Morgunblaðið - 13.07.2020, Side 16

Morgunblaðið - 13.07.2020, Side 16
Við erum föst í víta- hring. Við höfum hannað og lagt vegi fyrir aukna bílaumferð frá sjötta áratugnum og erum enn að. Á sama tíma hefur íbú- um höfuðborgarsvæð- isins fjölgað úr 50.000 í 220.000. Gríðarleg húsnæðisbygging hef- ur átt sér stað og ennþá meiri vegaupp- bygging. Við höfum val um hvar og hvernig húsnæði er byggt. Á sama tíma höf- um við val um hvernig innviði við byggjum upp og fyrir hvaða fara- máta. Nánast hver einasta króna hefur farið í innviðauppbyggingu fyrir einkabílinn. Ef hins vegar sömu upphæðir hefðu verið settar í innviði fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur síðustu ára- tugi byggjum við í allt öðruvísi borg. Það væri mun minna af mislægum gatnamót- um og mun meira af öflugum hjólaakrein- um. Það væru mjórri götur og breiðari gangstéttir. Minni mengun og meira val. Allar þær borgir sem standa hvað fremst í lífsgæða- og loftslagsmálum vita að einkabíllinn er ekki framtíðin. Þó svo að sjálfkeyrandi farartæki verði hluti af heildarmyndinni vill engin borg fá sjálfkeyrandi einkabíla í miklu magni. Til þess er ekki nóg pláss. Þess vegna eiga allar framsæknar borgir það sameiginlegt að stefna að því að flytja meiri fjölda fólks með öflugum almenningssam- göngum og stórtækum hjólainn- viðum, þar er mesta flutningsgetan. Í dag vitum við að borgarlína verður byggð. Kerfi sem mun um- bylta húsnæðisuppbyggingu í borg- inni og hugsunarhætti þeirra sem um hana ferðast. Það er nefnilega fátt sem hefur jafnmikil áhrif á hugsun og hegðun fólks og það að sjá hlutina með eigin augum. Ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu eru líka sammála um að setja meira fjármagn í innviði fyrir hjól- andi fólk og loksins eru komin árleg fjárframlög frá ríkinu í uppbygg- ingu hjólastíga. Reykjavíkurborg hefur boðað metnaðarfyllri markmið um breyttar ferðavenjur en áður hafa sést á Íslandi, betri innviði fyrir strætó og byltingu í rafhjólum. Ör- flæði verður miklu stærri hluti af samgöngukerfinu í Reykjavík og mun hlutdeild allra annarra farar- máta en einkabílsins aukast næstu áratugina. Færri bílaakreinar og færri bíla- stæði færa okkur svo miklu meira en hreinna loft. Þau færa okkur aukið pláss fyrir borgarlínu og fyrir húsnæðisuppbyggingu. Sem færir okkur minni umferðartafir og lægri samgöngukostnað. Sem færir okkur aukinn frítíma og aukin lífsgæði. Fjárfesting sem skapar ekki víta- hring heldur sjálfbæran hring. Áratugir þar sem mönnum líkt og Davíð Oddssyni og Robert Moses fannst sjálfsagt að fórna öllu fyrir hraðbrautir eru í dag hluti af fortíð- inni. Þetta eru áratugir þar sem frekir karlar og ómanneskjuleg verkfræði sköpuðu í sameiningu það bílaumhverfi sem einkennir margar vestrænar borgir. Öllu skyldi fórna fyrir einkabílinn, hvort sem um var að ræða fátækrahverfi í New York eða Fossvogsdalinn í Reykjavík. Í dag er Davíð Oddsson kominn upp í Hádegismóa og Robert Moses undir græna torfu. Í dag er Reykja- vík að byggja húsnæði fyrir heim- ilislaust fólk, að vernda græn svæði og fækka einkabílum. Minnka um- ferðarhraða og forgangsraða gang- andi fyrst. Skapa hægan púls með minni mengun og meira af gróðri þar sem þú nýtur tilverunnar, hvort sem þú ert á leiðinni til vinnu eða að hitta vinkonu. Borgir munu hætta að vera mekka einkabílsins. Í framtíðinni verða þær lifandi orkustöðvar sjálf- bærni og lífsgæða. Með mann- eskjulegt umhverfi í fararbroddi þar sem velferð íbúa og náttúrunn- ar haldast í hendur. Þangað stefnir Reykjavík. Einkabíllinn er ekki framtíðin Eftir Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur » Áratugir þar sem mönnum líkt og Davíð Oddssyni og Robert Moses fannst sjálfsagt að fórna öllu fyrir hraðbrautir eru í dag hluti af fortíðinni. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Höfundur er formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur. 