Morgunblaðið - 29.06.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.06.2020, Qupperneq 4
FORSETAKOSNINGAR 20204 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Guðni Th. Jóhannesson hlaut 89,4% greiddra atkvæða í forsetakosningum sem fram fóru á laugardag, gegn Guð- mundi Franklín Jónssyni sem hlaut 7,5% atkvæða. Þá skiluðu tæplega 2,4% auðu og voru 0,6% atkvæða úr- skurðuð ógild. Að frátöldum auðum og ógildum kjörseðlum hlaut Guðni 92,2% at- kvæða gegn Guðmundi Franklín, sem hlaut 7,8% atkvæða. Sitjandi ávallt náð endurkjöri Sitjandi forseti hefur þrisvar áður fengið mótframboð og ávallt haft bet- ur; Vigdís Finnbogadóttir eitt sinn ár- ið 1980 og Ólafur Ragnar Grímsson tvívegis, árin 2004 og 2012. „Þetta er yfirburðasigur, nú í fjórða skipti þegar kosningar eru um sitjandi forseta. Vigdís er enn á toppnum með tæp 95% árið 1988 og Ólafur var næst- ur með 85% árið 2004, en það ár skilaði tæplega 21% þjóðarinnar auðum kjör- seðli. Ólafur var ekki með nema 67% af greiddum atkvæðum 2004,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræð- ingur. Þær tölur megi rekja til þess að umdeilt var þegar Ólafur synjaði fjöl- miðlalögum staðfestingar. Sitjandi forsetar hafa ávallt náð endurkjöri, hafi þeir sóst eftir slíku. „Árangur Vigdísar og Guðna núna eru mestu stórsigrar sem hafa unnist í for- setakosningum,“ segir Ólafur, þó bæði hafi þau haft mun dræmari stuðning þegar þau buðu sig fyrst fram; Guðni 39% árið 2016 og Vigdís 33,8% árið 1980. „Enginn forseti nema Kristján Eld- járn hefur haft hreinan meirihluta þegar hann er kosinn fyrst, árið 1968. Forsetar hafa allir áunnið sér miklar vinsældir í embætti og mjög margir sem ekki hafa kosið þá áður verða mjög sáttir með þá eftir vissan tíma,“ segir Ólafur. Ógildir kjörseðlar aldrei fleiri Hlutfall auðra seðla hefur tvisvar verið hærra en nú; árið 1952 (2,8%) og árið 2004 (20,6%). Hlutfall ógildra kjörseðla hefur aldrei verið hærra, en 0,63% atkvæða voru úrskurðuð ógild, eða alls 1.068 kjörseðlar. „Það getur vel verið að þetta sé tækifæri til að gera kjörseðlana skýr- ari í framtíðinni,“ segir Leifur Gunn- arsson, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður. Hlaut næstmestan stuðn- ing í sögu forsetakjörs  Guðni Th. Jóhannesson sigraði  Hlutfall auðra seðla tvisvar verið hærra en nú  Hlutfall ógildra seðla aldrei verið hærra  Forsetar hafi áunnið sér vinsældir Auðir og ógildir seðlar í forsetakosningum Mótframboð við sitjandi forseta, atkvæði Auðir kjörseðlar Ógildir kjörseðlar Auðir kjörseðlar Kosningar 1988 Kjörsókn: 72% Sigrún Þorsteinsdóttir 6.712 5,3% Vigdís Finnbogadóttir 117.292 92,7% Auðir kjörseðlar 2.123 1,7% Ógildir kjörseðlar 408 0,3% Kosningar 2004 Kjörsókn: 63% Ástþór Magnússon 2.001 1,5% Baldur Ágústsson 13.250 9,9% Ólafur Ragnar Grímsson 90.662 67,5% Auðir kjörseðlar 27.627 20,6% Ógildir kjörseðlar 834 0,6% Kosningar 2012 Kjörsókn: 69% Ari Trausti Guðmundsson 13.762 8,6% Ólafur Ragnar Grímsson 84.036 52,8% Þóra Arnórsdóttir 52.795 33,2% Auðir kjörseðlar 3.514 2,2% Ógildir kjörseðlar 532 0,3% Kosningar 2020 Kjörsókn: 67% Guðmundur Franklín Jónsson 12.797 7,6% Guðni Th. Jóhannesson 150.913 89,4% Auðir kjörseðlar 4.043 2,4% Ógildir kjörseðlar 1.068 0,6% 1,7% 20,6% 2,2% 2,4% Hlutfall auðra kjörseðla í öllum forsetakosningum frá 1952 Kosningar þar sem fram kom mótframboð við sitjandi forseta 20% 15% 10% 5% 0% 20% 15% 10% 5% 0% 1952 1968 1980 1988 1996 2004 2012 2016 2020 1988 2004 2012 2020 0,3% 0,6% 0,3% 0,6% 2,8% 0,7% 0,3% 1,7% 0,9% 20,6% 2,2% 1,1% 2,4% 89,3% 90,4% 87,1% 90,2% 89,1% 89,5% 7,7% 6,4% 9,4% 7,0% 2,8% 3,0% 3,0%3,5%3,2%2,9% 7,8% 7,5% Niðurstöður kosninga til embættis forseta Íslands 2020 Heildarúrslit Úrslit eftir kjördæmum og kjörsókn Guðmundur Franklín Guðni Th. Auðir/ógildir samtals Kjörsókn Norðvestur- kjördæmi Norðaustur- kjördæmi Suðurkjördæmi