Morgunblaðið - 29.06.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.06.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 ✝ Gylfi BorgþórÓlafsson fædd- ist í Reykjavík 8. maí 1942. Hann lést 17. júní 2020. Kjörforeldrar hans voru hjónin Guðbjörg Ágústa Ólafsdóttir, f. 4.1. 1914, d. 15.10. 1996, verkakona og Ólafur Stef- ánsson, f. 22.6. 1915, d. 18.9. 2002, vélstjóri. Foreldrar Gylfa voru Fanney Sigurrós Andrésdóttir, f. 19.3. 1911, d. 6.12. 2005, vinnukona og Þorbergur Sigurdór Magn- ússon, f. 25.8. 1906, d. 2.10. 1990, bifreiðarstjóri. Alsystir Gylfa er María Guð- mundsdóttir, f. 6.12. 1940, bú- sett í Stykkishólmi. Systkini Gylfa samfeðra eru: Kristín María Þorbergsdóttir, f. 17.5. 1939, búsett í Bandaríkjunum, Magnús Þorbergsson, f. 8.2. Snær. 3) Friðrik Sölvi Gylfason kerfisfræðingur. Gylfi gekk í Miðbæjarskól- ann og lauk auk þess gagn- fræðaprófi frá Gagnfræða- skóla Vesturbæjar. Gylfi útskrifaðist með sveinspróf í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum 14. júní 1969. Hann vann með- fram námi hjá Hemli bílaverk- stæði og auk þess hjá Bílaverk- stæði Garðars og Agli Vilhjálmssyni hf. áður en hann hóf störf hjá Loftleiðum 1972 en hjá bílaleigu Flugleiða starfaði hann síðan óslitið í 36 ár eða allt til ársins 2008. Síð- ustu starfsárin sín vann hann svo hjá Krók í Garðabæ. Gylfi og Hildur giftu sig 2. desember 1967. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík, fyrst í Æsufelli 2 en þar bjuggu þau til ársins 1981 þegar þau fluttu í Víðihlíð 18. Síðustu árin hafa þau svo búið í Garðabæ. Þau áttu Borgir í Hrútafirði frá 2004 til 2015. Útför Gylfa fór fram í kyrr- þey, 26. júní í Garðakirkju, að ósk hins látna. 1940, búsettur á Selfossi og Sig- urður Jónas Þor- bergsson, f. 17.8. 1949, búsettur í Reykjavík. Systk- ini hans sam- mæðra eru: Magn- ús Óli Hansson, f. 28.8. 1932, d. 28.12. 2010 og Kol- brún Þórðardóttir, f. 14.9. 1935, bú- sett í Noregi. Eiginkona Gylfa er Hildur Friðriksdóttir, f. 20.4. 1944. Börn þeirra eru: 1) Ólafur Gylfason, f. 23.6. 1966, framkvæmdastjóri, maki Unnur Hallgrímsdóttir SAP- sérfræðingur. Börn þeirra: Brynjar Aron Jónsson, Fanney Rún Ólafsdóttir og Halla Hrund Ólafsdóttir. 2) Guðbjörg Gylfadóttir, f. 25.12. 1970, flug- freyja. Börn hennar eru Tania Lind, Hildur Anissa og Sölvi Pabbi var fyrstu æviár sín undir verndarvæng Hjálpræð- ishersins í Aðalstrætinu. Fann- ey amma gat sökum aðstæðna ekki sinnt honum sem skyldi. Þar dvaldi pabbi þangað til amma Guðbjörg og afi Óli tóku hann að sér. Pabbi var í sveit á Kolbeinsá á hverju sumri frá fimm ára aldri þar til hann varð tólf ára. Í sveitinni unnu allir sleitu- laust, jafnt börn sem fullorðnir, enda voru engar vélar þá komnar til sögunnar. Þar unnu þeir saman jafnaldrarnir, pabbi og Hilmar Hannesson, við þau sumarstörf sem til féllu. Með þeim var síðan alla tíð mikil og góð vinátta. Pabbi gekk í Miðbæjarskól- ann við Tjörnina en þaðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar. Þar átti hann margar góðar minningar enda fannst honum tíminn í Gaggó Vest vera einstaklega skemmtilegur. Á þessum árum æfði hann og spilaði bæði körfubolta og handbolta hjá KR. Bílaáhuginn kviknaði snemma hjá pabba en vinahóp- urinn hans varði öllum stund- um uppi á hálendinu í jeppa- ferðum. Í