Morgunblaðið - 31.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ekki má telja líklegt að sett verði aukið fjármagn í rekstur Landspít- ala á þessu ári. Fremur verður horft til aðhalds í fjármálum stofnunarinn- ar. Þetta segir Haraldur Benedikts- son, varaformað- ur fjárlaga- nefndar og þing- maður Sjálf- stæðisflokks. „Í síðasta fjárauka ársins erum við að horfa til að- halds í fjármálum og útgjöldum. Hins vegar verð- ur þessi svokall- aði kórónuveiru- kostnaður gerður upp,“ segir Haraldur. Ljóst er að bókhald Landspítala það sem af er ári hefur litast mjög af heimsfaraldri kórónuveiru. Farið hefur verið í kostnaðarsamar fram- kvæmdir auk þess sem víðtækar skimanir og greiningar hafa verið framkvæmdar. Þá má gera ráð fyrir að áhrif faraldursins séu ekki öll komin fram. „Við þekkjum ekki af- leiðingar faraldursins. Það verður til dæmis aukinn kostnaður vegna sjúkraþjálfunar og af annarri fram- haldsmeðferð. Síðan hefur þurft að ráðast í miklar fjárfestingar og fara í greiningar og sýnatökur, þannig að viðbótarkostnaðurinn verður ein- hver,“ segir Haraldur. Segir hann að þrátt fyrir það verði að kanna hvort ekki sé hægt að nýta fjármuni spítalans betur. Þannig verði að forgangsraða fjármunum en auk þess séu fjölmörg önnur aðkall- andi verkefni. „Spítalinn er með gríðarlega möguleika til forgangs- röðunar fjármuna og ráðuneytið hef- ur verið að reyna að herða að út- gjaldavexti síðustu ára. Svo þarf einnig að fara í önnur mikilvæg verk- efni eins og til dæmis rekstur hjúkr- unarheimila,“ segir Haraldur. Skoða verði hlutverk SÍ Sökum lakrar fjármálastjórnunar Landspítala undanfarin ár hefur verið kallað eftir leiðum til hagræð- ingar. Hefur aukinn einkarekstur innan geirans þar oft verið nefndur til sögunnar. Haraldur tekur undir það og bætir við að skoða verði hlut- verk Sjúkratrygginga Íslands. „Það er alltaf rétta leiðin að veita góða heilbrigðisþjónustu. Sjúkratrygg- ingar hafa það hlutverk að leita hag- kvæmustu kaupa og það þarf að skoða hvernig þær framkvæma þær aðgerðir.“ Haraldur Benediktsson Morgunblaðið/Ómar Spítali Haraldur segir mikilvægt að forgangsraða fjármunum spítalans en mörg aðkallandi verkefni séu til staðar. Mikil tækifæri til hagræðingar á LSH  Varaformaður fjárlaganefndar segir að kanna verði hvort ekki sé hægt að nýta fjármuni spítalans betur  Bókhald spítalans hefur litast mjög af heimsfaraldri  Mikilvægt að skoða hlutverk SÍ Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta er mjög skemmtilegt verk og mér finnst það hafa heppnast mjög vel,“ sagði Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir skrúðgarð- yrkjumeistari um útialtarið sem nú er að rísa að Esjubergi á Kjal- arnesi. Þegar myndin var tekin í gær var hún að vinna við frágang setsteina og beitti við það meitli og stórum hamri. „Fyrirkomulagið á helgistað- num er annað en maður á að venj- ast,“ sagði Kristín. Búið er að koma fyrir tólf tonna þungum kletti úr Esjubergsnámu sem er notaður sem altari og öðrum steini sem er skírnarfontur. Kristín sagðist gjarnan vilja fá að klappa skál í skírnarfontinn. Í gær var lokið við að koma fyrir predikunarstóli sem að sjálfsögðu er myndarlegt bjarg. Allir steinarnir í útialtarinu eru sóttir á nálægar slóðir og voru t.d. lábarðir steinar sem mynda gólfið teknir í Víðinesfjöru við Þern- eyjarsund. Veggirnir umhverfis eru hlaðnir í streng. Fyrst er röð af grjóti, svo kemur strengurinn sem er torf og þá aftur grjót og svo koll af kolli. Þá eru kirkjubekkirnir úr grjóti og klappaðir til. Kristín vílar ekki fyrir sér að takast á við björg- in. En er þetta ekki erfitt starf? „Mestu máli skiptir að beita skrokknum rétt. Ég er ekki bak- veik, ekki veik í öxlum og ekki veik í hnjám. Það segir sitt,“ sagði Krist- ín. „Rétt beiting verkfæranna og líkamans skiptir öllu máli ef maður ætlar að halda heilsunni. Það vil ég gera því ég hef gaman af að vinna við þetta.“ Sögufélagið Steini á Kjalarnesi hefur umsjón með verkinu og sér- legur ráðgjafi og sérfræðingur um keltneska kristni er séra Gunnþór Ingason. Morgunblaðið/Árni Sæberg Með hamar og meitil við mótun nýs helgidóms  Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir tekst á við grjótið Útialtari að keltneskri fyrirmynd er að rísa á Esjubergi á Kjalarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.