Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 Buslað Vel hefur viðrað til útivistar í vikunni og náði veðurblíðan hámarki á miðvikudag á höfuðborgarsvæðinu. Þá var í Nauthólsvík fjöldi fólks sem buslaði eða synti í víkinni. Kristinn Magnússon Áhugamenn um þróun utanríkis- og öryggismála á norður- slóðum mega hafa sig alla við um þessar mundir vilji þeir fylgj- ast með nýjum niður- stöðum fræðimanna. Umræðurnar minna á það sem var fyrir fimmtíu árum, þær eru þó að ýmsu leyti annars eðlis, nú er sjónunum beint mun norðar en þá var gert. Við gerð varnaráætlana á þeim árum drógu NATO-ríkin til dæmis línu frá Grænlandi um Ísland til Bret- lands, GIUK-hliðið. Landafræðin hefur ekki breyst og hernaðarlega skiptir hliðið enn miklu máli. Tæknin er hins vegar önnur en þá. Á árunum 1951 til 2006 var hér mörg þúsund manna bandarísk flotastöð með fullkomnasta búnaði til kafbátaleitar. Frá árinu 1966 rak sérstök deild innan flotans héð- an hlustunarkerfi, SOSUS-kerfi, til að nema hljóð frá óþekktum kaf- bátum sem fóru um GIUK-hliðið. Hlustunarmenn á Íslandi fundu í fyrsta sinn sovéska kafbáta af gerðunum Charlie og Victor árið 1968 með kerfinu og langdrægan kjarnorkukafbát af Delta-gerð árið 1974. Til að fræða umheiminn um það sem gerðist í hafi og lofti á norður- slóðum höfðu Norðmenn forystu um rannsóknar- og kynningarstarf sem dró athygli að sífellt meiri um- svifum sovéska flotans. Á níunda áratugnum, í forsetatíð Ronalds Reagans, breytti Bandaríkjastjórn um flotastefnu og sendi skip sín norður fyrir Ísland og inn á Bar- entshaf að bækistöðvum sovéska Norðurflotans. Olli þetta miklu uppnámi innan sovésku yfirher- stjórnarinnar og stuðl- aði ásamt öðru að falli Sovétríkjanna. Nú er öldin önnur. Bandaríkjastjórn ákvað um aldamótin að ástæðulaust væri að líta á Norður- Atlantshaf sem spennusvæði í sam- skiptum við Rússa og því síður hugsanlegt átakasvæði. Banda- ríski flotinn lokaði Keflavíkurstöðinni árið 2006 og lagði niður 2. flotann, Atl- antshafsflotann, árið 2011. Hann var endurræstur á árinu 2018. Þetta viðhorf gjörbreyttist árið 2014 eftir ólöglega innlimun Rússa á Krímskaga og hernaðarlegar ögr- anir þeirra og átök við Úkra- ínumenn í austurhluta Úkraínu sem kostað hafa meira en 13.000 manns lífið. Loftslagsbreytingar hafa leitt til þess að augu stórvelda beinast í vaxandi mæli að norðurslóðum og Norður-Íshafi með nýtingu auð- linda að leiðarljósi eða hagkvæmni í siglingum milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Vladimír Pútín Rúss- landsforseti fer ekki leynt með þá skoðun að gullkista Rússlands sé í norðri og gera verði ráðstafanir til að verja hana og allt rússneskt yfirráðasvæði í lofti, á sjó og landi. Fjöldi herstöðva hefur komið til sögunnar, kjarnorkuvopnum á þessum slóðum hefur fjölgað, þar eru flugskeyti og skotflaugar sem senda má til fjarlægra staða. Samtímis því sem Rússar sækja í sig veðrið eftir því sem fjárhagur þeirra og tæknileg geta leyfir hafa þeir stofnað til norður-samstarfs við Kínverja um nýtingu auðlinda, einkum jarðgass, og flutninga á sjó og á landi. Kínverjar kynna sig til sögunnar sem nágranna norður- slóða þrátt fyrir mikla fjarlægð lands þeirra frá þeim og stunda þar rannsóknir auk nýtingar auð- linda og siglinga. Kínverska belti- og braut-fjárfestingaráætlunin nær til norðurslóða. Ólíkt mat Nú er ekki þörf á átaki norð- lægra lýðræðisríkja til að draga athygli annarra að öryggishags- munum í norðri eins og fyrir hálfri öld. Kenneth Braithwaite, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna í Nor- egi, varð flotamálaráðherra Bandaríkjanna 29. maí 2020. Þegar hann svaraði spurningum öldungadeildarmanna fyrir emb- ættistökuna sagðist hann sem sendiherra í Noregi (frá 2017) hafa kynnst „herskárri afstöðu hugs- anlegra stórveldakeppinauta“ Bandaríkjamanna á norðurslóðum. Hann sagði að Kínverjar og Rúss- ar væru þar alls staðar, einkum Kínverjar. Rússar þráðu að skipta máli að nýju en Kínverjar vildu öllu ráða. Nýi flotamálaráðherrann nefndi áhuga Kínverja á Noregi og sér- staklega á norska hafnarbænum Kirkenes, rétt við rússnesku landamærin. Eftir Braithwaite er haft: „Kínverjar viðurkenna nú mikilvægi Kirkenes vilji þeir tryggja sér aðstöðu á vesturenda Norðurleiðarinnar, þeir eru þar og reyna, enn á ný, að fá íbúa í norðurhluta Noregs á sitt band.