Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
✝ Sigurður E.R.Lyngdal fædd-
ist 15. ágúst 1948 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspít-
alanum 3. júní
2020.
Foreldrar Sig-
urðar voru Mikk-
elína Sigurð-
ardóttir húsmóðir
frá Ísafirði, f. 1.12.
1924, d. 12.10.
1996 og Reynir Lyngdal Magn-
ússon vélstjóri frá Akureyri, f.
13.1. 1912, d. 23.7. 1981, þau
skildu. Fóstri Sigurðar var
seinni maður Mikkelínu, Ari
Guðmundsson, f. 15.12. 1914,
d. 31.8. 1983. Systkini Sig-
urðar eru Elín R. Johnson, f.
9.9. 1944, maki Ralph E. John-
son.
Guðmundur Arason, f. 26.7.
1956, maki Margrét Sigurð-
ardóttir. Þorgils Arason, f.
13.12. 1957, maki Sigurrós
Auður Sveinsdóttir. Ingi Ara-
son, f. 26.7. 1959, maki Þórunn
Reynisdóttir. Helga Að-
alheiður Aradóttir, f. 3.7. 1963.
Sigurður kvæntist 16.6.
1973 Magneu Antonsdóttur
kennara í Reykjavík, f. 13.12.
1951. Börn þeirra eru: 1)
Reynir Lyngdal leikstjóri, f.
Barnaskólann á Borgarfirði
eystra, hann sem skólastjóri
og hún sem kennari. Síðan lá
leiðin til Reykjavíkur, þar
bjuggu þau fyrst í Espigerði
18 og síðan í Aðallandi 1. Sig-
urður hóf kennslu við Hóla-
brekkuskóla 1975. Veturinn
1978-79 stundaði Sigurður
leiklistarnám í Danmörku. Í
kjölfarið var leiklistarkennsla
og uppfærsla leikrita í skól-
anum stór þáttur í hans starfi
við skólann. Sigurður var að-
stoðarskólastjóri Vinnuskóla
Reykjavíkur í um 15 ár frá
árinu 1985.
Sigurður sinnti ýmsum fé-
lagsstörfum fyrir KÍ, m.a. sat
hann í stjórn KFR og var trún-
aðarmaður á vinnustað um
árabil. Einnig var hann leið-
sögumaður ferðamanna um Ís-
land. Sigurður stundaði
kennslu við Hólabrekkuskóla
til sextugs og kenndi svo í
nokkur ár hjá Mími símennt-
un.
Sigurður undi hag sínum
vel við smíðar og lagfæringar
í sumarbústað fjölskyldunnar
við Grímsstaðamúla á Mýrum.
Sigurður átti við erfið veikindi
að stríða um árabil.Útför Sig-
urðar fer fram frá Bústaða-
kirkju í dag, föstudaginn 12.
júní 2020, kl. 13. Streymt
verður frá útförinni á facebo-
ok. Stytt slóð á streym-
ið:https://tinyurl.com/
y9brvqrt
Hlekk á streymið má nálg-
ast á www.mbl.is/andlat
26.3. 1976, maki
Elma Lísa
Gunnarsdóttir
leikkona, f. 7.9.
1973. Dóttir
þeirra er Nína
Magnea Lyngdal,
f. 15.5. 2013. Dótt-
ir Reynis og
Kristínar
Gunnarsdóttur er
Una Margrét
Lyngdal nemi, f.
22.2. 2002. 2) Anton Lyngdal
listamaður, f. 9.9. 1983. 3)
Kristín Ýr Lyngdal kennari, f.
11.3. 1988 sambýlismaður
Kjartan Traustason tölv-
unarfræðingur, f. 12.10. 1990.
Dóttir þeirra er Klara Lyng-
dal, f. 8.11. 2014.
Sem ungur maður stundaði
Sigurður ýmis störf til sjávar
og sveita, svo sem brúarsmíði,
hvalveiði og byggingu Búr-
fellsvirkjunar. Oft var hann í
byggingarvinnu á sumrin,
kom meðal annars að bygg-
ingu Seðlabankans.
Sigurður fór í Lýðháskóla í
Danmörku eftir hefðbundna
skólagöngu í Reykjavík. Tók
kennarapróf 1972. Kenndi eitt
ár í Fellaskóla í Reykjavík.
