Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
titlum. Eins verður áhugavert að sjá
hann yfirfæra hugmyndafræði sína í
fótbolta yfir á mun betri leikmanna-
hóp en hann hafði áður til umráða.
Þá þarf Óskar að hitta á hárrétta
blöndu af árangursríkri og áferðar-
fallegri knattspyrnu.
Hann er með nóg af mönnum í
hópi sínum sem kunna að fara vel
með boltann, og eiga að geta matað
danska skriðdrekann Thomas
Mikkelsen sem ætti að fá næga
þjónustu í sumar til að vera sterkur
kandídat í markakóng deildarinnar.
Ásamt því að Höskuldur Gunn-
laugsson, Gísli Eyjólfsson og Guðjón
Pétur Lýðsson kunna allir ágætlega
þá list að skora mörk.
Virkar uppskriftin aftur?
KR-ingar þóttu ekki sérstakir
meistarakandídatar fyrir síðasta
tímabil og þrátt fyrir yfirburðasigur
þeirra á Íslandsmótinu 2019 og nán-
ast óbreytt lið virðast sárafáir telja
þá líklega til sams konar afreka á
þessu keppnistímabili.
Að sjálfsögðu er allsendis óvíst að
sama uppskriftin virki tvö ár í röð
hjá Rúnari Kristinssyni. Honum var
legið á hálsi í fyrra fyrir að vera með
of gamalt lið og nú eru gömlu menn-
irnir orðnir ári eldri. Þeir yngri
reyndar líka.
En gríðarlega sterk liðsheild, sem
náði til tuttugu samstilltra leik-
manna, þar sem Óskar Örn Hauks-
son og Kristinn Jónsson blómstruðu
sérstaklega var grunnurinn að sigri
KR. Það er ekki víst að Rúnar nái að
halda þeim sem minna spila í hópn-
um jafn ánægðum tvö ár í röð. Í
fyrra kom einn ungur leikmaður
óvænt inn í liðið, Finnur Tómas
Pálmason, og skipaði sér í hóp bestu
miðvarða deildarinnar. Í ár gæti
miðjumaðurinn tvítugi Stefán Árni
Geirsson leikið sama leik og brotið
sér leið inn í liðið eftir góða frammi-
stöðu með Leikni R. sem lánsmaður
í fyrra.
KR mun ekki leika áferðarfallega
knattspyrnu – ef leiftrandi tilþrif
Óskars og Kristins eru undanskilin
– en árangursríka. Atli Sigurjónsson
gæti reyndar hæglega bæst í hóp
skemmtikraftanna. Leikmenn KR
kunna kúnstina að vinna fótbolta-
leiki og fyrir vikið verða þeir ekki
auðunnir frekar en í fyrra. En það
verður erfiðara að vinna meistaratit-
ilinn aftur.
Eru FH-ingar vanmetnir?
Einhverra hluta vegna eru FH-
ingar ekki taldir með í vangaveltum
um verðandi Íslandsmeistara. Flest-
ir gera ráð fyrir að þeir verði fyrst
og fremst í baráttu við Stjörnuna og
Víking um Evrópusæti.
En ætti lið með þá reynslu og
gæði sem eru til staðar í hópnum hjá
Ólafi H. Kristjánssyni ekki að geta
endað í einu af þremur efstu sæt-
unum? Það sem helst gæti staðið
FH-ingum fyrir þrifum er skortur á
breidd, því þeir mega ekki við því að
verða fyrir miklum skakkaföllum á
komandi tímabili.
Baldur Sigurðsson og Daníel Haf-
steinsson koma á miðjuna fyrir Dav-
íð Þór Viðarsson og Brand Olsen og
verða þar við hlið Björns Daníels
Sverrissonar, en annars verður
byrjunarlið FH svipað og á síðasta
tímabili. Hörður Ingi Gunnarsson
eykur samkeppnina á vinstri vængn-
um. En Kristinn Steindórsson, Cé-
dric D’Ulivo og Jákup Thomsen eru
farnir og það ætti að opna dyrnar
fyrir yngri leikmönnum í Kapla-
krika. Þar ætti helst Þórir Jóhann
Helgason að láta meira að sér kveða,
en þar er efnilegur miðjumaður á
ferð.
Með Steven Lennon, Atla Guðna-
son, Morten Beck Guldsmed og Jón-
atan Inga Jónsson í fremstu víglínu
eru FH-ingar alltaf líklegir til að
skora mörk. Í fyrra var vandamálið
hins vegar hve mörg þeir fengu á
sig. Takist Ólafi að loka betur fyrir
þann leka getur FH-liðið náð langt í
ár.
Lakasti árangur frá 2012?
Gangi spáin eftir og Stjarnan end-
ar í fimmta sætinu í ár verður það
lakasti árangur Garðabæjarliðsins í
deildinni frá árinu 2012, en jafn-
framt yrði Stjarnan tíunda árið í röð
í hópi fimm bestu liða landsins.
Lið Stjörnunnar er mjög lítið
breytt frá því í fyrra en þjálfara-
teymið er tvíeflt þar sem Ólafur Jó-
hannesson er kominn við hlið Rún-
ars Páls Sigmundssonar. Það verður
afar áhugaverð samvinna.
