Morgunblaðið - 08.07.2020, Page 18

Morgunblaðið - 08.07.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 Tilboð/útboð Útboð nr. 20329 Þjórsá - Þverun ofan Þjófafoss Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í að byggja nýja göngu- og reiðbrú yfir Þjórsá, um 800 m ofan við Þjófafoss og leggja stíga að brúnni, samkvæmt útboðsgögnum nr. 20329. Verktími er frá 1.9.2020 – 31.5.2021. Vettvangsskoðun verður kl. 13:00 fimmtu- daginn 16. júlí 2020. Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar utbod.landsvirkjun.is Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef Landsvirkjunar, utbod.landsvirkjun.is fyrir klukkan 12:00 föstudaginn 31. júlí 2020, niðurstöður tilboða, nöfn bjóðenda og heild- arfjárhæðir með vsk verða birtar eftir kl. 12:00 sama dag á útboðsvefnum. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Vegaframkvæmdir á Dynjandisheiði og Bíldudals- vegi, Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vegagerðarinnar er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Kl. 10.30 Hæfi sjúkraþjálfun kemur til okkar með tíma sem hafa gjörsamlega slegið í gegn. Frítt og allir velkomnir. Kl. 13.30 bíó, ætlum að sýna Eurovision-myndina með Will Ferrell og Rachel McAdams sem á að gerast að hluta til á Íslandi. Skráning er hafin í föstudagsviðburð Sumarhópsins okkar. Þau bjóða upp á fræðslu um sögu miðbæjarins með honumStefáni Pálssyni sagnfræðingi. Árskógar Stólajóga kl. 10-10.45. Hádegismatur kl. 11:30-13. Kaffisala kl. 14:45-15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, s. 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum eftir samfélagssáttmálanum, þannig höldum við áfram að ná árangri. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Sumarfrí hjá skrifstofu Félagi eldri borgara. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Bingó í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 útskurður, kl. 11-11.30 leikfimi Helgu Ben, kl. 12.30-15 Döff Félag heyrnalausra, kl. 13-16 útskurður, kl. 13 ganga um hverfið. Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8. Billjard kl. 8. Bingó kl. 13. Spjall- hópur/handavinna kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Hlátur og húmor kl. 10.30. Handavinnuhópur frá kl. 13-16. Framhaldssaga kl.13.30. Korpúlfar Gönguhópar ganga frá Borgum og inni í Egilshöll. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn snemma og verður hreyfiþjálfun á vegum sjúkraþjálfara frá stofunni Hæfi sem hefst kl. 9.30 í setustofu. Í framhaldi af henni, kl. 10.30, verðum við með núvitund í handverksstofu. Eftir hádegi leggjum við af stað í gönguferð á kaffihús með hreyfiteymi. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kl. 11.30 er kaffispjall i króknum á Skólabraut. Kl. 11 er samvera á Skólabraut. Kl. 13.30 er botsía í salnum á Skólabraut. Kl. 18.30 er vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Hlökkum til að sjá ykkur. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Smá- og raðauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is TILBOÐ 90 þús. staðgreitt FORD Galaxy 7 manna - Diesel 2.0 Diesel árg 2011 • Sjálfskiptur • Ekinn 172 þús. • Skoðaður 2021 • Nýsmurður • Nýlega skipt um olíu á skiptingu • Glæný Vredestein nagladekk Verð 1.790 þús. Uppl. í síma 615 8080 Atvinnuhúsnæði í Mosfellsbæ komið í sölu. 200 fm. hvert bil með mikilli lofthæð sem gefur möguleika á mjög góðu millirými en einnig fylgir mjög gott útisvæði. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með álklæðningu. Húsnæðið er á 2 hæðum og því möguleiki á að kaupa á bæði efra og neðra svæði. Staðsett við hliðina á Útilegumanninum í Mosó. Upplýsingar í síma 8990012 eða á netfang: karina@simnet.is Bílar Atvinnuhúsnæði Færir þér fréttirnar mbl.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Guðbjörg Hall-dóra Birg- isdóttir fæddist á Selfossi 25. desem- ber 1953. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 2. júní 2020. Foreldrar henn- ar voru Ingunn Sig- hvatsdóttir, verka- kona, f. 7.5 1931, d 21.2. 2018, og Birg- ir Baldursson fangavörður, f. 12.11. 1926, d. 17.8. 1988, þau bjuggu í Túnprýði á Stokkseyri. Systkini Guðbjargar eru: 1) Baldur Birgisson, f. 1952, maki Margrét Ísaksdóttir, f.1964. Dóttir þeirra er Pálína, f. 1995. Börn Baldurs eru Áslaug Hanna, f. 1972, og Frímann Birgir, f. 1974, móðir þeirra er Margrét Frímannsdóttir. 2) Elín Ásta, f. Bjarki Blær, f. 2004. 2) Arnór, f. 1973. Börn hans eru Enok Orri, f. 1997, Eiður Örn, f. 2003, og Vilhelm Logi, f. 2008. 3) Hall- dóra, f. 1974, maður hennar er Einar Skaftason, f. 1976. Barn þeirra er Andrea Rún, f. 1999. 4) Bryndís, f. 1980. Börn hennar eru Kolfinna Mist, f. 2000, Snæ- fríður Eva, f. 2005, Karítas Embla, f. 2006, og Jóhanna Kristín, f. 2011. 5) Birgir, f. 1984, kona hans er Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir, f. 1987. Barn þeirra er Gabríel Elí, f. 2018. Fyrir á Ásgerður Aron Heiðar, f. 2009, og Anítu Hlín, f. 2014. Guðbjörg ólst upp fyrstu tvö æviárin á Tóftum í Stokkseyr- arhreppi en fluttist svo í Tún- prýði á Stokkseyri með for- eldrum sínum. Árið 1970 kynntist hún eftirlifandi eigin- manni sínum og byggðu þau Austurbrún á Stokkseyri og bjuggu þar til ársins 2009. Þá fluttu þau í Hafnarfjörð og bjó hún þar til dánardags. Útför Guðbjargar fór fram í kyrrþey frá Hafnarfjarðarkirkju 15. júní 2020. 1956. Börn Elínar eru Eva Björk, f. 1978, Brynja, f. 1982, og Eyþór, f. 1992. 3) Guðný Hólm Birgisdóttir, f. 1958. Börn Guð- nýjar eru Ragnar Ingi, f. 1987, og Ing- þór, f. 1990. 4) Bragi Birgisson, f. 1966, kona hans er Hildur Harð- ardóttir, f. 1966. Börn þeirra eru Birkir Fannar, f. 1988, Andrea Ýr, f. 1989, Áslaug Ýr, f. 1991, og Ármann Baldur, f. 2002. Eig- inmaður Guðbjargar er Alex- ander Hallgrímsson sjómaður, f. 1.1. 1951. Börn þeirra eru 1) Ing- unn, f. 1971, maður hennar er Gísli Guðjónsson, f. 1968. Börn: Pétur Már, f. 1993, Guðjón, f. 2000, Alexander, f. 2001, og Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningarorð um þig elsku mamma. Ekki vegna þess að ég viti ekki hvað ég á að skrifa heldur það að nú ertu farin í þína hinstu ferð. Hugs- unin um að ég geti ekki hringt í þig eða komið í heimsókn til þín er mér erfið. En eftir lifa fallegar og góðar minningar um þig sem munu hjálpa mér að komast yfir sorg- ina. Þú varst alltaf kletturinn í mínu lífi og þér á ég margt að þakka. Minningar úr æskunni þegar ég var að alast upp á Stokkseyri leita á hugann. Þú bjóst okkur fjölskyldunni svo fallegt og gott heimili. Okkur skorti aldrei neitt því þú gast gert ótrúlega hluti úr litlu efni. Þannig varst þú, útsjónarsöm og hagsýn. Einu man ég sérstaklega eft- ir en það eru túrkisbláu hné- buxurnar sem þú saumaðir á mig og Dóru systur fyrir 17. júní-hátíðahöldin. Ég man enn hvað við vorum glaðar með bux- urnar. Þú varst svo ótrúlega flink í höndum hvort sem það var að sauma, hekla eða mála. Allt sem þú gerðir var svo fal- legt. Það var svo gott þegar þið pabbi fluttuð í Hafnarfjörð því þá gat ég alltaf komið við hjá ykkur þegar ég fór suður. Þér leið mjög vel að búa í Hafn- arfirði og þar með voru börnin og barnabörnin orðin nær ykk- ur. Þú lifðir fyrir fjölskylduna þína því hún var þér allt. Þú varst alltaf til staðar fyrir okk- ur og það ber að þakka. Ég hefði svo mikið viljað fá meiri tíma með þér, en illvíga krabba- meinið sigraði því miður að lok- um þrátt fyrir ótrúlegan bar- áttuvilja hjá þér. Það var aðdáunarvert að sjá hversu mikið æðruleysi þú sýndir í þessum erfiðu veikindum. Það lýsti svo vel þeirri persónu sem þú hafðir að geyma, yfirvegun og rósemd. Takk fyrir allt elsku mamma. Þín dóttir, Ingunn. Yndislega systir, líf mitt væri dimmt og dauflegt án þín. Þennan texta fékk ég frá þér fyrir mörgum árum og hef hald- ið upp á hann, því mér þótti svo vænt um hann. En nú verð ég að læra að lifa án þín elsku Gugga mín. Síðustu mánuðir hafa verið svo erfiðir fyrir þig, þú barðist eins og hetja, svo æðrulaus og alltaf að vernda og hugga aðra. Mig langar að skrifa svo margt um þig, þú varst svo hæfileika- rík í öllu, allt lék í höndunum á þér. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla. Sjáumst í sumarland- inu elsku systir. Guðný Hólm Birgisdóttir. Guðbjörg Halldóra Birgisdóttir Elsku afi, hvar eigum við að byrja? Það er ekki hægt að koma því í orð hversu mikið við söknum þín. Þú varst okkur systkinum sem föður- ímynd frá ungum aldri og verð- um við þér ævinlega þakklát fyrir það. Þú varst okkar stoð og stytta og studdir okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendi og minntir okkur reglulega á að við gætum allt sem við ætluðum okkur. Svo margt af því sem við höfum áorkað í lífinu eigum við þér að þakka, afi. Það er erfitt að lýsa þér í nokkrum orðum en það sem einkenndi þig hvað mest er þitt stóra hjarta, hlýi og stóri faðm- urinn, gjafmildi og hversu góð- hjartaður þú varst. Þú vildir gera allt fyrir alla, sama hvað það var. Þú gekkst í öll verk og það var fátt sem stóð í vegi fyrir þér. Hvort sem það var að byggja, gera og græja við bíla, gera at í ömmu, aðstoða okkur systkinin að koma okkur úr snjósköflum og bara almennt hvetja okkur áfram í lífinu. En það sem skiptir hvað mestu máli er það að þú varst alltaf til staðar. Þú svo sannarlega gerð- ir allt með stæl, elsku afi. Þú Gylfi Ólafsson ✝ Gylfi BorgþórÓlafsson fædd- ist 8. maí 1942. Hann lést 17. júní 2020. Útför Gylfa fór fram í kyrrþey, 26. júní í Garðakirkju, að ósk hins látna. varst eins og svo margir kölluðu þig „flottur og góður maður“. Við kunnum svo sann- arlega að meta allar þær minn- ingar sem við eig- um saman, þessar minningar eru okkur ómetanleg- ar. Við kveðjum með trega en minnumst þín með þakklæti og ást. Þú tókst örlögum þínum með einstakri yfirvegun og er það huggun í hjarta okkar að þér líði betur núna og við vitum að þú sért í góðum höndum hjá foreldrum þínum og vinum. Við hefðum ekki getað óskað okkur betri afa, pabba og vinar og munum við því ávallt sakna, þín elsku afi. Takk fyrir allt, við elskum þig. Tania Lind, Hildur Anissa og Sölvi Snær. Fallinn er frá æskufélagi okkar og vinur. Kynni okkar hófust í Grjótaþorpinu þar sem við ólumst allir upp. Gylfi var yngstur í hópnum og við gengum saman í Mið- bæjarbarnaskólann við Tjörn- ina og síðan í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar sem var í gamla Stýrimannaskólanum á Öldu- götu. Á veturna vorum við fé- lagarnir óaðskiljanlegir en á sumrin vorum við sendir í sveit til vina og vandamanna. Við brölluðum margt og mikið. Gylfi var í sveit á Kolbeinsá í Hrútafirði og hafði hann alla tíð sterkar taugar þangað. Á unglingsárunum vorum við vin- irnir tíðir gestir í bíóhúsum borgarinnar og á tímabili sáum við allt sem sýnt var, enda ekk- ert sjónvarp. Gylfi var mjög ungur þegar hann fór að hafa áhuga á bílum og fór hann síðan í bifvélavirkjanám, sem varð ævistarf hans. Um leið og við fengum bílpróf varð aðaláhuga- málið að ferðast um landið. Var þá fjárfest í jeppa og farið í ferðir um nánast hverja helgi upp á hálendið. Meðal vinsæl- ustu staðanna voru Þórsmörk, Landmannalaugar og Álfta- krókar. Einnig vorum við fljótir að koma okkur á staðinn ef eitthvað spennandi var að ger- ast eins og t.d. eldgos. Það var vissulega kostnaður sem fylgdi þessu áhugamáli, sem leiddi af sér að allir peningarnir fóru í ferðir en ekki í áfengi og tóbak. Stöku sinnum fórum við í bak- pokaferðir á þá staði sem ekki var hægt að keyra á, eins og Hornstrandir. Fjallaferðunum fækkaði þegar við stofnuðum fjölskyldur en ávallt hélt þessi góði vinskapur. Hildur og Gylfi keyptu í seinni tíð lögbýlið Borg í Hrútafirði, sem er við hliðina á Kolbeinsá þar sem Gylfi var í sveit. Varði hann þar öllum sín- um frítíma þangað til þau hjón- in komu sér upp góðri aðstöðu á Laugarvatni. Átti vinahópurinn margar góðar stundir á báðum þessum stöðum. Takk fyrir góða vináttu og samverustundir, kæri vinur. Hvíl í friði. Gunnar (Gunni), Jón (Nonni) og Sigurður (Siggi).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.