Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 15

Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Speglun Stúlkan á hlaupahjólinu spyrnir sér áfram fyrir utan og innan dyr Salarins í Kópavogi. Spegilmyndin ætlar sér inn í ljúfa tóna Salarins en hin raunverulega stúlka á vit ævintýranna. Árni Sæberg Í sáttmála um sam- göngur á höfuð- borgarsvæðinu, sem undirritaður var 26. september 2019, fyrir um 10 mánuðum, var m.a. fjallað um þrjár framkvæmdir: Borgarlínu, lagningu Sundabrautar og mis- læg gatnamót á Bú- staðavegi/Reykjanes- braut. Heildarfjármögnun þeirra sam- gönguframkvæmda á höfuðborgar- svæðinu sem fjallað er um í sam- göngusáttmálanum er 120 milljarðar króna. Þar af er gert ráð fyrir að „sérstök fjármögnun“ verði um 60 milljarðar króna. Fjármögnun á að tryggja m.a. með aukinni gjaldtöku af ökutækjum og sölu á eignum ríkisins. Borgarfulltrúar meirihlutans, þ.m.t. borgarstjóri, hafa nánast ekkert minnst á lagningu Sunda- brautar og gerð mis- lægra gatnamóta á Bústaðavegi/ Reykjanesbraut. Það eru greinilega fram- kvæmdir sem meirihlutanum hugnast ekki, en samgönguráð- herra hefur tekist að koma inn í samgöngusáttmálann með því að veita samþykki sitt fyrir Borgar- línu. „Útfærsla“ í stað „mislæg“ Í samgöngusáttmálanum er fjallað um „Gatnamót við Bústaða- veg – 1100 milljónir árið 2021“. Augljóslega hefur ekki mátt nefna mislæg gatnamót, sem þó er gert ráð fyrir að þar verði byggð. Þann 21. mars árið 2017 lögðu borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu í borgarstjórn um gerð mis- lægra gatnamóta á Bústaðavegi og Reykjanesbraut. Borgarfulltrúar meirihlutans óskuðu eftir því að í stað orðanna „gerð mislægra“ í til- lögunni kæmi orðið „útfærsla“. Þannig var tillagan samþykkt með teikningu, sem sýndi þrátt fyrir allt mislæg gatnamót. Ótrúlegur feluleikur af hálfu borgarfulltrúa meirihlutans. Takmarkaður áhugi á lagn- ingu Sundabrautar Varðandi lagningu Sundabraut- ar er löngu ljóst að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lítinn sem engan áhuga á því að sú framkvæmd verði að veruleika. Það verður fróðlegt að fylgjast með því á næstu tveimur árum hver þróun þessara mála verður. Ekki kæmi á óvart að Borgar- línuverkefnið yrði verulega kostn- aðarsamara en nú er gert ráð fyr- ir. Það mun líklega draga mjög úr fjárveitingum síðar meir til margra nauðsynlegra samgöngu- framkvæmda í Reykjavík, annarra en þeirra sem samgöngusátt- málinn gerir ráð fyrir í dag. Ekkert hefur verið hlustað á al- varlega gagnrýni margra um- ferðarverkfræðinga og skipulags- fræðinga á tillögu um Borgarlínu, þrátt fyrir mikla reynslu þeirra af umferðarskipulagi. Þeir sem hann- að hafa Borgarlínukerfið telja sig vita betur. En þeir bera ekki ábyrgð ef illa fer. Það gera þeir stjórnmálamenn sem þessa ákvörðun tóku, fyrst og fremst meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson »Ekki kæmi á óvart að Borgarlínuverk- efnið yrði verulega kostnaðarsamara en nú er gert ráð fyrir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Nýlega lagði dóms- málaráðherra fram skýrslu starfshóps með tillögum til að stytta boðunarlista Fangelsismálastofn- unar til afplánunar refsinga. Listinn hefur lengst mjög á síðustu árum og skiptir nú hundruðum dómþola. Símon Sigvaldason dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur skrifaði grein í Morgunblaðið 8. júlí síðastliðinn þar sem hann finnur að ýmsu í tillögunum og fullnustu refs- inga hér á landi. Einkum gagnrýnir hann þá tilhneigingu að dómþolar sem hljóti óskilorðsbundna fangels- isrefsingu afpláni dóm sinn utan veggja fangelsa. Þar sem ég átti sæti í starfshópnum finnst mér við hæfi að benda á nokkur atriði og jafnframt viðra önnur sjónarmið. Okkar hlutverk í starfshópnum var afmarkað og vel skilgreint af ráðherra. Stytta skyldi biðlista eftir afplánun dóma án þess að auka kostnað og ógna réttaröryggi borg- aranna. Boðunarlistinn felur að stórum hluta í sér vægari refsingar meðan dómþolar fyrir alvarleg brot hefja af- plánun í fangelsi að jafnaði fljótt. Við ein- blíndum því á