Stjarnan hefur endurheimt
markahæsta mann sinn í efstu deild,
Halldór Orra Björnsson, í stað Bald-
urs Sigurðssonar fyrirliða, og fær
Emil Atlason í sóknarleikinn í stað
Guðmundar Steins Hafsteinssonar.
Björn Berg Bryde er kominn eftir
lánsdvöl hjá HK og eykur breiddina
í vörninni. Liðið byrjar mótið án
Þórarins Inga Valdimarssonar, sem
sleit krossband um mitt síðasta
tímabil.
Mikil reynsla er í hópi Garðbæ-
inga og það er útilokað að afskrifa
þá í baráttunni um efstu sæti
deildarinnar. Fimm leikmenn eru
eftir úr meistaraliðinu frá 2014,
ásamt Rúnari þjálfara. Í fyrra missti
Stjarnan naumlega af Evrópusæti
og þar réð úrslitum að Rúnari og
mönnum hans tókst ekki að vinna
leik gegn neinu af hinum liðunum
sem voru í fimm efstu sætunum. Það
þarf að breytast, ætli Stjörnumenn
sér ofar.
Þurfa að taka stór skref
Eru Víkingar á leið í baráttuna
um Íslandsmeistaratitilinn í ár?
Arnar Gunnlaugsson þjálfari hefur
ekki hikað við að lýsa því yfir að
hans strákar séu klárir í þann slag
og ljóst er að metnaðurinn í Foss-
voginum er mikill eftir sigurinn í
bikarkeppninni í fyrra.
Arnar hefur byggt upp skemmti-
legt lið þar sem jaxlarnir Kári Árna-
son, Sölvi Geir Ottesen og Halldór
Smári Sigurðsson eiga að sjá til þess
að halda mörkum mótherjanna í lág-
marki, ásamt því að Ingvar Jónsson
er kominn í markið. Þórður Ingason
er áfram með og mun veita Ingvari
harða keppni. Hörku markvarðapar
þar á ferð.
Síðan eru það ungu strákarnir á
miðjunni og í framlínunni sem þurfa
að taka stóra skrefið og sýna að þeir
séu tilbúnir í að skáka liðum á borð
við Val, Breiðablik og KR. Þar
sakna Víkingar Guðmundar Andra
Tryggvasonar, og líka Kwame Quee
sem var drjúgur sem lánsmaður
seinnihlutann í fyrra.
Nú þarf Óttar Magnús Karlsson
að láta heldur betur til sín taka og
festa sig í sessi sem einn besti fram-
herji deildarinnar. Það verður hins
vegar ekki nóg, nokkrir af hinum
þurfa að hætta að vera efnilegir og
verða góðir á þessu tímabili ef Vík-
ingar ætla sér að fara lengra en í
sjötta sætið sem þeim er spáð.
Leikmannahópa liðanna sex og
allar breytingar á liðunum má sjá á
mbl.is/sport.
Íslandsmeistarar 2020
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
Ítalska knattspyrnufélagið Bologna
hefur fest kaup á 17 ára gömlum
sóknarmanni úr HK, Ara Sigurpáls-
syni, og lánar hann aftur til Kópavogs-
félagsins þannig að hann leikur með
því á komandi keppnistímabili. Ari,
sem lék tvo fyrstu leiki sína í efstu
deild með HK síðasta haust og varð þá
yngsti leikmaðurinn til að spila með
félaginu í deildinni, hefur leikið 20
leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann
var í láni hjá Bologna í vetur og spilaði
með U17 ára liði félagsins þar sem
hann skoraði fjögur mörk og átti átta
stoðsendingar í tólf leikjum.
Fylkir hefur styrkt enn frekar hóp-
inn fyrir baráttuna á Íslandsmóti
kvenna í knattspyrnu í sumar og feng-
ið til sín varnarmanninn Kolbrúnu
Tinnu Eyjólfsdóttur frá Stjörnunni.
Kolbrún Tinna er tvítug og á að baki
sex ár í meistaraflokki með Fjölni,
Haukum og Stjörnunni. Hún hefur leik-
ið 23 leiki í efstu deild og skorað eitt
mark og þá á Kolbrún að baki 24 leiki
með yngri landsliðum Íslands.
Handknattleiksdeild Selfoss hefur
samið við tvo erlenda leikmenn. Þær
heita Ivana Raickovic og Lara Zidek
og koma báðar frá Førde IL í Noregi.
Ivana er 19 ára gömul og kemur frá
Svartfjallalandi. Hún er efnilegur línu-
maður sem hefur verið viðloðandi U-21
landslið Svartfellinga. Lara er 23 ára
gömul skytta frá Króatíu. Selfoss leik-
ur í næstefstu deild en liðið var nálægt
því að komast upp í efstu deild á síð-
asta Íslandsmóti. Miðað við þessi tíð-
indi virðist liðið til alls líklegt.
