Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Qupperneq 2
Hvernig ertu búinn að hafa það í Covid?
Ég er búinn að hafa það fínt. Ég hef meðal annars
verið að gera hlaðvörp fyrir Storytel með viðtölum við
íslenska tónlistarmenn. Svo hef ég notað tímann til
skipuleggja tónleikahald í Salnum næsta vetur og auk
þess var ég að flytja með tilheyrandi BYKO- og IKEA-
ferðum.
Hvernig verða þessir tónleikar í næstu viku?
Þeir verða ekki líkir neinu sem við höfum gert áður. Þeir
verða akústískir og það verða sagðar margar sögur. Við get-
um verið ansi ræðnir félagarnir; kannski helst við Björn. En
hinir eru líka hnyttnir þó þeir séu rólegri. Það verður ekki
stórvandamál að segja eitthvað á milli laga.
Verður nýjum eða gömlum leyndarmálum
Nýdanskra ljóstrað upp?
Það er meira en líklegt. Við eigum okkur mjög dularfulla
fortíð. Svo vorum við að gefa út nýtt lag sem við munum
örugglega spila.
Þannig að þið eruð enn að semja?
Já, já. Við stefnum á að koma út með nýja plötu á næsta
ári. Ástæðan fyrir því að það er alltaf jafn gaman í þessari
hljómsveit er sú að við höfum reglulega gefið út nýtt efni
í stað þess að lifa eingöngu á fornri frægð.
Farið þið batnandi?
Já, með hverju árinu sem líður. Og við erum ekkert hættir
þótt hljómsveitin sé komin á fertugsaldur. Við sjáum enga
ástæðu til þess.
JÓN ÓLAFSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ekki bara
forn frægð
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2020
Nú þegar maður er farinn að venjast því að kórónuveiran hafi ekkilengur afgerandi áhrif á daglegt líf manns er vert að líta yfir far-inn veg. Í fyrstu, og í raun alveg þar til sett var á samkomubann,
hélt ég að þetta væri nú ekkert til að hafa áhyggjur af. Ég hélt að tölur um
dánartíðni væru stórlega ýktar og faraldurinn myndi aðeins herja á þá verst
settu, líkt og svínaflensan fyrir 10 árum. Að hafa miklar áhyggjur af þessu,
hélt ég, væri hálfgerð móðursýki; þetta myndi líða hjá án þess að maður
tæki eftir því.
Það kom auðvitað ekki á daginn og smátt og smátt greip hræðslan um sig
í samfélaginu. Ég fór meira að segja að verða hræddur við veiruna, aðallega
af því að ég vildi ekki smita aðra. Ef einhver hnerraði eða hóstaði stóð mér
alls ekki á sama og ég hélt niðri í
mér andanum ef einhver kom inn
fyrir tveggja metra radíusinn. Þá
var mér farið að líða heldur óþægi-
lega í ræktinni síðustu dagana áður
en stöðvunum var öllum lokað.
Aðallega var ég þó hræddur við
að í þau fáu skipti sem ég væri á al-
mannafæri myndi fólk dæma mig
sem veikan, dæma mig með veir-
una. Ég hætti að þora að sjúga upp
í nefið þótt ég geri það allan ársins
hring. Ég hélt inni í mér hóstanum
og datt ekki í hug að hnerra. Ég
komst svo reyndar að því að helstu
einkenni Covid-sjúkdómsins er þurr
hósti en ekki nefrennsli og hnerrar
en ég gat ekki treyst því að annað fólk vissi það.
Viðhorf mitt til samskipta fólks breyttist líka. Mér blöskraði ef fólk tókst
í hendur. Jafnvel gamalt sjónvarpsefni gerði mig órólegan. Að fólk gæti
bara verið ofan í hvort öðru eins og ekkert væri; heilsast, knúsast og kysst.
Ég hélt að þetta viðhorf myndi aldrei breytast og við myndum halda okkur
frá fólki um ókomna tíð.
Ég hafði auðvitað rangt fyrir mér þar aftur. Ég er löngu hættur að pæla
íöllum fjarlægðartakmörkunum. Maður þvær sér og sprittar oftar en maður
gerði en flest annað er farið út í veður og vind. Ég tek í höndina á öllum
sem það vilja og knúsa jafnvel fólk. Það er kannski efni í annan pistil hvað
ég saknaði þess að knúsa fólk. Ég hef nú farið ófögrum orðum um knús á
þessum vettvangi en ég tek það allt til baka. Í kófinu hefði ég glaður tekið
óþægilegasta knús veraldrar fram yfir ekki neitt.
En alla vega. Það hefur verið magnað að sjá hvað venjur breytast fljótt
með aðstæðum og svo strax aftur til baka. Og hvað maður hefur oft rangt
fyrir sér um málefni sem maður veit ekkert, en heldur að maður viti allt,
um.
Ekki dæma mig
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’Mér blöskraði ef fólktókst í hendur. Jafnvelgamalt sjónvarpsefni gerðimig órólegan. Að fólk gæti
bara verið ofan í hvort
öðru eins og ekkert væri;
heilsast, knúsast og kysst.
Inga Sigrún Þórarinsdóttir
Nei, eða jú. Ég ætla að ganga
Laugveginn og gisti þá í tjaldi.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú
í útilegu
í sumar?
Sævar Ómarsson
Já. Ég veit samt ekki hvert.
Úlfhildur Ösp Indriðadóttir
Já, með nýja tjaldvagninn minn!
Mig langar á Austfirði.
Brynjólfur Jónsson
Já. Öræfin að gista þar með
vinafólki.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Nýdönsk heldur tónleika í Salnum í Kópavogi 25. og 26. júní.
Leikin verða lög frá litríkum og löngum ferli. Miða má nálgast
á tix.is og salurinn.kopavogur.is.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Absence of Colour
er nú fáanlegt hjá
okkur á Garðatorgi 6.
FATAMERKIÐRými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur