Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 ✝ Sigurjón ÁgústFjeldsted, fyrr- verandi skólastjóri, fæddist í Reykjavík 12. mars árið 1942 og ólst upp á Gríms- staðaholtinu. Hann lést á líknardeild Landspítalans 30. maí 2020. Hann lauk lands- prófi frá Gagnfræða- skólanum í Vonarstræti 1958, kennaraprófi frá KÍ 1962, stund- aði nám í sál- og uppeldisfræði við Kennaraháskóla Danmerkur 1965-66 og í dönsku og sálfræði 1979-80. Sigurjón var kennari við Hlíðaskólann í Reykjavík 1962- 67, skólastjóri Egilsstaðaskóla 1967-72, yfirkennari við Fella- skóla í Reykjavík 1972-74 og skólastjóri við Hólabrekkuskóla í Reykjavík frá 1974-2004. Sigurjón var fréttaþulur Rík- issjónvarpsins 1974-79, vara- borgarfulltrúi 1978-82 og 1986- 89 og borgarfulltrúi 1982-86. Hann sat í barnaverndar- og um- ferðarnefnd Reykjavíkur 1978- arinnar þ. á m. Hlíðaskóla þar sem kennaraferill hans byrjaði og mörg af hans barnabörnum voru við nám. Sigurjón kvæntist 20.8. 1965 Ragnheiði Óskarsdóttur, f. 1.2. 1943, kennara. Hún er dóttir Óskars Sigurðssonar, skipa- smiðs á Ísafirði og í Reykjavík, og Ástu Tómasdóttur klæðskera. Börn Sigurjóns og Ragnheiðar eru Ragnhildur Fjeldsted, f. 17.7. 1967, blómahönnuður og flugfreyja, Júlíus Fjeldsted, f. 3.7. 1974, cand.merc og fjármálastjóri AwareGO, Ásta Sigríður Fjeldsted, f. 31.1. 1982, verkfræðingur og framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs Íslands. Hálfsystir Sigurjóns, sam- mæðra, var Ása Ester Skafta- dóttir, f. 6.10. 1934, gift Davíð Bjarnasyni, sem bæði eru látin. Foreldrar Sigurjóns voru Júl- íus Lárusson Fjeldsted, f. 14.7. 1893, d. 25.9. 1974, verkamaður í Reykjavík, og Ágústa Sigríður Guðjónsdóttir, f. 16.6. 1903, d. 28.4. 1983, húsmóðir. Útför Sigurjóns fer fram í Dómkirkjunni 12. júní 2020 kl. 15. Streymt verður frá útförinni. Hægt er að nálgast hlekk á streymið á www.mbl.is/andlat. Slóð á streymið: https:// livestream.com/luxor/ sigurjonfjeldsted Stytt slóð á streymið: https:// tinyurl.com/ydf6mtpz 82, sat í fræðslu- og skólamálaráði Reykjavíkur frá 1982-90, var for- maður stjórnar Veitustofnana 1982- 86, var formaður og varaformaður stjórnar SVR 1982- 90 og fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd Nor- ræna félagsins um skeið. Allt frá unglingsárunum lék Sigurjón á trommur. Hann hóf feril sinn með hljómsveitinni Fal- con og spilaði síðar einnig á fjöl- mörgum dansleikjum með Sext- ett Berta Möllers. Sigurjón var fararstjóri á vegum Samvinnu- ferða-Landsýnar í Danmörku á tímabilinu 1980-90. Hann var frá unga aldri mjög virkur í fé- lagsstarfi Oddfellow-reglunnar á Íslandi þar sem hann reis til hæstu metorða. Hann léði rödd sína við gerð sjónvarpsþátta og auglýsinga og var virkur í þjóð- félagsumræðunni. Seinni ár tók hann að sér stundakennslu í dönsku við grunnskóla borg- Við pabbi vorum alla tíð mjög náin, hann var kærleiksríkur maður með gott næmi fyrir fólki og sterka tilfinningagreind sem var hans vöggugjöf. Hann var sjarmerandi og hreif fólk með sér hvar og hvert sem hann fór, hann var líka mjög snjall ræðumaður og það væri sannarlega gaman að rekja hér margar skemmtilegar minningar, sögur og samveru- stundir liðinna ára, bæði hér heima og ekki síst í Danmörku sem margir þekkja til. Ég er frumburður foreldra minna og man vel eftir pabba sem ungum manni, m.a. sem skóla- stjóra og fréttaþul á RÚV, sem þá var eina sjónvarpsstöð lands- ins og því þarf varla að segja að allir vissu hver