Morgunblaðið - 29.06.2020, Side 11

Morgunblaðið - 29.06.2020, Side 11
FRÉTTIR 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Skoðið // www.hjahrafnhildi.is TSALAN ER HAFIN 30-50%AFSLÁTTUR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í störfum fyrir samfélagið er mér metn- aðarmál að skapa tækifæri fyrir unga fólkið. Þar er margt undir, til dæmis nýsköpun byggð á auðlindum svæðisins og að fjölga möguleikum þeirra sem vilja afla sér mennt- unar í heimabyggð,“ segir Lilja Einarsdóttir, nýr sveitarstjóri í Rangárþingi eystra. „Búa þarf svo um hnúta að sveitarfélagið hafi möguleika til vaxtar og sóknar. Til þess að svo megi verða er margt undir og eitt af því er til dæmis að hafa alltaf tiltækt nægt fram- boð lóða fyrir fjölbreytta búsetu og atvinnu- starfsemi. Nú er á lokametrum hjá okkur vinna við deiliskipulag fyrir skóla- og íþrótta- svæði hér á Hvolsvelli, miðbæjarskipulag sem gerir ráð fyrir fjölbreyttri þjónustu og samkomusvæði auk byggðar með vel á annað hundrað íbúðir.“ Nýta styrkleikana Rangárþing eystra nær frá Jökulsá á Sólheimasandi í austri að Eystri-Rangá. Þarna á milli eru Eyjafjöll, Landeyjar, Fljóts- hlíð og slétturnar í kringum Hvolsvöll. Þar í bæ búa í dag tæplega 1.000 manns eða um helmingur íbúa sveitarfélagsins alls. Í sveit- arstjórn er meirihlutasamstarf með D-lista Sjálfstæðismanna og B-lista Framsóknar. Skv. samkomulagi var Anton Kári Hall- dórsson frá D-lista sveitarstjóri á fyrri hluta kjörtímabilsins en Lilja sem er oddviti B- listans á þeim síðari og tók hún við keflinu nú um miðjan júní. Verkefnin síðan þá hafa ver- ið mörg og ólík. „Með sveitarstjóraskiptum sáum við tækifæri til að nýta styrkleika fólks sem best á kjörtímabilinu,“ segir Lilja. „Við sem sitjum í sveitarstjórn erum ólík, en samstarfið síð- ustu tvö ár hefur verið með eindæmum gott og samstaða um flest mál og verkefni. Þetta kom sérstaklega vel í ljós í þeim verkefnum sem við fengum í fangið í Covid-19- faraldrinum. Ferðaþjónustan hér hefur verið snar þáttur í atvinnulífinu svo bakslagið að undanförnu er mikið, sbr. að atvinnuleysi hér er nú 15% og samdráttur í tekjum sveitarfé- lagsins er svipuð hlutfallstala. Nú hafa vel- flest fyrirtækin hins vegar verið opnuð aftur og tímann hefur fólk nýtt meðal annars til vöruþróunar- og nýsköpunarstarfs.“ Bakslagið vegna kórónuveirufaraldurs- ins segir Lilja koma verulega við sveitarsjóð. Reksturinn sé þó í jafnvægi og skuldastaðan sömuleiðis sem sé bót í máli. Boðuð lækkun á framlögum ríksins til Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga kunni þó að hafa veruleg áhrif, en hlutverk sjóðsins er að gera sveitarfélögin jafnsett um að veita íbúum lögbundna þjón- ustu. „Þó úr minni fjármunum verði kannski að spila um stundarsakir verður ekkert gefið eftir í þjónustu við okkar viðkvæmustu hópa. Því má treysta,“ segir Lilja. Ný ferðamálastefna Rangárþing eystra er hluti af jarðvang- inum Katla UNESCO Global Geopark hvar nú er í gangi margþætt stefnumótunarvinna. Þá er nú unnið við innleiðingu nýrrar ferða- málastefnu sveitarfélagsins, hvar áherslumál er að laða innlenda ferðamenn á svæðið. Upplýsingar eru gerðar aðgengilegar, heimasíðan visithvolsvollur.is fór í loftið ný- lega og mælist vel fyrir. „Mörg verkefni ferðamálastefnunnar lúta að því að bæta að- gengi og fegra áfangastaði hér; svo sem í Tunguskógi í Fljótshlíð, í Þórsmörk og við Seljalands- og Skógafoss undir Eyjafjöllum. Stuðningur stjórnvalda gerði okkur kleift að ráða fleiri ungmenni en nokkurn tíma áður til sumarvinnu. Svigrúm var til að ráða alla sem sóttu um enda bera sveitarfélög ákveðna ábyrgð og hafa skyldur til að skapa atvinnu- tækifæri þegar kreppir að eins og nú.“ Sameining í skoðun Á síðasta ári fór af stað, að frumkvæði Mýrdalshrepps, umræða um sameiningu allra sveitarfélaganna fimm í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellsýslu. Þar eru undir Ása- hreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur með samtals um 5.400 íbúa. Svæðið er víð- feðmt og aðstæður ólíkar milli byggða svo að mörgu þarf að hyggja áður en til formlegra viðræðna um sameiningu kemur „Verkefnið var komið vel af stað í vetur en fór í biðstöðu vegna kórónuveirufarald- ursins. Að undanförnu hefur tíminn verið nýttur til margvíslegrar greiningarvinnu og nýlega var vefsetrið svsudurland.is sett í loft- ið, þar sem íbúum gefst kostur á að kynna sér alla málavöxtu. Í haust stendur til að efna til kynningarfunda um málið meðal íbúa, en hvernig landið liggur þar og hver meintur ávinningur af sameiningu verður ræður framhaldinu,“ segir sveitarstjórinn. Stuðla að heilbrigði Heilsuefling hefur verið hluti af stefnu sveitarstjórnar í Rangárþingi eystra og sér þess stað m.a. í skólastarfi og stuðningi við íþróttafélög. Á Hvolsvelli er góð íþrótta- aðstaða, svo sem sundlaug, íþróttahús, lík- amsræktarsalur, heilsustígur, golfvöllur og fleira. Í sl. viku var svo stigið það framfara- skref að formgera heilsueflandi aðgerðir með því að undirrita samning við Embætti landlæknis um Heilsueflandi samfélag. „Undir þeim formerkjum er tekið mið af heilsu og vellíðan allra íbúa í stefnumótun og aðgerðum. Þar er unnið markvisst lýðheilsu- starf með lýðheilsuvísa og fleiri gögn og stað- an metin reglulega. Allt á þetta að stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíð- an íbúa – og ég veit að árangurinn verður góður,“ segir Lilja að síðustu. Byggja þarf nýsköpun á auðlindum svæðisins, segir nýr sveitarstjóri í Rangárþingi eystra Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitarstjóri Berum ábyrgð og höfum skyldur til að skapa atvinnutækifæri þegar kreppir að eins og nú, segir Lilja Einarsdóttir í viðtalinu um áskoranir í rekstri sveitarfélagsins. Sköpum tækifæri  Lilja Einarsdóttir er fædd 1973 og upp- alin á Hvolsvelli. Er hjúkrunarfræðingur með B.Sc.- gráðu frá Háskólanum á Akur- eyri, með diplómagráðu í opinberri stjórn- sýslu frá Háskóla Íslands. Samhliða hjúkr- unarstörfum hefur Lilja starfað að sveitarstjórnarmálum í alllangan tíma og setið í meirihluta sveitarstjórnar Rangár- þings eystra frá árinu 2010, sl. 6 ár sem odddviti og nú sveitarstjóri.  Lilja er gift Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni á Suðurlandi og eiga þau þrjú börn á aldrinum 16-24 ára. Hver er hún? Hvolsvöllur Þar býr um það bil helmingur 2.000 íbúa í Rangárþingi eystra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Skilti í flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem landlæknir og almannavarnir rita nafn sitt á og hvetur ferðalanga til að hafa „bar kóða“ sína tilbúna, hefur vakið nokkra athygli, enda strikamerki löngu þekkt íslenskt hugtak. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia er skiltið á ábyrgð almanna- varnanefndar ríkislögreglustjóra, enda staðsett á svæðinu þar sem skimun fyrir kórónuveiru fer fram. Getur afsakað sumt ef ekkert orð er til „Þetta er svolítið skrýtið sko,“ við- urkennir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku nú- tímamáli við Háskóla Íslands, þegar Morgunblaðið ber orðalag skiltisins undir hann. „Þetta hefur nú kallast strika- merki hingað til og ég held nú að all- ir skilji það,“ segir Eiríkur. „Þetta er auðvitað dæmi um alveg hráa yfirfærslu úr ensku og auðvitað get- ur maður afsakað sumt ef ekkert orð er til, en það er nú ekki tilfellið með þetta,“ segir hann. Eiríkur segir ekki heiglum hent að benda á merki sem gefi til kynna að tungumálinu hafi beinlínis hrakað eftir aldamót og samfélagsmiðla- byltingu. „Við Sigríður Sigurjóns- dóttir [prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands] höfum verið með stóra málfræðirannsókn í gangi undanfarið sem ekki er búið að vinna úr að öllu leyti, en auðvitað sér mað- ur ýmis dæmi, til dæmis um enska setningagerð sem smeygir sér inn í málið,“ segir prófessorinn og bendir sérstaklega á mun á aldurshópum hvað þetta varðar. Máltækniátak í gangi „Börn og unglingar hafa gríðar- lega mikla ensku í málumhverfi sínu sem hefur auðvitað heilmikil áhrif,“ segir Eiríkur og bendir á að fleiri þættir komi einnig að málþróun þjóðarinnar. „Nú er heilmikið erlent vinnuafl komið í fjölda þjónustu- starfa á Íslandi og fjöldi Íslendinga talar ensku við samstarfsfólk sitt. Þegar fyrir bankahrunið var talað um að enska væri orðin vinnumál á Íslandi, en svo varð auðvitað bakslag í því þegar erlendu fólki fækkaði á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Ei- ríkur og tekur jafnframt fram að ís- lenskur málnotandi sem búsettur er á Íslandi taki ekki endilega eftir smærri þróunaratriðum málsins. „En nú er líka í gangi þetta mál- tækniátak sem gengur út á að gera íslensku gjaldgenga í tölvum og það vinnur vonandi á móti þessu,“ segir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku nútímamáli, að skilnaði og á við erlend áhrif, bar- kóða og aðrar ambögur í íslensku málsamfélagi. Þýðingabragur skiltis í flugstöðinni vekur athygli Morgunblaðið/SH Bar kóði Eiríkur Rögnvaldsson segir margt mega afsaka finnist ekki annað orð.  Prófessor segir dæmi um hráa yfirfærslu úr ensku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.