Morgunblaðið - 29.06.2020, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Hryðjuverkeru stöðugógn víðast
hvar um heiminn. Á
dögunum gaf Euro-
pol, lögregla Evrópusambands-
ins, út skýrslu um stöðu og þró-
un hryðjuverka innan
sambandsins og er hún ófögur
lesning. Í inngangsorðum sín-
um fer yfirmaður Europol,
Catherine De Bolle, yfir
hryðjuverk víðar um heim og
nefnir kunnar árásir eins og á
Srí Lanka á páskasunnudag í
fyrra þar sem 17 íbúar ESB-
ríkja létu lífið. Þessi árás sýni
að Ríki íslams leitist enn við að
gera stórfelldar árásir á íbúa
Evrópusambandsins, en að þær
hafi ekki tekist í fyrra innan
ESB þar sem lögreglan hafi
komið í veg fyrir mörg ódæð-
isverk. Þá nefnir hún árásir
hægri-öfgamanna og vinstri-
öfgamanna og anarkista en inn-
an raða þessara varasömu hópa
fer viljinn til hryðjuverka vax-
andi að hennar sögn.
En þó að þessir hópar séu
hættulegir og stuðli að ógn og
skelfingu, einkum meðal ákveð-
inna minnihlutahópa, þá eru ísl-
amskir öfgamenn ótvírætt þeir
hættulegustu innan Evrópu-
sambandsins samkvæmt skýrsl-
unni. Skilgreiningar á hryðju-
verkum eru dálítið breytilegar á
milli landa sem veldur því að
ekki er endilega óyggjandi hvað
flokkast sem hryðjuverk og
hvað er talið til annars konar of-
beldisverka. Samkvæmt skýrsl-
unni er þó niðurstaðan fyrir árið
í fyrra sú að 10 létust í hryðju-
verkaárásum innan ESB og 27
særðust. Allir þeir sem létust
urðu fyrir hryðjuverkaárás ísl-
amskra öfgamanna og 26 af 27
hinna særðu voru sömuleiðis
fórnarlömb íslamistanna. Einn
særðist í árás hægri-öfgamanns.
Þessar tölur um hörmulegar
árásir á saklaust fólk segja þó
aðeins litla sögu um ógnina sem
íbúum ESB og vitaskuld öðrum
Vesturlandabúum og mörgum
annars staðar stafar af hryðju-
verkamönnum. Mikill fjöldi
árása innan ESB verður aldrei
að neinu þar sem lögreglan
kemst á snoðir um áformin eða
þau misheppnast og valda ekki
manntjóni.
Í skýrslunni má sjá að á síð-
astliðnum fimm árum hafa yfir
5.000 handtökur farið fram inn-
an ESB vegna hryðjuverka, þar
af rúmlega 3.000 vegna ísl-
amskra öfgamanna. Rúmlega
100 handtökur áttu sér stað á
tímabilinu vegna hægri-
öfgamanna og nálægt 300
vegna vinstri-öfgamanna.
Þessar handtökur stafa með-
al annars af góðum árangri lög-
reglu við að fletta ofan af
hryðjuverkaáformum, sem er
auðvitað mikið fagnaðarefni.
Vandinn hverfur þó ekki með
þessu því að í skýrslunni segir
að í fangelsum fari
fram starfsemi ísl-
amskra öfgamanna
við að snúa öðrum
sem þar eru fyrir
til liðs við hinn illa málstað sem
hafi valdið hættu bæði innan og
utan fangelsanna. Nefnt er
dæmi um manninn sem gerði
árás í Lundúnum í nóvember í
fyrra skömmu eftir að hann var
látinn laus úr fangelsi.
„Í nokkrum löndum ESB
verður nokkur fjöldi öfgafullra
einstaklinga brátt látinn laus
með tilheyrandi hættu. Í Belgíu
hefur orðið vart við að sumir
fangar hafa valið að afplána all-
an dóminn án þess að óska
snemmbúinnar lausnar þar sem
engin skilyrði er hægt að setja
eða grípa til reynslulausnar-
aðgerða eftir að þeir eru látnir
lausir,“ segir í skýrslunni. Þá
eru nefnd dæmi um að í Hol-
landi hafi yfirvöld áhyggjur af
því að íslamskir öfgamenn
styrki tengsl sín í fangelsum og
ýti undir að íslamskir öfga-
menn erlendis ógni Hollandi.