“ Audun Halvorsen, aðstoðarutan- ríkisráðherra Noregs, sagði af þessu tilefni við vefsíðuna High North News að ekki bæri að líta á Kínverja sem ógn á norðurslóðum. Vissulega yrðu menn varir við vax- andi stórveldakeppni í heiminum en norðurslóðir væru ekki mið- punktur þeirrar myndar. Kínversk umsvif á svæðinu væru enn tak- mörkuð. „Lágspenna og fyrir- sjáanleiki er enn það sem einkenn- ir norðurslóðir.“ Hann sagði Norðmenn ekki líta á Kína sem ógn við NATO en bandalagið yrði einnig að taka mið af vaxandi hlut Kínverja á al- þjóðavettvangi. Fyrir rúmu ári flutti Mike Pom- peo, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ræðu í Rovaniemi í Finn- landi fyrir ráðherrafund Norðurskautsráðsins og beindi orðum sínum harkalega að Kín- verjum. Sagði að þeir væru ekki gjaldgengir í ríkjahóp ráðsins og yrðu aldrei vegna hnattstöðu sinn- ar. Danska utanríkismálastofnunin gaf 8. júní út skýrslu um nýja afl- vaka í öryggismálum á norður- slóðum og er hún meðal annars kynnt með þeim orðum að í Rov- aniemi 6. maí 2019 hafi Mike Pom- peo ýtt til hliðar hefðbundnum við- horfum um að norðurskautssvæðið sé friðsamlegt svæði þar sem þjóð- irnar haldi stórveldakeppni utan dyra í þágu skoðanaskipta sín á milli – þess í stað blasi þar við bar- átta um hernaðarleg og efnahags- leg áhrif og sókn eftir óunnum náttúruauðlindum. Hve lengi tekst með góðum rök- um að halda í þá ríkjandi skoðun meðal norrænna ráðamanna að norðurslóðir séu lágspennusvæði ræðst ekki síst af því hvernig hald- ið er á málum innan Norðskauts- ráðsins þar sem Íslendingar fara nú með formennsku. Hernaðarleg málefni eru ekki rædd í ráðinu en hitt er ljóst að í kjölfar rann- sóknaskipa og flutningaskipa koma fljótlega herskip þegar mikl- ir hagsmunir eru í húfi. Ný sýn á GIUK-N-hliðið Undir lok maí 2020 birtist á net- inu ritgerð sem Rebecca Pincus, aðstoðarprófessor við hugveitu bandaríska flotans innan Naval War College, ritaði í RUSI Journ- al í Bretlandi. Ritgerðin heitir: Til nýrra norðurslóða – breytt stra- tegísk landafræði í GIUK-hliðinu. Bandaríski flotafræðingurinn nálgast GIUK-hliðið úr nýrri átt og tekur mið af nýjum aðstæðum með hliðsjón af væntanlegri nýt- ingu Norður-Íshafs og kapphlaupi stórvelda um yfirráð þar. Hún vill framvegis kalla þetta GIUK-N- hliðið, óhjákvæmilegt sé að tengja Noreg þessari mynd ásamt Græn- landi, Íslandi og Bretlandi. Niðurstaða Pincus er að nú sé tímabært fyrir Bandaríkjamenn og NATO að hefja undirbúning að framsýnni flota- og varnarstefnu sem taki mið af stórauknum sigl- ingum umhverfis Ísland. Kínverjar eru nefndir til sögunnar. Minnt á aðferðina sem þeir hafi beitt til áhrifa á Suður-Kínahafi og sagt að hún kunni að verða notuð gagn- vart einstökum norðurslóða- ríkjum. Clingendael, utanríkismála- stofnun Hollands, sjálfstæð hug- veita og fræðasetur um alþjóða- mál, sendi 4. júní frá sér skýrsluna: Norðurslóðastefna Kína á Íslandi og Grænlandi. Þar birtast viðhorf fræðimanna í gam- algrónu ESB-landi. Sjónarhornið er ólíkt en ekki viðfangsefnið: Kínversk sókn inn á Norður-Atlantshaf vegna breyt- inga í norðri. Eftir Björn Bjarnason »Nú er ekki þörf á átaki norðlægra lýð- ræðisríkja til að draga athygli annarra að ör- yggishagsmunum í norðri eins og fyrir hálfri öld. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. GIUK-hliðið er enn á sínum stað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.