Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 16
inn fullkominn. Dagurinn verður ekki fullkominn, en
hann verður einstakur. Brúðhjón eiga að njóta hvers
augnabliks,“ segir Lára.
Brúðkaupsferðalagið í borg kvikmyndanna
Eitt af því sem stóð upp úr við brúðkaupið var
brúðkaupsferðin sem var farin til Los Angeles.
Hvers vegna völduð þið Los Angeles?
„Aðdragandinn að þeirri ferð var áhugaverður. Ég
hef verið með annan fótinn í kvikmyndaiðnaðinum
undanfarin ár. Í janúar 2017 var ég fengin til að sjá
um og hjálpa aðstoðarkonu framleiðanda Game of
Thrones við tökur á sjöundu seríu hér á landi. Fram-
leiðendunum, þeim David Benioff og D.B. Weiss,
kynntist ég vel á þeim þremur vikum sem ég vann
með þeim. Þeir vissu að maðurinn minn væri kvik-
mynda-gerðarmaður. Þeir vildu því endilega bjóða
honum að koma á sett til að fylgjast með tökum, sem
hann svo gerði strax næsta dag.
Að tökum loknum, rétt áður en þeir flugu heim,
buðu þeir okkur tveim, ásamt aðstoðarkonu sinni, í
sjö rétta máltíð á Dill. Umræðurnar það kvöldið urðu
ansi skrautlegar og minntumst við á að okkur hefði
alltaf langað til að ferðast til Bandaríkjanna og þá
sérstaklega til Los Angeles. Þá skaut Aron því inn að
kannski ættum við bara að taka brúðkaupsferðina
þangað. Viðbrögðin voru betri en við bjuggumst við!
Þeim fannst það æðislegt og buðu okkur á sérstaka
HBO-frumsýningu sjöundu seríu GOT í Walt Disney
Concert Hall, með öllu þotuliðinu. Tímasetningin á
frumsýningunni var u.þ.b. tveimur vikum eftir brúð-
kaupsdaginn og hentaði því einstaklega vel,“ segir
Lára.
Brúðhjónin voru þrjár vikur í brúðkaupsferðalagi
og tóku íbúð á leigu í gegnum Airbnb.
„Íbúðin var á North Orange Drive, sem er í fimm
mínútna göngufæri við Hollywood Boulevard og
Hollywood Walk of Fame. Ferðalagið var einstakt,
sér í lagi þar sem þetta var í fyrsta skiptið sem við
ferðuðumst ein saman út fyrir landsteinana. Fram að
þessu höfðum við einungis ferðast með vinum eða
fjölskyldu. Það reyndi strax á hjónabandið. Hinn 6.
júlí, daginn fyrir flugið, vorum við í mat hjá for-
eldrum Láru. Við vorum að tala um ferðaáætlun okk-
ar og hvað við værum spennt. Ég hafði tekið niður
flugupplýsingarnar, svo við gætum skráð okkur raf-
rænt inn, og stuttu seinna fær Lára svo tölvupóst
varðandi íbúðina. Þá byrjaði stressið, því við uppgötv-
uðum að við ættum flug út þennan sama dag, þremur
klukkustundum síðar. Við vorum bæði viss um að
flugið væri 7. júlí, en svo var ekki, svo við þeyttumst
heim, pökkuðum í tösku og fórum síðan beint út á
flugvöll. Við misstum af fluginu og sem betur fer var
flug á áfangastaðinn daginn eftir á sama tíma og
ákváðum við að líta á það þannig að okkur hefði verið
ætlað að fljúga út þá,“ segir Aron.
Þannig að þið mælið með að blanda áhugamálum
inn í brúðkaupsferðalagið?
„Já ekki spurning. Við kynntumst mörgu skemmti-
legu fólki. Fengum að upplifa rauða dregilinn og um-
stangið í kringum Hollywood-frumsýningu. Áttum
frábærar samverustundir bara tvö. Við nutum okkar í
botn í borginni, sem hefur verið í miklu uppáhaldi
síðan,“ segir Lára.
Lára og Aron
byrjuðu saman 1.
ágúst árið 2007.
Trúlofuðust 1. janúar
árið 2014 og giftu sig 1.
júlí árið 2017. Tíu árum
eftir að þau kynntust fyrst.
hringaberar; Haraldur Grétar Bender lék létt hlut-
verk í brúðarmyndunum; Sigrún Jakobína Haralds-
dóttir amma mín útbjó brúðarvöndinn úr fallegum
blómum beint úr sumarbústaðnum sínum, til við-
bótar við fallegar hortensíur úr garðinum
hennar mömmu, Lindu Hauksdóttur Ham-
mer; foreldrar Arons, þau Baldur Jónsson og
Hugrún Svavarsdóttir, hjálpuðu með brúð-
arfötin; systir mín Helga er lærður hár-
greiðslumeistari og förðunarfræðingur og
sá hún um hár okkar og mína förðun; vinir
okkar sáu um tónlistina og svo mætti lengi
telja,“ segir Lára.
Eigið þið ráð að gefa öðrum fyrir brúð-
kaupið?
„Ekki vera hrædd við að biðja ykkar nán-
ustu um aðstoð og greiða til að létta undir með
ykkur. Það gerir daginn persónulegri.
Brúðkaupsdagurinn á að vera léttur og skemmti-
legur. Eins er gott að muna að þótt eitthvað fari úr-
skeiðis er alltaf hægt að horfa á björtu hliðarnar.
Ekki gleyma ykkur í óþarfa stressi við að gera dag-
„Fram að þessu höfðum við
einungis ferðast með vinum
eða fjölskyldu. Það reyndi
strax á hjónabandið.“
Lára og Aron vildu vera
í sínu fínasta pússi úti í
fallegri grófri náttúrunni.
Ljósmyndir/Mr. Flóvent
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott föt, fyrir flottar konur