Knattspyrnukonan Eygló Þor-
steinsdóttir er gengin til liðs við
Hauka, en þetta kemur fram á heima-
síðu félagsins. Eygló skrifar undir eins
árs samning við og kemur til Hauka frá
uppeldisfélagi sínu Val en hún lék sem
lánsmaður með HK/Víkingi í úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð.
Eygló á að baki sextán leiki í efstu
deild og þá á hún að baki níu leiki fyrir
yngri landslið Íslands en hún er fædd
árið 2000. Þá hefur Birna Kristín Ei-
ríksdóttir skrifað undir lánssamning
við Hauka sem gildir út þetta tímabil
en hún kemur til félagins frá Fylki.
Birna á að baki átta leiki í efstu deild
með uppeldisfélagi sínu Fylki.
Efnilegasti leikmaður Íslandsmóts-
ins í körfuknattleik 2018-2019, Birna
Valgerður Benónýsdóttir, mun færa
sig um set í Bandaríkjunum næsta
vetur. Birna er í Bandaríkjunum í námi
og skiptir nú um skóla. Hún var síð-
asta vetur í Arizona en verður í New
York-ríki næsta vetur. Mun hún leika
með Binghamton Bearcats í háskóla-
körfuboltanum, NCAA, getur leikið
þrjú tímabil þar. Þar leikur einnig Há-
kon Örn Hjálmarsson sem lék áður
með ÍR hér heima.
Birna lék með
Keflavík áður
en hún hélt
utan og hefur
leikið með öll-
um landsliðum
Íslands. Beth-
ann Shapiro
Ord, þjálfari
Binghampton,
segir Birnu nýt-
ast liðinu vel í teign-
um en hún sé auk
þess mjög fjöl-
hæfur leik-
maður.
Eitt
ogannað
Ekki virtust kylfingarnir ryðgaðir
þegar PGA-mótaröðin í golfi fór af
stað á nýjan leik í gær. Fyrsta mót-
ið í þrjá mánuði, Charles Schwab
Challenge, hófst í Texas í Banda-
ríkjunum en án áhorfenda.
Ólympíumeistarinn Justin Rose
og Harold Wagner III eru efstir á
frábæru skori. Þeir léku á 63 högg-
um og voru á sjö höggum undir pari
Colonial-vallarins.
Fjórir kylfingar skiluðu inn skori
upp á 64 högg. Einn þeirra er Just-
in Thomas og búast má við því að
hann og Rose geti fylgt þessari
byrjun vel eftir. Margir snjallir
kylfingar léku einnig vel. Bryson
DeChambeau, Gary Woodland,
Jordan Spieth og Xander Schauf-
fele eru á meðal þeirra sem voru á
65. Rory McIlroy og Brooks
Koepka, sem eru númer eitt og þrjú
á heimslistanum, léku á 68 höggum.
Ekki voru þó allir ferskir eftir
hléið. Rickie Fowler var til að
mynda á þremur yfir pari og Dustin
Johnson á höggi yfir pari.
kris@mbl.is
AFP
Texas Justin Rose á hringnum í gær. Hann fékk 11 pör og 7 fugla.
Afar góð skor þrátt
fyrir langt hlé
Gangi áætlanir NBA-deildarinnar
eftir að keppni hefjist að nýju hinn
31. júlí er útlit fyrir að nýliðavalið
fyrir næsta keppnistímabil verði
ekki fyrr en 15. október. Úrslita-
keppninni mun ljúka í október sam-
kvæmt áætlunum og næsta tímabil
gæti hafist 1. desember.
Nýliðavalið fer vanalega fram í
júní og verður þetta í fyrsta skipti
síðan 1975 sem nýliðaval NBA er
ekki í júní. Nú mun það fara fram í
Barclays Center-höllinni í Brook-
lyn í New York. Jón Axel Guð-
mundsson verður þá ef til vill í höll-
inni en hann gefur kost á sér í
nýliðavalinu eins og Morgunblaðið
hefur greint frá. Til stóð að úr-
slitakeppnin í deild Jóns í há-
skólakörfuboltanum, NCAA, færi
fram í þessari höll í vetur en henni
var aflýst.
Jón Axel þarf að bíða þolin-
móður fram á haust til að komast
að því hvort draumurinn um að
komast að hjá NBA-liði verði að
veruleika. Jón tjáði Morgunblaðinu
á dögunum að hann væri með það í
forgangi og ósennilegt væri að
hann myndi taka tilboði frá liði í
Evrópu fyrr en hann fær úr því
skorið hvort hann komist í NBA.
Þá er einnig stefnt að því að lott-
eríið svokallaða verði 25. ágúst. Þá
er dregið um í hvaða röð NBA-liðin
fá að velja í nýliðavalinu. Átti það
að fara fram 4. júní síðastliðinn.
Liðin átta sem ekki verða með þeg-
ar til stendur að ljúka tímabilinu
verða í pottinum. Golden State
Warriors, New York Knicks, Cleve-
land Cavaliers, Detroit Pistons,
Atlanta Hawks, Chicago Bulls,
Charlotte Hornets og Minnesota
Timberwolves. kris@mbl.is
Bið hjá Jóni Axel
eftir nýliðavalinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsleikur Jón Axel í leik gegn
Sviss. Clint Capela er til varnar.