Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.07.2020, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 „Við munum segja barnabörnum okkar frá því þegar við sáum Ísak Bergmann Jóhannesson skora sitt fyrsta mark í sænsku deildinni,“ skrifaði sænski íþróttafréttamað- urinn Robert Laul fyrir Afton- bladet er hann lofsöng Skagamann- inn unga fyrir góða frammistöðu með knattspyrnuliði Norrköping undanfarnar vikur. Ísak er aðeins 17 ára gamall en hefur engu að síður skorað eitt mark og lagt upp þrjú í þremur fyrstu byrjunarliðsleikjum sínum í meistaraflokki. Sögur fyrir barnabörnin Ljósmynd/Norrköping Efnilegur Ísak hefur vakið mikla athygli þótt hann sé aðeins 17 ára. Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði knatt- spyrnuliðs Víkings í Reykjavík, var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann á fundi aga- og úrskurðar- nefndar KSÍ. Sölvi brást afar illa við rauðu spjaldi sem hann fékk í leik gegn KR á laugardag og fær hann því þriggja leikja bann í stað eins. Sam- herjar hans Kári Árnason og Halldór Smári Sigurðsson fá báðir eins leiks bann fyrir brottvísanir í sama leik. Patrik Orri Pétursson leikmaður Gróttu var úrskurðaður í eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn HK á laugardag. Sölvi í þriggja leikja bann Morgunblaðið/Ómar Bann Sölvi Geir Ottesen missir af næstu þremur leikjum Víkinga. GRIKKLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Markvörðurinn Ögmundur Krist- insson mun ganga til liðs við gríska knattspyrnufélagið Olympiacos þeg- ar yfirstandandi tímabili lýkur í grísku úrvalsdeildinni en Grikk- landsmeistararnir borguðu tæplega 70 milljónir íslenskra króna fyrir leikmanninn í gær. Ögmundur, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við Olympiacos en félagið er sig- ursælasta lið Grikklands frá upphafi með 45 meistaratitla og staðsett í Piraeus, hafnarborg grísku höfuð- borgarinnar Aþenu. Ögmundur er annar Íslending- urinn í herbúðum félagsins en Alfreð Finnbogason lék með liðinu fyrri hluta tímabilsins 2015-16 sem láns- maður frá Real Sociedad. Markvörðurinn býr í Larissa og mun því flytjast búferlum í sumar en hann er uppalinn hjá Fram og hefur leikið með Randers í Danmörku, Hammarby í Svíþjóð, Excelsior í Hollandi og Larissa í Grikklandi á at- vinnumannsferli sínum sem hófst ár- ið 2014. „Ég er virkilega stoltur og mjög ánægður með þessi skipti,“ sagði Ög- mundur í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er risastórt lið, bæði í Grikk- landi og í Evrópu. Þetta er sögu- frægt félag með fjölda stuðnings- manna og þetta eru virkilega spennandi tímar. Mér hefur gengið virkilega vel hjá Larissa frá því ég gekk til liðs við félagið árið 2018 en á sama tíma hefur maður líka fundið fyrir áhuga annarra liða. Ég hafði hug á að taka smá áhættu og reyna fyrir mér annars staðar eft- ir tvö ár hjá Larissa og þegar að Olympiacos lagði fram tilboð þá var þetta í raun algjör „no brainer“ fyrir mig persónulega. Ég get rétt ímynd- að mér það, miðað við stærð félags- ins og annað í þeim dúr, að krafan sé bikar á hverju einasta ári, í öllum keppnum. Ég er spenntur að komast inn í þannig umhverfi og hlakka mikið til. Þetta er ein af ástæðum þess að ég ákvað að velja Olympiacos því ég vildi komast til félags með ákveðna sigurhefð og sögu í Evrópu. Ég held að svona umhverfi muni bara gera mér gott og þegar allt kemur til alls þá vonast ég til þess að halda áfram að bæta mig sem leikmaður eftir þetta skref.“ Landsliðsmenn í öllum stöðum Ögmundur hefur verið orðaður við brottför frá Larissa undanfarna mánuði en hjá Olympiacos mun hann að öllum líkindum berjast við Portú- galann José Sá um sæti í byrjunar- liðinu en Sá hefur verið í herbúðum gríska liðsins frá árinu 2018. „Það hefur verið ágætisaðdragandi að þessu og ég hef vitað af áhuga þeirra í þó nokkurn tíma. Að sama skapi hef ég í raun bara einbeitt mér eingöngu að Larissa enda lítið annað í boði. Ég mun því klára tímabilið með Larissa og ganga svo formlega til liðs við Olympiacos þegar tíma- bilinu lýkur hérna úti. Ég er einbeitt- ur á að gera vel í fyrir Larissa þessa stundina enda eiga þeir mjög stóran þátt í minni velgengni í Grikklandi og það er eitthvað sem þarf að bera virð- ingu fyrir. Það er þannig þegar maður fer í lið eins og Olympiacos, að maður er ekki að fara ganga að neinu vísu. Það er samkeppni um hverja einustu stöðu enda meirihluti leikmannahópsins landsliðsmenn hjá sínum þjóðum. Þeir eru með frábæra markmenn innan sinna raða og þegar ég geng formlega til liðs við félagið mun ég setja hausinn undir mig og leggja hart að mér á æfingasvæðinu. Von- andi mun það svo skila manni sæti í byrjunarliðinu en það er auðvitað eitthvað sem verður bara að koma í ljós.“ Líður vel í Grikklandi Ögmundur gekk til liðs við Larissa frá hollenska úrvalsdeildarfélaginu Excelsior í ágúst 2018 en hann lék í eitt ár í Hollandi áður en hann fór til Grikklands og hefur hann stimplað sig inn sem einn af bestu markvörð- um grísku deildarinnar. „Ég kom hingað árið 2018 en þeg- ar ég heyrði fyrst af áhuga Larissa fór ég að kynna mér landið og fót- boltann betur. Ég sá það strax að gríska deildin er hörkudeild og það sést kannski best á árangri stærstu liðanna í Evrópukeppnum á und- anförnum árum. Ég veit hvað ég get og þess vegna hefur það ekki komið mér á óvart hversu vel mér hefur gengið hér í Grikklandi. Okkur líður mjög vel hérna, mér og fjölskyldu minni, og það á stóran þátt í því að fótboltinn hefur gengið vel líka. Það var rétt ákvörðun að koma hingað til að byrja með og ég sé alls ekki eftir því í dag enda hafa síðustu tvö ár verið bæði mér og fjölskyldu minni afar góð og vonandi verða næstu þrjú árin í Aþenu enn þá betri.“ Það vantar lítið upp á stemninguna á grískum kappleikjum og er það ein af ástæðum þess að Ögmundi líkar jafn vel og raun ber vitni í Grikk- landi. „Það er mikil ástríða fyrir fótbolt- anum í Grikklandi og í hvert skipti sem það er leikur á dagskrá er pakk- að á öllum kaffihúsum borgarinnar þar sem menn eru að fylgjast með. Grikkirnir eru blóðheitir bæði fyrir lífinu og fótboltanum sem gerir þá skemmtilega. Það setur líka smá fútt í þetta og gerir þá kannski ólíkari okkur Íslendingunum fyrir vikið. Það er mikil stemning á öllum leikjum og það er iðulega eitthvað sem kemur upp á og einhver læti á pöllunum. Það er bara gaman að því, svo framarlega sem það fer ekki úr böndunum. Maður lærir líka að hafa betri stjórn á eigin tilfinningum í svona aðstæðum enda mikilvægt að missa ekki einbeitingu þegar út í leik- ina er komið.“ Lifir í núinu Ögmundur hefur verið varaskeifa fyrir Hannes Þór Halldórsson í ís- lenska landsliðinu undanfarin ár en hann á að baki 15 A-landsleiki frá árinu 2014. „Þú getur fengið tækifæri í leik með landsliðinu þar sem þú átt eina góða vörslu og þá ertu geggjaður. Svo áttu leik þar sem gerðist ekki neitt en þú fékkst á þig eitt mark og af því að þú ert nýr þá ertu lélegur. Ég reyni að lifa í núinu og það sem er búið er búið. Ég veit hvað ég hef fært íslenska landsliðinu í gegnum tíðina, það gera leikmenn liðsins líka, og vonandi þjálfararnir líka. Félagsliðaferillinn minn hefur ekki verið mjög háður íslenska landsliðinu ef svo má segja. Ég hef ekki verið að spila mikið með A-landsliðinu en fæ samt samningstilboð frá Olympiacos. Hvort spilatíminn með