Morgunblaðið - 08.07.2020, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ríkinu er aðlögum færtmikið vald.
Stundum í til-
tölulega smáum
áföngum svo borg-
ararnir hafa ekki
vara á sér. Þess utan hafa og
margir þingmenn breyst í skoð-
analausar atkvæðavélar sem af-
greiða allt ólesið sem berst
sunnan úr Evrópu. Var þeim
talin trú um að samþykkja bæri
allt sem pósturinn kæmi með án
skoðunar eða afstöðu. Er með
ólíkindum að fæstir standa í
fæturna og er þar lítill munur á
flokkum.
Hinum anga „hins opinbera“,
sveitarfélögunum, hefur einnig
verið fengið verulegt vald. En á
meðan ríkið hefur ríkulegt boð-
vald skal þjónustuhlutverkið
vera í öndvegi hjá sveitarfélög-
unum. Höfuðborgin var í farar-
broddi þeirra sem virtu það
hlutverk vel. Það er liðið.
Reglulega birtist hvert merkið
af öðru sem virðist sýna að
vinstristjórnin í Reykjavík lítur
á borgarbúa sem óvini sína og
þýðingarmest sé að hlusta ekki
á þá, heldur beita þá blekk-
ingum og fara á bak við þá, hve-
nær sem færi gefast.
Ívar Pálsson, íbúi í Skerja-
firði, benti nýlega á slíkt úr
ranni sem hann þekkir: „Skulda-
ævintýraæði Dags & Co í
Reykjavíkurborg færist nú á
nýtt stig, þar sem til stendur að
troða 3.000 manna byggð í aflok-
aðan flugvallar-
krikann. Sá Ísa-
fjörður ídealist-
anna, með allt sitt
bílastæðaleysi,
þröngar götur og
fimm hæða skugga-
varpsblokkir, á að rísa í óþökk
þeirrar byggðar sem fyrir er og
bætir við fjórfalt fjölmennari
borgarhluta en notar sömu göt-
una inn og út úr Skerjafirði,
með margföldun umferðar.
Landsvæðið sem undir
byggðina færi þykir Degi ekki
nógu stórt til þess að standa
undir þjónustustiginu og því
ætlar gengi hans að urða
ströndina og leirurnar langt út í
Skerjafjörð til þess að nema
nýtt land. Olíuborinn jarðveg
skal hreinsa með ærnum kostn-
aði og aka í gegnum borgina í
Álfsnes. Vegur suður fyrir völl
verður byggður fyrir trukkana
sem bætast við stíflaða umferð
Háskólans í Reykjavík og víðar
um bæinn.
Þessi kostnaðarsama ævin-
týramennska, þar sem níðst er
á náttúrunni og íbúum heilla
hverfa, á síðan að verða greidd
af Reykvíkingum öllum í aukn-
um álögum. Afsökunin fyrir að-
gerðinni var jafnan sú, að
borgin fengi mikið úr sölu
dýrra lóða. Sú skýring heldur
ekki vatni,“ segir Ívar Pálsson
að lokum. Því má bæta við að
tími til athugasemda við ósköp-
in er valinn þegar verst gegnir
fyrir borgarbúa.
Stærsta sveitarfélag
landsins þekkir ekki
hvert sé þess mikil-
vægasta hlutverk}
Baktjaldagerðir
og blekkingar
Allt of mikið erum langa bið-
lista í heilbrigðis-
kerfinu. Í Morgun-
blaðinu í gær
kemur fram að bið-
listar eftir hjúkrunarrýmum
hafi lengst mikið á síðustu tíu
árum. Á fyrstu þremur mán-
uðum þessa árs hafi 366 manns
verið á biðlista eftir varanlegri
búsetu í hjúkrunarrými.
Fréttin er byggð á samantekt
embættis Landlæknis þar sem
fram kemur að fjölgun á biðlista
frá fyrsta ársfjórðungi 2011 til
fyrsta ársfjórðungs 2020 nemi
76% þegar tekið sé tillit til
mannfjölda en 132% þegar ein-
göngu er horft á fjölda ein-
staklinga.
Jafnframt kemur fram í sam-
antektinni að fjöldi á biðlista
segi ekki alla söguna. Einnig
beri að skoða hversu lengi fólk
þurfi að bíða eftir að fá sam-
þykkt færni- og heilsumat. Að
auki þurfi að líta á hversu marg-
ir þurftu að bíða lengur en 90
daga eftir rými. Í fyrra biðu
46% lengur en 90 daga.
Oft þurfa einstaklingar að
bíða langdvölum á
bráðasjúkrahúsi
eftir hjúkrunar-
rými. Við það lengj-
ast aðrir biðlistar.
Í fyrra kom fram
í Morgunblaðinu að á árunum
2014 til 2018 hefðu 700 aldraðir
einstaklingar, sem komnir voru
með færni- og heilsumat fyrir
hjúkrunarrými, látist áður en
þeir komust að á hjúkrunar-
rými.
