Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 40

Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 40
Hyljari fyrir augnsvæðið Leynivopn margra er eflaust hyljari. Ef þú velur of þurran hyljara eru þó líkur á að hann ýti undir allt sem þú ert að reyna að hylja. Þegar kemur að hylj- ara fyrir augnsvæðið er mikilvægt að kremkennd og mjúk formúla verði fyrir valinu sem helst þó á sínum stað. Highlighting Concealer frá Sensai er þægileg- ur í notkun og hentar vel til daglegrar notkuna. Formúlan eykur raka í húðinni og veitir létta þekju. Fyrir miðlungsþekju er Synchro Skin Correcting GelStick Concealer frá Shiseido tilvalinn. Formúlan er byggð á þremur gerðum af geli sem vernda húð- ina, mýkja og sjá til þess að hann renni ekki í línur. Ef þú vilt mikla þekju og langvarandi formúlu er Studio Skin Flawless 24 Hour Concealer frá Smashbox mjög góður kostur. Formúlan inniheldur einnig koffín og rakagef- andi hýalúrónsýru sem er gott innihaldsefni fyrir augnsvæðið. 40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Demantar í úrvali fyrir ástina þína Litaleiðrétting Förðunardrottningin Bobbi Brown sá til þess að allar konur vissu um litaleiðréttingu undir augn- svæðinu áður en hyljari var var sett- ur yfir baugana. Með því að nota formúlu með bleikum tón gerir þú blámann í baugunum hlutlausan og bleiki tónninn gerir augnsvæðið einnig bjartara. Creamy Corrector frá Bobbi Brown er fullþekjandi og langvarandi formúla sem hylur bauga og þreytumerki sérlega vel. Augnskuggagrunnur Fyrir augnförðun er oft gott að nota augnskuggagrunn svo augn- förðunin haldist betur. Prófaðu Eyeshadow Primer Potion Anti- Aging frá Urban Decay en þessi formúla heldur ekki bara augnförðuninni á sínum stað. Hún fyllir upp í fín- ar línur, dregur úr roða og lita- misfellum og veitir húðinni náttúru- legan ljóma. Þenn- an augnskugga- grunn má einnig nota undir augun á undan hyljara. Allt í kring- um augun Augnkrem Fyrsta skrefið í að huga að húðinni í kringum augum er augnkrem. Þegar þú berð á þig augnkremið skaltu ekki smyrja því út um allt heldur notaðu baugfingur til að þrýsta því létt inn í húðina undir augunum. Prófaðu BrightEyes-augnkremið frá GlamGlow en formúlan inniheldur m.a. koffín sem örvar húðina, rakagefandi hýalúrónsýru og peptíð sem minnka ásýnd fínna lína í kringum augun. BrightEyes-augnkremið býr einnig yfir ljómaögnum sem birta yfir augnsvæðinu. Augnmaski Þegar mikið liggur við er gott að eiga kæl- andi augnmaska sem dregur úr þrota og bólgum við augun ásamt því að veita húðinni aukinn raka. Le Lift Flash Eye Revitalizer frá Chanel er tveggja skrefa ferli sem sam- stundis kælir augnsvæðið og eykur ljóma þess. Fyrst rúllarðu öflugri serumformúlunni undir augun og leggur svo gelskífurnar yfir. Formúlan er sérlega virk og dregur sjáanlega úr þrota, baug- um og fínum línum. Advanced Génifique Light Pearl Eye Mask frá Lancôme er einnig góður kostur en kælandi gelgríman nær undir og yfir augun. Formúlan hefur ró- andi áhrif, dregur úr þrota, fínum línum og gerir augnsvæðið sléttara. Augnsvæðið getur sagt mikið til um lífs- stíl og svefnvenjur. GlamGlow BrightEyes Illuminating Anti- Fatigue Eye Cream, 7.434 kr. Chanel Le Lift Flash Eye Re- vitalizer, 21.799 kr. (10 skífu- pör) Lancôme Génifique Light Pearl Hydrogel Melt- ing Eye Mask, 1.712 kr. (1 stk.) Bobbi Brown Creamy Corrector, 5.480 kr. Urban Decay Eyeshadow Primer Potion Anti-Aging, 4.399 kr. Smashbox Studio Skin 24HR Conceal- er, 4.630 kr. Shiseido Synchro Skin Correcting Gel Stick Conceal- er, 5.499 kr. Sensai High- lighting Concealer, 4.900 kr. Augun eru spegill sálarinnar en húðin í kringum þau segir gjarnan til um það hvort við fáum nægilegan svefn, borð- um næringarríkan mat eða hvort við þurfum á synda- aflausn að halda. Þegar nóg er að gera getur það reynst vel að grípa í öflugar húðvörur sem halda augnsvæðinu í sínu besta formi. Ef það dugar ekki til, þá er kominn tími á snyrtivörurnar sem láta líta út fyrir að þú fáir nægilegan svefn. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.