Næstu tvö árin réðu ungu
hjónin sig til kennslu við
Þú ert ekki hér.
Það að vera einn án þín
styrkir ást mína til þín.
Ég fyllist af þrá til þín og
og dagarnir ganga út á það
eitt að bíða.
Bíða eftir því að þú
gangir um húsið og fyllir
það af nærveru þinni.
(Sigurður Lyngdal)
Með ástarkveðju,
þín,
Magnea.
Sigurður Lyngdal, pabbi
minn, er floginn á vit nýrra æv-
intýra. Ég veit það verður tekið
vel á móti honum á þeim stað sem
hann er að fara á og það verður
sko ekki leiðinlegt þar því það var
það aldrei hér með honum.
Pabbi var stór persónuleiki og
eftirminnilegur maður með stórt
hjarta sem ekkert aumt mátti
sjá.
Pabbi var örlátur á tíma. Hann
gaf sér alltaf tíma til að hlusta og
gefa góð ráð jafnvel þótt maður
færi kannski ekki alltaf eftir
þeim.
Hann kunni svo ótal margt
sem góður pabbi þarf að kunna
og kenna stráknum sínum.
Hann sagði skemmtilegar sög-
ur, hann lagaði góðan mat, hann
kunni að smíða og var lunkinn við
flest verklegt, hann var vel að sér
í flestöllu, fróðleiksfús, víðsýnn,
fordómalaus og fyndinn.
Hann sýndi skoðunum og
draumum okkar barna sinna og
barnabarna mikinn áhuga og
hvatti okkur áfram.
Stundum með því að ýta við
manni, stundum með því að
hvetja til rökræðna, en hann
þrýsti aldrei á annað en að maður
gerði það sem maður vildi sjálfur.
Og alltaf fann maður að það var
gert af ást.
Hann var ástríkur og áhuga-
samur afi sem vildi helst alltaf
hafa afastelpurnar Unu Mar-
gréti, Nínu Magneu og Klöru hjá
sér. Ég veit að afi Siggi á stóran
stað í hjarta þeirra þriggja.
Bestu stundirnar með honum
voru þegar við vorum saman í að
finna út úr einhverjum smíðum
heima eða uppi í sumarbústað.
Við áttum það til að tala mikið
báðir tveir en á þessum stundum
þar sem verk var að vinna þögð-
um við saman.
Pabbi naut þess að elda góðan
mat og minningar um kvöldverði
og spjall um allt milli himins og
jarðar er það sem stendur upp úr
frá barnæsku fram á síðasta dag.
Við feðgarnir erum sammála í því
að allar máltíðir eiga að vera góð-
ar. Það er engin ástæða til að
borða mat sem er ekki bragðgóð-
ur.
Brennandi áhugi hans á sögum
í öllum formum; skáldsögum,
teiknimyndasögum, kvikmynd-
um og mannkynssögunni sjálfri,
var bráðsmitandi og hafði án efa
mótandi áhrif á mig og mitt líf.
Að alast upp inni í sagnaheimum
sem pabbi kynnti mér gaf mér
vængi til að segja sjálfur sögur í
formi kvikmynda.
Ég væri ekki sá maður sem ég
er í dag nema fyrir þá miklu ást,
athygli og alúð sem pabbi sýndi
mér.
Hann kenndi mér að vera ekki
hræddur, vera ég sjálfur og grípa
tækifærin. Hvað er hægt að biðja
um meira frá föður?
Elsku pabbi, ég vildi óska að
við hefðum getað átt meiri tíma
saman.
Hlegið meira, borðað meira,
talað meira og kannski þagað
meira saman.
Takk fyrir samveruna, stuðn-
inginn, ástina, sögurnar, bíóferð-
irnar, allan matinn og húmorinn.
Ég veit við hittumst aftur og
það verður sko veisla.
Þangað til næst pabbi minn,
þangað til næst.
Þinn sonur,
Reynir Lyngdal.
Lífið heldur áfram
Lífið heldur áfram
mun ég alltaf sakna þín – þín
veit að lífið heldur áfram
þá mun ég alltaf sakna þín – þín
þó að lífið haldi áfram
mun ég alltaf sakna þín – þín
þó að lífið haldi áfram
mun ég alltaf sakna þín – þín.
