Morgunblaðið - 12.06.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
50 ára Ingi er Skaga-
maður en býr í Reykja-
vík. Hann er tölvunar-
fræðingur frá HÍ og er
teymisstjóri á Miðstöð
rafrænna heilbrigðis-
lausna hjá landlækni.
Maki: Auður Jóhann-
esdóttir, f. 1975, rekur verslunina Kokku
ásamt fjölskyldu sinni.
Börn: Saga, f. 2002, Jóhanna Helga, f.
2004, Halla Guðrún, f. 2009, og Árni
Steinar, f. 2012.
Foreldrar: Ingi Steinar Gunnlaugsson, f.
1947, fv. skólastjóri, og Helga Guð-
mundsdóttir, f. 1947, fv. bréfberi, búsett
á Akranesi.
Ingi Steinar
Ingason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ættir að reyna að sjá fegurðina í
hversdagslegum hlutum. Ekki reyna að
kristna þá sem verða á vegi þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Alls konar tækifæri til aukinnar mennt-
unar og ferðalaga eru í spilunum. Jafnvel
verstu óvinir þínir fá tækifæri til þess að
koma saman og í friði og ná hagstæðum
samningum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt verkið virðist erfitt skaltu ekki
bakka. Settu þér það markmið að sýna þol-
inmæði og kurteisi í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Annríki þitt kallar á tíma fyrir slökun.
Taktu hlutina í þínar hendur og gerðu þær
leiðréttingar sem tryggja afkomu þína.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður að leggja þig allan fram til
þess að geta staðið við allar þínar skuldbind-
ingar. Gerðu þér því far um að kynna þér mál-
in sem ítarlegast áður en þú tekur afstöðu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er lag til að koma hugmyndum
þínum á framfæri. Núna er tími til að gera
breytingar til hins betra. Allt á sér sinn stað
og sína stund.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er allt á ferð og flugi í kringum þig
og þú ættir bara að láta það eftir þér að taka
þátt í leiknum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það léttir lífið að slá á létta
strengi en mundu að öllu gamni fylgir nokkur
alvara. Láttu til skarar skríða en gættu þess
þó að fara ekki of hratt yfir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að deila velgengni þinni
með þeim sem standa þér næst. Vertu hvergi
smeykur því þú hefur alla burði til að vinna
verkið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er dagurinn sem þú hefur
beðið eftir til þess að hefjast handa við nýtt
verkefni. Gerið fyrst kröfur til ykkra sjálfra áð-
ur en þið spyrjið hvað aðrir geti gert fyrir ykk-
ur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til að koma hlut-
unum þannig fyrir að þú getir verið ánægður
með útkomuna. Klisjum hættir til þess að
vera sannar, þannig verða þær að klisjum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur ákveðna hugmynd um
hvernig siðsamt og hamingjuríkt líf eigi að
vera. Ekki einblína á það sem gengur illa
heldur það sem gengur vel.
að gefa ungum efnilegum tónlistar-
mönnum tækifæri til að koma fram.
Elísabet hefur komið fram víða um
heim, bæði með sinfóníuhljóm-
sveitum og smærri hópum. Hún
hefur leikið með Caput-hópnum frá
stofnun og með Kammersveit
Reykjavíkur um árabil. „Kammer-
tónlist er mjög mikilvægur hluti af
starfi mínu og m.a. leik ég í fiðlu-
og hörpudúói með Laufeyju Sig-
urðardóttur, selló- og hörpudúói
með Gunnari Kvaran og í tríói með
Björgu Þórhallsdóttur sópran og
Himari Erni Agnarssyni orgelleik-
ara.“ Elísabet hefur þrívegis fengið
boð um að spila á World Harp
Congress, 1993, 2008 og 2020. „En
Að loknu píanókennaranáminu
fór Elísabet til framhaldsnáms í
hörpuleik við Konunglega kons-
ervatoríið í den Haag, Hollandi þar
sem kennari hennar var Edward
Witsenburg. Hún hlaut námsstyrk
frá hollenska ríkinu árið 1984, út-
skrifaðist með hörpukennarapróf
1985 og einleikarapróf 1987. Hún
er fyrsti Íslendingurinn, sem er
borinn og barnfæddur hér á landi,
til að útskrifast úr hörpunámi.
Stuttu eftir útskrift var dúó
Elísabetar og flautuleikarans Pet-
ers Verduyns Lunels tekið inn í
Young Musician-stofnunina í Hol-
landi. YM, undir verndarvæng Ye-
hudis Menuhins, hafði að markmiði
E
lísabet Waage fæddist
12. júní 1960 í
Reykjavík og ólst upp
á Háaleitisbrautinni.
Hún æfði samkvæm-
isdansa þegar hún var krakki og
fór svo að stunda djassballett á
unglingsárunum og allt þar til hún
eignaðist son sinn.