pabbi minn var. Síðan tóku við krefjandi ár í borgarpólitíkinni í Reykjavík og var hann eins og þeytispjald út um allar grundir að sinna nefnd- ar- og trúnaðarstörfum í borgar- stjórn. Þegar skólastjóradegin- um lauk þurfti hann að vera mættur niður á RÚV að lesa fréttirnar, eða fara á stjórnar- fund með Veitustofnunum, SVR, Oddfellow og svo mætti lengi telja. Hann gaf sér þó alltaf tíma til að spjalla örlítið saman um hvernig dagurinn hefði verið hjá mér og hvort ég vildi ennþá ganga í sama skóla og hann var skólastjóri. Hann fann örlítið til með mér að vera dóttir skóla- stjórans. Pabbi var líka mjög hvetjandi maður, ráðagóður og einlægur. Hann hvatti mig ætíð vel í öll þau verk sem mig langaði til að gera, en hann sagði líka að ég yrði að gera það upp við sjálfa mig hvert ég vildi feta, því enginn annar gæti sagt til um það. Hann var góður leiðbeinandi, sagði hlutina af festu og umhyggju. Þegar ég var á fjórtánda ári og sótti um mitt fyrsta starf í blómabúð Alaska Breiðholti og bað hann að tala við eigandann fyrir mig, þá sagði pabbi: Nei Ragnhildur mín, það verður þú að gera sjálf, því ég er ekki að sækjast eftir þessu starfi. Þetta lagði dálítið línurnar fyrir mig að standa á eigin fótum á eigin forsendum. Að halda í hönd er nokkuð sem ég var alin upp við frá unga aldri alveg fram á síðasta dag. Við bjuggum mín fyrstu ár á Egils- stöðum og ég kyssti pabba minn bless á hverjum morgni, en síðan varð ég líka að endasendast inn í stofu og teygja mig út um gluggann til að taka í höndina á pabba áður en dagurinn hans byrjaði, það var hlý og örugg hönd. Þegar við fjölskyldan vor- um svo flutt til Reykjavíkur og ég kyssti pabba bless ráku nokkur skólabörn upp stór augu og fannst þetta dálítið sérstakt, en heima hjá mér var þetta okkar kveðja. Pabbahönd var best og ég man vel á unglingsárum ef við vorum á rölti saman fjölskyldan, þá seildist ég gjarnan þéttings- fast í höndina á pabba og skamm- aðist mín aldrei fyrir að leiða pabba minn, hér heima á Íslandi eða erlendis þar sem ég bjó þegar á fullorðinsár var komið. Þetta var okkar strengur og hefur allt- af verið, alveg fram á síðasta dag, þegar ég hélt í hönd pabba við andlátið. Hvíl í friði elsku pabbi – ég sakna þín. Þín dóttir, Ragnhildur. Það kom öllum Kaupmanna- hafnarbúum að óvörum á falleg- um sumardegi í júlí 2011 þegar kolsvört ský yfirtóku himininn á svipstundu með slíku úrhelli að stræti og kjallarar borgarinnar fylltust af vatni. Ég hljóp eins og fætur toguðu heim á Webersgade en í kjallaranum blasti við ófögur sjón. Kassar í geymslunni flutu hver um annan og ljóst að tjónið var mikið. Ég og nágrannarnir hömuðumst við að moka út vatni og dóti, en hugguðum okkur við að mögulega myndu trygginga- félög bæta skaðann. Hljómplöt- ur, námsbækur, gamlar myndir og fleira var leitt að missa, en það var ekki fyrr en ég sá að einn þessara gegnblautu pappakassa var kassinn með öllum handskrif- uðu bréfunum frá pabba, að hjartað sökk og tárin spruttu fram. Í hendingskasti hljóp ég upp í íbúð með rennblautan bunkann, dreifði úr bréfunum á gólfið í von um að geta þurrkað þau og bjargað. Bréf sem pabbi hafði ritað með sjálfblekungi höfðu runnið til og ekki bætti úr skák þegar sölt tár mín runnu of- an í óskýran textann. Að horfa á allar þessar sögur, minningar, hlýju kveðjur og hnyttni renna mér úr greipum var sárara en ég hefði nokkurn tímann trúað. Það var á þessari stundu, kappsöm og ung við nám í