Morgunblaðið - 29.06.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vegagerðin áformar að bjóða út í
vikunni framkvæmdir við breyt-
ingar á veginum syðst á Holta-
vörðuheiði. Eins og nú háttar til í
Borgarfirði er innst í Norðurárdal
ekið yfir brú á Norðurá og svo
beygt til norðvesturs. Þar er svo
tekinn nokkuð krappur sveigur,
svonefnd Biskupsbeygja. Þá er
farið í klifið upp á hábungu heið-
arinnar þar sem heitir Bláhæð.
Þaðan í frá hallar norður af.
Nú stendur hins vegar til að
taka þennan sveig af og fara nán-
ast beint frá brúnni upp á háheið-
ina með nýjum vegi sem verður
um 1,8 kílómetrar.
Flýtiframkvæmd
Verkefni þetta er flýtifram-
kvæmd, sem svo er kölluð. Upp-
haflega átti að fara í þetta verkefni
á næsta ári, en vegna stöðu efna-
hagsmála efndi ríkisstjórnin til
fjárfestingaátaksins 2020 og í þeim
pakka eru alls 18 milljarðar króna.
Þar af eru 6,5 milljarðar króna
eyrnamerktir vegamálum og verða
þeir fjármunir nýttir til ýmissa
verkefna sem talin eru brýn. Úr-
bæturnar á Holtavörðuheiðinni eru
þar með taldar.
„Biskupsbeygja hefur verið
slysagildra og þarna er brýnt að
bæta úr. Nýja veglínan verður
miklu mýkri en sú sem nú er,“
segir Pálmi Þór Sævarsson, svæð-
isstjóri Vegagerðarinnar á Vestur-
landi. Fara þarf í umfangsmiklar
bergskeringar í nýja vegstæðinu í
heiðarsporðinum og verður efnið
sem þar fæst notað til vegagerð-
arinnar. Einnig þarf efni í fyll-
ingar, setja niður alls átta ræsi og
svo mætti áfram telja. Að loknu
útboði er áformað að hefja fram-
kvæmdir á Holtvörðuheiði síðsum-
ars og skal þeim lokið 1. ágúst á
næsta ári.
Staðarheitið Biskupsbeygja vek-
ur eftirtekt. Hermt er að hún sé
kennd við Ásmund Guðmundsson,
sem var biskup Íslands 1953-1959,
sem lenti þar í vandræðum á leið
sinni úr vísitasíu í Skagafirði. Aðr-
ir segja beygjuna kennda við fyrir-
rennara hans, Sigurgeir Sigurðs-
son, sem sat á biskupsstóli
1939-1953.
Nýtt vegstæði í skoðun
Lengi hefur verið í skoðun að
leggja veginn yfir hábungu Holta-
vörðuheiðar á nýjum stað, það er
vestan við og allt að 70 metrum
lægra yfir sjávarmáli en núverandi
vegur. Væri þar ágætt skjól miðað
við ríkjandi vindáttir á þessu
svæði. Hugmyndin er sú að þegar
komið er upp á sporð heiðarinnar
Borgarfjarðarmegin myndi veg-
urinn, í stað þess að ekið sé upp
svonefnda Hæðarsteinsbrekku,
liggja í dalhvilft til norðurs við
svonefnt Holtavörðuvatn, sem er í
rúmlega 300 metra hæð. Þarna
kæmi nýr um það bil 10 km langur
vegur sem aftur tengdist inn á nú-
verandi veg sunnan við Miklagil
Hrútafjarðarmegin. Einnig kæmi
til greina að leggja veginn austar
en nú er. Ekkert hefur þó verið
ákveðið í þessum efnum og fram-
kvæmdin er hvorki fullhönnuð né
komin á samgönguáætlun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hringvegurinn Umferð í báðar áttir í Biskupsbeygjunni sem er sunnanvert
á Holtavörðuheiðinni. Úrbætur á þessum stað hefjast nú síðla sumars.
Biskupsbeygjan
senn úr sögunni
Framkvæmdir á Holtavörðuheiði
Biskupsbeygja á
Holtavörðuheiði
Færsla
hringvegar við
Biskupsbeygju
Nýtt
vegstæði
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
N
or
ðu
rá
Brú
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Kröfur gesta sem til okkar koma
verða sífellt meiri. Okkur er metn-
aðarmál að mæta þeim en einnig að
leiða þróunina í því sem koma skal.
Hleðsla fyrir rafbíla er líka eitt af
því sem ferðaþjónustan í landinu
þarf að geta boðið gestum sínum,“
segir Sveinn Heiðar Jensson, hót-
elstjóri á Hótel Klaustri á Kirkju-
bæjarklaustri. Þar var í vikunni
sett upp og tengd rafhleðslustöð
sem tveir bílar í einu geta tengst.
Hleðslan tekur fjórar klukkustund-
ir og geta gestir hótelsins þá til
dæmis sett bílinn í samband að
kvöldi og tekið hann fullhlaðinn að
morgni.
