Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Qupperneq 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2020 A ðalheiður Birgisdóttir, yfirleitt kölluð Heiða, var bókstaflega að stíga inn um dyrnar heima hjá sér eftir gönguna yfir Vatna- jökul þegar blaðamaður hringdi og falaðist eftir viðtali. Hún sagðist þurfa að skreppa í sturtu en væri svo til í slaginn. Klukkutíma síðar tók hún glaðlega á móti blaðamanni, útitekin og hraustleg og ekki örl- aði fyrir votti af þreytu, þrátt fyrir tíu daga erfiða göngu yfir stærsta jökul Evrópu þar sem hún var í hópi ellefu sterkra kvenna. „Við komum til byggða á mánudag. Ég var bara að koma heim núna og var að enda við að taka af mér hælsærisplásturinn!“ segir hún og hlær. Með blik í auga talar Heiða um lífið og um vinkonur sínar Snjódrífurnar sem lögðu mikið á sig til þess að ná settu markmiði. Á bólakaf í snjóbrettin Heiða er fimmtug, alin upp í Hafnarfirði og hefur stundað alls kyns fjallamennsku, útivist, skíði og fleiri íþróttir allt frá æsku. „Foreldrar mínir fóru gjarnan með okkur í útilegur og vorum við mikið úti í náttúrunni. Þau voru ekki mikið á skíðum en ég fékk að prófa skíði átta ára og það var ekki aftur snúið. Ég var mikið á skíðum sem krakki og ungling- ur en færði mig svo yfir á snjóbrettið þegar ég var þá 26 ára. Þá virkilega fann ég mig,“ segir hún. „Ég fór á bólakaf í snjóbrettin og keypti ásamt fleirum hlut í snjóbrettabúð sem hét Týndi hlekkurinn,“ segir Heiða og segist síðar hafa stofnað sitt eigið merki, Nikita. „Ég er oft kennd við Nikita, en það er fata- merki sem ég stofnaði ásamt tveimur öðrum í kringum aldamótin. Þetta er snjóbrettalífs- stílsmerki fyrir konur, en ég hef unnið í snjó- brettabransanum allt frá 1995. Þegar best gekk seldum við fatnað í yfir þrjátíu löndum. Við seldum fyrirtækið fyrir nokkrum árum en í dag vinn ég fyrir bandaríska snjóbrettafyr- irtækið Burton.“ Átta tíma aðgerð Þegar Heiða fór í sína fyrstu brjóstamynda- töku um fertugt sást eitthvað sem læknarnir voru ekki alveg verið vissir með, að sögn Heiðu. „Þeir vildu fylgjast betur með mér og ég fór í skoðun á sex mánaða fresti. En eftir þrjú ár var ég í raun útskrifuð úr því eftirliti. En nokkrum mánuðum seinna fann ég að brjóstið var allt öðruvísi. Það var þéttara og ég var aum í því. Ég vissi að það væri eitthvað að. Ég fékk skoðun og þá greindust staðbundnar frumubreytingar á frumstigi en þar sem þær voru dreifðar um brjóstið þurfti ég að fara í brjóstnám,“ segir hún en Heiða var send í að- gerðina einum og hálfum mánuði eftir grein- ingu. Aðgerðin tók heila átta tíma. „Það var byggt upp alveg nýtt brjóst og ég kaus að fara þá leið að í stað púða var minn eigin vefur notaður og var tekinn vöðvi úr bak- inu á mér. Aðgerðin tókst mjög vel en ég var ótrúlega heppin með lækni. Hann Kristján Skúli Ásgeirsson er algjör snillingur og svo vandvirkur,“ segir hún. „Ég þurfti að fara í fimm ára fyrirbyggjandi lyfjameðferð sem ég er búin í,“ segir hún og útskýrir að hún hafi þurft að fá eina sprautu í mánuði í kviðinn. „Ég var rosalega heppin,“ segir Heiða og á við hversu heppin hún hafi verið að greinast snemma og að þurfa hvorki að fara í geisla né lyfjagjöf. Smá ótti í undirmeðvitundinni Var þetta ekki rosalegt áfall? „Jú, mjög mikið. En ég held ég sé þannig gerð að ég tók þessu eins og hverju öðru verk- efni; ég dvaldi aldrei við það. En þetta var mjög skrítinn tími og sérstaklega þessi bið eft- ir að vita nákvæmlega hvað væri að og hvað þyrfti að gera. En ég tel mig mjög heppna mið- að við marga aðra og ég upplifði mig í raun aldrei sem sjúkling,“ segir hún. „Ég var komin í sund einum og hálfum mán- uði eftir aðgerð. Ég hef alltaf hreyft mig mikið og ég gat ekki beðið eftir að komast í sund og út að ganga. Sundið er rosalega góð hreyfing eftir svona aðgerð,“ segir hún. „Ég þarf að hugsa mjög vel um mig og vera dugleg að hreyfa mig því ég stífna oft upp vinstra megin þar sem vöðvinn var tekinn. Ég finn í raun alltaf fyrir þessu, aðallega í bakinu. En það er eitthvað sem maður vinnur með,“ segir Heiða og segir að innan árs hafi hún ver- ið farin að gera allt sem hún hafði gert áður. „Ég var komin á snjóbrettið í lok vetrar.“ Ertu hrædd um að greinast aftur ? „Það er alltaf smá ótti í undirmeðvitundinni. Ég er hræddari að greinast núna en áður en ég greindist. Nú er þetta raunveruleiki fyrir manni en ég reyni að hugsa ekki um það. Þetta minnir mann á að hver dagur er dýrmætur og að lífið er núna. Ég ætla ekki að eyða orkunni minni í að velta mér upp úr einhverju sem gæti gerst. Þetta breytir manni, en frekar til hins betra.“ Í dag er Heiða í stjórn Brjóstaheilla, stuðn- ingsfélagi kvenna sem hafa greinst með brjóstakrabba. „Við fræðumst um það sem er nýtt að gerast og berjumst fyrir því ef okkur finnst eitthvað vanta upp á í kerfinu. Það má klárlega bæta ýmislegt.“ Aldrei prófað gönguskíði Í heilt ár hefur hópur ellefu kvenna sem kalla sig Snjódrífurnar æft og skipulagt ferð yfir Vatnajökul sem farin var nú í júní og kláruð í byrjun vikunnar. „Sirrý, G. Sirrý Ágústsdóttir, var upphafs- maður ferðarinnar en hún er með ólæknandi krabbamein. Læknar sögðu við hana fyrir fimm árum að hún ætti jafnvel bara eftir eitt til tvö ár. Nú fimm árum seinna var hún ákveð- in í að gera eitthvað stórkostlegt til að fagna lífinu. Og hana langaði að gera það með vin- konum,“ segir Heiða sem segist hafa kynnst Sirrý í gegnum Vilborgu Örnu. Við tengjumst allar Sirrý á einn eða annan hátt og hafa fjórar greinst með einhvers konar krabbamein. Ég sagði bara já strax, þótt ég vissi í raun ekkert í byrjun hvað við værum að fara að gera,“ segir hún og hlær. „Ég er frekar mikil já manneskja og er alltaf til í ævintýri. Tilgangur ferðarinnar var að fagna lífinu með Sirrý og í leiðinni að safna áheitum til styrktar Krafti og Lífi.“ Undirbúningurinn var margs konar. Huga þurfti að réttum útbúnaði sem og fara í æf- ingaferðir en í ferðinni gengu þær á skíðum og Morgunblaðið/Ásdís „Ég er alltaf til í ævintýri“ Aðalheiður Birgisdóttir, fatahönnuður og snjóbrettakona, er varla komin niður á jörðina eftir vel heppnaða göngu yfir Vatnajökul með hópi kvenna sem kalla sig Snjódrífurnar. Ferðin var bæði ógleymanleg og lærdómsrík en tilgangurinn var að safna fé til stuðnings krabbameinssjúkum og hvetja fólk til útivistar. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Þetta minnir mann á aðhver dagur er dýrmætur ogað lífið er núna. Ég ætla ekkiað eyða orkunni minni í að velta mér upp úr einhverju sem gæti gerst. Þetta breytir manni, en frekar til hins betra. „Það þýðir ekkert að pirra sig á neinu. Mað- ur vaknar á morgnana, hitar vatn, útbýr nesti, borðar morgunmat og allir þurfa að vinna hratt. Það er enginn að drekka kaffi og halla sér aftur í rólegheitunum. Svo er pakk- að á púlkuna og lagt af stað. Þetta er full vinna,“ segir Heiða en hún var ein ellefu kvenna sem gengu yfir Vatnajökul nú í júní.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.