Ennfremur kemur fram að á
Spáni hafi hátt hlutfall manna
sem ekki sitji inni vegna
hryðjuverka orðið fyrir slæm-
um áhrifum íslamskra öfga-
manna.
Í skýrslunni segir að 60% af
íslömskum hryðjuverkamönn-
um í ESB séu með ríkisborg-
ararétt í landinu þar sem þeir
áforma hryðjuverkin, sem hlýt-
ur að teljast sérstaklega
óhugnanlegt fyrir aðra íbúa.
Illt er að búa við utanaðkom-
andi ógn, enn verra að hún geti
leynst í næsta húsi.
Loks koma fram í skýrslunni
áhyggjur af því að stór hópur
ríkisborgara ESB hafi barist
vopnaðri baráttu með Ríki ísl-
ams í Írak og Sýrlandi. Enn-
fremur áhyggjur af því að
hundruð íbúa ESB með tengsl
við Ríki íslams, og sem eigi fjöl-
skyldumeðlimi sem kynnu að
vilja ríkisborgararétt innan
ESB, hafi haldið sig í Írak og
Sýrlandi.
Íslendingum þykir líklega að
hryðjuverk séu eitthvað sem
gerist í öðrum löndum. Engum
geti dottið í hug að fremja slíkt
ódæði hér á landi. Vonandi er
það rétt, en ekki endilega lík-
legt. Íslenska lögreglan fylgist
með þessum málum og vonandi
tekst henni að fletta ofan af
áformum um slík ógnarverk ef
einhver hyggst vinna þau hér.
Til þess þarf þó að tryggja að
lögreglan ráði við slíkt verk-
efni.
Um leið verður að tryggja að
landamæra Íslands sé tryggi-
lega gætt og að hingað komi
ekki hryðjuverkamenn undir
fölsku flaggi. Það er mikið í húfi
og yfirvöld jafnt sem almenn-
ingur verða að halda vöku sinni
til að Ísland geti áfram verið
laust við þessa skelfilegu ógn.
Íslamskir öfgamenn
eru hættulegastir}Hryðjuverkaógn í ESB
Þ
úsundir námsmanna eru að út-
skrifast þessa dagana og horfa
með björtum augum til framtíðar.
Ísland er eitt fárra ríkja í veröld-
inni þar sem nemendur höfðu
greitt aðgengi að menntun í gegnum heims-
faraldurinn. Staða skólanna var misjöfn en
allir kennarar og skólastjórnendur lögðu
mikla vinnu á sig svo að nemendur þeirra
fengju framgang í námi. Hugarfarið hjá okk-
ar skólafólki hefur verið stórkostlegt. Víða
annars staðar í veröldinni hafa skólar ekki
enn verið opnaðir, og ekki gert ráð yfir því
fyrr en jafnvel í haust. Gæðin sem liggja í ís-
lensku menntakerfi eru mikil og styrkurinn
kom svo sannarlega fram í vor.
Verkefnið framundan er af tvennum toga.
Annars vegar þarf menntakerfið að geta tekið
á móti þeim mikla áhuga sem er á menntun og hins vegar
þarf að skapa ný tækifæri fyrir þá sem eru án atvinnu.
