Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
„Ég er mjög tilfinningarík og þegar kirkjudyrnar
opnuðust og orgelið ómaði, ég sá kirkjuna fulla af
fjölskyldu okkar og vinum og manninn minn uppi við
altarið réði ég ekki við tilfinningarnar lengur. Ég
fann einstakan samhug frá allri kirkjunni. Enda eig-
um við gott fólk í kringum okkur og mágur minn og
systir mín Sigga sáu um hljóðfæraleik í kirkjunni og
vinkona mín söng. Við erum þeim svo þakklát og
þessi stund var enn persónulegri fyrir vikið.
Presturinn okkar hún Elínborg Sturludóttir var jafn-
framt frábær. Ég man eftir að hafa setið í kirkjunni
og fengið tilfinningu sem hvorki er hægt að lýsa með
orði né myndum.“
Hún segir Perluna einstakan stað að gifta sig á.
„Í kjölfarið héldum við í Perluna, þar sem við skál-
uðum, borðuðum góðan mat og dönsuðum fram á nótt.
Við getum innilega mælt með veitingastaðnum Út í
bláinn. Bæði starfsfólkinu, matnum og þjónustunni.
Viðmót þeirra og fagmennska er frábær og maturinn
svakalega góður. Það var magnað að fylgjast með sól-
setrinu úr Perlunni og staðurinn var engu líkur. Það
var dýrmætt að vera saman komin með fjölskyldu og
vinum og í veislunni sannaðist það enn og aftur hvað
við eigum góða að. Frábærir vinir okkar stjórnuðu
veislunni með glæsibrag og erum við þeim mjög
þakklát. Það var gaman að rifja upp ýmislegt í gegn-
um ræður fjölskyldu og vina, frænkur Sigga komu
okkur á óvart með því að syngja Stuðmannalag og
spila á úkúlele og þegar út á dansgólfið var komið
byrjuðu allir gestirnir að dansa sama dansinn sem
þau höfðu æft í laumi fyrir brúðkaupið! Það var
magnað og skapaði mikla gleði. Við höfðum síðan sjálf
æft smá dansatriði og dönsuðum fyrst hinn hefð-
bundna brúðarvals en skiptum svo yfir í fjörugan
„jive“ sem var mjög skemmtilegt og skapaði góða
stemningu fyrir dansgólfið. Við höfum lengi verið í
dansi hjá Jóhanni Erni hjá Dans og jóga. Hann er al-
gjörlega frábær og konan hans hún Thea sömuleiðis
en hún kennir jóga. Við vorum sammála um að ekki
væri hægt að halda gott brúðkaup án Jóa og dans-
takta hans og fengum hann því til þess að kenna gest-
unum nokkur vel valin zumba-spor. Það sló í gegn og
gerði það að verkum að gestirnir voru óhræddir við
að koma út á dansgólf. Í kjölfarið fengum við Pétur
og Hörð, sem eru ungir og hæfileikaríkir söngvarar
og hljóðfæraleikarar sem kalla sig Tjörnes, til þess að
halda uppi stuðinu og spila.“
Byrjaði að skipuleggja brúðkaupið snemma
Hún segir kvöldið hafa liðið hratt og þau hafi elsk-
að að vera á dansgólfinu.
„Það var áskorun að koma sér af dansgólfinu og
heim þegar leikar stóðu hæst.
Ég hafði síðan séð það fyrir mér að það væri gam-
an að enda kvöldið með stjörnuljós í hendi en það fór
ekki betur en svo að ég keypti svo mörg stjörnuljós
að úr varð stjörnuljósasprenging við Perluna um
miðja nótt! Gleðin var svo mikil að það skipti ná-
kvæmlega engu og þetta er gott dæmi um það að
smáatriðin skipta engu máli og það er ekki hægt að
plana allt fyrir fram.“
Hvernig lýsir þú undirbúningi brúðkaupsins?
„Undirbúningurinn var nokkuð langur og mjög
skemmtilegur en líka stressandi inn á milli. Það er
frekar mikil samfélagsleg pressa í kringum brúðkaup
ef það má orða það svo. Útlitið á að vera á ákveðinn
hátt og mikið er gert úr öllu. Það er síðan auðvelt að
gleyma sér á samfélagsmiðlum og þar fær maður ým-
is skilaboð um það hvernig hitt og þetta eigi að vera
og hvernig þú eigir að líta út.“
Áslaug Björk segir að hún hafi fengið einkennilegar
auglýsingar til sín í gegnum samfélagsmiðla fyrir
brúðkaupið.
„Ég fékk t.a.m. auglýsingu um að nú væri rétti tím-
inn til þess að fara í fitusog og strekkingu fyrir stóra
daginn. Þetta er auðvitað galið og að sjálfsögðu á
minntu mig á að njóta stundarinnar. Siggi gerði sig til
heima hjá okkur og gekk svo yfir til foreldra minna
um miðjan daginn. Þar hittumst við í garðinum uppá-
klædd og tilbúin í daginn. Það var dýrmæt stund.
