Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Heyrnarþjónusta í alfaraleið Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound gæðaheyrnartækjum. Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki. Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til reynslu afgreidd samdægurs. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lúsmý herjar á landsmenn í skamman tíma á sumri, eða viku til hálfan mánuð. Ef fullorðnu flug- urnar hafa lifnað við um 20. júní ætti tímabilinu að vera að ljúka með því að flugan verpi og drepist. Hugs- anlegt er að sums staðar komi önnur ganga í ágúst eða september. Svo virðist sem lúsmý hafi verið á sveimi í sumar á svæðinu frá Snæ- fellsnesi í vestri og til Rangárvalla- sýslu í austri. Einnig í Eyjafirði og ef til vill víðar á Norðurlandi. Er þetta heldur víðara svæði en á und- anförnum árum. Leita eftir koltvísýringi Gísli Már Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands, segir að fáir hafi lagt sig eftir rannsóknum á lúsmýi og engir vísindamenn hér- lendis. Því sé ekki mikið vitað um þetta smáa kvikindi sem er aðeins rúmur millimetri að lengd og sést varla með berum augum. Þess vegna er lítið vitað um lífsferilinn. Þó er vitað að lirfurnar þurfa tíma til að vaxa upp, ef til vill upp- undir ár, og það er ekki endilega á sömu stöðum og fólk verður vart við fullorðnu flugurnar. Er talið að lirf- urnar séu í vatni eða deiglendi, eða jafnvel í rökum rotnandi gróður- sverði. Ekkert hefur verið staðfest um það. Flugurnar fljúga upp í júní, á svipuðum tíma á öllum svæðum. Þær þurfa blóð til að þroska egg og hafa til þess viku eða hálfan mánuð. Þær finna spendýr eða fólk með því að leita eftir koltvísýringi sem berst með andardrætti manna og sumra dýra. Eins og fólk veit, sem fengið hefur bit, ræðst flugan gjarnan á fólk sofandi á nóttunni og bítur þá útlimi sem standa undan sæng. Lokuð úti Getur það valdið heiftarlegum ofnæmisviðbrögðum hjá fólki en annars hvimleiðum kláða. Fólk reynir með ýmsum ráðum að verja sig, með skordýrafælum af ýmsu tagi sem eiga að rugla lyktarskyn flugunnar. Árangurinn er misjafn. Vísindamenn telja að besta ráðið sé að halda flugunni úti á kvöldin og nóttunni með því að hafa húsið lokað eða loka gluggum með þéttriðnu neti. Flugan flýgur aðeins upp í logni og þess vegna hafa margir vift- ur í gangi á nóttunni í svefn- herbergjum sínum. Sömuleiðis eru mörg ráð við kláðanum sem fólk fær í bitsárin, til að mynda krem til kælingar. Gísli Már telur að ofnæmis- viðbrögð fólks minnki eftir því sem það er bitið oftar. Hann telur einnig að fólk kenni flugnabit mýflugna stundum við lúsmý að ósekju en mý- flugurnar hafa verið hér lengur en maðurinn. Það sé til dæmis líklegra að bit sem fólk fær úti við að degi til sé mýbit en bit eftir lúsmý. Þá sé ráðið að fara í skugga, mýið elti mann ekki þangað. Faraldur lúsmýs virðist hafa hafist heldur seinna í ár en stundum áður og herjað nokkuð mikið á fólk. Gísli Már telur að leita megi skýr- inganna í veðurfarinu. Veður hafi verið gott síðustu vikur og heppilegt fyrir lúsmý. Morgunblaðið/Eggert Lúsmý Þessi hefur sloppið vel. Dæmi er um tugi bita um allan líkama og jafnvel á annað hundrað, eftir eina nótt. Herjar í skamman tíma  Faraldri lúsmýs ætti að vera að ljúka  Hugsanlegt að önnur ganga komi Óvenjumörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dög- um. Ökumaður sem ók inn á hring- torgið við gatnamót Reykjanes- brautar og Þjóðbrautar hafnaði uppi á því og ók niður umferðar- merki með þeim afleiðingum að bif- reiðin valt á hliðina. Hann slapp án teljandi meiðsla, segir í dagbók. Annar ökumaður ók aftan á bif- reið á Njarðarbraut. Hann var grunaður um neyslu áfengis og fíkniefna. Þá þurfti að flytja karl- mann á Landspítala í Fossvogi eftir að hann missti mótorhjól sitt út af Nesvegi. Ekki er vitað um líðan hans. Nokkur umferðaróhöpp til viðbótar þessum urðu, en engin al- varleg slys á fólki. Tíð umferðaróhöpp á Suðurnesjum Morgunblaðið/Árni Sæberg Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í gær, 7. júlí, var fullyrt að kvikmynd- in Dýrið hefði verið sýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes árið 2019 en hið rétta er að myndin hefur ekki enn verið frumsýnd, þótt hún hafi verið seld til nokkurra Evrópuríkja. Frumsýningardagur liggur enn ekki fyrir. Auk þess fékk myndin 114,3 millj- ónir í styrk en ekki 140 milljónir líkt og nefnt var. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Dýrið ekki enn sýnt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.