Mikið þarf að bjáta á til þess
að fá færni- og heilsumat sam-
þykkt. Flestir vilja vera sem
lengst heima hjá sér, en þegar
svo er komið að það gengur ekki
þurfa úrræði að vera til staðar.
Nálaraugað getur hins vegar
verið mjög þröngt og ferlið jafn-
vel niðurlægjandi fyrir umsækj-
andann.
Þessi staða er óviðunandi. Á
heimasíðu Landlæknis segir að
mikilvægt sé að staðið verði við
áætlun um opnun 568 nýrra
hjúkrunarrýma á landinu til
ársins 2023. Það er mikilvægt
eigi að takast að vinna á biðlist-
um aldraðra eftir hjúkrunar-
rými.
Of margir þurfa
að bíða eftir
hjúkrunarrými}
Aldraðir bíða
M
enntun er grundvöllur vel-
sældar og framfara þjóða.
John Stuart Mill stjórnmála-
heimspekingur skrifaði á sín-
um tíma að: „Öll efling
menntunar stuðlar að jöfnuði og veitir fólki
aðgang að sama sjóði þekkingar.“ Þetta eru
orð að sönnu. Þjóðir í fremstu röð eru með
framúrskarandi menntakerfi. Í framúrskar-
andi menntakerfi er staða kennarans afar
sterk. Því var þess getið í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar að bregðast þyrfti við
kennaraskorti með samstarfi ríkis, sveitar-
félaga og stéttarfélaga. Ég er stolt af að
greina frá því að saman höfum við náð að
snúa vörn í sókn.
Staða kennaranáms styrkt
Ráðist var í heildstæðar aðgerðir í víðtæku samstarfi
við Kennarasamband Íslands, Háskólann á Akureyri,
menntavísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Ís-
lands, Heimili og skóla og Samtök iðnaðarins. Að auki
komu að vinnunni fulltrúar fjármála- og efnahagsráðu-
neytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Með-
al annars þurfti að bregðast við því að innritun í leik- og
grunnskólakennaranám hafði dregist saman um 40% frá
2008. Í þessum aðgerðum fólst meðal annars launað
starfsnám leik- og grunnskólakennaranema á lokaári.
Aðgerðirnar höfðu afar jákvæð áhrif og hafa leitt til
gríðarlegrar fjölgunar umsókna í kennaranám. Alls
fjölgaði umsóknum um 591 milli áranna 2019 og 2020,
eða um 46%. Þar af er fjölgunin mest við Háskóla Ís-
lands en þar fjölgar umsóknum um 580 milli
ára, eða um 61%.
Menntastefna til ársins 2030
Þessar aðgerðir eru hluti af nýrri mennta-
stefnu til ársins 2030, sem verður kynnt í upp-
hafi nýs skólaárs. Markmið stjórnvalda með
stefnunni er að veita framúrskarandi menntun
með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju
og árangur í umhverfi þar sem allir skipta
máli og geta lært í öflugu og sveigjanlegu
menntakerfi. Stefnan mun endurspegla leiðar-
ljósið allir geta lært sem felur í sér áherslu á
virka þátttöku allra í lýðræðissamfélagi sem
byggist á jafnrétti og mannréttindum, heil-
brigði, velferð og sjálfbærni. Menntastefnan
er mótuð með aðkomu fjölmargra aðila úr
skólasamfélaginu, meðal annars með fundaröð
um land allt um menntun fyrir alla haustið 2018 og 2019.
Menntun eflir jöfnuð og allir eiga að hafa jöfn tækifæri
til náms. Ég hef þá trú að allir geti lært og allir skipti
máli. Kennarar, skólastjórnendur og aðrar starfsstéttir
innan menntakerfisins eru ein mesta auðlind hvers sam-
félags og leggja grunn að öðrum störfum. Aðsókn í kenn-
aranám hefur stóraukist vegna markvissra aðgerða sem
hrint hefur verið í framkvæmd. Með skýrri sýn og stefnu
er hægt að bæta samfélagið sitt. Ég vil þakka öllum þeim
sem hafa komið að því að efla stöðu kennaranáms í land-
inu, því það sannarlega skiptir máli fyrir komandi kyn-
slóðir.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Umsóknum í kennaranám
á Íslandi fjölgar um 46%
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fimmta kynslóð (5G) farnetaer komin til Íslands. Póst-og fjarskiptastofnun(PFS) hefur opnað upplýs-
ingasíðu um þessa nýju og öflugu
fjarskiptatækni á vef sínum pfs.is.
Þar kemur m.a. fram að 5G hafi verið
kallað net iðnaðarins og sé í raun
„límið í fjórðu iðnbyltingunni, for-
senda fyrir því að ótal nettengdir
hlutir og kerfi geti sent gögn sín á
milli á leifturhraða“.