Síðan fórum við með ljósmyndaranum og tókum
nokkrar myndir. Við vildum heldur gera það þannig
en að láta gestina bíða á milli athafnar og veislu.“
Tilfinningaríkt að ganga inn kirkjugólfið
Áslaug Björk rifjar upp tilfinninguna að ganga inn
kirkjugólfið.
maður að loka augunum fyrir þessu. Það eina sem
skiptir máli er hvernig þér líður og hvernig þú vilt
fagna þessum tímamótum. Það þarf alls ekki að
skipuleggja brúðkaup með miklum fyrirvara eða gera
mikið úr þeim. Hvernig sem þetta er gert er þetta
alltaf dýrmæt stund og gleðileg og það er það eina
sem skiptir máli. Ég mæli með því að finna brúðar-
kjól með góðum fyrirvara. Ég fann hann á endanum á
netinu og fékk Malen hjá Eðalklæðum til þess að
sníða hann að mér og gera slör. Mér fannst mjög há-
tíðlegt að vera með slör í kirkjunni og í upphafi veisl-
unnar og mæli innilega með Malen, en hún er fag-
manneskja fram í fingurgóma. Hún saumaði
gullfallega kjóla frá grunni á tengdamömmu mína og
ömmu Sigga.“
Dans skiptir miklu máli í veislunni
Áslaug Björk segir mikilvægt að skipuleggja brúð-
kaupið með góðum fyrirvara.
„Við pöntuðum kirkjuna með um árs fyrirvara og
salinn með um 10 mánaða fyrirvara. Annað skipulögð-
um við svo með styttri fyrirvara og í okkar tilfelli
gerðist mest einum til tveimur mánuðum fyrir brúð-
kaupið.
Það var gaman að deila skipulaginu með fjölskyldu
og vinum. Mánuði fyrir brúðkaupið fórum við í kvöld-
verð í Perlunni með foreldrum okkar og smökkuðum
ýmislegt af matseðlinum. Það var góð stund og gerði
þetta allt svo raunverulegt.“
Áttu góð ráð fyrir þá sem eru að fara að gifta sig?
„Við mælum innilega með því að læra að dansa. Við
mælum með því að hafa samband við Jóa hjá Dans og
jóga og fara á námskeið hjá þeim og/eða í einkatíma.
Síðan mælum við með því að fá hann til þess að taka
nokkur zumba-spor í veislunni. Það skapar frábæra
stemningu!
Að sama skapi mælum við með því að ráða góðan
ljósmyndara og helst allan daginn.“
Hvað myndir þú alltaf gera aftur?
Við vorum himinlifandi með daginn og við það að
rifja þetta allt upp vill maður helst endurtaka leikinn
á nákvæmlega sama máta! Það eina sem við höfum
hugsað eftir á er að það hefði verið gaman að hafa
enn fleiri með okkur, til dæmis vinafólk foreldra okk-
ar og fleiri vini, en eins og margir sem skipulagt hafa
stór brúðkaup þekkja er erfitt að setja saman gesta-
lista.“
Hverju myndir þú sleppa?
„Við myndum vilja sleppa streitunni sem stundum
fylgdi undirbúningnum og minna okkur á að það er
fólkið sem skiptir máli, ekkert annað. Þess fyrir utan
dettur okkur ekkert í hug sem við myndum sleppa.“
Tilfinningar sjást á ljósmyndunum
Hvaða máli skipta ljósmyndir af deginum stóra?
„Mér finnst ljósmyndirnar skipta miklu máli og
finnst sérstaklega dýrmætt að eiga þær núna til þess
að rifja þennan frábæra dag upp. Maður skynjar
hreinlega stemninguna og tilfinningarnar í gegnum
myndirnar. Ljósmyndarinn Laimonas hjá Sunday &
White Photography er metnaðarfullur og leggur sig
allan fram. Það hafa margir nefnt það hve hart hann
lagði að sér og það sást langar leiðir. Hann lagði mik-
ið upp úr því að hitta okkur fyrir brúðkaupsdaginn og
kynnast okkur. Þannig varð allt persónulegra. Hann
er með frábært auga, var með okkur allan daginn og
náði því að fanga hann í heild sinni, undirbúninginn,
athöfnina, veisluna, fólkið og umhverfið. Við mælum
eindregið með honum.“
Hvað gerir þú við ljósmyndirnar?
„Við höfum búið til myndabækur og látið ramma
einhverjar myndir inn. Það er gaman að rifja daginn
upp þannig. Við notuðum myndirnar líka í þakkarkort
til gestanna. Laimonas tók fjölmargar myndir og setti
þær upp á vefsíðu fyrir okkur. Hún er falleg og henni
getum við deilt með vinum og fjölskyldu.“
Áslaug og Sigurður
höfðu æft brúðardans-
inn fyrir brúðkaupið.
Brúðhjónin skemmtu
sér konunglega í
brúðkaupinu.
Brúðhjónin á
góðri stundu á
brúðkaupsdaginn.
Í blíðu og stríðu.
Akstur fyrir
brúðhjón