Minningar
minningar um hann
minnir mig
minnir mig á það
HVAÐ!
halda alltaf áfram
með listina að skapa
skapa
skapa
skapa
Hann sagði mér alltaf
að
halda
halda áfram
hann studdi við mig – mig
alltaf við listina – na.
Ég man þegar ég notaði þig sem
listaverk
það var kannski bara besta listaverk
sem ég hafði nokkurn tíma gert
þar sem ég útskrifaðist með besta
listaverk.
Þú ert búinn að styðja við mig allan
þennan tíma
ekki búinn að týna týna
lífi mínu setjast niður og ríma
Kannski ekki, móti því sem ég er
búinn að telja
muntu kannski velja
lífið er að telja.
Ég mundi eftir mér
syrgja í langan tíma
Láttu mig nú sýna
þetta tekur allt sinn tíma.
Getur verið að syrgja
langan, langan tíma
telja mér trú um það
að tekur alltaf tíma
Lífið heldur áfram
mun ég alltaf sakna þín – þín
vitað að lífið heldur áfram
þá mun ég alltaf sakna þín – þín
þó að lífið haldi áfram
mun ég alltaf sakna þín – þín
(AL)
Anton Lyngdal.
Elsku pabbi.
Hvernig kveður pabbastelpa
pabba sinn? Á það að vera hægt?
Það er óraunverulegt að geta
ekki tekið upp símann og heyrt:
„sæl, ástin mín“ á hinum endan-
um.
Í hvern hringi ég nú þegar ég
læsi mig inni í bíl?
Í hvern hringi ég nú þegar ég
kem ekki sláttuvélinni í gang?
Í hvern hringi ég nú þegar ég
veit ekki hvernig eitthvað virk-
ar?
Í hvern hringi ég nú þegar ég
skipti um rafmagnskló?
Í hvern hringi ég nú þegar ég
man ekki pönnukökuuppskrift-
ina?
Í hvern hringi ég nú þegar mig
vantar uppörvandi spjall?
Þú hefur alla tíð verið minn
„go to“-maður, sama hvað bját-
aði á. Þú hafðir alltaf svörin og
ráðin. Þú leiðbeindir, studdir og
hughreystir og passaðir alltaf að
spyrja síðar um hvernig málinu
lauk. Þú sýndir áhuga, skilning
og hlýju.
Ég er full þakklætis fyrir þann
tíma sem ég fékk með þér, við
áttum okkar einstaka samband
sem gaf mér dýrmætar minning-
ar, þekkingu og góð lífsgildi.
Við skelltum okkur tvö saman
í „road trip“, við smíðuðum, við
sungum gömlu slagarana í bíln-
um, við ferðuðumst til útlanda
(aðallega Danmerkur auðvitað),
við skipulögðum veislur, við
stríddum mömmu og Antoni, við
elduðum og bökuðum og við
ræddum uppeldi og skólamál.
Við vorum saman í liði, hvort
sem við vorum sammála eða
ósammála þá vorum við tvö alltaf
saman í liði.
Ég er einnig þakklát fyrir
þann tíma sem Klara mín fékk að
eiga með þér, þú varst Afi með
stóru a-i, svo kærleiksríkur, nat-
inn og þolinmóður. Klara mun
alltaf að búa að því sem þú gafst
henni með samverustundum
ykkar.
Ég mundi gera töluvert margt
fyrir að fá að vera aftur lítil
stelpa sem trítlar niður í sjón-
varpsherbergi í Aðallandinu til
að leggjast í fangið þitt til að
horfa á Star Wars með þér, þó
það væri nú ekki nema einu sinni
enn.
Elsku pabbi, elsku besti pabbi,
elsku frábæri, klári og góði
pabbi.
Takk.
Þín,
Kristín Ýr.
Elsku tengdafaðir minn Sig-
urður Lyngdal eða Siggi eins og
ég kallaði hann er farinn frá okk-
ur í bili. En það er óraunverulegt
af því að ég finn ennþá fyrir nær-
veru hans, heyri röddina og hlát-
urinn.
Mér er það mjög minnisstætt
þegar við hittumst fyrst fyrir
mörgum árum í Aðallandinu,
þegar ég kom heim með syni þín-
um Reyni að skoða stuttmynd.
Þú spurðir mig hverra manna ég
væri og við spjölluðum heillengi
eins og þér einum var lagið. Ekki
grunaði mig þá að nokkrum ár-
um seinna ættum við eftir að
tengjast og ég myndi giftast syni
þínum Reyni.
