Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Sendiherra Kína í Bretlandi varaði bresk yfirvöld við því á mánudag, að nýjar áætlanir þeirra, um að loka á aðgang Huawei-síma að 5G-farsíma- kerfi þjóðarinnar, yrðu þeim álits- hnekkir á alþjóðavettvangi. Dagblaðið Financial Times greinir frá því að Bretar hyggist nú að öllum líkindum loka á símtæki kínverska tæknirisans Huawei í stað þess ein- göngu að takmarka aðgang tækj- anna að 5G, fimmtu kynslóð farsíma- kerfa heimsins, en Bretar gáfu það út í janúar á þessu ári að þeir hygð- ust fara þá leið frekar en að Huawei yrði útilokað með öllu. Uggandi um njósnir Tortryggni gagnvart símum kín- verska fyrirtækisins hefur verið áberandi sums staðar á Vesturlönd- um og þær grunsemdir ítrekað verið viðraðar, að Huawei útbúi hugbúnað símtækja sinna með svokölluðum bakdyrum sem geri þeim kleift að njósna um notendur símanna. Ekki eru áhyggjurnar af slíkum njósnum minni í Bandaríkjunum en Evrópu, og ná þær til mun fleiri tækja en síma, svo sem örflagna í bíllyklum og fleiri tækjum. Nýjar reglur, sem settar voru þar vestra í maí, leggja erlendum fram- leiðendum, sem nota amerískan bún- að við framleiðslu örflagna, þá skyldu á herðar að afla sér sérstaks leyfis svo þeim verði heimilt að selja Huawei hálfleiðara. Stjórnlaus áhætta Ákvörðun Bandaríkjamanna varð til þess að breska tölvuöryggismið- stöðin NCSC framkvæmdi neyðar- úttekt á Huawei sem kynnt verður breskum stjórnvöldum í þessari viku, en meðal niðurstaðna NCSC er að nýju reglurnar vestanhafs þvingi Huawei til að nota óáreiðanlegan búnað við framleiðslu sína sem, að sögn breska dagblaðsins The Tele- graph, hafi í för með sér áhættu sem engin leið sé að hafa stjórn á. Kínverski sendiherrann, Liu Xia- oming, sagði aðild Huawei að breska markaðnum verða hvoru tveggja til blessunar, fyrirtækinu og tengslum Kína og Bretlands. „Við höfum lagt okkur fram við að segja söguna af Huawei, en við getum ekki stjórnað ákvörðun breskra stjórnvalda,“ sagði sendiherrann og enn fremur, að útilokun Huawei gæti verið til þess fallin að veikja stöðu Bretlands í alþjóðasamfélaginu auk þess að rýra traust erlendra fjárfesta. Frakkar loka að hluta Sagði hann Breta með ákvörðun sinni myndu kikna undan „erlendum þrýstingi“ og vísaði þar til afstöðu bandarískra stjórnvalda gagnvart Huawei. Ástralar hafa einnig lokað á Huawei-símana, en Frakkar hyggj- ast fara þá leið sem Bretar áður ætl- uðu sér og takmarka aðgang Huawei með þeim hætti að fjarskiptafyrir- tæki, sem nota símana, fái takmark- aðri leyfi. Hvöttu til sanngirni Kínverjar hvöttu frönsk yfirvöld á mánudag til þess að tryggja kín- verskum fyrirtækjum „sanngjarnt og réttlátt“ umhverfi og leyfa mark- aðnum og fyrirtækjum að taka ákvarðanir í þágu eigin velferðar frekar en að beita boðum og bönn- um. Breski forsætisráðherrann Boris Johnson gerði á mánudag grein fyrir mögulegri viðhorfsbreytingu breskra stjórnvalda í garð búnaðar Huawei. „Ég er ákveðinn í því að koma breiðbandstengingum á í öllum landshlutum. Um leið er ég ákveðinn í þeirri afstöðu, að Bretlandi skuli ekki á nokkurn hátt komið í við- kvæma stöðu gagnvart áhættusöm- um söluaðila, svo við verðum að hugsa það vandlega hvernig við stíg- um til jarðar í þessu máli,“ sagði ráð- herrann. Xiaoming sendiherra svaraði Johnson á blaðamannafundi, sem hann hélt um fjarfundabúnað sama dag og sagði þá: „Þú getur ekki átt þér neina gullöld [e. golden era] ef þú umgengst Kína eins og andstæðing.