biðlist- ann og lögðum til nokkra kosti sem flýta eiga málsmeðferð og auka skilvirkni kerf- isins. Samanlagt draga þeir úr þörf á vistun í fangelsi fyrir vægari brot og opna á aðra möguleika til afplán- unar refsinga. Aukin samfélagsþjónusta, rýmkaðar heim- ildir til sáttamiðlunar og fullnusta dóma með sérskilyrðum einsog vímuefnameðferð í stað vistar í fangelsi, voru örfáar leiðir sem við lögðum til. Rannsóknir sýna að vist í fangelsi hefur óveruleg varnaðar- áhrif eins og Símon bendir á, hvorki sérstök né almenn. Aftur á móti bendir ýmislegt til að aðrir af- plánunarkostir en vist í fangelsi geti dregið úr ítrekun brota fyrir utan að fela jafnframt í sér minni kostnað fyrir samfélagið. Í ljósi vitneskju af þessu tagi lagði starfs- hópurinn fram tillögur sínar um rýmri heimildir við aðra afplán- unarkosti en vistun í fangelsi fyrir vægari brot. Aftur á móti lögðum við ekki til neinar breytingar varðandi af- plánun alvarlegustu brotanna sem varða líf og líkama fólks einsog gróf kynferðis- og ofbeldisbrot, mann- dráp og nauðganir. Í þessu sam- hengi voru samt ræddar tillögur að heimila reynslulausn fyrr fyrir al- varleg fíkniefnabrot. Ekki náðist sátt um tillögu af því tagi. Hlutfall fanga fyrir fíkniefnabrot hefur vaxið mjög í fangelsum lands- ins á síðustu árum. Árið 2019 var hlutfallið komið í 40 prósent allra fanga og vel á annað hundrað af- plánaði dóm fyrir brot af því tagi. Í lok síðustu aldar sátu einungis inn- an við tíu prósent fanga í fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Rekja má vaxandi hlutfall fíkni- fanga til þess uppnáms sem varð í samfélaginu með tilkomu e-pillunn- ar á tíunda áratugnum. Þungir dómar féllu í kjölfarið sem ekki hef- ur tekist að vinda ofan af eftir því sem málum hefur fjölgað og magn efna aukist. Þungir dómar fyrir fíkniefnabrot hafa óneitanlega átt þátt í að riðla samræmi í mati á refsingum milli ólíkra brotategunda. Kröfur um hertar refsingar fyrir ofbeldis- og kynferðisbrot á síðustu árum verða meðal annars að skoðast í ljósi þró- unar dóma í fíkniefnamálum. Fíkniefnavandinn, eins og rann- sóknir hafa ítrekað sýnt, er að stórum hluta félags- og heilbrigð- ismál, og þungar refsingar draga ekki úr þeim vanda sem fíkniefni valda í samfélaginu. Endurskoðun refsilöggjafarinnar í fíkniefna- málum þarf því án vafa að taka til fleiri þátta en einungis afnáms refs- inga við vörslu á fíkniefnum til eig- in nota. Símon heldur því fram í grein sinni að framkvæmdavaldið hafi of mikið að segja á hvern hátt refsing- um sé fullnustað hér á landi. Dóm- stólar úrskurði óskilorðsbundna fangelsisvist en síðan taki aðrar stofnanir við einsog yfirvöld fang- elsismála og breyti dóminum í sam- félagsþjónustu, rafrænt eftirlit eða í aðrar vægari refsingar. Þetta er að sönnu mikilvægt atriði og snertir valdmörk og aðgreiningu ríkisvalds- ins. Ekki er samt óþekkt erlendis að framkvæmdavaldið hafi eitthvað að gera með fullnustu refsinga af þessu tagi. Aftur á móti er rétt að sam- félagsþjónustan skipar ákveðna sér- stöðu hér á landi. Ákvörðun um hana liggur hjá einu stjórnvaldi, Fangelsismálastofnun ríkisins. Reynslan af þessari tilhögun hefur verið góð. Mál eru afgreidd til- tölulega skjótt, vinna útveguð fyrir samfélagsþjóna og hægt að bregð- ast skjótt við ef skilyrði eru rofin. Ákvarðanatakan er samræmd hjá einu embætti í stað þess að ákvarð- anir séu teknar af ólíkum dóm- stólum á landinu öllu, sem býður hættunni heim að málin fái ólíka af- greiðslu. Ramminn utan um hverjir eiga möguleika á afplánun með samfélagsþjónustu liggur auk þess skýr fyrir. Að mínu mati er engin ástæða til að breyta þessu verklagi. Eftir Helga Gunnlaugsson » Greinin er svar við grein sem Símon Sigvaldason skrifaði í blaðið 8. júlí um af- plánun refsinga á Ís- landi vegna nýútkom- innar skýrslu dómsmálaráðherra. Helgi Gunnlaugsson Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann var í starfshópi dómsmálaráðherra til að stytta boðunarlista til afplánunar refsinga. Afplánun refsinga á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.