Það eru ótal minningar sem
koma upp í hugann og tárin
streyma.
Ég á eftir að sakna þín mikið
elsku Siggi minn. Þú varst minn
helsti stuðningsmaður í einu og
öllu og hvattir mig áfram. Þú
komst á allar leiksýningarnar
mínar og hafðir skoðanir á öllu
sem var svo skemmtilegt þó að
við værum ekki alltaf sammála.
Þú hafðir einstakt lag á börn-
um og ungmennum enda kenn-
ari, og mjög eftirminnilegur
kennari. Betri afa er ekki hægt
að finna, þú gafst þér alltaf tíma
fyrir Unu okkar og Nínu Magn-
eu.
Svo varstu ofurnæmur og við-
kvæmur sem er fallegur eigin-
leiki, þorðir að segja þínar skoð-
anir enda vissirðu flestallt.
Það var bara þannig, þú hafðir
áhuga á mörgu enda gerðir þú
svo margt skemmtilegt og
hreyfðir við fólki. Þú varst stór
maður og manneskja með gull-
hjarta. Máttir ekkert aumt sjá.
Þú varst örlátasti maður sem ég
þekkti og Reynir minn hefur það
frá þér.
Ég gleymi því ekki þegar við
Reynir komum úr brúðkaups-
ferðinni og þú varst búinn að laga
litla skrýtna eldhúsið á Hring-
braut og kaupa uppþvottavél.
Takk fyrir það. Og svo þótti mér
líka vænt um að þú værir alltaf að
heita á mig í Lottóinu að gefa
mér pening fyrir leikhúsupp-
færslum.
Takk fyrir það. Takk fyrir all-
an matinn og kökurnar sem þú
bakaðir fyrir afastelpurnar þínar.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
átt svona góðan tengdapabba í öll
þessi ár.
Það verður allavega nóg af
sögum af afa sem ég á eftir að
segja Nínu Magneu í framtíðinni.
Þú sást hæfileikana í fólki,
þess vegna varstu góð manneskja
og kennari.
Þegar þú fékkst hugmyndir þá
framkvæmdirðu þær. Eins og öll
skemmtilegu afmælin þín og þeg-
ar þú hélst ástarveisluna fyrir
Magneu á Hótel Sögu. Þú varst
óútreiknanlegur, litríkur og
skemmtilegur.
Þú elskaðir veislur og mat og
að koma fram, sem þú gerðir oft
og eftirminnilega. Þú varst ekki
hræddur við álit annarra, hreinn
og beinn alltaf.
Sorgin er mikil elsku Siggi.
Börnin þín, afastelpurnar, Magn-
ea, ég og Kjartan eigum eftir að
sakna þín mjög mikið. En við ylj-
um okkur við allar fallegu minn-
ingarnar og sögurnar. Ég veit að
þú verður aðal hinum megin og
vonandi geturðu dansað, sungið
og borðað góðan mat og sagt sög-
ur.
Ég mun aldrei gleyma þér og
takk fyrir allt.
Þín tengdadóttir,
Elma Lísa.
Elsku afi, góða ferð áfram veg-
inn.
Það er mjög skrítið að mér líð-
ur ekki eins og þú sért farinn. Og
ég held að það sé af því að þú ert
ennþá hjá mér. Mér finnst eins
og ég sé umvafin þér.
Ég mun sakna þess að standa
yfir pottunum, þú í stólnum þín-
um við eldhúsborðið að leiðbeina
mér í matargerðinni. Að hand-
langa fyrir þig uppi í sumarbú-
stað.
Að segja þér frá draumum og
hversdegi á meðan þú situr og
hlustar af áhuga.
Að knúsa þig. Að skreyta af-
mæliskökur og piparkökuhús
með þér. Að fylgjast með þér
gera með Nínu og Klöru eins og
þú gerðir með mér. Og að vera
kölluð ástarengillinn hans afa
síns.
Ég er þakklát fyrir allan
stuðninginn og stemninguna og
svo þakklát fyrir að hafa fengið
að hafa þig hjá mér í uppvext-
inum. Ég er þakklát fyrir tilfinn-
inguna um að vera alltaf velkom-
in.
Nú ert þú ástarengillinn minn,
og tilhugsunin um þig og allar
minningarnar hlýja um hjarta-
rætur.
