Morgunblaðið - 08.07.2020, Side 13

Morgunblaðið - 08.07.2020, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 Akranes Nokkur ungmenni á Skaganum nýttu sér góða veðrið á dögunum og sigldu seglskútum fyrir utan bæinn. Vindur var hægur og skúturnar fóru því ekki hratt yfir. Eggert Hún lætur fremur lítið yfir sér fréttin á blaðsíðu 4 hér í Mogg- anum í gær, þriðju- dag. Fyrirsögnin er ekki sérlega grípandi og fréttin því ekki lík- leg til að vekja mikla athygli: „Úthlutun til fjölmiðla útfærð“. Eitthvað segir mér að aðeins fjölmiðlungar hafi áhuga á efninu. Margir þeirra setjast niður til að átta sig á því hversu mikið komi í hlut hvers fjöl- miðils. Þá kemur Excel sjálfsagt að góðum notum. Alþingi samþykkti í maí síðast- liðnum sérstakan fjárstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Stuðning- urinn er hluti af aðgerðum ríkisins til að sporna við afleiðingum Cov- id-19-faraldursins. Mennta- og menningarmálaráðherra var falið það erfiða og lítt öfundsverða hlut- verk að útfæra reglur um úthlutun 400 milljóna til fjölmiðla sem upp- fylla ákveðin skilyrði. Tilefni fréttarinnar, sem vekur litla eftirtekt, er að reglugerð um fyrirkomulag úthlutunar hefur verið birt. Að hámarki verður stuðning- urinn 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði viðkomandi fjöl- miðils en stuðningur til hvers og eins fjölmiðils getur aldrei orðið hærri en 25% af heildarfjárveiting- unni (100 milljónir af 400). Verði samþykktar umsóknir hærri en 400 milljónir skerðist það sem kemur í hlut hvers og eins hlutfallslega. Fjölmiðlanefnd hefur það hlutverk með hönd- um að leggja mat á um- sóknir. Þannig nær opinber eftirlitsstofnun betri tökum á sjálf- stæðum fjölmiðlum. Ósanngjarnri sam- keppni haldið við Í fjárlögum þessa árs hafði þegar verið gert ráð fyrir 400 milljónum króna til að styðja við sjálfstæða fjölmiðla. Við afgreiðslu fjárlaga lá fyrir ríkis- stjórnarfrumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Frumvarpið var umdeilt og náði ekki fram að ganga. Sá er hér skrifar var í hópi gagnrýnenda. Fjárheimildinni var breytt í einskiptisaðgerð til stuðn- ings einkareknum fjölmiðlum vegna kórónuveirunnar. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur haft alvarleg áhrif á rekstur fjölmiðla líkt og á rekstur þúsunda annarra fyrirtækja. Halda má því fram að áhrifin séu að mörgu leyti verri þar sem staða sjálfstæðra fjöl- miðla hefur verið erfið í mörg ár. Og hvernig má annað vera? Lög- gjafinn hefur skapað og haldið við ósanngjarni samkeppni, tryggt yfir- burðastöðu Ríkisútvarpsins og dregið þannig þróttinn úr sjálf- stæðum fjölmiðlum sem á sama tíma hafa þurft að verjast strand- höggi erlendra miðla, ekki síst sam- félagsmiðla. Ríkisútvarpið fitnar líkt og púk- inn á fjósbitanum. Engin önnur at- vinnugrein hefur þurft að sæta því að eiga í samkeppni við ríkis- fyrirtæki, sem fær þvinguð framlög frá skattgreiðendum en um leið frítt spil á samkeppnismarkaði. Þrátt fyrir að erfið staða sjálfstæðra fjöl- miðla hafi blasað við öllum í mörg ár, hefur varðstaðan um Ríkis- útvarpið aldrei rofnað. (Ekki einu sinni lögbrot hefur rofið skarð í öfl- ugan varnarmúr). Ég hef orðað þetta svo að Ríkisútvarpið njóti þess að vera í mjúkum og hlýjum faðmi stjórnmálamanna. Meirihluti Alþingis hefur ekki áhuga á að breyta leikreglunum en virðist ein- huga í að koma fremur upp flóknu styrkjakerfi fyrir einkarekna fjöl- miðla, sem verða um leið háðir ríkisvaldinu. Mótsögnin um sjálfstæða fjöl- miðla og ríkisstyrktan rekstur þeirra samkvæmt ákvörðunum opinberra úthlutunarnefnda og stofnana, blasir við en veldur fáum áhyggjum. Þó er fátt hættulegra fyrir frjálsa fjölmiðlun en að verða háð opinberum styrkjum og nefnd- um. Ríkisstyrkir verða hægt og bít- andi ópíum fjölmiðlunga. Fjölmiðlun sem er háð ríkisvaldinu með beinum fjárhagslegum hætti telst varla frjáls nema í orði. Skilvirk leið er lækkun skatta Í desember á liðnu ári lagði ég fram frumvarp ásamt þremur öðr- um þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins (Brynjari Níelssyni, Vilhjálmi Árnasyni og Jóni Gunnarssyni) um afnám tryggingagjalds á einkarekna fjölmiðla, upp að ákveðnu hámarki. Tilgangur frumvarpsins er að bæta rekstrarstöðu fyrirtækjanna og jafna stöðuna gagnvart ríkisreknum fjölmiðli með gagnsæjum hætti þar sem jafnræði skattkerfisins er tryggt. Frumvarpið náði ekki fram að ganga og komst raunar ekki á dagskrá þingsins, af ástæðum sem hljóta að vekja athygli. Í greinargerð frumvarpsins er vitnað til skýrslu nefndar frá janúar 2018 til mennta- og menningar- málaráðherra þar sem bent var á hvaða ástæður byggju að baki erf- iðu rekstrarumhverfi; samkeppni einkarekinna fjölmiðla við Ríkis- útvarpið, samkeppni við erlenda fjölmiðla og flutningur auglýsinga úr hefðbundnum fjölmiðlum yfir á veraldarvefinn, svo sem Google og Facebook. Í skýrslunni er varað við því að áframhaldandi veiking fjöl- miðla hafi neikvæð lýðræðisleg og menningarleg áhrif í samfélaginu. Frumvarpið var lagt fram með þeim rökstuðningi að skilvirkasta leiðin til að styrkja rekstrar- umhverfi fjölmiðla sé lækkun skatta. Í greinargerð sagði meðal annars: „Samræmdar og gegnsæjar skattaívilnanir tryggja að allir einkareknir fjölmiðlar sitji við sama borð og fái hlutfallslega sömu íviln- un. Það er gert með því að fella tryggingagjaldið niður, upp að vissu hámarki, en með því næst hlutfalls- lega sama lækkun á hvern fjölmiðil miðað við launakostnað og er skattaívilnunin þannig byggð á rekstri einstakra fjölmiðla. Samkvæmt frumvarpinu verður því ekki þörf á að opinber nefnd meti hvort umsókn fjölmiðils full- nægi tilteknum skilyrðum heldur yrði skattkerfið sniðið að rekstrar- formi hvers og eins fjölmiðils án þess að til kostnaðar stofnist af hálfu ríkis og fjölmiðils við úthlutun fjármuna.“ Það skal viðurkennt að sértækar skattalegar aðgerðir (ívilnun) í takt við þær sem lagðar eru til í frum- varpi okkar félaga, er ekki besta lausnin á þeim vanda sem glímt er við. Skynsamlegast er auðvitað að breyta leikreglunum á fjölmiðla- markaði, gera samkeppnina sann- gjarnari og heilbrigðari. En fyrir þeirri lausn er ekki pólitískur stuðn- ingur. Litla fréttin í Mogganum er áminning um alvarlega brenglun og óréttlæti á fjölmiðlamarkaði. Þess vegna er nauðsynlegt að leggja frumvarpið aftur fram á nýju þingi á komandi vetri í þeirri von að það fái efnislega umfjöllun þingsins. Eftir Óla Björn Kárason » Skynsamlegast er að breyta leikreglunum og gera samkeppnina sanngjarnari og heil- brigðari. En fyrir þeirri lausn er ekki pólitískur stuðningur. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Lítil frétt og óréttlæti á fjölmiðlamarkaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.