Morgunblaðið - 31.07.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 31.07.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Þegar var ljóst að komandi versl- unarmannahelgi yrði með óvenju- legu og smáu sniði þetta árið. Hert- ar aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirunnar munu setja strik í reikning margra, sem þó hugðust gera sér dagamun. Flestum við- burðum hefur verið aflýst og að- gengi að tjaldsvæðum er í uppnámi. Þrátt fyrir að allar stærri útihá- tíðir hafi þegar verið slegnar af, voru ýmsir smærri viðburðir á dag- skrá víða um land. Í tilkynningu frá Akureyrabæ segir að öllum við- burðum á fjölskylduhátíðinni „Ein með öllu“ hafi verið aflýst. Sama á við um Sæludaga KFUM í Vatna- skógi og veisluhöld vegna 75 ára af- mælis Ólafsfjarðarkaupstaðar. Í Vestmannaeyjum hafa bráða- birgðaleyfi fyrir útitónleikum og blysför verið afturkölluð. Því er haldið opnu að brennan í Herjólfs- dal verði tendruð á föstudagskvöld, að því gefnu að dalurinn verði lok- aður fyrir umferð almennings. Af auglýstum viðburðum í höf- uðborginni er sömu sögu að segja. Tónlistarhátíðin „Innipúkinn“ hef- ur verið slegin af sem og tónleikar á skemmtistaðnum SPOT. Skortur á veitingum og tjaldplássi Blaðamaður hafði samband við forsvarsmenn tjaldsvæða víðs veg- ar á landinu. Fjölmargir höfðu þeg- ar fundað með sveitarstjórnum og lögreglu og voru í óða önn að gera ráðstafanir eftir tilmælum ráð- herra. Sum af stærri tjaldsvæðum landsins geta tekið við um og yfir 2.000 gestum, en flest munu þurfa að skerða starfsemi sína verulega. Á Akureyri og Kirkjubæjarklaustri telja menn sig geta tekið við nokk- ur hundruð manns, en fleiri munu þurfa að halda sig innan 100 manna marka. Tjaldsvæðahaldari á einu stærasta tjaldsvæði landsins sagði að fjöldastýring væri of flókin, mannfrek og dýr og því yrði ein- faldlega skellt í lás. Blaðamaður ræddi einnig við veitingamenn sem voru í óða önn við að undirbúa keyrslu helg- arinnar. Mörg eldhús hafa búið sig undir stóra helgi og borðapantanir víða góðar. Til að mæta sóttvörnum þarf að fækka borðum í matsal, sem mun minnka afkastagetu til muna. Hætt er við því að margir svangir muni þurfa frá að hverfa, en einhverjir staðir munu leggja aukna áherslu á að afgreiða mat sem fólk geti tekið með sér. Samgöngur í venjulegu horfi Nýjar sóttvarnareglur skylda farþega í almenningssamgöngum til að bera andlitsgrímur. Við- bragðsáætlun Herjólfs hefur verið virkjuð. Skipið mun sigla venju- bundna áætlun, en kaffitería skips- ins verður lokuð. Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herj- ólfs, segir að þar á bæ eigi menn nokkurn fjölda af grímum sem seldar verði meðan birgðir endast. Air Iceland Connect hefur gefið það út að farþegar verði að bera grímur, keyptar eða heimatilbúnar. Félagið beinir því til farþega að koma með eigin grímur en þær munu verða útvegaðar eftir þörf- um. Gætu gripið í tómt Ljóst er að nýjar sóttvarna- reglur munu hafa áhrif á þá sem hyggjast leggja land undir fót nú um verslunarmannahelgi. Ferða- langar geta ekki gengið að því sem vísu að komast inn á tjaldsvæði eða veitingastaði og gætu gripið í tómt við komuna á auglýsta viðburði. Sóttvarnir setja ferðalög helgarinnar í uppnám  Viðburðum víða aflýst  Hætta á að tjaldsvæði anni ekki eftirspurn Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Mannmergð