Galdur að leiða þróun
Í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjar-
laustri eru hraðhleðslustöðvar fyrir
rafbíla. Mikilvægt var hins vegar að
bæta aðgengi að rafhleðslum við
hótel, segir Sveinn Heiðar. Þegar
auglýst var eftir umsóknum úr
Orkusjóði vegna innviðaverkefna
sendu forsvarsmenn Hótels Klaust-
urs umsókn og fengu jákvætt svar.
Hleðslustöðin er nú orðin klár og
rafbílunum fjölgar.
„Hér helst allt í hendur og fram-
tíðin er græn. Við á Hótel Klaustri
höfum líka lagt okkur eftir grænum
lausnum. Notum aðeins vottaðar
hreinlætisvörur, höfum matvæli úr
héraði í öndvegi, allt sorp er flokk-
að, reynt er að halda sóun í lág-
marki, Led-lýsing er í þeirri álmu
hótelsins sem við vorum að end-
urnýja og svona gæti ég haldið
áfram. Þetta eru líka atriði sem við-
skiptavinir spyrja eftir og framtíðin
í ferðaþjónustunni er öll í þessa átt.
Galdurinn felst í því að vera á und-
an öðrum, leiða þróunina fremur en
fylgja,“ segir Sveinn Heiðar.
Aðstæður í ferðaþjónustunni nú –
í kjölfar kórónuveirufaraldursins –
gefi fólki bæði svigrúm og að-
stæður til að breyta áherslum í
rekstri eins og nú sé gert á
Klaustri. Ætla megi að ferðamenn
leggi í framtíðinni ríkari áherslu en
áður á hreinlæti og heilnæmi á við-
komustöðum sínum og þeim óskum
verði að mæta. Að setja upp raf-
hleðslustöðvar fyrir bíla sé hluti af
þessum pakka.
Sveinn Heiðar tók við starfi
hótelstjóra á Klaustri árið 2011, en
ferill hans í ferðaþjónustunni nær
allt aftur til ársins 1998. „Þetta er
áhugaverður en kröfuharður starfs-
vettvangur, þar sem aðstæður
breytast hratt. Ferðamönnum sem
hingað í Skaftárhrepp koma hefur
fjölgað mjög hratt á síðustu árum,
og ég trúi ekki öðru en bakslagið
nú sé tímabundið. Á næsta ári ætti
ferðaþjónustan aftur að vera komin
í fullan gang og þá ætlum við sem
þetta hótel rekum að færa út kví-
arnar,“ segir Sveinn.
Þjónustumiðstöð og íþróttahús
Í sambandi við ný verkefni til-
tekur Sveinn uppbyggingu fyrir-
hugaðrar þjónustumiðstöðvar. Hún
verður sunnan Skaftár, ekki langt
frá gestastofu Vatnajökuls-
þjóðgarðs sem fyrstu skóflustung-
urnar voru teknar að fyrr í þessum
mánuði. Í væntanlegri miðstöð
verður í boði veigamikil sýning um
Skaftáreldagosið og verður stutt-
myndin Eldmessan í forgrunni sem
fyrirtækið stóð að. Í sumar verður
hún aðgengileg fyrir gesti og gang-
andi á Hótel Klaustri. Auk þess er
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir nýsköp-
un og þróunarsetur í þjónustu-
miðstöðinni. Í nágrenninu verða
svo, skv. tillögu að deiliskipulagi,
reist allt að 40 íbúðarhús, 70-100
fermetrar, en mikil húsnæðisekla
hefur verið á svæðinu að undan-
förnu. Fyrir aðkomufólk sem kem-
ur til starfa á svæðinu hefur oft á
tíðum sárvantað húsnæði, en með
þessu á að leysa vandamálið.
Hleðslustöð við hótel
svarar kröfum gesta
Þjónusta á Klaustri Græn lausn á hóteli Uppbygging
Kirkjubæjarklaustur Sveinn Heiðar Jensson hér við rafhleðslustöðina fyrir
utan hótelið. Kröfur og óskir gesta um þjónustu eru miklar og breytast hratt.
Stuðningur við innviði fyrir vist-
væn ökutæki verður stóraukinn
samkvæmt aðgerðaáætlun í
loftslagsmálum sem ríkis-
stjórnin kynnti í síðustu viku.
Þar er bryddað upp á mörgu til
að stuðla að samdrætti í losun
gróðurhúsalofttegunda til
2030.
Fjölga á hraðhleðslustöðvum
vítt og breitt um landið og veita
til þess stuðning. Enn skortir þó
innviði fyrir aðra orkugjafa, svo
sem metan og vetni, sem eru
forsenda þess að flutningabílar
geti verið knúnir öðru en jarð-
efnaeldsneyti. Kapp verður því
lagt á að lög og reglugerðir
styðji við þau orkuskipti. Þá
verður lagt kapp á að flýta orku-
skiptum vöruflutningabíla, sem
menga margfalt á við fólksbíla.
Stóraukinn
stuðningur
VISTVÆNT Í DEIGLU