Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 7
„Við verðum að efla skilning á því að sprota- fyrirtæki eins og Fólk Reykjavík, Farmers Market, Geysir, Hildur Yeoman og fjöldi annarra hönnunarfyrirtækja tilheyra öflugu nýsköpunarumhverfi á Íslandi alveg eins og tæknifyrirtækin,“ segir Halla Helgadóttir. stefnumótandi hönnun (e. DesignThinking) sem eru helstu vaxtargreinar hönnunar í dag í heim- inum.“ Lesa má út úr rannsókninni að efla þarf nám á sviði hönnunar og tengja á milli ólíkra greina. „Við gætum til dæmis horft til Alvar Aalto- skólans í Finnlandi í þeim efnum, þar sem hönn- unar-, tækni- og viðskiptamenntun er tengd saman. Besta leiðin til þess er að efla verulega Listaháskóla Íslands, tryggja honum gott hús- næði, t.d í Vatnsmýri, svo hann geti betur sinnt hlutverki sínu, breikkað námið, eflt rannsóknir og byggt brýr yfir í aðra háskóla.“ Hvað varðar hefðbundnar hönnunargreinar svo sem vöru- og húsgagnahönnun, þá segir Halla að Íslendingar hafi ekki átt sterk iðn- og framleiðslufyrirtæki hér á landi sem byggja á hönnun. „Það er ekki hefð fyrir sterkri innlendri framleiðslu eða vöruhönnun. Ólíkt Dönum sem eiga fjölda slíkra fyrirtækja sem skapa sterkan grunn fyrir atvinnulíf og þróun hönnunar á því sviði.“ Hér á landi hafa þó fyrirtæki verið að hasla sér völl á þessu sviði, fyrirtæki eins og hönn- unarfyrirtækið Fólk Reykjavík sem er að sögn Höllu að gera mjög áhugaverða hluti. Fyrir- tækið ráði unga íslenska hönnuði í vöruþróun, og leggi um leið áherslu á nýjar og sjálfbærar leiðir í framleiðslu. „Við verðum að efla skilning á því að sprotafyrirtæki eins og Fólk Reykjavík, Farmers Market, Geysir, Hildur Yeoman og fjöldi annarra hönnunarfyrirtækja tilheyra öfl- ugu nýsköpunarumhverfi á Íslandi alveg eins og tæknifyrirtækin.“ Halla segir að stærri fyrirtæki eins og 66°Norður leggi verulega áherslu á hönnun, séu með fjölda hönnuða í vinnu og séu að ná miklum árangri í alþjóðlegri markaðssetningu. Einnig hafi fyrirtæki eins og BioEffect, Sóley Organics, CCP, Genki Instrument, Meniga og fjöldi ann- arra hönnun sem megintæki í uppbyggingu. „Það er mjög mikilvægt að á Íslandi þrífist fjölbreytileg flóra fyrirtækja sem hafa hönnun sem grundvöll í starfsemi sinni en einnig fyrir- tæki sem nýta hönnun sem grundvallandi aðferð í uppbyggingu. Hönnun er frábært tæki sem hægt er að nýta til að ná samkeppnisforskoti í harðri samkeppni.“ Þjóðin er ung í hönnunarsamhengi Það er gaman að velta fyrir sér hver sérstaða Íslendinga sem hönnuða sé. Halla segir að þjóðin sé ung í hönnunarlegu samhengi. Hún hvíli ekki á sterkri hefð. Í því felist hins vegar frelsi, sem aftur hvetji til tilraunamennsku og nýsköpunar. „Svo felast tækifæri í nándinni sem er hér, það er stutt á milli okkar allra og líka ólíkra greina hönnunar og arkitektúrs.“ Halla segir að til að hér á landi verði til öflugt atvinnulíf sem byggir á hönnun og arkitektúr þurfi sterkt atvinnulíf sem hefur þekkingu á og sér tækifærin í því að fjárfesta í góðri hönnun og líta á aðferðafræði hönnunar sem lykiltæki til ár- angurs. Í skjóli þess verði lífleg tilraunastarf- semi og grasrót að fá að þrífast þar sem ungt skapandi fólk spyrji gagnrýnna spurninga. „Ungir hönnuðir og arkitektar sjá áskoranir samtímans í umhverfismálum og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna fyrst og fremst sem tæki- færi til að endurskapa og leita nýrra leiða til að móta þá framtíð sem við viljum sjá hér á Ís- landi.“ Miðstöð hönnunar og arkitektúrs vinnur nú að stórum hugmyndum um breytingar til fram- tíðar. „Stakkurinn sem okkur er sniðinn er því miður of þröngur til að við getum náð þeim ár- angri sem við stefnum að. En ég trúi að við stöndum á krossgötum þar sem við þurfum öll að endurskoða hvernig við gerum hluti. Þar koma skapandi aðferðir hönnunar sterkar inn sem hluti af lausninni. Það sést mjög skýrt nú á tím- um Covid-19 hvað við erum gjörn á að velja hefð- bundnar leiðir og lausnir sem oft eru úreltar og ólíklegar til árangurs. Stjórnvöld verða að þora að fjárfesta í nýjum leiðum eins og hönnunar- drifinni, notendavænni nýsköpun þar sem áhersla á sjálfbærni, umhverfi, gæði og fagur- fræði er sjálfsögð.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 243.667 samtals aðilar í hönnunar-geira á Norðurlöndunum Danmörk 51.371 Einkageirinn 85% Hið opinbera 12% Þriðji geirinn 3% Finnland 54.985 Ísland 4.572 Noregur 35.707 Svíþjóð 97.024 Fagfólk í hönnunargeiranum er um 2% af vinnuafli í hverju landi Fagfólk í hönnunargeiranum vinnur mestmegnis í einkageiranum. Það starfar í margvíslegum greinum en meirihlutinn er í framleiðslu, miðlun og þekkingariðnaði. Opinberi geirinn er með 12% geirans í vinnu. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 7VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.