Morgunblaðið - 12.06.2020, Side 28

Morgunblaðið - 12.06.2020, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. júní 2020BLAÐ Teiknimyndafyrirtækið Pixarhefur notið gífurlegrar vel-gengni allt frá því þaðsendi frá sér fyrstu Leik- fangasöguna árið 1995 sem jafnan er talin með bestu teiknimyndum sög- unnar. Má velgengnina þakka góðum og hugmyndaríkum sögum, skemmtilegum og litríkum per- sónum og frábærri kvikun. Pixar hefur verið í fararbroddi tölvugerðra teiknimynda og árið 2006 keypti ris- inn Disney það á 7,4 milljarða banda- ríkjadala sem sýnir hversu ógurlega verðmætt það er. Áfram hélt vel- gengni Pixar og hafa myndir á borð við Wall-E, Upp og Leikfangasaga 2, 3 og 4 fengið afbragðsdóma hvar- vetna. Onward, eða Áfram eins og hún heitir á íslensku, ber mörg einkenn- ismerki Pixar. Hún er hröð, persón- ur skrautlegar og kvikun óaðfinnan- leg. Handritshöfundar virðast hins vegar hafa farið fram úr sjálfum sér og gleymt því að minna er oftar en ekki meira þegar kemur að sögu- þræði barnamyndar. Það þarf ekki tuttugu hráefni til að búa til góm- sæta og fallega köku. Strax í byrjun er bensínið stigið í botn og furðulegur heimur kynntur hratt til sögunnar. Einu sinni bjuggu þar goðsagnaverur og galdrar voru daglegt brauð en svo tók einhver upp á því að finna upp rafmagnið og smám saman hurfu töfrarnir og bláir álfar byggja nú heiminn, keyra bíla og slá grasflatir sínar. Þeir búa sumsé í okkar heimi en eru engu að síður bláir álfar. Eru álfar kannski menn? er spurt í sígildu dægurlagi sem handritshöfundar virðast þekkja til. Ekki eru þó bara álfar í heimi Áfram heldur alls konar furðuverur aðrar, t.d. kentárar og einn slíkur er lögreglumaður og kemur nokkuð við sögu og einhvern veginn tekst hon- um að koma fyrirferðarmiklum afturhlutanum á sér inn í ósköp venjulegan lögreglubíl. Í myndinni segir af tveimur álfabræðrum sem búa hjá móður sinni en faðir þeirra lést úr ónefndum sjúkdómi. Hann skildi gjöf eftir handa sonum sínum sem opna átti þegar báðir væru orðn- ir 16 ára . Í pakkanum er galdra- stafur og galdraþula til að vekja föð- urinn aftur til lífsins en þó aðeins í einn sólarhring. Álfarnir reyna að töfra fram föður sinn en tekst ekki betur til en svo að faðirinn birtist að- eins upp að mitti. Hefst þá ævintýra- leg leit bræðranna að gimsteini sem á að færa þeim búkinn. Kemur sér vel að eldri bróðirinn er mikill áhuga- maður um galdra, goðsagnaverur og ævintýri og eins og við mátti búast læra þeir bræður á endanum að vera þakklátir fyrir það sem þeir eiga og þá líka minningarnar um föður þeirra. Tregafullur fiðluleikur er þá skrúfaður upp í ellefu. Nú er ég aðdáandi Pixar og verð því miður að segja að Áfram stenst ekki þær væntingar sem ég geri til teiknimynda fyrirtækisins. Kvikunin er vissulega fyrirtak en handritið er mjög skrítið, að vísu skemmtilega skrítið á köflum en persónur ná ekki að heilla og munu fljótt falla í gleymskunnar dá. Töfrar eru horfnir úr heimi Áfram og það sama má segja um þessa nýjustu afurð Pixar. Þrátt fyrir að töfrum sé ítrekað beitt vantar að mestu þá töfra sem finna má í fyrri myndum fyrirtækisins. Áfram er sæmileg afþreying fyrir alla fjölskylduna en því miður er hún afturför hjá Pixar. Angist Annar hinna föðurlausu álfabræðra angistarfullur í Áfram. Afturför Sambíóin Álfabakka Áfram bbmnn Leikstjórn: Dan Scanlon. Handrit: Dan Scanlon, Keith Bunin og Jason Headly. 102 mín. Bandaríkin, 2019. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Svarthvítur draumur nefnist tónlist- armynd sem frumsýnd verður í kvöld á RÚV og fjallar um einn dag í lífi hljómsveitarinnar Hipsumhaps á tímum samkomubannsins nýaf- staðna. Leikstjóri hennar, Erlendur Sveinsson, myndaði órafmagnaða tónleika Hipsumhaps í mannlausu kaffihúsi á Álftanesi 30. mars en fyrir sveitinni fara þeir Fannar Ingi Friðþjófsson og Jökull Breki Arnar- son. Fannar Ingi segir að þegar þeir félagar hafi skoðað aðstæður fyrir tónleikana hafi þeir ákveðið að byggja svolítið ofan á viðburðinn og skrásetja þá og líf þeirra þennan til- tekna dag, 30. mars árið 2020, með tónlistarmynd. Voru