Morgunblaðið - 31.07.2020, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræð-
ingur Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir óvissuna í greininni hafa aukist
eftir að aðgerðir voru hertar til að
sporna gegn útbreiðslu veirunnar.
Hertar reglur um samkomur og
skimun dragi úr ferðalögum og geti
leitt til þess að erlendir ferðamenn
hætti við ferðalög hingað. Ástandið
sé viðkvæmt.
„Það blasir við að áhrif kórónu-
veirunnar hafa verið gríðarlegt högg
fyrir fluggeirann og ferðaþjónustu
úti um allan heim og nú gætir ákveð-
innar togstreitu milli sóttvarna og
þróunar efnahagsmála, ekki síst í
þeim löndum þar sem ferðaþjónusta
hefur gegnt veigamiklu hlutverki. Nú
þegar hefur tekjutap ferðaþjónust-
unnar hér á landi verið gríðarlegt,
ekki síst vegna þess að viðskiptavinir
íslenskrar ferðaþjónustu eru að
stærstum hluta erlendir ferðamenn.
Með hertum aðgerðum eru minni lík-
ur á að hjól ferðaþjónustunnar fari í
gang með haustinu.“
Minni líkur á að spáin rætist
„Ferðamálastofa spáir að um 63
þúsund erlendir ferðamenn komi til
landsins í ágústmánuði. Þrátt fyrir að
það séu um 75% færri ferðamenn en
komu í sama mánuði fyrir ári gætu
gjaldeyristekjur af rúmlega 60 þús-
und erlendum ferðamönnum numið
um 11,5 milljörðum króna. Hægt er
að efast um að spá Ferðamálastofu
gangi eftir nú þegar samkomutak-
markanir og sýnatökur hafa verið
hertar,“ segir Vilborg og ítrekar að
þetta sé gróflega áætlað.
Á það beri að líta að hingað komi
t.a.m. hvorki bandarískir né breskir
ferðamenn, en þeir hafi að meðaltali
skilið mest eftir sig í hagkerfinu.
Teygist í annan endann
„Það er erfitt að átta sig á hver
þróunin verður næstu ár. Það sem
Alþjóðaferðamálastofnunin er að
gefa út og það sem Alþjóðasamtök
flugfélaga eru að segja um alþjóða-
flug bendir til að ástandið eigi eftir að
teygjast í annan endann. Á hinn bóg-
inn er Ísland lítið hagkerfi og það
þarf lítið til að koma hagkerfinu í
gang. Við þurfum mjög lágt hlutfall
af þeim ferðamönnum sem eru á
ferðalagi um heiminn,“ segir Vilborg.
Við síðustu aðgerðir stjórnvalda hafi
væntingar um bata í íslenskri ferða-
þjónustu í haust daprast. „Fulltrúar
fyrirtækjanna telja að hindranir, eins
og sýnatökur við landamæri og ann-
að, dragi úr ferðavilja sem er þegar
verulega skertur vegna veirunnar.“
Hefðu numið 15-16 milljörðum
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir aðspurður
að út frá gjaldeyristekjum á hvern
ferðamann í fyrra megi lauslega
áætla að tekjur af 63 þúsund erlend-
um ferðamönnum í ágúst hefðu getað
numið 15-16 milljörðum króna.
Af því leiði að ef helmingi færri
ferðamenn komi muni tekjurnar
skerðast um allt að 8 milljarða.
Spurður hvort þessi ávinningur af
komum ferðamanna í ágúst sé þess
virði ef innlend eftirspurn dregst
saman vegna hertra aðgerða út af
veirunni segir Jón Bjarki að huga
þurfi að mörgum þáttum. Ljóst sé að
neysla kunni að dragast saman, líkt
og í mars og apríl. Hún hafi hins veg-
ar aukist á ný í maí eftir að slakað var
á samkomubanninu og svo aukist í
júní og júlí. Þannig hafi orðið til-
færsla í neyslunni.
Sú þróun geti endurtekið sig.
„Það er því ekki alfarið tap en
vissulega getur ástandið orðið mjög
erfitt fyrir þjónustuaðila sem verða
harðast úti,“ segir Jón Bjarki.
