Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020FRÉTTIR
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákúst
á tannbu
verði
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
ar
rsta Laufhrífur
frá 999
Sandkassagrafa
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Eins og hendi væri veifað hurfu 1,9
milljarðar evra úr efnahagsreikningi
þýska fjártæknifyrirtækisins Wire-
card. Góðu fréttirnar eru þær að
flest bendir til að peningarnir hafi í
raun aldrei verið til, og því ekki eins
og innherjar hjá fyrirtækinu hafi
stungið undan svo miklu fé að gæti
dugað til að kaupa eitt lítið eyríki í
Karíbahafinu og lifa þar í vellyst-
ingum ævina á enda.
En eftir sitja hluthafar með sárt
ennið, þýsk stjórnvöld með bux-
urnar á hælunum, og allur fjár-
tæknigeiri Evrópu sem getur vænst
þess að Wirecard-hneykslið verði til
þess að yfirvöld um alla álfuna sjái
sig knúin til að setja fjártæknifyrir-
tækjum auknar skorður. Ef fall
Wirecard leiðir til þess að rekstrar-
umhverfi evrópskra fjártæknifyrir-
tækja versnar til muna, svo að þau
dragast aftur úr bandarískum og as-
ískum keppinautum sínum, þá er
hætt við að Evrópa muni reka lest-
ina í fjártæknibyltingunni. Verða 1,9
milljarðar evra þá smápeningar í
samanburði við þau verðmæti sem
evrópskir fjártæknisprotar hefðu
getað skapað.
Atburðarásin hefur verið hröð, og
óljós á köflum, svo það er ágætt að
rifja upp hvernig vonarstjarna
þýska fjártækniheimsins hleypti öllu
í háaloft:
Wirecard byrjaði ekki vel. Upphaf
fyrirtækisins má rekja til ársins
1999 en dotcom-bólan gerði óðara út
af við félagið. Markus Braun reið inn
á hvítum hesti árið 2002 þegar hann
endurlífgaði reksturinn, settist í for-
stjórastólinn og rakaði inn nýju fjár-
magni til að hrinda af stað ævin-
týralegu vaxtartímabili. Árið 2005
smyglaði Wirecard sér síðan inn á
þýska hlutabréfamarkaðinn gegnum
yfirtöku á skráðu félagi á vonarvöl.
Vöxtur Wirecard byggðist ekki
síst á yfirtökum á alls kyns greiðslu-
miðlunarfyrirtækjum um allan heim.
Hlutabréfaverðið stefndi rakleiðis
upp á við fyrsta áratuginn eftir
skráningu, og þaut svo af stað árið
2017 svo það nærri fimmfaldaðist á
tuttugu mánuðum. Hæst fór hluta-
bréfaverð Wirecard AG yfir 190 evr-
ur í lok sumars 2018 en tók svo að
leita niður á við og var í námunda við
100 evrur þegar botninn datt úr í
miðri síðustu viku. Þegar best lét
var Wirecard metið á um 25 millj-
arða evra og árið 2018 var það tekið
inn í DAX 30-vísitöluna í stað Com-
merzbank. Daginn áður en fréttir
bárust af svindlinu mikla var Wire-
card verðmætara en Deutsche
Bank.
Vafasöm vinnubrögð
Á yfirborðinu virtist allt með
felldu, og Wirecard leit út fyrir að
vera eitt af þessum efnilegu tækni-
fyrirtækjum sem væru vís til að
sigra heiminn: með fullkomnar
greiðslumiðlunarlausnir fyrir bæði
agnarsmá fjölskyldufyrirtæki og al-
þjóðlega risa, og samstarfssamninga
við öll helstu korta- og greiðslufyrir-
tæki heims, frá Visa og Master Card
yfir til Alipay. Allt svo glansandi og
fullkomið að meira að segja Soft-
Bank lét glepjast og keypti sig inn í
félagið á síðasta ári með 900 milljóna
evra breytanlegu skuldabréfi.
Hér og þar heyrðust efasemda-
raddir, en þær voru ekki háværar.
Þannig skrifaði blaðamaður FT um
það árið 2015 að Wirecard bæri sig
undarlega að við yfirtökur, og að óá-
þreifanlegar eignir félagsins væru
grunsamlega hátt metnar. Þurfti að
rýna vel og vandlega í fjármála-
upplýsingar frá ólíkum löndum til að
sjá að eitthvað var ekki alveg eins og
það átti að vera.
Verður ekki tekið af blaðamönn-
um FT að þeir láta fátt stoppa sig og
var rannsóknin á Wirecard bæði
löng og ströng. Paul Murphy, sem
stýrði teymi blaðamanna við rann-
sóknina, hefur haft gætur á Wire-
card í fjölda ára. Var verkefnið það
erfiðasta sem hann hefur fengist við
á löngum ferli: „Við mættum ótrú-
legri andstöðu við rannsókn málsins.
Við vorum eltir, njósnað var um okk-
ur og hakkarar reyndu að brjótast
inn í tölvurnar okkar. Á netinu
þurftum við að sæta gríðarlegu
áreiti, bæði frá tröllum á Twitter og í
gegnum tölvupóst. Virðist sem fólk
sem starfar hjá Wirecard hafi staðið
í vægðarlausri herferð þar sem
reynt var að draga upp þá mynd af
blaðamönnum FT að þeir væru
spilltir og með einhverjum hætti í
liði með spákaupmönnum sem vildu
spila með hlutabréfaverð Wirecard.“
Svindlið hjá Wirecard virðist eink-
um hafa gengið út á það að beina
fjármagni til dótturfélaga gegnum
sýndarviðskipti til að fegra efna-
hagsreikninga þeirra. Þá kvaðst
Wirecard eiga nærri 2 milljarða evra
á geymslureikningum hjá bönkum á
Filippseyjum, af öllum stöðum, en
það var tilbúningur einn og stemmir
upphæðin gróflega við gervihagnað-
inn sem hafði orðið til í sýndarvið-
skiptum dótturfélaganna. Er útlit
fyrir að starfsmenn Wirecard, og
vitorðsmenn þeirra á Filippseyjum
hafi falsað gögn um innistæður á
geymslureikningum og þegar málið
var borið undir stjórnendur bank-
anna voru þeir gáttaðir: „Það eru
sennilega ekki einu sinni til 1,9 millj-
arðar evra í öllu bankakerfi Filipps-
eyja“ sagði einn þeirra í viðtali og
bætti við að það hefði mátt sjá það
strax að umrædd gögn voru fölsuð.
Þar með er ekki sagt að hefðbund-
inn rekstur Wirecard hafi ekki verið
arðbær. Í gegnum kerfi fyrir-
tækisins streymdu daglega greiðslu-
færslur upp á mörg hundruð millj-
ónir evra, og í viðskiptavinahópi
fyrirtækisins mátti finna risa á borð
við Wizz Air, IKEA, Aldi, FedEx,
KLM og Deutsche Telekom. En
vöxturinn var drifinn áfram af vafa-
sömum umsvifum dótturfyrirtækja
Wirecard, og hagnaði sem virðist
hafa verið búinn til með brellum.
Margir súpa seyðið
Fall Wirecard mun hafa víðtækar
afleiðingar, bæði innan og utan
Þýskalands. Spjótin munu t.d. bein-
ast að endurskoðunarfyrirtækjunum
sem komu ekki auga á misfellurnar í
bókhaldinu. Kann málið að vera
stærsta endurskoðunarhneykslið frá
því komst upp um Enron-svindlið
árið 2001.
Þýsk stjórnvöld þurfa líka að
svara til saka og orðspor þýska fjár-
málageirans er laskað. Það hefði
mátt hlusta ögn betur á gagnrýnis-
raddirnar og grípa inn í miklu fyrr.
Núna kraumar eflaust á mörgum
þýskum sparifjáreigandanum því
hlutabréf Wirecard voru mjög vin-
sæll fjárfestingarkostur hjá þýskum
almenningi.
Og ef pólitíkusana svíður of mikið
undan Wirecard-hneykslinu eru þeir
vísir til að grípa til þess ráðs að inn-
leiða strangari reglur um starfsemi
fjártæknifyrirtækja. Víða hafa
stjórnvöld einmitt reynt eftir
fremsta megni að gefa þessum geira
sem mest svigrúm svo strangt, flók-
ið og þungt regluverk hefðbund-
innar fjármálastarfsemi hægi ekki á
nýsköpun. Ef sagan kennir okkur
eitthvað, þá er það að skelfdum
stjórnmálamönnum hættir frekar til
að ganga of langt en of skammt.
Fjártæknirisi með slæma samvisku
Ásgeir Ingvarsson
skrifar frá Istanbúl
ai@mbl.is
Fölsuð skjöl, bókhalds-
kúnstir og sýndarviðskipti
báru uppi ævintýralegan
vöxt Wirecard. Fyrirtæki
sem var verðmætara en
Deutsche Bank riðar nú til
falls í hneykslismáli sem er
það stærsta síðan komst
upp um Enron-svindlið.
AFP
Markus Braun tókst að lyfta Wirecard upp í hæstu hæðir og gerði sjálfan sig að milljarðamæringi um leið. Velgengnin virðist hafa byggt á blekkingum.