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr silki LEIKFÖNG Að undanförnu hefur verið í undirbúningi átak til að efla sveitar- stjórnarstigið með því að sameina þau í öflugri stjórnsýslueiningar. Tilvist allt of fámennra og vanburðugra sveitarfélaga hefur haldið aftur af mögu- leikum sveitar- stjórnarstigsins í heild til að rækja skyldur sínar með fagleg- um og fullnægjandi hætti og bæta og auka þjónustu við íbúa. Alþingi álykt- aði í lok janúar að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags hækki í áföngum í 1.000 íbúa en frumvarp til að gera þau áform að lögum hefur ekki verið lagt fram. Vitaskuld hefur farsóttin sett strik í reikninginn en það er einmitt í áföllum sem bestu tækifærin gefast til að stokka spilin upp á nýtt. Eitt af því sem heldur aftur af því að sveitarfélög sameinist að frum- kvæði íbúa í öflugri einingar er hversu mismunandi tekjur þau hafa. Þær eru byggðar á sams konar skatt- stofnum en þeir eru misjafnlega gjöf- ulir. Sveitarstjórnir hafa nokkurt frelsi til að ákveða skatthlutföll sjálf- ar og það gera þær til lækkunar frá hámörkum ef skattstofn er öflugur og einkum ef gjaldendur eru jafn- framt íbúar í sveitarfélaginu. Misjafnir tekjustofnar skila sveitarfélögum mismun- andi tekjum. Lægsti út- svarsstofn á íbúa nemur um 2/3 af landsmeðaltali meðan hann er 15% yfir meðaltalinu þar sem hann er hæstur. Til að ná meðaltekjum allra sveitarfélaga af útsvari þyrfti útsvarshlutfall að vera yfir 20% þar sem stofninn er veikastur meðan sömu tekjum væri hægt að ná með rúmlega 12% útsvari þar sem hann er sterkastur. Sum þeirra sveitarfélaga sem leggja á lægra hlut- fall útsvars en heimilað hámark fá engu að síður töluvert meiri útsvar- stekjur af hverjum íbúa en landsmeð- altal. Ef miðað er við að sveitarfélögin í landinu yrðu einungis 21, sem er langt umfram þau áform sem hafa verið til skoðunar, hefði það þó takmörkuð áhrif á þörfina á millifærslu milli þeirra ef jafna ætti útsvarstekjur þeirra. Ef bæta ætti öllum sveitar- félögum upp þær útsvarstekjur sem þau vantar upp á landsmeðaltal væri heildarupphæðin 6,1 mia. kr. fyrir þau 72 sveitarfélög sem landið skiptist í árið 2018 en það er síðasta árið sem aðgengilegar tölur hafa verið birtar fyrir meðan upphæðin yrði 5,8 mia. kr. ef þau væru einungis 21. Þrátt fyrir umtalsverða fækkun sveitarfélaganna er þörfin til að jafna tekjur af útsvari nær óbreytt. Allt önnur staða er gagnvart tekjum sveitarfélaga af fasteigna- gjöldum. Þar voru tekjur sveitar- sjóðs á hvern íbúa innan við 70 þús- und krónur árið 2018 í þeim tveimur sveitarfélögum þar sem þær voru lægstar meðan þær voru 1,8 m.kr. á hvern íbúa þar sem þær voru mest- ar. Tekjurnar voru yfir einni milljón á íbúa í fjórum sveitarfélögum en þau eru öll fámenn. Mismunandi há fasteignagjöld miðað við verðmæti eru lögð á í þremur flokkum: íbúðar- húsnæði, þ.m.t. frístundabyggingar ofl; opinbert húsnæði og atvinnu- húsnæði utan landbúnaðarbygginga. Mismunur á álagningarhlutfalli er langmestur í fyrsta flokknum: frá 0,175% þar sem það er lægst í 0,625% í nokkrum sveitarfélögum þar sem það er hæst. Þau sveitar- félög þar sem mikið er um frí- stundabyggðir hafa langmestar tekjur af þessum hluta fasteigna- gjaldanna. Meðan landsmeðaltal er 44 þús. kr. á íbúa er það 1.170 þ. kr á hvern íbúa þar sem það er hæst. Al- mennt eru sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu með lægstu álagn- ingarhlutföllin í þessum flokki. Tekjum sveitarfélaga af þessum hluta fasteignagjaldanna er jafnað milli sveitarfélaga með framlögum úr ríkissjóði gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Langmestur munur milli sveitar- félaga er vegna fasteignagjalda af atvinnuhúsnæði en þar munar mest um virkjanir og stóriðju. Þær voru að meðaltali 75 þús. kr á íbúa árið 2018. Þar sem þær eru lægstar eru þær nær engar en rétt undir 1,8 m.kr. á