landsliðinu muni breytast eftir þetta veit ég ekki en ég vil að sjálfsögðu spila fyrir landsliðið, frekar en að koma inn í hópinn sem klappstýra, og ég tel að þetta skref muni hjálpa mér í þeim efnum,“ bætti Ögmundur við í sam- tali við Morgunblaðið. Keyptur á 70 milljónir króna af grísku stórveldi  Ögmundur Kristinsson skrifaði undir þriggja ára samning við grísku meistarana Ljósmynd/Larissa Félagaskipti Ögmundur Kristinsson mun ganga til liðs við Grikklandsmeistara Olympiacos þegar tímabilinu lýkur. Ögmundur Kristinsson » Fæddist 19. júní 1989. » Uppalinn hjá Fram og á að baki 77 leiki fyrir félagið í efstu deild. » Gekk til lið við Larissa á Grikklandi árið 2018 og á að baki 60 leiki fyrir félagið í grísku 1. deildinni. » Hefur leikið 15 A-landsleiki og 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Eitt ogannað  Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs í bandarísku NFL- deildinni í ruðningi, skrifaði undir stærsta og verðmætasta samning íþróttasögunnar á dögunum. Mahom- es var í aðalhlutverki með Kansas City á síðustu leiktíð þegar liðið vann sinn fyrsta meistaratitil eftir sigur gegn San Francisco 49ers í Ofurskál- arleiknum sem fram fór í Miami í febr- úar. Mahomes dvaldi um hríð á Íslandi árið 2017 þegar kærasta hans Britt- any Matthews spilaði með Aftureld- ingu/Fram í 2. deild kvenna í knatt- spyrnu. Samningur Mahomes við Kansas City er metinn á 500 milljónir dollara eða 69 milljarða íslenskra króna. Hnefaleikakappinn Floyd May- weather átti gamla metið en hann fékk 450 milljónir dollara fyrir samn- ing við sjónvarpsstöðina Showtime ár- ið 2013.  Knattspyrnumaðurinn Harvey Nev- ille hefur skrifað undir atvinnumanns- samning við Manchester United en hann er sonur Phils Nevilles, sem spil- aði með United og Everton í ensku úr- valsdeildinni um árabil. Harvey er 18 ára gamall varnarmaður og hefur hann spilað með yngri liðum Manchester- liðsins undanfarin ár. Þá hefur hann einnig spilað fyrir U19 ára landslið Ír- lands. Faðir hans Phil spilaði með United á árunum 1994 til 2005 og föð- urbróðir hans, Gary Neville, spilaði með United allan sinn feril, yfir 600 leiki, á árunum 1992 til 2011.  Enska knattspyrnufélagið Chelsea er að vinna kapphlaupið um einn eftir- sóttasta leikmann heims, Kai Havertz, leikmann Bayer Leverkusen í Þýska- landi, en það eru fjölmiðlar á borð við Goal.com og Mirror sem greina frá þessu. Sóknarmaðurinn er 21 árs gam- all og á meðal eftirsóttustu leikmanna heims í dag. Hann hefur verið orðaður við félög á borð við Liverpool, Man- chester United og Real Madrid en Lev- erkusen er sagt tilbúið að selja Hav- erts fyrir 100 milljónir evra í sumar. Chelsea er eitt fárra liða sem geta borgað þessa upphæð fyrir leikmann- inn en heimildir Goal.com og Mirror herma að Havertz muni aðeins ganga til liðs við Chelsea ef liðinu tekst að tryggja sér sæti í Meist- aradeild Evrópu á næstu leik- tíð. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Víkingsv.: Víkingur R. – Valur................. 18 Norðurálsvöllur: ÍA – HK ................... 19.15 Extra-völlur: Fjölnir – Grótta............. 19.15 Kópavogsvöllur: Breiðablik – FH....... 20.15 1. deild karla, Lengjudeildin Þórsvöllur: Þór – Vestri ............................ 18 Grindavíkurv.: Grindavík – Keflavík .. 19.15 Fjarðab.höll: Leiknir F. – Þróttur R .. 19.30 3. deild karla: Vilhjálmsv.: Höttur/Huginn – Einherji... 19 Sindravellir: Sindri – Ægir....................... 19 Bessastaðav.: Álftanes – Tindastóll ........ 19 Fylkisvöllur: Elliði – Reynir S. ................ 20 Samsung-völlur: KFG – KV ..................... 20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.