Morgunblaðið - 29.06.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Sólarrafhlöður
Pakkarnir inihalda:
125w sólarrafhlaða m/
festingum, 5m kapall,
sjórnstöð 10A,
185w sólarrafhlaða,
m/festingum,
5m kapall, stórnstöð 20A
SUMARTILBOÐ
fyrir húsbíla og hjólhýsi
20%afsláttur
TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA - ALLA LEIÐ
„SNÚÐU ÞÉR VIÐ – EN LÍTTU FYRST Í
BAKSÝNISSPEGILINN OG PASSAÐU AÐ
ÞAÐ SÉ ENGINN Á BLINDA SVÆÐINU.”
„ER STRÍÐINU LOKIÐ?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera tvö saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ ÞARFT AÐ HAGA ÞÉR
FRAM AÐ JÓLUM
ÓKEI … EN EF ÉG VÆRI ÞÚ FÆRI ÉG Í FELUR Á
JÓLADAGSMORGUN!
ÉG HELD
ÞETTA EKKI
ÚT LENGUR!
ÉG ÞARF
HJÁLP!!
AHHH, TAKK! MIG KLÆJAÐI DJÖFULLEGA!
unarfræðingi eru 1) Kári Liljendal
Hólmgeirsson, f. 19.6. 1995, kvik-
myndagerðarmaður og starfar hjá
N4 á Akureyri, og 2) Karl Liljendal
Hólmgeirsson, f. 14.6. 1997, starfar á
Hótel KEA á Akureyri og er vara-
þingmaður Miðflokksins.
Bræður Hólmgeirs: Gunnar
Karlsson, f. 29.3. 1952, sviðsstjóri
hjá Ríkisskattstjóra, býr á Akureyri;
Jón Karlsson, f. 14.5. 1953, d. 22.4.
1992, hjúkrunarfræðingur; Randver
Karl Karlsson, f. 17.11. 1958, fram-
kvæmdastjóri Ljósgjafans á Akur-
eyri, býr í Eyjafjarðarsveit; Ingvar
Karlsson, f. 10.7. 1963, fyrirtækja-
eftirlitsmaður hjá Vinnueftirlitinu í
Reykjavík, býr í Hafnarfirði; Hans
Liljendal Karlsson, f. 30.11. 1973,
forstöðumaður Kerfisþróunar og
stýringar hjá Veitum ohf. í Reykja-
vík, býr í Reykjavík.
Foreldrar Hólmgeirs voru hjónin
Karl Liljendal Frímannsson, f.
17.03. 1924, d. 6.5. 2010, og Lilja
Randversdóttir, f. 20.7. 1930, d. 22.8.
2018. Þau voru bændur alla sína
starfstíð. Hófu sinn búskap í Mel-
gerði í Eyjafjarðarsveit en bjuggu
síðan á Dvergsstöðum lengstan
hluta starfsævinnar og síðustu árin á
Akureyri.
Hólmgeir
Karlsson
Guðrún Sigfúsdóttir
húsfreyja
Ólafur G. Jóhannesson
bóndi á Skriðu og síðar
Miklagarði í Eyjafirði
Hólmfríður Ólafsdóttir
húsfreyja
Randver Karles Jóhannesson
bóndi í Melgerði og Hleiðargarði
í Eyjafirði og síðar bókbindari
Lilja Randversdóttir
húsmóðir í Melgerði
og á Dvergsstöðum
Ólína Ragnheiður Jónsdóttir
húsfreyja
Jóhannes Randversson
bóndi á Jökli og Syðri-
Villingadal í Eyjafirði
Kristín Sigfúsdóttir
skáldkona frá Kálfagerði
Geirlaug Jóhannesdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki
Jóhannes Geir
Jónsson listmálari
Baldur Frímannsson
kaupmaður í Filmuhúsinu
á Akureyri
Ingibjörg Kristjánsdóttir
húsfreyja
Sigurjón Friðrik Jónsson
bóndi í Garðshorni á Þelamörk og síðar
Stóragerði í Myrkárdal, Eyjafirði
Jónína Pálína Sigurjónsdóttir
húsfreyja
Frímann Karlesson
bóndi á Arnarstöðum og Dvergsstöðum
og síðar verslunarmaður á Akureyri
Lilja Frímannsdóttir
húsfreyja
Ferdínand Karles Randversson
bóndi í Hlíðarhaga í Eyjafirði
Úr frændgarði Hólmgeirs Karlssonar
Karl Liljendal Frímannsson
bóndi í Melgerði og síðar á
Dvergsstöðum í Eyjafjarðarsveit
Íhádegisfréttum ríkisútvarpsins áfimmtudag sagði þulur frá
„mannýgum hundi“ sem hefði elt og
gelt að dreng á hjóli á Eskifirði.
Þetta barst í tal við karlinn á Lauga-
veginum þar sem ég hitti hann fyrir
utan Brynju. Hann saug upp í nefið,
sveigði höfuðið afturábak til vinstri
og tautaði:
Fyrir austan eru naut sem glefsa.
Hestar finnast hornóttir.
Hundar eru mannýgir.
Og snerist á hæl.
Lausn Helga R. Einarssonar á
gátunni á laugardag fylgdu tvær
limrur. Önnur um þágufallssýki:
Þegar að Jóhann þorði
þá varð honum að orði:
„Mér langar það,
þú veist í hvað.“
Þvílíkur orðaforði!
Síðan er „Glatað tækifæri“:
Í fyrstu vonin var veik,
en svo vappaði’ ún fram hjá mér keik
og kvakaði kát,
en þá kom á mig fát:
Ég gæsina þess vegna’ ei greip.
Ólafur Stefánsson skrifaði á Leir á
fimmtudag: „Nú er farið að dusta
rykið af stólunum niðrá Kanó og
dýnurnar komnar út til loftunar. Hér
heima kemst líka hreyfing á eftir
mánaðamótin og ein ferðaskrifstofa
er svo bjartsýn að auglýsa ferðir
niðreftir upp úr fyrstu viku júlí. Sum-
ir bíða spenntir með borgaða miða
og passa á lofti, nema hann sé út-
runninn og þá þarf að bæta úr því“:
Nú bíður hún brosmild og fegin
á bikiní. Passinn framdreginn.
Sér ætlar að mæta
Sigurbjört sæta
á hótelið heldrafólksmegin.
Skírnir Garðarsson skrifar: „Á
Landsbókasafni er hægt að glugga í
gamlar kirkjubækur, þar er oftar en
ekki fært til bókar hvar fólk dó, og
hvers vegna (dánarorsök). Á einum
stað er staðsetning andláts manns á
Suðurlandi „á förnum vegi“. Mað-
urinn var prestur í Flóanum, og dán-
arorsök skráð „óviss““:
Kostuleg er kirkjubók,
þó kær sé hennar lestur.
Á förnum vegi flugið tók,
einn ferðalúinn prestur.
„Góðan Leirdag!“ sagði Sigmund-
ur Benediktsson:
Nú skal virkja þrek og þol
þó að sól ei hreppi.
Allan hylur Óðinshvol
ofið þokuteppi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af mannýgum hundum
og presti í Flóanum