Morgunblaðið - 31.07.2020, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA - ALLA LEIÐ
Rafgeymar í húsbíla og hjólhýsi
fyrir ferðalagið í sumar
Startaðu ferðasumarið
með
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir engan geta sagt til
um það hvort samfélagið horfi nú
fram á aðra bylgju faraldursins í
kjölfar fjölgunar kórónuveirusmita.
„Það vitum við ekki og ég held að
enginn geti svarað því, ekki fyrr en
lengra er liðið inn í ágúst og við
sjáum betur hvernig þetta lítur út.
Ég held að allir taki eftir því að víða
í Evrópu er verið að grípa til hertra
aðgerða og það er ákveðið bakslag í
löndunum í kringum okkur. Hvort
það heitir önnur bylgja eða eitthvað
annað er aukaatriði. Við þurfum að
halda áfram að gera það sem við
höfum gert vel, prófa marga, rekja
smit og beita sóttkví og einangrun,“
segir Svandís.
Margir lausir endar
Hún segir að þær ráðstafanir
sem gripið sé til velti að mörgu leyti
á því hve mikið sé vitað um smitin.
„Þetta fer allt eftir því hvað við vit-
um um smitin, hvað við vitum um
tengsl þeirra, hvort búið er að
greina og setja alla í sóttkví sem
eru í kringum þau, eða hvort að það
eru of margir lausir endar. Það er
akkúrat staðan sem við erum í, það
eru margir lausir endar og við þurf-
um að fá yfirsýn og til þess þurfum
við að grípa svona í handbrems-
una,“ segir Svandís.
Fjöldatakmörkun vegna kórónu-
veirunnar miðast við 100 einstak-
linga frá og með hádegi í dag. Þá er
tveggja metra reglan svokallaða ekki
lengur valkvæð heldur skyldubund-
in. Þar sem ekki er hægt að tryggja
tvo metra á milli ótengdra einstak-
linga er notkunar andlitsgríma kraf-
ist.
Þá hefur sóttvarnalæknir lagt til
að söfn, skemmtistaðir, líkams-
ræktarstöðvar og fleiri staðir geri
hlé á starfsemi sinni. Sóttvarnalækn-
ir leggur til að annaðhvort sé líkams-
ræktarstöðvum lokað eða búnaður
sótthreinsaður á milli notenda.
Spurður hvers vegna ákvörðun
var tekin um að veita rekstraraðilum
val um það hvort þeir geri hlé á
starfsemi eða ekki, ólíkt því sem var
þegar samkomubann tók fyrst gildi í
mars, segir Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn almannavarna: „Við
treystum á að þetta séu aðilarnir
sem vita nákvæmlega hvernig starfs-
umhverfi þeirra er og þeir verða
bara að taka þessar ákvarðanir inn-
an þeirra ramma sem við erum að
setja, hvort það er mögulegt að
halda áfram rekstri með einhverjum
hætti eða ekki. Við erum að reyna að
búa til sveigjanleika með þessu sem
er hluti af lærdómnum í þessu ferli,
að gefa þeim aðilum sem eru í þess-
um rekstri kost á að taka slíka
ákvörðun.“
Þá segir Víðir að öll umdæmi lög-
reglu séu með aukinn viðbúnað yfir
verslunarmannahelgina, en flestum
skipulögðum viðburðum hefur verið
aflýst. Hann segist þó hafa áhyggjur
af óskipulögðum samkomum og
beinir því til ungs fólks að hópa-
myndanir séu ekki skynsamlegar,
það komi önnur verslunarmanna-
helgi eftir þessa. „Þó að ungt fólk
veikist kannski minna verðum við
bara að standa saman og fara í gegn-
um þessa helgi sem sérstökustu
verslunarmannahelgi síðustu ára,“
segir Víðir og bætir við: „Smit-
hættan er mikil. Við vitum ekki hvað
smitið er útbreitt núna. Þróunin með
hverjum degi í þessari viku hefur
bent til þess að við erum ekki með
tök á þessu og þess vegna þurfum
við að grípa til þessara aðgerða.“
Grímuskyldan nýtt fyrirbæri
Í gær var einnig kynnt til sög-
unnar grímuskylda í völdum almenn-
ingssamöngum en ýmsir aðilar, með-
al annars Ferðafélag Íslands, hafa
auk þess gert andlitsgrímur skyldu-
bundnar. Kamilla Sigríður Jósefs-
dóttir, staðgengill sóttvarnalæknis,
segir að aðrar aðstæður séu uppi nú
en í vor, en ekki hefur verið gripið til
grímuskyldu hér á landi áður.
„Kveikjan að því að taka þetta skref
er að við vorum með sóttkví frá
landamærum; þú máttir ekki fara í
rútu frá Keflavík til Reykjavíkur.
Núna ferðu í skimunina og ert ekki
búinn að fá niðurstöðu, en þú mátt
samt fara upp í rútu á áfangastað
þinn. Þetta er því gert til að hindra
að fólk, sem greinist jákvætt en veit
það ekki enn, smiti í kringum sig áð-
ur en niðurstöður eru fengnar,“ segir
Kamilla.