Frá verslunarmannahelginni í fyrra þegar fólki var leyft að standa mun þéttar saman en þetta árið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) hefur sinnt nærri 40 verkefnum sem tengjast bátum frá 1. maí í vor til gærdagsins, að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa SL. Það eru um fimmtungi fleiri bátar en á sama tímabili í fyrra. Oft var um vélarvana báta að ræða sem þurfti að draga í land. Í nokkrum tilvikum þurfti að grennslast fyrir um báta sem höfðu horfið úr kerfi Tilkynn- ingaskyldunnar. Fjögur björgunarskip Slysavarna- félagsins Landsbjargar fóru í þrjú út- köll í fyrradag vegna báta sem þurftu aðstoð. Einn maður var í áhöfn hvers báts. Davíð sagði að það væri mjög óvenjulegt að fjögur björgunarskip séu kölluð út í þrjú verkefni á nær sama tíma. Hann mundi ekki til þess að það hefði áður gerst. „Það er sannarlega þörf fyrir þessi björgunarskip. Þau bjarga bæði verð- mætum og mannslífum og það rétt- lætir tilvist þeirra,“ sagði Davíð. Hann sagði að rekstur björgunar- skipanna sé dýr. Margar útgerðir og útgerðarmenn styðja útgerð björg- unarskipa SL til að tryggja öryggi sjómanna. Auk þess hefur verið sam- ið sérstaklega víða um land um stuðn- ing við björgunarskipin. Í mörgum tilvikum er greitt sérstaklega fyrir þjónustu eins og að draga báta til hafnar. „Við rukkum ekki fyrir að bjarga mannslífum,“ sagði Davíð. „En út- gerðarfélög, tryggingafélög og al- menningur eru okkur mjög hliðholl og styðja okkur á margan hátt.“ Stefnt er að því að endurnýja björgunarskipin sem mörg eru komin til ára sinna. Ríkið mun koma að fjár- mögnun þriggja nýrra skipa á næstu árum og stendur til að smíði þeirra verði boðin út á næstu misserum, að sögn Davíðs. Björgunarskipin hafa sannað sig  Fleiri bátar hafa þurft aðstoð í sumar en á sama tíma 2019 Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Bolungarvík Kobbi Láka aðstoðaði bát austur af Horni í fyrradag. Slæm veðurspá er fyrir hluta lands- ins í dag og hefur Veðurstofan gefið út viðvaranir. Á Suður- og Suðausturlandi er spáð hvassri aust- an- og norðaustanátt. Búist er við snörpum vindi við fjöll, s.s. undir Eyjafjöllum, Mýrdalsjökli, Reyn- isfjalli og Öræfajökli. Þar geta skap- ast hættuleg akstursskilyrði, eink- um fyrir ökutæki með aftanívagna. Á Austfjörðum er búist við tals- verðri eða mikilli rigningu. Það get- ur valdið auknu afrennsli og vatna- vöxtum í ám og lækjum, sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Fólk er hvatt til að huga að nið- urföllum og sýna aðgát. Verulega dregur úr veðri eftir því sem líður á eftirmiðdaginn, en búast má við strekkingsvindi og úrkomu suðaustanlands fram eftir nóttu og fram til morguns. Á morgun er helst útlit fyrir bjartviðri og þurrk á Norður- og Norðausturlandi, en svalt og vætusamt á Vestfjörðum. Útlit er fyrir hæglætisveður á höf- uðborgarsvæðinu, skúraleiðingum og ágætishita. Á sunnudag stefnir í hægar breytilegar áttir á landinu, víða þungbúið og úrkoma um nær allt land. Svipað er í kortunum fyrir mánudag. Allt útlit er því fyrir erfitt ferðaveður í dag en heimkoman á mánudag verður öllu betri og bjart- ari a.m.k hvað veður varðar. Morgunblaðið/Hari Votviðri Búast má við erfiðum akst- ursskilyrðum sunnanlands í dag. Varað við veðri  Slæm veðurspá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.