Kaupmannahöfn, að það rann upp fyrir mér hvað pabbi væri mér mikils virði og hvað raunveruleg verðmæti væru. Einstakt samband, vinátta og virðing, foreldrakærleikur og stuðningur, sem endurspeglaðist hér í fjöldanum öllum af bréfum sem við höfðum sent hvort öðru í áranna rás. Við vorum ávallt samrýnd og áttum auðvelt með að ræða sam- an. Ófáar lærdómsstundir voru við sófaborðið heima í Brekkuseli þar sem hann kenndi mér að lesa, teikna burstabæi og pýramída í þrívídd og reikna í huganum, milli þess sem við lögðum kapla eða spiluðum, yfirleitt rétt fyrir kvöldmat. Pabbi var óhræddur við að leyfa mér að prófa að eiga við alls kyns verkefni og var ég varla komin í fyrsta bekk þegar ég var farin að mála með honum uppi í Landi, hlúa að gömlum verkfærum, raka gras og jafnvel tálga. Hann gerði hlutina ein- hvern veginn alltaf áhugaverða og gætti þess að taka góð hlé inn á milli til að litlar hendur og fæt- ur gætu hvílt sig. Þá spurði hann mig út í hljóð fuglanna sem flugu í kring, hvað plönturnar hétu sem uxu í landinu eða mamma var nýbúin að gróðursetja, hvað fjöll- in og vötnin hétu. Þess á milli fékk maður frið til að einbeita sér að viðfangsefni dagsins – og ávallt fylgdi hæfilegt hrós við verklok. Pabbi var óhræddur við að ræða hlutina, lífið og var það oft- ar en ekki sem hann komst í þann gír þegar við sátum og hlustuðum á djass í stofunni heima. Undan- tekningalaust hóf hann að tromma létt með fingrunum og fylgdist ég alltaf með hvernig rú- bínhringurinn sveiflaðist með. Hann sagði mér sögur af æsku sinni, foreldrum og vinum, hversu heppinn hann hefði verið að ná í mömmu, þessa einstöku konu, og eignast þessa góðu fjöl- skyldu. Þessi reynslubolti og töff- ari sem hann var gat auðveldlega orðið meyr, sem sýndi hversu mikill tilfinningamaður hann var. Sakna hans meira en orð fá lýst. Hvíl í friði elsku pabbi. Þín Ásta Sigríður (Ásta Sigga). Hljóðið úr Sóló-eldavélinni er róandi og rigningarskúr dynur á gluggunum uppi í Hærribæ. Þarna, í bústað fjölskyldunnar, sitjum við pabbi bara tveir og ræðum saman um lífið. Það var endalaust hægt að ræða við pabba um gamla tíma. Hjá hon- um spratt fólk ljóslifandi fram sem maður hafði sjálfur ekki fengið tíma til að kynnast. Heiti á gömlum verkfærum og notkun þeirra voru rifjuð upp og við fór- um yfir það helsta sem þurfti að ná að gera það sumarið. „Er á meðan er“ var hann vanur að segja og það var lýsandi fyrir það hvernig hann naut stundarinnar. Það var hins vegar líka alltaf hægt að leita til hans eftir góðum ráðum um það hvernig best væri að leggja upp framtíðina hjá manni sjálfum. Sérstök augnablik úr hvers- dagslífinu búa oft til bestu minn- ingarnar. Pabbi óð með mér sem litlum strák í kafaldsbyl og snjó upp að mitti til þess eins að kom- ast í sunnudagsbíó í Álfabakkan- um. Sunnudagsbíltúrar á Júnó-ís þar sem maður fékk að spila í krónuspilinu og svo var keyrt um Vesturbæinn og niður á höfn. Réttir í fyrsta sinn á ævinni hjá ættingjum í Haukatungu þar sem ský birtist okkur sem leit út eins og geimskip. Svo kom það fyrir að hann settist fyrir aftan trommusettið og byrjaði að spila. Þá var ég alltaf jafnundrandi og stoltur. Pabbi var ekki bara kennari í gráum buxum og bláum blazer. Lífið er kaflar. Mér finnst að einn besti kaflinn hafi byrjað þegar þú gast loksins hætt sem skólastjóri í Hólabrekkuskóla. Þá færðist einhvern veginn meiri ró yfir allt saman. Þær voru margar yndislegar heimsóknirnar hjá mömmu