt miðviku-
dags og í Minneapolis, upphafsstað
George Floyd-mótmælanna, var
stytta Kólumbusar rifin niður við
mikinn fögnuð nærstaddra.
Sömu örlög biðu styttu af Jeffer-
son Davis, forseta Suðurríkjanna, í
miðborg Richmond, en mótmælend-
ur rifu hana niður með miklum látum
í fyrrinótt. Borgaryfirvöld í Rich-
mond höfðu þegar ákveðið að fjar-
lægja skyldi styttuna á næstu vikum
þegar mótmælendur gripu fram fyr-
ir hendurnar á þeim.
Marty Walsh, borgarstjóri Bost-
on, fordæmdi skemmdarverkin á
styttu Kólumbusar en borgar-
yfirvöld ákváðu engu að síður að láta
fjarlægja styttuna í gærmorgun.
Endanleg örlög hennar eru ekki ljós.
Uppgjör við fortíðina
Aðgerðir mótmælenda gegn stytt-
unum af Kólumbusi annars vegar og
leiðtogum Suðurríkjasambandsins
hins vegar hefur vakið umræðu inn-
an Bandaríkjanna um hvort viðeig-
andi sé að menn sem ýttu undir
þrælahald eða jafnvel gerðust föður-
landssvikarar við Bandaríkin séu
heiðraðir með styttum.
Arfleifð Kólumbusar, sem lengi
var minnst sem mannsins sem upp-
götvaði Nýja heiminn, hefur beðið
mikinn hnekki síðustu ár og hafa
ítrekað komið upp kröfur um að
styttur af honum verði teknar niður.
Þá hafa nokkur af ríkjum Bandaríkj-
anna lagt niður hinn svonefnda „Kól-
umbusar-dag“, 12. október, og þess í
stað útnefnt daginn til heiðurs inn-
fæddum íbúum Ameríku-álfu.
Styttur af hinum föllnu „hetjum“
Suðurríkjanna voru margar hverjar
reistar á þriðja og fjórða áratug 20.
aldar, á sama tíma og mikið bakslag
kom í mannréttindabaráttu blökku-
manna í Bandaríkjunum.
Talið er að rúmlega 770 slíkar
styttur séu í Bandaríkjunum, lang-
flestar þeirra í þeim ríkjum sem
skipuðu Suðurríkjasambandið. Þá
eru um þúsund aðrir minnisvarðar
um Suðurríkin þar, en skólar og
lystigarðar hafa verið nefndir í höf-
uðið á þeim, svo dæmi séu nefnd.
Krafan um að hætt sé að heiðra
menn sem sviku land sitt í tryggðum
er ekki ný af nálinni en hún hefur
fengið aukinn slagkraft í kjölfar
dauða George Floyds í lok síðasta
mánaðar.
Ekki lengur höfuðborgin
Þeir sem lagst hafa gegn því að
stytturnar séu teknar niður halda
því hins vegar fram, að þær þjóni
sem viðvörun við því að mistök for-
tíðar verði endurtekin, en fleiri virð-
ast nú á þeirri skoðun að stytturnar
séu einfaldlega kúgunartákn, sem
beri að fjarlægja.
Styttan af Jefferson Davis sem rif-
in var niður í fyrrinótt var ein af
fimm styttum við götuna Monument
Avenue í miðborg Richmond sem
heiðruðu leiðtoga Suðurríkjanna, en
borgarstjórn Richmond samþykkti í
síðustu viku að þær ættu allar að
víkja fyrir 1. júlí næstkomandi. Um
leið á að fjarlægja öll önnur minnis-
merki um Suðurríkin úr borginni.
„Við erum ekki lengur höfuðborg
Suðurríkjanna,“ sagði Levar Stoney,
borgarstjóri Richmond, við það til-
efni. „Borgin er full af fjölbreytni og
ást fyrir öllum, og við þurfum að
sýna það.“
Þekktasta styttan af þeim fimm
sem nú stendur til að rífa er af
Robert E. Lee, hershöfðingja í her
Norður-Virginíu í borgarastríði
Bandaríkjanna, en hún er um 20
metra há með stalli sínum. Ólíkt hin-
um fjórum styttunum tilheyrir hún
Virginíuríki en ekki Richmond-borg.
Ralph Northam, ríkisstjóri Virginíu,
hefur hins vegar þegar hafið undir-
búning að því að láta fjarlægja
styttuna.
Alríkisdómari stöðvaði hins vegar
undirbúninginn í tíu daga vegna
kæru manns um orðalag í afsali, sem
túlka má á þann veg að ríkinu beri
skylda til að „varðveita styttuna með
umhyggju“. Saksóknari Virginíu-
ríkis hefur heitið því að hann muni
berjast fyrir niðurrifi styttunnar alla
leið upp í hæstarétt ríkisins.
Virkisnöfnin verða áfram
Nokkrar af bækistöðvum landhers
Bandaríkjanna, sem jafnan eru köll-
uð virki, hafa verið nefndar í höfuðið
á hershöfðingjum Suðurríkjanna.
Þeirra þekktast er líklega Fort
Bragg, sem er fjölmennasta herstöð
í heimi með um 50.000 hermenn.
Forsvarsmenn bandaríska
varnarmálaráðuneytisins sögðu fyrr
í vikunni vel koma til greina að nefna
virkin upp á nýtt. Donald Trump
Bandaríkjaforseti tilkynnti hins veg-
ar á Twitter-síðu sinni, án þess að
hafa samráð við ráðuneytið, að ekki
kæmi til greina að hrófla við nöfnum
virkjanna, þar sem það væri óvirðing
við minningu þeirra hermanna sem
hefðu þjónað í virkjunum.
Táknmyndir þrælahalds falla
Kristófer Kólumbus afhöfðaður og Jefferson Davis rifinn niður í mótmælum gegn kynþáttahyggju
Rúmlega 770 styttur í Bandaríkjunum Ekki verður breytt um nafn á virkjum Bandaríkjahers
AFP
Mótmæli Stytta Kólumbusar í Boston var afhöfðuð af mótmælendum.
Bardagalistamaðurinn Le Van Thang kallar ekki allt
ömmu sína, en hann leggur stund á hina fornu víet-
nömsku bardagalist Thien Mon Dao. Listin nýtur sívax-
andi vinsælda í Víetnam, en hér sést Le beygja steypu-
styrktarjárn með augntóftinni. Ekki mun vera mælt
með að byrjendur í faginu reyni það heima hjá sér.
AFP
Með töggur í tóftum