íbúa þar sem þær voru hæstar. Fasteignagjöld eru þannig mjög mismunandi mikilvæg og valda afar mismunandi stöðu sveitarfélaga án þess að hafa samsvarandi áhrif á út- gjöld. Þau eru aðaltregðuvaldur varðandi sameiningu sveitarfélaga og munu að öllum líkindum koma í veg fyrir hagkvæmustu sameiningu þeirra án lagaskyldu ef ekki verður tekið á fyrirkomulagi fasteignaskatt- lagningar á stórfyrirtæki og virkj- anir. Þegar lagðar eru saman tekjur sveitarfélaga af eigin álagningu, þ.e. útsvar og fasteignagjöld, kemur vel í ljós sá mikli munur sem er á milli þeirra. Þetta sést í meðfylgjandi töflu. Árið 2018 voru 27 sveitarfélög með nærri 50.000 íbúa með innan við 90% af landsmeðaltali tekna á hvern íbúa. Í töflunni má einnig sjá hvernig nokkur fámenn sveitarfélög eru með eigin tekjur langt umfram meðaltalið. Ef sveitarfélögin væru einungis 21 yrði mismunur á milli þeirra miklu minni en nú er. Einungis tvö yrðu undir 90% af landsmeðaltalinu meðan ekkert yrði með meira en 110% af því. Sameining sveitarfélaga jafnar þannig verulega tekjur milli sveitar- félaga og dregur úr þeirri miklu þörf sem hefur verið á jöfnun á milli þeirra. Umfang Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var 47,7 milljarðar árið 2018 og þar af komu 19,3 milljarðar úr ríkissjóði. Jöfnunarsjóður sveitar- félaga gegnir miklu hlutverki í tekju- mynd fámennra sveitarfélaga. Þannig var framlag sjóðsins meira en helmingur allra tekna í 6 sveitar- félögum árið 2018 og meira en þriðj- ungur í 25 sveitarfélögum. Sveitar- félög sem eru svo háð millifærslum frá ríki og öðrum sveitarfélögum geta ekki talist sjálfbær. Sameining sveitarfélaga mun gera staðbundnum stjórnvöldum mögu- legt að veita íbúum sínum faglegri og betri þjónustu en nú er. Hún dregur úr þörfinni fyrir umfangsmiklar breytingar á tekjustofnum og mun halda áfram að vera það meðan rík- ustu sveitarfélögin fást ekki til að sameinast öðrum og komast upp með það. Mismunandi tekjur sveitarfélaga draga úr áhuga á sameiningu Eftir Sigurð Guðmundsson » Sameining sveitarfé- laga mun gera stað- bundnum stjórnvöldum mögulegt að veita íbú- um sínum faglegri og betri þjónustu en nú er. Sigurður Guðmundsson Höfundur er skipulagsfræðingur. sigurdur.gudmundsson@forrad.is Samanlagðar tekjur af útsvari og fasteigna- skatti m.v. landsmeðaltal á íbúa árið 2018 Tekjur á íbúa sem hlutfall af landsmeðaltali 72 sveitarfélög 21 sveitarfélag Fjöldi sveitarfélaga Samtals íbúafjöldi Fjöldi sveitarfélaga Samtals íbúafjöldi <70% 2 292 70-80% 3 826 80-90% 22 48.104 2 4.881 90-100% 23 100.712 13 155.205 100-110% 10 201.953 6 196.905 110-120% 5 1.846 120-200% 3 2.385 >200% 4 873 Samtals 72 356.991 21 356.991 Nýlega las ég orð eftir frægan prédikara, þar sem sagði, að djöfullinn þyrfti að nærast á syndum hins fallna heims til að lifa. Þessi dæmisaga hafði sterk áhrif á mig. Að hugsa sér sællífi Satans, sem hann nýt- ur með því að nærast á illum hugsunum og gjörðum syndugra manna, sem eru forðabúr hans og hans illu ára. Hvílíkar kræsingar og matarboð, sem honum er boðið upp á á hverjum degi. Með illri breytni bjóða margir menn kölska til veislu sérhvern dag. Guð, á hinn bóginn, skapari okkar mannanna, hefur boðið mönnunum að gjöra gott. „Vér erum smíð Guðs, Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Kræsingar kölska skapaðir í Kristi Jesú til góðra verka.“ (Efesusbréfið 2:10.) Andstætt kölska, sem í sjálfselsku og af eigin- girni lifir í sællífi á illri breytni manna, nýtur Guð sjálfur ekki beinlínis góðs af kærleiksverkum ljúfling- anna, enda fullkominn í eigin verund. Það eru menn- irnir, sem skapaðir eru í Guðs mynd, sem njóta ávaxta góðverkanna. Þeir lifa ekki á umhyggju fyrir sjálfum sér, heldur á kærleikanum, sem býr í náunga þeirra, eins og Leo Tolstoj orðaði á svo eftirminnilegan hátt í ritsmíðum sínum. Einar Ingvi Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.