Morgunblaðið - 08.07.2020, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020
Akranes Nokkur ungmenni á Skaganum nýttu sér góða veðrið á dögunum og sigldu seglskútum fyrir utan bæinn. Vindur var hægur og skúturnar fóru því ekki hratt yfir.
Eggert
Hún lætur fremur
lítið yfir sér fréttin á
blaðsíðu 4 hér í Mogg-
anum í gær, þriðju-
dag. Fyrirsögnin er
ekki sérlega grípandi
og fréttin því ekki lík-
leg til að vekja mikla
athygli: „Úthlutun til
fjölmiðla útfærð“.
Eitthvað segir mér að
aðeins fjölmiðlungar
hafi áhuga á efninu. Margir þeirra
setjast niður til að átta sig á því
hversu mikið komi í hlut hvers fjöl-
miðils. Þá kemur Excel sjálfsagt að
góðum notum.
Alþingi samþykkti í maí síðast-
liðnum sérstakan fjárstuðning til
einkarekinna fjölmiðla. Stuðning-
urinn er hluti af aðgerðum ríkisins
til að sporna við afleiðingum Cov-
id-19-faraldursins. Mennta- og
menningarmálaráðherra var falið
það erfiða og lítt öfundsverða hlut-
verk að útfæra reglur um úthlutun
400 milljóna til fjölmiðla sem upp-
fylla ákveðin skilyrði.
Tilefni fréttarinnar, sem vekur
litla eftirtekt, er að reglugerð um
fyrirkomulag úthlutunar hefur verið
birt. Að hámarki verður stuðning-
urinn 25% af stuðningshæfum
rekstrarkostnaði viðkomandi fjöl-
miðils en stuðningur til hvers og
eins fjölmiðils getur aldrei orðið
hærri en 25% af heildarfjárveiting-
unni (100 milljónir af 400). Verði
samþykktar umsóknir hærri en 400
milljónir skerðist það
sem kemur í hlut hvers
og eins hlutfallslega.
Fjölmiðlanefnd hefur
það hlutverk með hönd-
um að leggja mat á um-
sóknir. Þannig nær
opinber eftirlitsstofnun
betri tökum á sjálf-
stæðum fjölmiðlum.
Ósanngjarnri sam-
keppni haldið við
Í fjárlögum þessa árs
hafði þegar verið gert
ráð fyrir 400 milljónum króna til að
styðja við sjálfstæða fjölmiðla. Við
afgreiðslu fjárlaga lá fyrir ríkis-
stjórnarfrumvarp um stuðning við
einkarekna fjölmiðla. Frumvarpið
var umdeilt og náði ekki fram að
ganga. Sá er hér skrifar var í hópi
gagnrýnenda. Fjárheimildinni var
breytt í einskiptisaðgerð til stuðn-
ings einkareknum fjölmiðlum vegna
kórónuveirunnar.
Heimsfaraldur kórónuveirunnar
hefur haft alvarleg áhrif á rekstur
fjölmiðla líkt og á rekstur þúsunda
annarra fyrirtækja. Halda má því
fram að áhrifin séu að mörgu leyti
verri þar sem staða sjálfstæðra fjöl-
miðla hefur verið erfið í mörg ár.
Og hvernig má annað vera? Lög-
gjafinn hefur skapað og haldið við
ósanngjarni samkeppni, tryggt yfir-
burðastöðu Ríkisútvarpsins og
dregið þannig þróttinn úr sjálf-
stæðum fjölmiðlum sem á sama
tíma hafa þurft að verjast strand-
höggi erlendra miðla, ekki síst sam-
félagsmiðla.
Ríkisútvarpið fitnar líkt og púk-
inn á fjósbitanum. Engin önnur at-
vinnugrein hefur þurft að sæta því
að eiga í samkeppni við ríkis-
fyrirtæki, sem fær þvinguð framlög
frá skattgreiðendum en um leið frítt
spil á samkeppnismarkaði. Þrátt
fyrir að erfið staða sjálfstæðra fjöl-
miðla hafi blasað við öllum í mörg
ár, hefur varðstaðan um Ríkis-
útvarpið aldrei rofnað. (Ekki einu
sinni lögbrot hefur rofið skarð í öfl-
ugan varnarmúr). Ég hef orðað
þetta svo að Ríkisútvarpið njóti
þess að vera í mjúkum og hlýjum
faðmi stjórnmálamanna. Meirihluti
Alþingis hefur ekki áhuga á að
breyta leikreglunum en virðist ein-
huga í að koma fremur upp flóknu
styrkjakerfi fyrir einkarekna fjöl-
miðla, sem verða um leið háðir
ríkisvaldinu.
Mótsögnin um sjálfstæða fjöl-
miðla og ríkisstyrktan rekstur
þeirra samkvæmt ákvörðunum
opinberra úthlutunarnefnda og
stofnana, blasir við en veldur fáum
áhyggjum. Þó er fátt hættulegra
fyrir frjálsa fjölmiðlun en að verða
háð opinberum styrkjum og nefnd-
um. Ríkisstyrkir verða hægt og bít-
andi ópíum fjölmiðlunga. Fjölmiðlun
sem er háð ríkisvaldinu með beinum
fjárhagslegum hætti telst varla
frjáls nema í orði.
Skilvirk leið er lækkun skatta
Í desember á liðnu ári lagði ég
fram frumvarp ásamt þremur öðr-
um þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins (Brynjari Níelssyni, Vilhjálmi
Árnasyni og Jóni Gunnarssyni) um
afnám tryggingagjalds á einkarekna
fjölmiðla, upp að ákveðnu hámarki.
Tilgangur frumvarpsins er að bæta
rekstrarstöðu fyrirtækjanna og
jafna stöðuna gagnvart ríkisreknum
fjölmiðli með gagnsæjum hætti þar
sem jafnræði skattkerfisins er
tryggt. Frumvarpið náði ekki fram
að ganga og komst raunar ekki á
dagskrá þingsins, af ástæðum sem
hljóta að vekja athygli.
Í greinargerð frumvarpsins er
vitnað til skýrslu nefndar frá janúar
2018 til mennta- og menningar-
málaráðherra þar sem bent var á
hvaða ástæður byggju að baki erf-
iðu rekstrarumhverfi; samkeppni
einkarekinna fjölmiðla við Ríkis-
útvarpið, samkeppni við erlenda
fjölmiðla og flutningur auglýsinga
úr hefðbundnum fjölmiðlum yfir á
veraldarvefinn, svo sem Google og
Facebook. Í skýrslunni er varað við
því að áframhaldandi veiking fjöl-
miðla hafi neikvæð lýðræðisleg og
menningarleg áhrif í samfélaginu.
Frumvarpið var lagt fram með
þeim rökstuðningi að skilvirkasta
leiðin til að styrkja rekstrar-
umhverfi fjölmiðla sé lækkun
skatta. Í greinargerð sagði meðal
annars: „Samræmdar og gegnsæjar
skattaívilnanir tryggja að allir
einkareknir fjölmiðlar sitji við sama
borð og fái hlutfallslega sömu íviln-
un. Það er gert með því að fella
tryggingagjaldið niður, upp að vissu
hámarki, en með því næst hlutfalls-
lega sama lækkun á hvern fjölmiðil
miðað við launakostnað og er
skattaívilnunin þannig byggð á
rekstri einstakra fjölmiðla.
Samkvæmt frumvarpinu verður
því ekki þörf á að opinber nefnd
meti hvort umsókn fjölmiðils full-
nægi tilteknum skilyrðum heldur
yrði skattkerfið sniðið að rekstrar-
formi hvers og eins fjölmiðils án
þess að til kostnaðar stofnist af
hálfu ríkis og fjölmiðils við úthlutun
fjármuna.“
Það skal viðurkennt að sértækar
skattalegar aðgerðir (ívilnun) í takt
við þær sem lagðar eru til í frum-
varpi okkar félaga, er ekki besta
lausnin á þeim vanda sem glímt er
við. Skynsamlegast er auðvitað að
breyta leikreglunum á fjölmiðla-
markaði, gera samkeppnina sann-
gjarnari og heilbrigðari. En fyrir
þeirri lausn er ekki pólitískur stuðn-
ingur.
Litla fréttin í Mogganum er
áminning um alvarlega brenglun og
óréttlæti á fjölmiðlamarkaði. Þess
vegna er nauðsynlegt að leggja
frumvarpið aftur fram á nýju þingi
á komandi vetri í þeirri von að það
fái efnislega umfjöllun þingsins.
Eftir Óla Björn
Kárason » Skynsamlegast er að
breyta leikreglunum
og gera samkeppnina
sanngjarnari og heil-
brigðari. En fyrir þeirri
lausn er ekki pólitískur
stuðningur.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Lítil frétt og óréttlæti á fjölmiðlamarkaði