Þá segir Alma D. Möller land-
læknir að verið sé að útfæra frekari
leiðbeiningar um notkun andlits-
gríma.
Kári hefði viljað ganga lengra
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sagði í
samtali við mbl.is í kjölfar upplýs-
ingafundarins í gær að hann hefði
sjálfur gengið lengra í hertum að-
gerðum. Hefði hann fengið að ráða
hefði fleiri stöðum verið lokað.
„Sóttvarnalæknir hefur reynst vera
mjög farsæll í starfi sínu upp á síð-
kastið og hefur án nokkurs vafa
haft rétt fyrir sér á mörgum ögur-
stundum. En ef ég hefði verið í hans
sporum – og það er kannski gæfa
þessarar þjóðar að svo er ekki –
hefði ég gengið lengra,“ sagði Kári.
Hann segir ástandið í samfélaginu
með tilliti til nýrrar hópsýkingar
vera ógnvekjandi. „Við erum með
að minnsta kosti sjö aðila í sam-
félaginu sem hafa smitast af veiru
með sama mynstri stökkbreytinga,
sem bendir til þess að þeir hafi
smitast af veiru úr sama brunni. Og
við höfum ekki hugmynd um það
hvernig þeir tengjast,“ sagði Kári.
„Það þýðir að öllum líkindum að
þeir tengjast í gegnum aðra aðila í
samfélaginu sem hafa smitast og ég
er skíthræddur um að veiran sé
komin mjög víða. Ég er kannski dá-
lítil huglaus rola en ég hefði viljað
ganga lengra í þessum varnarað-
gerðum.“
Kári segir að Þórólfur sér sér-
fræðingur á þessu sviði en hann
ekki. „En mér finnst þetta tiltölu-
lega lítið og ég hefði kosið að við
gengjum lengra.“ Kári segist meðal
annars hafa viljað loka ölhúsum,
þar sem „Íslendingar hafa gjarnan
verið mjög duglegir við drykkju. Ég
hefði viljað loka vínveitingastöðum,
líkamsræktarstöðvum og sundlaug-
um. Þá hefði ég viljað takmarka
samkomur við 20 manns.“
Landspítalinn var í gær færður af
óvissustigi yfir á hættustig vegna
COVID-19.
Viðbragðsáætlun Landspítala
vegna farsótta hefur því verið virkj-
uð og funda viðbragðsstjórn og far-
sóttanefnd daglega.
„Þetta er fyrst og fremst gert til
að setja stofnunina í stellingar,“
segir Anna Sigrún Baldursdóttir,
aðstoðarmaður forstjóra Landspít-
alans. „Það er mikilvægt að allir séu
í réttum stellingum og tilbúnir.“
Óvíst hversu útbreidd smitin eru
Aukaatriði hvort um aðra bylgju er að ræða Margir lausir endar hvað varðar smit og mikilvægt að
heilbrigðisyfirvöld fái yfirsýn Kári Stefánsson hefði viljað sjá samkomutakmörk við tuttugu manns
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hertar aðgerðir Alma Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn á upplýsingafundi vegna hertra aðgerða sem taka gildi í dag.
Aðgerðir stjórnvalda gegn kórónuveirunni
Fjöldi daglegra smita
Fjöldi staðfestra smita,
sjö daga meðaltal
mars apríl maí júní júlí
16. MARS
Samkomubann sett á til
13. apríl. Miðað við 100 manns
og tveggja metra regluna.
17. MARS
ESB setur á ferðabann á ferða-
menn utan Schengen-svæðisins
106 ný smit voru staðfest 24. MARS sem er
mesti fjöldi á einum degi
1.056 virk smit
þegar fjöldinn náði
hámarki 5. APRÍL
24. MARS
Hert samkomubann tekur gildi.
Fer úr 100 niður í 20 manns.
Samkomustöðum lokað.
3. APRÍL
Samkomubannið
framlengt til 3. maí.
4. MAÍ
Samkomubann rýmkað í 50 manns, hárgreiðslustofur,
tannlæknar mega hafa opið. Ferðir einstaklinga til landsins
leyfðar, þeir sæti tveggja vikna sóttkví.
25. MAÍ
Tilslakanir á samkomutakmörkunum.
200 einstaklingar mega koma saman.
Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 23.
18. MAÍ
Sundlaugar og líkamsræktar-
stöðvar opnaðar aftur.
15. JÚNÍ
Samkomubann rýmkað til 5. júlí,
500 manns fá að koma saman.
1. JÚLÍ
Ferðabann úr
gildi innan ESB.
6. JÚLÍ
500 manna samkomubann framlengt til 26.
júlí. Engar fjöldatakmarkanir lengur á sund-
stöðum og líkamsræktarstöðvum. 26. júlí er
samkomubannið framlengt til 3. ágúst.
30. JÚLÍ
Hert samkomubann
tekur gildi 31. júlí og
verður til 13. ágúst.
Fer niður í 100 manns.
2-metra regla skylda,
grímur á almannafæri
þar sem 2-metra reglu
verður ekki komið við.
Samkomubann og fjöldi tilfella
28. febrúar til 30. júlí
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI