Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Blaðsíða 17
stofnunum tengdum og oftast fjármögnuðum af ESB, kveða upp úr um að valdi sambandsins verði engin tak- mörk sett og það þurfi ekki lengur að horfa til þess þótt fullyrt sé að lönd í ESB eða EES hafi aldrei afsal- að sér fullveldi í þessum efnum með stjórnskipulegum hætti. Það séu aukaatriði sem ESB viðurkenni ekki og séu því ekki til. Námskeiðsmenn taka þessar grautarkenningar samstundis fram yfir öll þau lög sem í þeirra eigin landi gilda, þar með talið stjórnskipunarlög sem tak- marka slíka þróun. Er stórfurðulegt og reyndar einkar dapurlegt að hugsa til þess hvaða menn hafa á síðustu metrunum kokgleypt slíka endaleysu hér á landi og sett nöfn sín við. Stjórnlagadómstóll Þýskalands hefur nýlega sett fingur sinn fast á mein af þessu tagi og fróðlegt verður að sjá hvort hann megi sín einhvers gagnvart ofurveld- inu. Það ætti að vera víst, en er fjarri því að vera víst. Átta flokkar í framboði og einn mætir til þings Kosningar eru enn haldnar og flokkar gefa loforð og landsfundir þeirra samþykkja ályktanir. Jafnvel þeir flokkar sem síst ættu að vera líklegir til þess, gera lítið sem ekkert með slíkar ályktanir og hlýtur því að vera spurning hversu lengi menn nenna að sitja slíka fundi, sem gefið er langt nef daginn eftir fundarslit. Eftir kosningar liggja svo úrslit fyrir þar sem búið er að skipta út um 40 prósentum þingmanna og fá nýja lærlinga inn. Nú er svo komið að enginn einn flokkur hefur mark- tæka yfirburði lengur á þingi og hefur það áhrif á kosti til stjórnarmyndunar. Klambra þarf saman ríkisstjórn þriggja eða fjögurra flokka, svo helst minnir á ógæfu- lega fyrirmynd, borgarstjórn Reykjavíkur. Ríkis- stjórnirnar eru veikar og með óljósa stefnu og nú heyrist æ oftar að ráðherra tilkynni, eins og það sé engin frétt, að ekki sé þingmeirihluti fyrir frumvarpi ríkisstjórnar sem þingflokkar hennar höfðu þó sam- þykkt! Tilraun sem misheppnaðist Fyrir allnokkru var tekið upp á því, að vísu í smáum stíl, að hafa það sem fyrsta verk þings eftir að ríkis- stjórn hafði verið mynduð að leiðrétta að hluta niður- stöðu kosninganna, að því er tekur til hins nýstofnaða þingmeirihluta. Nú er svo komið að nær helmingur af formennsku í málefnanefndum þingsins er færður í hendur fulltrúa stjórnarandstöðunnar. Því fylgja bætt launakjör til þeirra. Í byrjun voru það 1-2 helstu menn stjórnarandstöðu sem settust í slík sæti. Þeir gerðu sér grein fyrir því að þarna var um „örlætisgerning“ stjórnarliða að ræða, umfram allar skyldur og ekki var gert ráð fyrir því að formenn úr minnihluta nefndar ættu að nota sín auknu tækifæri, umfram þingstyrk, til að reyna að spilla fyrir þingstörfunum í viðkomandi nefnd. Með mannavali í formennskuhlutverk og hegðun þeirra einstaklinga sem eiga í hlut (þar eru þó undan- tekningar) hefur núverandi stjórnarandstaða hafnað þessari leið og þar með slegið á útrétta hönd. Er þessu því væntanlega sjálfhætt. Þetta var tilraun sem sjálfsagt var vafasöm og hefur nú dæmt sig sjálf. Niðurstaðan liggur nú fyrir, þó að í upphafi bæri ekki mjög á því sem síðar varð. Ekki er gert ráð fyrir slíkum afbrigðum í stjórnar- skrá eða þingsköpum. Þessi gjörð stangaðist þó ekki á við lög, því að stjórnarmeirihluti á hverjum tíma hefur málið í hendi sér og getur og ber að kippa henni að sér núna. Ef ekki, þá er það eftir öðru. Er það ekki? Morgunblaðið/Árni Sæberg ’Með mannavali í formennskuhlutverk oghegðun þeirra einstaklinga sem eiga í hlut(þar eru þó undantekningar) hefur núverandistjórnarandstaða hafnað þessari leið og þar með slegið á útrétta hönd. Er þessu því væntanlega sjálfhætt. 21.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.