Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Síða 19
þessum áfanga í lífi okkar með fullt af vinum
og ættingjum er svo skemmtileg. Það má
segja að undirbúningurinn hafi gefið okkur lit
í lífið á þessum undarlegu og á köflum erfiðu
tímum sem kófið er.“
Hvað munuð þið gera?
„Við tókum þá ákvörðun að senda ekki boðs-
kort heldur búa til heimasíðu þar sem allar upp-
lýsingar um brúðkaupið koma fram. Við gerð-
um heimasíðuna mjög persónulega með því að
segja á skemmtilegan hátt frá því hvernig við
kynntumst ásamt því að setja inn myndir af
okkur og fleira í þeim dúr. Þarna voru gestir
líka beðnir um að fylla út í skráningu þar sem
auðvelt var að spyrja í leiðinni út í ýmis prakt-
ísk atriði eins og sérþarfir í mataræði. Í lokin
var svo ein spurning sem hljóðaði svona: Hvaða
lag fær þig til að þjóta út á dansgólfið? Og núna
þegar nokkrir dagar eru í brúðkaupsdaginn er-
um við búin að taka saman þessi lög og búa til
playlista á Spotify sem fólk getur hlustað á til
að koma sér í partígírinn.“
Ætla að gifta sig í Þorlákshöfn
Hvernig brúðarkjól valdir þú þér?
„Ég er algjör kjólakona, svo mikil að fólki
sem þekkir mig bregður yfirleitt ef það sér mig í
buxum. Því var þetta spennandi verkefni að
finna þennan eina sanna kjól, þetta er auðvitað
svo skrítið í sjálfu sér, að kaupa sér kjól sem
verður notaður aðeins eina kvöldstund en á
sama tíma vill maður hafa hann alveg fullkom-
inn. Ég fór af stað í kjólaleiðangur með því að
skoða Pinterest og gúgla og fann þannig hönn-
uðinn Maggie Sottero sem ég féll algjörlega fyr-
ir. Það er eitthvað við kjólana hennar sem
heillar mig algjörlega og þegar ég var búin að
eyða nokkrum kvöldum í að skoða úrvalið af
þessum kjólum sá ég þennan sem ég endaði á að
velja mér en hann er algjörlega guðdómlega fal-
legur.“
Hvar verður brúðkaupið haldið og hvað
leggur þú megináherslu á í þínu brúðkaupi?
„Við giftum okkur í Þorlákskirkju í Þorláks-
höfn og veislan verður haldin í félagsheimilinu
Þingborg. Þar er hægt að tjalda og félags-
heimilið sjálft er hlýlegt og fallegt og mun
halda vel utan um gesti okkar.“
Hvað verður í matinn?
„Við verðum með standandi forrétt ásamt
fordrykk úti í sólinni, en ég er með alveg sér-
stakt samband við veðurguði og veit að það
verður glampandi sólskin þennan dag! Þá ætl-
um við að grilla lambakjöt og hafa góða vegan-
steik í boði líka og í eftirrétt verður hjóna-
bandssæla sem ég baka sjálf með rabarbara
frá vinkonu minni ásamt ís og karamellusósu.“
Mikilvægt að fá aðstoð
með brúðkaupið
Leggur þú mikið upp úr skreytingum?
„Já mjög mikið. Við elskum blóm og erum
mjög litaglöð og það mun endurspeglast í
veislunni.“
Áttu fimm góð ráð fyrir brúðkaupsdaginn?
„1. Fáðu aðstoð. Það er til mikils að vinna að
fá góða hjálp í undirbúningnum, hvort sem er
frá fagaðilum eða fjölskyldufólki. Aðalatriðið
er að biðja um aðstoðina og vera nákvæm(ur)
með það sem þú vilt að sé gert.
2. Ekki missa þig í öllu sem „þarf að vera“,
ykkar brúðkaup er ykkar brúðkaup og þarf
ekki að vera á nokkurn annan hátt en ná-
kvæmlega eins og ykkur langar.
3. Vertu viss um að vera með viðeigandi
hljóðkerfi og myndvarpa ef þarf og ekki verra
að ráða tæknimann/konu til að hafa þessi mál í
100% öruggum farvegi.
4. Ekki gleyma að bjóða upp á vegan-mat,
það er mjög leiðinlegt að fara í veislu þar sem
ekkert er hægt að borða nema kartöflur og
salat.
- Ef eitthvað klikkar, eins og til dæmis veðr-
ið sem getur verið allskonar, gerið þá bara
gott úr því. Ef veðurspáin er ekki eins og þið
hefðuð óskað eftir, fáið ykkur þá bara fallega
regnhlíf og litríkar gúmmítúttur.“
Að njóta stundarinnar án símans
Áttu ráð fyrir gestina?
„Ef þið ætlið að halda ræður eða vera með
skemmtiatriði, passið þá að vera búin að
undirbúa ykkur, helst að skrifa niður ræðuna
og ekki hafa hana of langa heldur. Eins og Al-
bert Eiríksson sagði í viðtali sem hlusta má á í
hlaðvarpinu Töfrandi brúðkaup: ,,Ef það er
hægt að vinna Eurovision á þremur mínútum
þá er hægt að halda góða ræðu á sama tíma.““
Hvað myndir þú ráðleggja fólki að sleppa að
gera?
„Þegar kemur að athöfninni gæti verið snið-
ugt að geyma símana bara ofan í tösku og
njóta stundarinnar án þess að horfa í gegnum
myndavélina. Það er oftast fagmanneskja að
taka myndir og það eru mörg dæmi um það að
of margir símar á lofti skemmi fyrir ljósmynd-
aranum sem er á launum við það að fanga
þessa fallegu stund.“
Ása Berglind verður í kjól frá Maggie Sottero.
Ljósmynd/Maggie Sottero
Ljósmynd/Maggie Sottero
Ása Berglind
verður í kjól frá
Maggie Sottero.
21.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———