Mikil aðsókn er í nám í haust og ákvað ríkisstjórnin að
framhaldsskólum og háskólum yrði tryggt nægt fjár-
magn til að mæta eftirspurninni. Fjárveitingar verða
nánar útfærðar þegar fjárþörf skólanna liggur endan-
lega fyrir. Áætlanir gera ráð fyrir fjölgun nemenda á
framhaldsskólastigi um allt að 2.000 og um 1.500 á há-
skólastigi. Umsóknum um háskólavist fjölgar um 23%
milli ára og mikil aðsókn er í fjölbreytt starfs- og iðnnám
framhaldsskólanna. Innritun nýnema yngri en 18 ára í
framhaldsskóla hefur gengið vel. Aðsókn eldri nema er
mest í fjölbreytt starfsnám framhaldsskólanna og unnið
er að þeirri innritun í samvinnu við Mennta-
málastofnun. Gangi spár eftir gæti nem-
endum á framhaldsskólastigi fjölgað um allt
að 10%. Undirbúningur hófst strax í byrjun
mars og það er lofsvert hversu vel stjórn-
endur og kennarar í menntakerfinu hafa
brugðist við.
Samhæfingarhópur um atvinnu- og
menntaúrræði vinnur hörðum höndum að því
að styrkja stöðu þeirra sem eru án atvinnu.
Eitt brýnasta samfélagsverkefni sem við eig-
um nú fyrir höndum er að styrkja þennan hóp
og búa til ný tækifæri. Öllu verður tjaldað til
svo að staðan verði skammvinn. Samfélögum
ber siðferðisleg skylda til að móta stefnu sem
getur tekið á atvinnuleysi. Leggja stjórnvöld
því mikla áherslu á að auka færni á íslenskum
vinnumarkaði ásamt því að lágmarka félags-
og efnahagslegar afleiðingar COVID-19-faraldursins.
Þar er menntun eitt mikilvægasta tækið og því hefur
sjaldan verið nauðsynlegra en nú að tryggja aðgengi að
menntun.
Staða Íslands var sterk þegar heimsfaraldurinn skall á
og því hvílir enn frekari skylda á stjórnvöldum að horfa
fram á við og fjárfesta í framtíðinni. Kjarni málsins er að
vita hvaða leiðir skila árangri, sem efla íslenskt samfélag
til langs tíma. Brýnt er að tækifæri framtíðarinnar séu
til staðar og unnið verður dag og nótt til að tryggja sem
mesta verðmætasköpun í samfélaginu okkar.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Fjármagn tryggt í menntakerfið
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Skjalavarsla og skjalastjórnríkisins fer stöðugt batn-andi. Þó er enn víða potturbrotinn. Alvarlegt er hve
rafræn skjalavarsla ríkisins er
skammt á veg komin.
Þetta eru meginniðurstöður ný-
legrar eftirlitskönnunar Þjóðskjala-
safns Íslands á skjalavörslu og
skjalastjórn ríkisins. Könnunin var
gerð í febrúar en kynnt á vef safnsins
í byrjun þessarar viku og er skýrsla
um hana þar aðgengileg. Í skýrslunni
eru upplýsingar um könnunina, tölu-
legar niðurstöður og umfjöllun um
helstu ályktanir og niðurstöður. Þar
eru einnig tillögur til úrbóta og nefnt
hver gætu verið næstu skref í skjala-
málum ríkisins. Frá árinu 2012 hafa
slíkar eftirlitskannanir verið gerðar á
fjögurra ára fresti.
Miðað við fyrri eftirlitskannanir,
sem gerðar voru árin 2012 og 2016,
fer skjalavarsla og -stjórn batnandi
sem fyrr segir. Störfum skjalastjóra
hefur fjölgað og óheimil eyðing
gagna er nánast úr sögunni. Þó er
enn mörgu ábótavant að mati Þjóð-
skjalasafnsins. Aðbúnaður í
geymslum er ekki nægilega góður og
meðferð á tölvupóstum er ábótavant.
Þá er enn hluti afhendingarskyldra
aðila ríkisins sem sinnir ekki skjala-
vörslu og skjalastjórn í samræmi við
lög. Tilteknir hópar ríkisstofnana
standa illa er kemur að því að upp-
fylla lög og reglur sem lúta að skjala-
vörslu og skjalastjórn. Þar má eink-
um nefna heilbrigðisstofnanir,
dómstóla og lögregluembætti.