vinahópnum voru Nonni, Gunni, Siggi og Bjössi. Nonni átti fjallabíl sem þeir fé- lagarnir eyddu öllum sínum frí- tíma í. Þessi bílaáhugi kveikti svo eflaust þann neista að skrá sig í bifvélavirkjun síðar. Sigurbjörn Pálsson og pabbi kynntust 8 ára í Miðbæjarskól- anum. Leiðir þeirra lágu svo líka saman í Gaggó Vest og enn aftur í Iðnskólanum. Þeir unnu mikið samhliða námi á bíla- verkstæði í Skipholtinu. Tíma- kaupið var ekki hátt á þessum tíma eða 37 kr. Það góða var samt að það var hægt að vinna endlaust eða hreinlega á meðan menn gátu staðið í fæturna. Pabbi og Simbi voru báðir ótrú- lega vinnusamir. Pabbi hjálpaði Simba við að byggja húsið hans úti á Álftanesi. Og Simbi „borg- aði“ pabba til baka með því að aðstoða hann við að byggja bæði Víðihlíðina og Bjarkarás- inn. Þeir endurnýjuðu líka Borgir í Hrútafirði og sam- komuhús ungmennafélagsins Hörpu í Bæjarhreppi. Pabbi var ótrúlega afkasta- mikill og eiginlega alltof vinnu- fús. Það lék allt í höndunum á honum. Allt virtist hann geta lagað, breytt eða bætt. Þau eru óteljandi verkin eða erindin sem hann hefur aðstoðað mig og systkinin mín við í gegnum tíðina. Pabbi var bóngóður og aðstoðaði vini sína og ættingja okkar í sífellu. Pabbi lét aldrei mikið bera á veikindum sínum. Það var ekki hans stíll. Hann vildi ekki vera byrði á sínum nánustu eða trufla fjölskylduna með veik- indum sínum. Pabbi var af þessari kynslóð sem vildi mikið frekar hjálpa öðrum en þiggja hjálp. Það var ekki fyrr en í blálokin að við sem honum stóðum næst máttum aðstoða hann. Það gekk hins vegar ekki eftir. Tíminn var orðinn of naumur. Síðustu árin áttu Þórisstaðir í Þorskafirði hug hans allan sem og hjólhýsið sem hann og mamma eiga á Laugarvatni. Síðasta heilræðið sem pabbi gaf okkur var að vera alltaf sjálfum sér samkvæm/ur, heið- arleg/ur og að klára alltaf sína vinnu. Ég kveð þig með endalausu þakklæti. Án þín væri ég svo mikið minni maður. Án þín værum við öll svo mikið fátæk- ari! Og þú gerðir okkur öll svo mikið betri. Takk fyrir allt. Guð blessi þig. Ólafur Gylfason. Elsku afi var alltaf hress þegar ég hitti hann. Hann kom manni alltaf í gott skap og ég mun sakna nærveru hans mjög mikið. Það var alltaf gaman að ferðast með afa út í sveit og spjalla við hann í rólegheitum. Það var líka svo svakalega notalegt að knúsa afa enda faðmaði maður hann eins oft og maður gat. Ég á aðeins góðar minningar um afa. Elska þig, afi, hvíldu í friði og takk fyrir allt saman. Halla Hrund Ólafsdóttir. Elskulegi afi minn, ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem við eyddum saman, betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Hann afi var góður við alla, honum fannst ekkert skemmti- legra en að vera til staðar fyrir hvern sem þurfti á hjálp að halda og það gerði hann með bros á vör. Ég minnist allra ferðanna norður í Hrútafjörð, í sveitina til þeirra ömmu. Þar hafði afi nóg fyrir stafni. Hann var alltaf að búa eitthvað til eða laga og ég var dugleg að trítla á eftir honum og forvitnast hvað hann var að bralla. Þá tók hann mig nær og sýndi mér hvað hann var að gera. Stundum fékk ég að hjálpa. Enda var það eina sem honum þótti skemmtilegra en vinna í hinum og þessum verkefnum að eyða tíma með fjölskyldu sinni. Þessar minningar og allar hinar mun ég geyma í hjarta mínu. Þó ég hafi þurft að kveðja þig fyrr en mig langaði þá veit að þú verður alltaf með mér í anda. Einhvern tímann þá sam- einumst við í faðmlagi og þá mun ég aldrei sleppa. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Fanney Rún Ólafsdóttir. Elsku Gylfi. Þakklæti var mér efst í huga þegar við kvöddum þig á fögr- um 17. júní sl. á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi, þakklæti fyrir samfylgd okkar í 22 ár. Velferð þinna nánustu skipti þig öllu máli og nutum við fjöl- skyldan ætíð umhyggju og góð- vildar þinnar. Þitt hjarta geymdi gullið dýra og sanna, að gleðja og hjálpa stærst þín unun var. Því hlaust þú hylli Guðs og góðra manna og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar. Ég blessa nafn þitt blítt í sál mér geymi, og bæn til Guðs mín hjartans kveðja er. Hann leiði þig í ljóssins friðarheimi, svo lífið eilíft brosi móti þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Eins og þú sagði þegar þú kvaddir mig eftir heimsóknir til okkar í gegnum tíðina: „Takk Unnur mín“ þá segi ég í þínum anda: „Takk Gylfi minn.“ Þín tengdadóttir, Unnur Hallgrímsdóttir. Gylfi Ólafsson ✝ Sigríður Guð-mundsdóttir fæddist 4. desem- ber 1948 í Reykja- vík. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 4. júní 2020. Foreldrar hennar voru Ebeneser Guð- mundur Ólafsson kaupmaður, f. 26 desember 1910 í Bolungarvík, d. 11. apríl 1974 og Soffía Kristín Sigurjóns- dóttir hjúkrunarkona, f. 21. ágúst 1916 á Eskifirði, dáin 4. júní 1987. Bræður Sigríðar eru Bald- ur, f. 1944, búsettur á Ak- ureyri, Birgir, f. 1945, d. 1953, Bragi, f. 1947, búsettur í Sví- þjóð og Bolli, f. 1952, d. 1957. Sigríður átti þrjú börn. 1) Jóhanna Stella Baldvinsdóttir, f. 7. mars 1966, búsett í Reykjavík. Sambýlismaður hennar er Baldvin Heiðarsson. Úr fyrri sambúð á Jóhanna Stella dótturina Soffíu Láru, f. 1993. 2) Tómas Bolli-Subben Haf- þórsson, f. 28. nóvember 1967, búsettur í London. Eig- inmaður hans er Edward D. Bolli-Subben. 3) Ragnar Ævar Jóhannsson, f. 21. janúar 1975, bú- settur á Hellu. Sambýliskona hans er Hjördís Pétursdóttir og saman eiga þau Pétur Jökul, f. 2019. Úr fyrri sambúð á Ragnar Ævar þau Rögnu Sigríði, f. 2001, Jóhann Björg- vin, f. 2003 og Friðrik Snæ, f. 2008. Sigríður gegndi ýmsum störfum á lífsleiðinni, m.a. sem bankastarfsmaður, ráðgjafi, rak verslun og starfaði lengi hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hún var búsett í Svíþjóð í rúman áratug á árunum 1980- 1991. Hennar helstu áhugamál voru ferðalög og íþróttir. Fyr- ir fimm árum fékk Sigríður heilablóðfall sem varð til þess að hún lamaðist að hluta til og átti erfitt með tal. Eftir áfallið flutti hún í hjúkrunarheimilið Skjól og bjó þar fram á hinsta dag. Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey í Fossvogskirkju hinn 12. júní 2020 að hennar eigin ósk. Til minningar um góða vin- konu. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir) Með þessum ljóðlínum vil ég minnast vinkonu minnar til fjölda ára og kveð ég þig, elsku Sigga, af miklum hlýhug og þakklæti fyrir okkar dýrmætu stundir. Það er sárt að kveðja en sælla að vita að þú fórst sátt yfir í sumarlandið og fyrir það er ég þakklát. Minning um einstaka konu mun lifa í huga mér um ókomin ár. Syni Siggu, Ragnari, og hans fjölskyldu ásamt öðrum ættingj- um votta ég mína dýpstu samúð Elísabet Sigurðardóttir (Elsa). Sigríður Guðmundsdóttir Það eru ekki nema átta mánuðir síðan við kvöddum ömmu Stínu og því mikið áfall að þurfa að kveðja ömmu Magneu svona stuttu síðar. Það er mjög erfitt og skrítið að þurfa að kveðja ömmu okkar svona fljótt, því við héldum auðvitað að við ættum eftir miklu meiri tíma með henni. Þegar við hugsum um ömmu Magneu hugsum við líka um fal- lega heimilið og garðinn hennar í Skógum. Þar áttum við ynd- islegar samverustundir sem við munum ávallt muna. Margar af okkar fallegustu æskuminning- um urðu til í Skógum, sælureit Kristbjörg Magnea Gunnarsdóttir ✝ KristbjörgMagnea Gunn- arsdóttir fæddist 16. febrúar 1941. Hún lést 30. maí 2020. Útför Krist- bjargar Magneu fór fram 19. júní 2020. stórfjölskyldunnar. Við fórum alltaf í Skóga til ömmu um páskana og var mikil gleði sem fylgdi því. Enginn fór svangur frá ömmu, öðru nær. Það var alltaf til meira en nóg af mat og heimabök- uðu bakkelsi. Amma var alltaf mjög fín og vel tilhöfð og mun- um við ekki eftir að hafa séð hana með ógreitt hár. Hún var alltaf vel til fara og mjög fínt í kringum hana, en það var ekki vegna þess að hún væri upp- tekin af því sem þykir „fínt“, þetta var bara hennar stíll og leið henni best svona. Við erum og verðum alltaf þakklát fyrir elsku ömmu okkar sem kenndi okkur svo margt og er hluti af okkar allra bestu minningum. Þín ömmubörn, Sigurjón, Kristín og Kári Steinn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, sonur, bróðir og frændi, GÍSLI AGNAR BOGASON, Vatnsnesvegi 20, Keflavík, lést sunnudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 2. júlí klukkan 13. Helga Eden Gísladóttir Kristinn Örn Kristinsson Helga Guðrún Gísladóttir Ágúst Skarphéðinsson Bogi Agnarsson Þorgerður Jónsdóttir Jóhanna Bogadóttir Davíð Þór og Alex Nói Elsku pabbi minn, bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR S. INGIMARSSON, Tunguheiði 18, Kópavogi, sem andaðist á Líknardeildinni í Kópavogi 10. mars, verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 29. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heru líknarþjónustu eða Líknardeildina í Kópavogi. Alexander Már Guðmundsson Guðrún Kristinsdóttir Helgi H. Stefánsson Alexander Ingimarsson Edda Ástvaldsdóttir Birna Rúna Ingimarsdóttir Friðþjófur Th. Ruiz og fjölskyldur Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR húsfreyja, Bjargi, Eyjafjarðarsveit, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 23. júní. Hún verður jarðsungin frá Munkaþverárkirkju fimmtudaginn 2. júlí klukkan 14. Ævar Ragnarsson Ragna Pálsdóttir Katrín Ragnarsdóttir Bolli Ragnarsson Laugheiður Gunnarsdóttir ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, GUÐFINNA ELÍNBORG GUÐMUNDSDÓTTIR, Blönduhlíð 19, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar aðfaranótt 18. júní. Jarðsungið verður frá Háteigskirkju miðvikudaginn 1. júlí klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvennadeildar Landspítalans og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Kjartan Egilsson Hlynur Örn Kjartansson Ragnar Már Kjartansson Tara Brekkan Pétursdóttir Ágúst Sævar Guðmundsson Natalía Marín B. Hlynsdóttir Pétur Ragnar B. Hlynsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.