og pabba til okkar fjöl- skyldunnar þegar við bjuggum í Danmörku. Þá var tími til að staldra við í hverjum strandbæn- um á eftir öðrum, njóta þess að borða góðan mat og vera til. Þarna var enginn flýtir og þá leið þér oftast best. Í einni af þessum heimsóknum reyndist pabba erf- itt að kveðja litla nafna sinn á brautarpallinum. Það er minning sem ég mun geyma í hjarta mínu alla tíð. Ég kynntist djassi í gegnum pabba. Hann las Downbeat sem strákur og gat romsað út úr sér alls kyns nöfnum sem ég hafði aldrei heyrt um. Við gátum líka farið gegnum hvers konar taktur var spilaður í laginu og hann trommaði með. Pabbi átti alltaf til nóg af orðum á íslensku og lagði sig alltaf fram um að tala gott íslenskt mál. En hann gat líka talað um „gúmmelaði“ og „slúbberta“ þegar það hentaði. Sigurjón var sérdeilis frábær afi. Öll afabörnin löðuðust að þessum dimmraddaða manni sem gat sagt skemmtilegar sögur og veitt fulla athygli öllu því sem börnin höfðu að segja honum. Hann þurfti engar vögguvísur til að svæfa börnin. Það var nóg fyr- ir hann að vera bara nálægur. Núna ertu sjálfur sofnaður svefninum langa elsku pabbi minn. Þú ert vel að hvíldinni kom- inn eftir mörg erfið ár. En mikið óskaplega á ég eftir að sakna þín. Þinn sonur, Júlíus Fjeldsted. Ég var stoltur af því að eiga Sigurjón Fjeldsted sem tengda- föður. Á sama tíma og þau hjónin hann og Ragnheiður Óskarsdótt- ir ólu upp þrjú börn og byggðu myndarlegt þriggja hæða hús í Breiðholti var Sigurjón borgar- fulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, um tíma fréttaþulur hjá RÚV og ekki síst skólastjóri í einum fjölmennasta grunnskóla landsins, Hólabrekkuskóla, þar sem hann starfaði í 30 ár. Ótrú- legur maður. Iðulega hitti ég gamla nem- endur hans sem segja mér sögur af honum, sem sýna hversu góður maður hann var og hversu já- kvæð áhrif hann hafði iðulega á nemendur sína. Þannig sagði frændi minn, sem var hjá honum í Hólabrekkuskóla, að strákarnir í hans bekk, sem gerðu kennurum gjarnan lífið leitt m.a. með snjó- boltakasti þegar færi gáfust, hefðu verið fljótir að snúa við blaðinu væru þeir kallaðir á fund Sigurjóns skólastjóra. Var það fyrst og fremst vegna þess að hann talaði við þá í hreinskilni en af velvild, sem skilaði honum þeirra vinsemd og virðingu. Sigurjón var mikill fjölskyldu- maður og á þeim árum sem ég þekkti hann fann ég vel hversu sterk, heilsteypt og samheldin fjölskylda hans er. Það er ekki sjálfgefið og eiga hann og Ragn- heiður eiginkona hans allan heið- ur af því. Börnin þrjú, þau Ragn- hildur, Júlíus og Ásta Sigríður, voru honum mjög nákomin og kom það vel í ljós þegar á reyndi undir lokin. Fallegt var að fylgj- ast með hvernig þau vöktu saman hjá honum allan sólarhringinn síðustu ævidaga hans. Ég held að enginn geti óskað sér betri stuðn- ings og hlýju við lífslok. Blessuð sé minning Sigurjóns Fjeldsted. Ég kveð hann með söknuði. Jákvæð áhrif hans á annað fólk munu lifa áfram í gegnum börn hans og barnabörn. Bolli Thoroddsen. Sigurjón tengdafaðir minn kvaddi í maílok eftir langan veik- indaferil en nokkuð stuttan loka- sprett. Ég kynntist honum sum- arið 1998 og sá þá strax að þar fór einstaklega sjarmerandi, tilfinn- ingaríkur og hlýr maður. Hann tók verðandi tengdadóttur sinni einstaklega vel, sýndi mér aldrei annað en virðingu og vinsemd og þau Ragnheiður opnuðu heimili sitt og hjarta fyrir mér. Sigurjón var mikil félagsvera og sögumaður, einstaklega traustur og mikill vinur vina sinna. Það var gaman að heyra hann lýsa vinafundum, hvort sem þeir höfðu átt sér stað 60 árum áður eða fyrr þann sama dag. Alltaf voru lýsingarnar ljóslifandi svo mér fannst ég þekkja fólkið sem hann lýsti, hvort sem það voru gamlir vinir úr Melaskóla, frá Danmerkurárunum, Brekku- sels-uðinu eða af Grensás. Sigurjón var með einstakt minni og sagði skemmtilega frá með fallegu röddinni sinni. Hann lagði mikið upp úr því að tala góða íslensku og ég kom aldrei að tómum kofanum hjá honum þeg- ar ég vildi ræða merkingu orða- tiltækis eða uppruna málsháttar. Barnabörnin elskuðu þennan hlýja, mjúka, djúpraddaða afa sem var svo gott að sitja í fanginu á þegar þau voru lítil. Síðar kenndi hann þeim að gera bestu skutlur í heimi. Mér eru sérstak- lega minnisstæðar heimsóknir hans til okkar þegar við bjuggum í Árósum, hvað hann naut þess að upplifa námsmannalífið í Dan- mörku og leika við elsta barna- barnið sitt og nafna. Við Sigurjón áttum það sameiginlegt að finn- ast gott að borða góðan mat og deildum dálæti á illa lyktandi ost- um. Gamli Óli og fleiri félagar hans fylltu því ísskápinn okkar meðan hann var í heimsókn og ég naut góðs af því. En þrátt fyrir að Sigurjón væri mjög alþjóðlegur og nyti sín einna best á ferðalög- um erlendis var hann líka með mjög þjóðlegan matarsmekk. Þannig voru svið eða sviðasulta nokkuð oft í matinn hjá þeim hjónum á síðustu árum og eina skiptið sem honum var neitað um eitthvað á líknardeildinni var þegar hann óskaði eftir því að fá signa grásleppu í matinn. Ég sé hann fyrir mér núna í drauma- landinu að gæða sér á þjóðlegu góðgæti ásamt pabba mínum heitnum sem kvaddi rétt á undan Sigurjóni. Ég kveð Sigurjón með sorg í hjarta en þakklæti fyrir minning- ar um góðan mann. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. (Hannes Pétursson) Áslaug Salka Grétarsdóttir. Þegar ég heyrði af andláti Búdda, en það gælunafn notuðu hans nánustu ættingjar og vinir, reikaði hugur minn aftur um rúm 50 ár til þess tíma er ég dvaldist sumarið 1968, þá tíu ára gömul, á Egilsstöðum hjá honum og föð- ursystur minni Ragnheiði. Ég var þeirrar ánægju aðnjótandi að verja með þeim yndislegu og sól- ríku sumri. Þau reyndust mér mjög vel og eru ýmsar góðar og fallegar minningar sem koma upp í huga minn frá þeim tíma. Ég og Ragnheiður frænka höfum verið mjög nánar, en hún hafði oft passað mig þegar ég var smá- barn, og var því komið að mér að endurgjalda greiðann og aðstoða hana með Ragnhildi, elstu dóttur þeirra, sem var þá tæplega eins árs. Ég hafði alla tíð frá því ég man eftir mér kallað Ragnheiði eingöngu frænku og hafði Búddi gaman af því þegar ég síðar skrif- aði í jólakortin til þeirra Frænka með stóru „F“. Hann gantaðist með það að núna væri ég end- anlega búin að skíra hana Frænku, sem mér fannst mjög eðlilegt enda uppáhaldsfrænkan mín. Frænka og Búddi leyfðu mér að vera þátttakandi í und- irbúningi fyrir eins árs afmælis- veislu Ragnhildar. Frænka bjó til púðursykurstertu sem var í miklu uppáhaldi hjá mér, og ég fékk leyfi til að vera plötusnúður í veislunni og spila tónlist með Hljómum. Það er margt sem er Sigurjón Á. Fjeldsted Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR BJARNADÓTTUR, sem lést 24. maí. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Deildar 3 á HSN Sauðárkróki. Bjarni Pétur Maronsson Laufey Haraldsdóttir Sigurlaug Helga Maronsd. og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.