Rafræn skjalavarsla ónóg
Í skýrslunni segir að alvarlegt
sé hve rafræn skjalavarsla ríkisins sé
skammt á veg komin. Samkvæmt
könnuninni eru 1.400 rafræn gagna-
kerfi í notkun hjá ríkinu en Þjóð-
skjalasafn hefur aðeins fengið upp-
lýsingar um 20% þessara kerfa og
gögn úr 3% kerfanna hafa verið af-
hent til varðveislu á Þjóðskjalasafn,
eða úr 40 gagnakerfum. Ein afleiðing
þess að ríkið hafi ekki hugað að varð-
veislu rafrænna gagna af nægilegum
krafti er sú að miklu meira af papp-
írsskjölum er nú hjá afhendingar-
skyldum aðilum ríkisins en í fyrri
könnunum.
Önnur afleiðing og alvarlegri er
sú að mikilvægar upplýsingar rík-
isins geta tapast vegna þess að ekki
er hugað að varðveislu rafrænna
gagna. Í skýrslunni segir að til þess
að koma þessum málum í betri far-
veg sé mikilvægt að ríkið í heild setji
sér markmið um að innan fárra ára
verði það að mestu komið í rafræna
skjalavörslu og pappírsskjalavarsla
víki.
Gífurlegt skjalamagn
á leiðinni
Í skýrslunni er vakin athygli á
því að afhendingarskyldir aðilar rík-
isins eiga að afhenda pappírsskjöl sín
til Þjóðskjalasafns þegar þau eru
orðin 30 ára gömul. Hjá þeim 181 af-
hendingaskylda aðila sem svaraði
könnuninni eru 82.766 hillumetrar af
pappírsskjölum, þar af eru 2.229
hillumetrar orðnir eldri en 30 ára.
Við þetta má bæta skjalamagni
þeirra afhendingarskyldu aðila sem
ekki svöruðu könnuninni en áætla má
að hjá þeim séu um 13.000 hillumetr-
ar skjala. Því má áætla að um 95.000
hillumetrar af pappírsskjölum hafi
nú þegar myndast hjá öllum afhend-
ingarskyldum aðilum ríkisins. Ef
áætlað er að eyða megi um 20-30% af
skjölum afhendingarskyldra aðila
munu Þjóðskjalasafni berast á næstu
30 árum 66.000 til 76.000 hillumetrar
af skjölum. Til samanburðar má geta
þess að safnkostur Þjóðskjalasafns
var undir árslok 2019 tæplega 44.000
hillumetrar. Af þessu er ljóst að
mæta þarf þörfum Þjóðskjalasafns
Íslands um aukið geymslurými en
samkvæmt þessum tölum á safnkost-
ur á pappír eftir að aukast um 150-
170% á næstu 30 árum.
Þörf fyrir aukið
geymslupláss
Fram kemur að ef ríkið hugar
ekki að varðveislu rafrænna gagna sé
viðbúið að skjalamagn á pappír haldi
áfram að aukast á næstu árum og
þörf fyrir aukið geymslupláss undir
hann aukist að sama skapi, bæði hjá
afhendingarskyldum aðilum og hjá
Þjóðskjalasafni sem muni að lokum
taka skjölin til varðveislu. Því sé mik-
ilvægt að gert verði átak í að afhend-
ingarskyldir aðilar taki skrefið til
fulls og hefji rafræna skjalavörslu
með því að tilkynna rafræn gagna-
kerfi til Þjóðskjalasafns og í fram-
haldi afhendi gögnin til varðveislu á
rafrænu formi. Eðlileg þróun sé að
pappírsskjalavarsla fari minnkandi
en rafræn skjalavarsla aukist að
sama skapi. Hægt sé að hraða þess-
ari þróun með því að ríkið setji aukið
fé í rafræna skjalavörslu, bæði hjá af-
hendingarskyldum aðilum og hjá
Þjóðskjalasafni, og dragi þannig úr
sívaxandi húsnæðisþörf til lengri
tíma undir pappírsskjöl.
Morgunblaðið/Ómar
Skjöl Þjóðskjalasafnið á eftir að taka við gífurlegu magni af pappírs-
skjölum á næstu árum. Lögð er áhersla á að varðveita gögn rafrænt.
Víða pottur brotinn í
skjalavörslu ríkisins