Það er gott að vita að nú líður
þér betur.
Takk fyrir að vera þú.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Prestshólum)
Þín,
Una.
Sigurður E.R.
Lyngdal
Fleiri minningargreinar
um Sigurð E.R. Lyngdal bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ Friðrik Guð-mundsson
fæddist 7. mars
1989 á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
nesja. Friðrik lést
2. júní 2020 á
heimili sínu að
Lyngmóa 17 í
Reykjanesbæ. For-
eldrar hans eru
Guðmundur Sig-
urðsson, f. 2. ágúst
1960 og Gunnfríður Friðriks-
dóttir, f. 11. júní 1958. Stjúp-
móðir Friðriks er Kolbrún
Geirsdóttir, f. 29. október 1954,
stjúpfaðir Friðriks er Antonio
tíð í Njarðvík og Reykjanesbæ.
Hann stundaði nám við grunn-
skóla Njarðvíkur, Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Símenntun á
Suðurnesjum og útskrifaðist frá
háskólabrú Keilis í janúar 2020.
Friðrik tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi af ýmsu tagi, m.a.
leikhópnum Bestu vinir í bæn-
um sem tengdist List án landa-
mæra í Reykjanesbæ og setti á
svið nokkur leikrit með hópn-
um. Hann stundaði söngnám
um tíma og var mjög iðinn við
að sækja tónleika svo eitthvað
sé nefnt. Hann tók virkan þátt í
starfi Pírata á Suðurnesjum og
starfaði um tíma við Aðgeng-
islausnir FG sem snerist um að
bæta aðgengi í fyrirtækjum og
veitingastöðum og veita þeim
ráðgjöf í aðgengismálum.
Útförin fer fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju 12. júní 2020
kl. 14.
Manuel Goncalves,
f. 2. janúar 1967.
Systkini Friðriks
eru: 1) Kolbrún
Guðmundsdóttir, f.
17. mars 1980, gift
Karli Kristjáni
Davíðssyni, f. 11.
maí 1977. Barn
þeirra er Kolbeinn
Friður Karlsson, f.
20. janúar 2014.
Áður átti Kolbrún
dótturina Sölku Snæbrá Hrann-
arsdóttur, f. 15. janúar 2003. 2)
Sigurður Guðmundsson, f. 14.
febrúar 1983, d. 6. apríl 2019.
Friðrik ólst upp og bjó alla
Þegar andlát ber að höndum
vill hugurinn oftar en ekki leita
aftur í tímann og finna þann stað
og tíma þegar við hjónin hittum
hann Friðrik okkar eða Frikka
eins og hann var kallaður og
bróður hans hann Sigurð.
Ekki líður það okkur úr minni
er við stóðum við tvo rafmagns-
hjólastóla, sem tveir bræður voru
bundnir við, gátu aðeins hreyft
hendur og höfuð til að stjórna
tækjunum, sem gerði þeim lífið
aðeins léttara.
Báðir voru þeir haldnir hinum
illskeytta Duchenne-sjúkdómi,
sem bar fyrst á um fimm ára ald-
ur.
En gleðin tók greinilega völdin
þegar gesti bar að garði, en með í
för var faðir þeirra, hann Guð-
mundur, og Kolbrún fósturmóðir.
Þetta voru duglegir drengir sem
létu það ekki í ljós hve miklar
þjáningar þeir höfðu gengið í
gegnum má segja allt sitt líf. Báð-
ir náðu þeir stúdentsprófi með
glæsibrag.
Siggi og Frikki komu um
hverja verslunarmannahelgi í
sumarhúsin okkar á Gaddstöðum
og þáðu góðar veitingar hjá föður
sínum og Kollu. Frikka skipaði
ég sem aðstoðarbrennustjóra og
ekki gleymi ég fallega brosinu
þegar minnst var á embættið. Nú
eru þeir bræður lausir við þær
þjáningar sem lífið lagði á þá.
Sigurður lést hinn 14. febrúar
2019, aðeins þrjátíu og sex ára
gamall, og Friðrik lést hinn 2.
júní 2020, þrjátíu og eins árs
gamall.
Blessuð sé minning þeirra
bræðra. Aðstandendum vottum
við samúð okkar.
Ólafur Hróbjartsson
og Kristín Geirsdóttir.
Friðrik
Guðmundsson