Suðvestur- kjördæmi Reykjavíkur- kjördæmi suður Reykjavíkurkjör- dæmi norður Guðmundur Franklín Jónsson 12.797 atkv. Guðni Th. Jóhannesson 150.913 atkv. Auðir og ógildir seðlar samtals 5.111 Auðir kjörseðlar 4.043 2,4% Ógildir kjörseðlar 1.068 0,6% Á kjörskrá 252.267 Kjörsókn 168.821 66,9% 69,2% 69,1% 64,6% 68,0% 66,5% 65,0% 7,6%3% 89,4% „Mikil kjörsókn kom mér ánægju- leg á óvart,“ segir Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, um úr- slit kosninganna á laugardag. „Miðað við nið- urstöður vís- indalegra skoð- anakannana um skiptingu fylgis milli frambjóð- enda sem og vegna veirunnar skæðu mátti bú- ast við færri kysu en venjulega. Ég átti allt eins von á því að kjörsóknin færi niður fyrir 60%. Raunin varð önnur. Nú kom skýrt fram hve Ís- lendingar kunna vel að meta þann lýðræðislega rétt að ganga að kjör- borði og ráða málum þannig.“ Hvað varðar hlutverk forseta Ís- lands, málskotsréttinn og hvort sá eða sú sem embættinu gegnir hverju sinni skuli blanda sér í póli- tík dagsins, eins og mótframbjóð- andi hans kvaðst ætla að gera, segir Guðni niðurstöður afdráttarlausar. „Það er augljóst að Íslendingar vilja ekki að forsetinn láti til sín taka á hinu pólitíska sviði frá degi til dags. Slíkt væri líka ekki í sam- ræmi við stjórnskipun eða hug- myndir almennings um stöðu for- setans sem á að stuðla að sameiningu, hvetja til einingar í blíðu og stríðu.“ Hann segist nú eftir kosning- arnar ætla að taka sér tveggja til þriggja daga frí með fjölskyldu sinni og aðra daga á næstunni eins og svigrúm gefist. Ýmsum skyldum þurfi þó að sinna og innsetning í embætti sé 1. ágúst nk. sbs@mbl.is Kjörsóknin kom Guðna á óvart Guðni Th. Jóhannesson „Ég þakka inni- lega fyrir stuðn- inginn. 13.000 manns er frábær niðurstaða,“ seg- ir Guðmundur Franklín Jónsson um úrslitin. Þau segir hann í sam- ræmi við sínar væntingar. Fólk hafi verið ánægt með að mega kjósa og þar hafi þeir, sem það vildu, fengið tækifæri til að staðfesta stuðning við sitjandi for- seta. „Þó svo að við höfum ekki unnið, þá kusum við af okkar sannfæringu og það er betra en vaða blint í málið og kjósa það sem manni er sagt.“ Niðurstaðan er frábær Guðmundur Franklín Jónsson Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að skýr vilji þjóðarinnar hafi komið fram í forsetakjörinu á laugardag. „Ég vil óska forsetanum til hamingju með þennan afgerandi sigur. Mikill meirihluti lands- manna er ánægð- ur með störf Guðna og Elísu og hvernig þau hafa haldið á málum í sinni tíð. Þetta er afgerandi stuðningur og skýr vilji þjóðarinnar birtist í þessum kosn- ingum. Ég óska þeim áframhaldandi farsældar í sínum störfum,“ segir Katrín. Hefði viljað betri kjörsókn Kjörsókn var 66,9%, sem er lægra hlutfall heldur en í forsetakosning- unum árin 2012 og 2016. Árið 2012 sóttu 75,5% landsmanna kjörstað en árið 2012 var hlutfallið 69,3%. Kosn- ingaþátttakan var þó lakari árið 2004, þegar Ólafur Ragnar Gríms- son sóttist eftir endurkjöri, en þá nýttu 62,9% landsmanna atkvæða- rétt sinn. „Maður hefði heldur kosið að kjör- sóknin yrði betri í kosningunum en skoðanakannanir bentu flestar í eina átt, svo það hefur hugsanlega haft áhrif,“ segir Katrín. Alls kusu 89 manns sem voru í sóttkví. Sértækt úrræði fyrir þann hóp var tilkynnt eftir hádegi á kjör- dag, þar sem fólki í sóttkví gafst kostur á að kjósa í sérstökum kjör- klefum sem ekið var inn í á bílastæði í Hlíðasmára í Kópavogi síðdegis sama dag. „Það var sérlega ánægjulegt að tryggja það að þeir sem voru í sóttkví gátu komist á kjörstað með þessum óvenjulega hætti. Þetta sýndi hversu fljótt væri hægt að bregðast við þessum kringum- stæðum, þar sem það er alltaf mik- ilvægt að nýta þennan rétt.“ Skýr vilji þjóðarinnar hafi komið fram í kosningum  Katrín Jakobsdóttir óskar forsetahjónunum farsældar Katrín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.