þá tæpar þrjár vikur liðnar frá því þeir tóku við tvennum verðlaunum Íslensku tón- listarverðlaunanna, annars vegar sem bjartasta vonin og hins vegar fyrir rokklag ársins, „Fyrstu ást- ina“. Tónleikar í Gamla bíói voru á næsta leiti en þeim varð að fresta vegna kófsins. Bundnar hendur „Þessi mynd er tækifæri fyrir fólk til að kynnast því hverjir við erum og hún er algjört lán í óláni. Við er- um fáránlega sáttir við hana. Við vorum með bundnar hendur, mátt- um ekki koma fram og ekki gera neitt þannig að við ákváðum bara að gera svona tónlistarmynd,“ útskýrir Fannar Ingi. Erlendur, leikstjóri og vinur hans sem kallaður er Elli, hafi lengi viljað gera slíka mynd og því verið meira en til í að vera með. „Við leikum nokkur lög af plöt- unni og eitt nýtt lag og í bland við þann flutning fær fólk að kynnast okkur,“ segir Fannar Ingi og bætir við að gaman hafi verið að kynnast lögunum í öðrum búningi og spila þau í einfaldri útsetningu á Álfta- neskaffi. Platan sem hann nefnir er frumburður Hipsumhaps, Best gleymdu leyndarmálin, sem kom út í fyrra. Myndin er í svarthvítu, sem út- skýrir titilinn, og segir Fannar Ingi að Dr. Gunni, stofnandi samnefndr- ar hljómsveitar frá níunda áratugn- um, hafi góðfúslega veitt leyfi sitt fyrir þeirri nafngift. „Þetta er mjög viðeigandi titill. Upp á lúkkið að gera vildi Elli að myndin væri í svarthvítu og líka Baldvin Vern- harðsson sem skaut myndina. Það var grillaður hversdagsleiki í gangi og tónlistin okkar í bland við það er frekar bæld á köflum. Þetta verður mjög melankólískt þannig að svart- hvítur draumur er mjög viðeigandi, þetta var draumkennt ástand á þess- um tímapunkti og það er svo fyndið núna að allir eru komnir með sól- arvörn á andlitið og bera sig vel.“ Tími til að slaka á og hugsa Fannar Ingi segist hafa upplifað ástandið þannig að taka þyrfti einn dag í einu. En hafði þessi tími mikil áhrif á þá félaga í Hipsumhaps? „Það var búið að vera ógeðslega mikið að gera en svo var sett í lás og við fengum, tilneyddir, mikinn tíma til að slaka á og hugsa. Það sem okk- ur langar til að gera núna, fyrst og fremst, er að taka upp aðra plötu og fá meiri tíma í sumar til að taka upp nýja tónlist frekar en að vera að spila hart. Aðstæðurnar bjóða ekki upp á það og okkur finnst það bara jákvætt. Tónleikarnir okkar í Gamla bíói, sem átti að halda 8. apríl, verða haldnir 28. ágúst og við ætlum að mæta á þá hlaðnir eftir þetta tíma- bil,“ svarar Fannar Ingi. Hápunktur Hann segir tónleikana verða þá umfangsmestu sem Hipsumhaps hefur haldið og hápunkturinn á ferl- inu í kringum fyrstu breiðskífuna. „Síðan munum við dala,“ segir Fannar Ingi og hlær að eigin fyndni. „Það sem við hlökkum mest til að gera er að halda þessa tónleika og miðasala er farin af stað þar til ann- að kemur í ljós,“ bætir hann við og má þess geta að miðasala fer fram á tix.is. Með þeim Fannari Inga og Jökli Breka leika Magnús Jóhann Ragn- arsson á hljómborð og hljóðgervla, Ólafur Alexander Ólafsson á gítar og bassa og Bergur Einar Dagbjarts- son á trommur. Álftnesingar Fannar Ingi og Jökull Breki í tónlistarmyndinni Svarthvítur draumur sem tekin var 30. mars. Algjört lán í óláni  Tónlistarmynd um einn dag í lífi hljómsveitarinnar Hips- umhaps í samkomubanni verður frumsýnd á RÚV í kvöld Ljósmynd/Kjartan Hreinsson Margir þurftu frá að hverfa á frum- sýningu söngleikjarins Kysstu mig Kata í Tjarnarbíói á sunnudags- kvöldið var og því hefur Söngskóli Sigurðar Demetz ákveðið að bjóða upp á eina aukasýningu í kvöld kl. 20. Nemendur söngleikjadeildar skólans flytja söngleikinn en leik- stjóri er Orri Huginn Ágústsson. Deildin er nú á sínu sjöunda starfsári og stýrir henni Þór Breið- fjörð. Söngleikurinn hefur marg- sinnis verið fluttur hér á landi og fjallar um leikflokk sem berst við að setja upp Shakespeare-leikritið Skassið tamið í litlu leikhúsi með miklum skakkaföllum, hjartnæm- um ballöðum og endalausu gríni, eins og segir í tilkynningu. Miða- sala fer fram á tix.is. Önnur sýning á Kysstu mig Kata Innlifun Úr Kysstu mig Kata.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.