Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Blaðsíða 29
fór lítið fyrir Chappelle en hann hóf af stunda uppistand aftur af fullum krafti árið 2013. Árið 2016 var tilkynnt að hann hefði gert samning við Netflix um framleiðslu þriggja uppistandsþátta árið 2017 og fengi Chappelle 20 milljónir dala fyrir hvern þátt. Út komu fjórir þættir árið 2017 og svo einn til viðbótar 2019. Sama ár hélt Chappelle uppistand á Broadway í New York í fyrsta sinn. Sá besti í sögunni Eins og áður sagði veigrar Chapp- elle sér ekki við að grínast með eldfim málefni. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir fordóma gagn- vart hinsegin fólki og þá þótti mörgum hann ganga of langt í síð- asta uppistandsþættinum, Sticks and Stones. Þá sagðist hann ekki trúa þeim Wade Robson og James Safechuck sem ásökuðu Michael Jackson um að hafa misnotað sig kynferðislega er þeir voru ungir drengir í heimildarþáttunum Leaving Neverland. Var það stuttu eftir að þættirnir komu út. Það virðist vera Chappelle eðlis- lægt að taka áhættu í gríni sínu, fara að þolmörkum margra og langt yfir þolmörk annarra. Oftast er hann sanngjarn – hann gerir grín að sínum eigin kynþætti óspart – þó oft glitti í fordóma, meðvitaða eða ómeðvitaða. Þá hef- ur hann verið gagnrýndur fyrir að leyfa frægum mönnum, eins og Michael Jackson, sem sakaðir eru um eitthvað saknæmt, að njóta vaf- ans. Þrátt fyrir þetta er Chappelle af mörgum talinn vera besti uppi- standari sögunnar, jafnvel betri en átrúnaðargoð hans Richard Prior og Eddie Murphy. Hefur háðfugl- inn Kevin Hart meðal annarra sagt hann vera þann besta. Þá hafa margir grínistar sem þekkja til lýst því hve auðvelt Chappelle á með að koma frá sér efni. Sést það vel á því að hann gaf út fjóra uppi- standsþætti 2017, hvern þeirra klukkutíma langan, en oft tekur það uppistandara eitt til tvö ár að fínpússa klukkutíma langan þátt. Afi pabba þræll Chappelle leyfir sér að ræða alvar- leg málefni. Stundum með gríni en stundum í alvarlegri tón. Í upp- hafsræðu fyrir þátt Saturday Night Live, stuttu eftir kjör Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna árið 2016, ræddi hann baráttu svartra fyrir jafnrétti. Chappelle sagði frá því að Frederick Douglass var fyrsti svarti maðurinn sem boðið var í Hvíta húsið. Þurfti Abraham Lincoln forseti að hleypa honum sjálfur inn því verðir hússins vildu það ekki. Svörtum manni var ekki boðið til hússins aftur fyrr en Theodore Roosevelt bauð Booker T. Washington árið 1904. Fjöl- miðlar í Suðurríkjunum urðu svo æfir yfir boðinu að svörtum manni var ekki boðið til Hvíta hússins næstu 30 árin. Í uppistandsþættinum nýja, sem kallast 8:46 eftir tímanum sem lög- reglumaður hélt hné sínu á hálsi George Floyd, segist Chappelle hafa farið með rangt mál í Satur- day Night Live. Langafi Chappelle, William D. Chappelle, hafi leitt hóp að Hvíta húsinu árið 1918 til að mótmæla ofbeldi gegn svörtum á þeim tíma, þar á meðal hengingu án dóms og laga í Suður-Karólínu. Langafi Chappelle fæddist sem þræll. „Þessi atvik eru ekki gömul, þetta var ekki fyrir löngu,“ sagði Chappelle. „Þetta er í dag.“ Þrátt fyrir að grínast ekki eins og vanalega sýnir Chappelle snilli sína sem sögumaður í þættinum. Efnið er ópússað en hann heldur áhorfendum við efnið og er aug- ljóst að dauði Floyds, og mótmælin í kjölfarið, hafa fengið mikið á hann tilfinningalega. Chappelle rifjar upp ýmis mál sem eiga skylt við mál Floyds eins og mál John Crawfords III. Hann hafði tekið upp loftbyssu sem var til sölu í Walmart-verslun í Ohio árið 2014. Var lögreglu tilkynnt að maður gengi um með byssu í búð- inni. Crawford var í símanum að tala við kærustu sína þegar lög- reglumaður mætti á staðinn og skaut hann. Lögreglumaðurinn var ekki ákærður og mætti aftur til vinnu þremur árum síðar. Dave Chappelle var ómyrkur í máli sínu í glænýjum hálftíma af uppistandi. Netflix 21.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 STJÖRNUSTRÍÐ Ewan McGregor seg- ist spenntari nú en nokkru sinni áður fyrir því að leika Jedi-riddarann Obi- Wan Kenobi. Í fyrra var tilkynnt að nýir þættir myndu líta dagsins ljós á streym- isveitunni Disney+ sem myndu fjalla um Kenobi sjálfan. McGregor var til í að endurtaka leikinn sem Jedi-riddarinn en hann lék hann á hans yngri árum í öðrum þríleik Star Wars sem kom út í upphafi aldarinnar. „Ég er meira spenntur fyrir því að leika Obi-Wan nú en ég var þegar ég lék hann fyrst,“ seg- ir leikarinn við ACE Universe. Spenntari en nokkru sinni fyrr McGregor er klár í slaginn. AFP BÓKSALA 10.-16. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl. 2 Dauðar sálir Angela Marsons 3 Veirufangar og veraldarharmur Valdimar Tómasson 4 Dóttirin Anne B. Ragde 5 Ógnarhiti Jane Harper 6 Á byrjunarreit Lee Child 7 Sjö lygar Elisabeth Kay 8 Það sem fönnin felur Carin Gerhardsen 9 Kisa litla í felum Holly Webb 10 Danskvæði um söngfugla Suzanne Collins 1 Selta Sölvi Björn Sigurðsson 2 Barn náttúrunnar Halldór Laxness 3 Urðarköttur Ármann Jakobsson 4 Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup Haruki Murakami 5 Sjálfstætt fólk Halldór Laxness 6 HKL ástarsaga Pétur Gunnarsson 7 Samhengi hlutanna Eygló Jónsdóttir 8 Svik Lilja Sigurðardóttir 9 Skuggaskip Gyrðir Elíasson 10 Koparakur Gyrðir Elíasson Allar bækur Skáldverk og hljóðbækur Eitt af mörgum áramótaheitum mínum var að lesa meira af bókum sem tengjast faginu en eins og með öll hin áramóta- heitin hefur heldur lítið orðið um efndir. Það er alltaf sama sagan; maður sogast ósjálfrátt að sagnfræði og ævisögum (og að nammiskúffunni). Þessa dag- ana er ég að lesa frábæra bók Gunnars Þórs Bjarnasonar um Ísland og fyrri heimsstyrjöldina Þegar siðmenn- ingin fór fjandans til. Sem hjábók hef ég The Great Influenza eftir John M. Barry sem fjallar um spænsku veikina og hvernig læknavísindin tókust á við hana. Lesturinn á henni gengur reyndar svolítið hægt því ég þarf sífellt að fletta upp þýðingu á þessum og hin- um sjúkdómum. Í Covid-19-fárinu var ég svo heppinn að fá lánaða Hnit- miðaða kínversk- ensk orðabók fyrir elskendur eftir Xialou Guo. Enska tungumálið leikur stórt hlutverk í bókinni en Ingunni Snædal þýðanda tekst feykivel að koma sögunni til skila á ís- lensku. Ég las síðan einhver staðar að Xialou Guo hefði byggt bókina á atburðum úr sinni eigin ævi og hefði þar að auki skrifað bók um ævi sína, þ.e. Einu sinni var í austri: upp- vaxtarsaga sem ég las strax í kjölfarið. Upp- vaxtarsagan er jafnvel enn betri en skáldsagan. Þeim dómi verð- ur samt að taka með fyrirvara um að ég er almennt mjög svag fyrir ævisögum og sagnfræði. Best er þegar þessu er blandað saman líkt og Árni Snævarr ger- ir í bókinni um Paul Gaimard; Maðurinn sem Ísland elskaði sem ég las í vor. Mjög vel skrifuð og fróðleg bók. Í kaffipásum fer ég stundum út í Eymundsson í Austurstræti og þar rambaði ég um daginn á Reporter, ágæta ævisögu banda- ríska rannsókn- arblaðamannsins Seymor M. Hersh en hann er fræg- astur fyrir að fletta ofan af fjöldamorðunum í My Lai í Víet- nam. Aðrar góðar kaffipásubæk- ur eru t.d. SPQR: A History of Ancient Rome eftir Mary Beard og Rome: A History in Seven Sackings eftir Matthew Kneale. Báðar eru þær kjörið lesefni fyr- ir Ítalíuþyrsta ferðalanga. RÚNAR ER AÐ LESA Rúnar Pálmason er upplýsingafulltrúi Landsbankans. Svag fyrir ævisögum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.