Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 40
Hyljari fyrir augnsvæðið
Leynivopn margra er eflaust hyljari. Ef þú velur of
þurran hyljara eru þó líkur á að hann ýti undir allt
sem þú ert að reyna að hylja. Þegar kemur að hylj-
ara fyrir augnsvæðið er mikilvægt að kremkennd og
mjúk formúla verði fyrir valinu sem helst þó á sínum
stað. Highlighting Concealer frá Sensai er þægileg-
ur í notkun og hentar vel til daglegrar notkuna.
Formúlan eykur raka í húðinni og veitir létta þekju.
Fyrir miðlungsþekju er Synchro Skin Correcting
GelStick Concealer frá Shiseido tilvalinn. Formúlan
er byggð á þremur gerðum af geli sem vernda húð-
ina, mýkja og sjá til þess að hann renni ekki í línur.
Ef þú vilt mikla þekju og langvarandi
formúlu er Studio Skin Flawless 24
Hour Concealer frá Smashbox mjög
góður kostur. Formúlan inniheldur
einnig koffín og rakagef-
andi hýalúrónsýru sem er
gott innihaldsefni fyrir
augnsvæðið.
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Demantar
í úrvali fyrir ástina þína
Litaleiðrétting
Förðunardrottningin Bobbi
Brown sá til þess að allar konur
vissu um litaleiðréttingu undir augn-
svæðinu áður en hyljari var var sett-
ur yfir baugana. Með því að nota
formúlu með bleikum tón gerir þú
blámann í baugunum hlutlausan og
bleiki tónninn gerir augnsvæðið
einnig bjartara. Creamy Corrector
frá Bobbi Brown er fullþekjandi og
langvarandi formúla sem hylur
bauga og þreytumerki sérlega vel.
Augnskuggagrunnur
Fyrir augnförðun er oft gott að
nota augnskuggagrunn svo augn-
förðunin haldist betur. Prófaðu
Eyeshadow Primer Potion Anti-
Aging frá Urban Decay en þessi
formúla heldur ekki bara
augnförðuninni á sínum
stað. Hún fyllir upp í fín-
ar línur, dregur úr
roða og lita-
misfellum og veitir
húðinni náttúru-
legan ljóma. Þenn-
an augnskugga-
grunn má einnig
nota undir augun á
undan hyljara.
Allt í kring-
um augun
Augnkrem
Fyrsta skrefið í að huga að
húðinni í kringum augum er
augnkrem. Þegar þú berð á
þig augnkremið skaltu ekki
smyrja því út um allt heldur
notaðu baugfingur til að
þrýsta því létt inn í húðina
undir augunum. Prófaðu
BrightEyes-augnkremið
frá GlamGlow en formúlan
inniheldur m.a. koffín sem
örvar húðina, rakagefandi
hýalúrónsýru og peptíð sem
minnka ásýnd fínna lína í kringum
augun. BrightEyes-augnkremið
býr einnig yfir ljómaögnum sem
birta yfir augnsvæðinu.
Augnmaski
Þegar mikið liggur við er gott að eiga kæl-
andi augnmaska sem dregur úr þrota og
bólgum við augun ásamt því að veita húðinni
aukinn raka. Le Lift Flash Eye Revitalizer
frá Chanel er tveggja skrefa ferli sem sam-
stundis kælir augnsvæðið og eykur ljóma
þess. Fyrst rúllarðu öflugri serumformúlunni
undir augun og leggur svo gelskífurnar yfir.
Formúlan er sérlega virk og
dregur sjáanlega úr þrota, baug-
um og fínum línum. Advanced
Génifique Light Pearl Eye Mask
frá Lancôme er einnig góður
kostur en kælandi gelgríman
nær undir og yfir augun.
Formúlan hefur ró-
andi áhrif, dregur úr
þrota, fínum línum og
gerir augnsvæðið
sléttara.
Augnsvæðið getur
sagt mikið til um lífs-
stíl og svefnvenjur.
GlamGlow BrightEyes
Illuminating Anti-
Fatigue Eye Cream,
7.434 kr.
Chanel Le
Lift Flash
Eye Re-
vitalizer,
21.799 kr.
(10 skífu-
pör)
Lancôme
Génifique
Light Pearl
Hydrogel Melt-
ing Eye Mask,
1.712 kr. (1 stk.)
Bobbi Brown Creamy
Corrector, 5.480 kr.
Urban Decay
Eyeshadow
Primer Potion
Anti-Aging,
4.399 kr.
Smashbox
Studio Skin
24HR Conceal-
er, 4.630 kr.
Shiseido
Synchro Skin
Correcting Gel
Stick Conceal-
er, 5.499 kr.
Sensai
High-
lighting
Concealer,
4.900 kr.
Augun eru spegill sálarinnar en húðin í kringum þau segir
gjarnan til um það hvort við fáum nægilegan svefn, borð-
um næringarríkan mat eða hvort við þurfum á synda-
aflausn að halda. Þegar nóg er að gera getur það reynst
vel að grípa í öflugar húðvörur sem halda augnsvæðinu í
sínu besta formi. Ef það dugar ekki til, þá er kominn tími á
snyrtivörurnar sem láta líta út fyrir að þú fáir nægilegan
svefn.
Lilja Ósk Sigurðardóttir |
snyrtipenninn@gmail.com