Tónlist var allt um kring hjá
Elísabetu á æskuárunum enda faðir
hennar í Sinfóníuhljómsveit Íslands
og mamma hennar í Þjóðleikhús-
kórnum. „Ég heyrði því allt sem
var að gerast í Þjóðleikhúsinu og
mér fannst ótrúlega gaman að fara
á hljómsveitaræfingar með pabba.
Man eftir mér dansandi milli bekkj-
anna og svo vínarbrauði með körl-
unum í hléinu. Þegar pabbi var að
spila í Bandaríkjunum og við fjöl-
skyldan fórum með út var erfitt að
að draga mig frá æfingunum þegar
mamma vildi fá mig út í sólina.“
Fleiri í fjölskyldunni voru í tónlist-
inni, en föðuramma hennar var
systir Maríu Markan. „Amma hafði
ekki síðri rödd en María, en hún
var eldri og byrjaði snemma að
búa. Ég man varla eftir fjölskyldu-
boðum þar sem þær voru ekki að
syngja, gjarnan í töluverðri sam-
keppni hvor við aðra.“
Elísabet gekk í Álftamýrarskóla
og tók landspróf í Ármúlaskóla.
Hún varð stúdent frá MH 1979 á
nýmála- og tónlistarbraut og varð
dúx. „Ég söng í Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð og lærði
mikið af Þorgerði Ingólfsdóttur.
Halldór Haraldsson kenndi mér á
píanó frá átta ára aldri og þar til
ég útskrifaðist með píanókennara-
próf frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1982. Monika Abendroth
kenndi mér á hörpu hér á landi. Ég
byrjaði þegar ég var þrettán ára,
en það hefði ekki getað gerst nema
af því pabbi var í Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Það var ekki boðið upp á
hörpunám en ég hafði séð þátt í
sjónvarpinu með Leonard Bern-
stein þar sem spilað var á hörpu og
þetta kveikti í mér. Pabbi vissi af
einhverju hörpuskrifli í kjallaranum
í Háskólabíói og ég fékk að nota
það.“
þinginu í ár var frestað til 2021 og
munu sex hörpuleikarar héðan
flytja íslenska sextetta.“ Elísabet
hefur verið kennari við Tónlistar-
skóla Kópavogs, þar sem hún býr,
frá árinu 2002 en fram að því bjó
hún í Hollandi.
Fjölmörg tónskáld hafa samið
tónverk fyrir Elísabetu, einleik,
kammertónlist og konserta. „Það er
mikill heiður að tónskáld hafi samið
fyrir mig. Harpan þróaðist seint og
því eru göt í tónbókmenntunum.
Þar af leiðandi spila hörpuleikarar
mikið af nýrri tónlist eða frá lokum
19. aldar þegar hljóðfærið var kom-
ið í það form sem það er í dag. En
ég leik líka oft eldri verk sem sam-
in voru fyrir önnur hljóðfæri og vel
þá verk sem hæfa hörpunni.“
Elísabet hefur gert margar upp-
tökur fyrir Ríkisútvarpið og -sjón-
varpið og hljóðritað fjölda geisla-
diska. Þeirra á meðal eru diskar
með Peter Verduyn Lunel flautu-
leikara, Gunnari Kvaran sellóleik-
ara og Laufeyju Sigurðardóttur
fiðluleikara. Með Graduale Nobili
kom út diskurinn A Ceremony of
Carols sem fékk afar góðar um-
sagnir í BBC Music Magazine og
Fanfare Magazine auk þess að vera
tilnefndur til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna 2013, en á diskinum
fer harpan með mikilvægt hlutverk;
m.a. þrjá einleikskafla.
„Ég nýt þess að sækja tónleika
Elísabet Waage hörpuleikari – 60 ára
Samstarfsfólk Laufey, Björg, Elísabet og Gunnar eftir tónleika sem Elísabet hélt í tilefni fimmtugsafmælis síns.
Tónlistin er allt um kring
Börnin Enar Kornelius og María Sól-
ey í Amsterdam fyrir þremur árum.
Hörpuflutningar Elísabet og kenn-
ari hennar, Edward Witsenburg.
40 ára Janus er
Reykvíkingur, ólst
upp í Vogahverfinu en
býr í Vesturbænum.
Hann er framleiðslu-
stjóri á Viðskipta-
blaðinu.
Maki: Heiða Björg
Pálmadóttir, f. 1979, forstjóri Barna-
verndarstofu.
Dætur: María Sveinbjörg, f. 2011, og
Soffía Margrét, f. 2015.
Foreldrar: Sigurjón Egilsson, f. 1954,
ritstjóri, búsettur í Kópavogi, og María
Friðjónsdóttir, f. 1954, skrifstofumaður
hjá Syslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu, búsett í Reykjavík.
Janus
Sigurjónsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is