“ AFP Úthýst Kínverski tæknirisinn Huawei á undir högg að sækja á Vesturlöndum vegna tortryggni gagnvart njósnum. Búa sig undir að skella á  Bretar líklegir til að útiloka Huawei  Gáfu áður fyrirheit um takmarkaðan að- gang  Nýjar stífar reglur settar í Bandaríkjunum  Frakkar draga einnig í land Facebook trónir í toppsætinu meðal samfélagsmiðla hvað snertir fjölda frétta af kórónuveirufaraldrinum sem eru annaðhvort tóm tjara eða í besta falli villandi. Þetta leiðir rannsókn breska fjölmiðilsins Press Gazette í ljós. Rannsóknin fólst í athugun á uppruna 7.295 frétta sem teknar höfðu verið saman í Poynter Coro- navirus Facts-gagnagrunninum, en í hann er safnað fréttum sem halda fram beinlínis röngum eða villandi upplýsingum um kórónuveiruna. Komust skoðendur Press Gazette að þeirri niðurstöðu, að Facebook væri samfélagsmiðillinn á bak við dreifingu 4.094 af fréttunum, sem gerir rúm 56 prósent. Fréttirnar í Poynter-grunninum hafa, áður en þær enda þar, farið um hendur 100 staðreyndakönnuða í 70 löndum sem slá því föstu hvort upplýsingar í fréttunum séu réttar eður ei. Kveðast fjarlægja rangfærslur Af öðrum samfélagsmiðlum, sem fréttirnar birtust á, má nefna Twitter með 1.066 fréttir, Whats- app með 999 og Youtube með 265. Þá birtust 90 þeirra á Instagram, en í öðrum tilfellum var ekki hægt að rekja fréttirnar til ákveðins sam- félagsmiðils, uppruni þeirra var ein- göngu skráður „fjölmiðlar“ eða „fréttir“. Talsmenn Facebook segja mið- ilinn undanfarið hafa unnið hörðum höndum að því að fjarlægja upplýs- ingar, sem beinlínis geti verið skað- legar, auk þess að merkja annað vafasamt efni aðvörun um að það sé ekki áreiðanlegt. Segja talsmenn- irnir mörg hundruð þúsund rangar eða villandi fullyrðingar um kór- ónuveiruna hafa verið fjarlægðar. Facebook fleipr- ar miðla mest  56 prósentum rangra frétta dreift þar AFP Rangfærslur Þumallinn vísar ekki alls staðar upp á við hjá Facebook. Fjórum öldurhúsum var lokað í Ósló í Noregi í gær vegna brota á sóttvarnareglum og hafa borgar- yfirvöld þar með lokað alls sjö veit- ingastöðum síðan leyft var að selja áfengi á ný í höfuðborginni 6. maí. Borgin ákvað að fara þá leið að banna alla sölu áfengis á veitinga- húsum frá 21. mars til að reyna að hemja útbreiðslu kórónuveirunnar. Þegar banninu var aflétt í maí var það gert með ströngum skilyrðum um bil og fjölda gesta auk þess sem skilyrði var að staðirnir seldu mat og lokuðu fyrir miðnætti. Victoria Marie Evensen borg- arfulltrúi segir að flestir séu með sitt á þurru, en lokunum verði beitt hjá þeim sem kasti til höndunum. NOREGUR AFP Ósló Fólk bíður í röð á Aker-bryggju. Börum lokað vegna sóttvarnabrota Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, tilkynnti í gær að hann hefði greinst með kór- ónuveiruna. Bol- sonaro sagði hins vegar að sér liði „fullkomlega vel“, og að hann væri bara með mild einkenni. Forsetinn hefur verið gagn- rýndur fyrir að vilja draga sem mest úr sóttvarnaráðstöfunum vegna veirunnar. 1,6 milljónir manna hafa smitast af kórónuveir- unni í Brasilíu og um 65.000 manns látist af völdum hennar til þessa. Bolsonaro sagðist taka inn mal- aríulyfið hydroxíklórókín gegn veirunni, en deilt hefur verið um notagildi þess. BRASILÍA Bolsonaro greinist með kórónuveiruna Jair Bolsonaro Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Útsalan er hafin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.