Nethraði 5G er tífalt meiri en í
4G. Nova segir að hraði 5G jafnist á
við öflugustu ljósleiðaratengingar þar
sem hægt er að hlaða niður allt að 2,3
Gb á sekúndu og svartíminn innan við
tíu millisekúndur. PFS segir að 5G sé
forsenda aukinnar sjálfvirknivæð-
ingar t.d. í iðnaði og landbúnaði. Þá
muni 5G-tæknin hafa mikil áhrif á
heilbrigðisþjónustu hvort sem er við
snjallvæðingu sjúkrahúsa, fjar-
hjúkrun og jafnvel fjaraðgerðir.
Samstarf um 5G-senda
Sýn (Vodafone), Símanum og
Nova var úthlutað 5G-tíðniheimildum
30. apríl. Heiðar Guðjónsson, for-
stjóri Sýnar hf. (Vodafone), segir að
viðræður standi yfir á milli stóru
símafyrirtækjanna þriggja um sam-
eiginlega uppbyggingu á 5G. Guð-
mundur Jóhannsson, samskiptastjóri
Símans, segir að í lok árs 2019 hafi
fjarskiptafélögin og PFS hafið við-
ræður um nýtingu innviða fjarskipta-
félaganna. Kórónuveirufaraldurinn
hægði á viðræðum og er þeim ekki
lokið. Hann telur að 5G-væðingin
muni kalla á aukið samstarf PFS og
fjarskiptafélaganna við 5G-
væðinguna.
Nova hóf rekstur 5G-sendis í
Lágmúla í Reykjavík 5. maí í vor og
hefur nú sett upp tvo senda í Vest-
mannaeyjum. Vestmannaeyjabær er
fyrsta bæjarfélagið á Íslandi sem er
5G-vætt. Nova rekur einnig 4,5G-
kerfi víða sem eru fjórfalt öflugri en
4G.
Margrét Tryggvadóttir, forstjóri
Nova, segir að næstu skref hjá Nova
verði uppbygging 5G á höfuð-
borgarsvæðinu og víðar í takt við
aukna afkastaþörf í gagnaflutn-
ingum. Hún segir að Nova sé í sam-
starfi við Vodafone um rekstur senda
í gegnum Sendafélagið ehf. Við-
skiptavinir Vodafone hafa þannig að-
gang að 4G-sendum Nova og öfugt en
slíkt samstarf þekkist víða erlendis.
Margrét vonast til að samstarfið
verði eflt og muni einnig ná yfir hrað-
virkari kerfin, 4,5G og 5G. Þannig er
hægt að fara í enn frekari innviða-
uppbyggingu sem er mikilvægt fyrir
alla.
Hún bendir á að 5G-símtæki séu
komin í sölu og þeim muni fjölga.
Nova býður notendum upp á 5G-
beina (router) til að netvæða heimili
og fyrirtæki „Í Vestmannaeyjum er
ekki ljósleiðari heldur eingöngu ljós-
net. Með 5G erum við að margfalda
hraðann með kerfi sem er sambæri-
legt við ljósleiðara,“ segir Margrét.
Síminn ætlar að setja fyrsta 5G-
sendinn upp eftir sumarleyfi, að sögn
Guðmundar samskiptastjóra Símans.
Hann telur líklegt að sá verði settur
upp á Múlasvæðinu í Reykjavík. „Við
munum eflaust byrja á að uppfæra
senda á höfuðborgarsvæðinu og á
þéttbýlisstöðum í 5G. Síðan munum
við þétta kerfið,“ segir Guðmundur.
„Við höfum verið með 5G-
tilraunaverkefni í gangi og ætlum í
loftið í sumar með vöru sem við get-
um boðið almenningi upp á,“ segir
Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar
hf. (Vodafone). Hann telur líklegt að
unnið verði að uppbyggingu kerfis
5G-senda Vodafone í samvinnu við
Nova í gegnum Sendafélagið ehf.
Kynslóðaskipti að
verða í farnetum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Nova hefur sett upp tvo 5G-senda til að netvæða heimili
og fyrirtæki. Hraði kerfisins jafnast á við það sem býðst í ljósleiðarakerfi.
Talsvert hefur verið fjallað um möguleg áhrif 5G-tækninnar á heilsu fólks.
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) segir mikilvægt að skoða virtar heim-
ildir um vísindalegar staðreyndir og rannsóknir þar um. Viðmiðunarmörk
alþjóðageislavarnaráðsins fyrir ójónandi geislun, eins og frá farnets-
sendum, eru 50 sinnum minni en þau viðmið sem talin eru geta haft
skaðleg áhrif á mannslíkamann.
„5G á því ekki að hafa áhrif á heilsu fólks frekar en fyrri kynslóðir far-
síma og farneta,“ segir á vef PFS. Bent er á að nýju sendarnir geisli
minna út frá sér en núverandi sendar farneta. Ójónandi geislun mun því
minnka þegar 2G-, 3G- og 4G-sendar verða teknir úr notkun.
Engin áhrif á heilsu fólks
GEISLUN FRÁ 5G-SENDUM