Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Page 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Page 21
Takk fyrir að vera til fyrirmyndar er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Á þessum tímamótum er vert að staldra við, huga að því sem vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Bréf með yfirskriftinni ,,Takk fyrir að vera til fyrirmyndar” er hægt að nálgast hjá Póstinum, í útibúum Landsbankans og í verslunum Nettó. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands. Einnig er hægt að senda bréf á rafænu formi inn á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is en þar er hægt að nálgast bréfin á yfir 20 tungumálum. Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. ,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir af sér og sínum á og deila á samfélagsmiðlum. Fylgstu með og taktu þátt! #TILFYRIRMYNDAR www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.