Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2020
Fyrstu tónleikarnir í Eldborg fyrir fullum sal eftir að
kórónuveiran stöðvaði allt tónleikahald verða næsta
föstudag, þann 26. júní, þegar Skítamórall stígur á svið.
Stærstu tónleikar ferilsins
Skítamórall hefur engu gleymt að sögn Arngríms Fann-
ars Haraldssonar, gítarleikara hljómsveitarinnar. Hann
segir þá alla hlakka mikið til.
„Þetta verða okkar stærstu tónleikar hingað til en
við höfum ekki áður komið fram í Hörpu. Það er
gaman að vera loksins komnir inn í það flotta hús.
Við þurftum að fresta tónleikunum í tvígang en verð-
um með þá á föstudaginn kemur. Það er mikil spenna
í hópnum og allir í góðu stuði,“ segir Arngrímur.
„Við munum spila rjómann af því sem við höfum verið
að senda frá okkur í gegnum tíðina. Þetta er blanda af
rokki og rómantík, sumar og sól.“
Byrjuðum að gutla þrettán ára
Strákarnir í Skítamóral hafa spilað saman í áratugi.
„Við stofnuðum fyrst hljómsveitina þrettán ára gaml-
ir. Fyrstu árin vorum við að gutla saman á Selfossi en
það eru rúm tuttugu ár síðan við slógum í gegn. Við er-
um að fagna ferlinum og lífinu,“ segir Arngrímur og
bætir við að þeir ætli svo beint norður daginn eftir þar
sem þeir munu spila á Græna hattinum.
Strákarnir í Skíta-
móral halda stór-
tónleika í Eldborg
næsta föstudag.
Ljósmynd/Aðsend
Rokk og rómantík
Hljómsveitin Skítamórall keyrir sumarið í gang í Eldborg næsta föstudag.
Íslandsmeistaramót hárskera
var haldið fyrsta sinni árið 1975.
Í frétt í Morgunblaðinu 5. júní
það ár kemur fram að hárskerar
frá sömu rakarastofunni hafi
orðið hlutskarpastir, þeir Garð-
ar Sigurgeirsson, sem hafnaði í
fyrsta sæti, og Guðjón Jónasson,
sem varð annar.
Félagarnir af Rakarastofunni
Veltusundi voru teknir í viðtal í
blaðinu í tilefni af árangrinum.
Þar kom fram að straumar frá
Frakklandi réðu lögum og lofum
og Íslendingar væru nokkuð á
eftir í tískunni og næðu ekki einu
sinni að halda í við Norðmenn.
„Íslendingar hafa mjög sjálf-
stæða skoðun á því hvernig þeir
klippa sig og þar má engu
breyta, nema á löngum tíma. Ís-
land er því nokkuð á eftir í sveifl-
unum,“ sagði Garðar í viðtalinu.
Fram kom að Garðar væri
lærisveinn Guðjóns, sem sagði
að sér líkaði „bara vel“ að nem-
andinn hefði sigrað sig: „Hann
var í læri hjá mér og hefur sýni-
lega lært réttu handtökin og ef
til vill hef ég eytt heldur miklum
tíma í mótinu í að fylgjast með
því hvort hann gerði ekki allt
rétt.“
GAMLA FRÉTTIN
Skúlptúr
og tíska
Tvær greinar voru á mótinu, tísku- og skúlptúrklipping. Hér eru módel
Garðars, tískuklipping til hægri og skúlptúrklipping til vinstri.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Zooey Deschanel,
bandarísk leikkona
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
oddviti Viðreisnar
Unnur Ösp Stefánsdóttir,
leikkona