Spurður hvort raunhæft sé að slík
viðspyrna muni fást í þetta skiptið, í
ljósi þess að hlutabætur, vaxtalækk-
anir og væntingar um betri tíð kunni
að hafa aukið neysluna í maí, segir
Jón Bjarki að vissulega sé nú meiri
óvissa fram undan en í vor.
Neyslan virtist á uppleið
„Það flækir myndina að þetta er á
sama tíma og það er líklega að verða
umtalsverð breyting á vinnumarkaði.
Neyslan dróst mikið saman í mars og
apríl en jókst svo á ný og virtist ætla
að koma sterk inn í ágúst, áður en
gripið var til hertra aðgerða. Svo fer
að syrta aftur í álinn á síðasta þriðj-
ungi ársins því þá fer virkilega að
taka í ráðstöfunartekjur margra
heimila, aukið atvinnuleysi og tapað-
ar tekjur hjá þeim sem eru sjálfir í
rekstri, þegar bráðaúrræðin renna
sitt skeið.
Samt ber að hafa í huga að líklega
verður þetta að hluta tilfærsla þótt í
minni mæli en hún var,“ segir Jón
Bjarki. Dregið hafi úr bjartsýni.
En hafa þá væntingar um skjótan
bata og mjúka lendingu daprast?
„Já. Þróunin síðustu viku hefur
svolítið slegið á bjartsýnina.“
Erum við þá að horfa fram á harða
aðlögun á haustmánuðum ef við fáum
nær enga ferðamenn?
„Það verður alltaf nokkuð
sársaukafull aðlögun, jafnvel þótt
þetta bakslag á síðustu dögum hefði
ekki komið. Við höfum svolítið verið í
logni milli storma vegna þess hvað
aðgerðirnar sem gripið var til í upp-
hafi hafa mýkt fyrsta höggið, sér-
staklega fyrir launafólk,“ segir Jón
Bjarki.
Aukin óvissa og minni væntingar
Hagfræðingur SAF áætlar að 63 þúsund erlendir ferðamenn í ágúst hefðu skilað 11,5 milljörðum kr.
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka: óhjákvæmilegt að fram undan sé sársaukafull aðlögun í hagkerfinu
Morgunblaðið/Eggert
Sviptingar Mikil óvissa hefur skapast um framtíð ferðaþjónustu á ný.
Jón Bjarki
Bentsson
Vilborg Helga
Júlíusdóttir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Ef fram heldur sem horfir má bú-
ast við gjaldþrotahrinu fyrirtækja í
ferðaþjónustu. Raungerist önnur
bylgja er ljóst að gríðarlegir
rekstrarörðugleikar blasa við slík-
um fyrirtækjum. Þetta segir Guð-
rún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður Rannsóknarmiðstöðvar
ferðamála.
Að sögn Guðrúnar er um þungt
högg að ræða enda virtist sem
ferðaþjónustan væri að ná sér á
strik á nýjan leik nú í júlímánuði.
Frá því að landamærin voru opnuð
fyrir rétt um mánuði hafa tugþús-
undir ferðamanna streymt til lands-
ins og þannig komið með lífsnauð-
synlegt fjármagn inn í rekstur
umræddra fyrirtækja.
Óvissan er verst
„Ef önnur bylgja færi af stað
myndi það verða náðarhöggið fyrir
ansi marga. Þetta er auðvitað mikið
áfall enda voru hjólin farin að snú-
ast aftur. Við vorum í eins konar
logni milli storma og ég hugsa að
margir hafi verið farnir að vera
bjartsýnir. Þetta var samt nokkuð
sem maður óttaðist og síðustu tvær
vikur í Evrópu hafa bent til þess að
eitthvað væri að fara af stað,“ segir
Guðrún og bætir við að önnur lokun
fari misilla með fyrirtækin. Fjöldi
þeirra muni gefast upp en þó séu
einhver sem geti lagst í dvala. „Það
má búast við gjaldþrotahrinu en
rekstraraðilarnir eru með mjög
mismiklar fjárfestingar og misstór-
an rekstur. Sumir geta lagst í híði
en það er alveg ljóst að fólk missir
vinnuna. Slík fyrirtæki geta þó ver-
ið snögg á lappir,“ segir Guðrún.
Ástandið vegna kórónuveirunnar
einskorðast ekki við Ísland, en víða
í Evrópu hefur veiran breiðst hratt
út síðustu vikur. Þýðir það jafn-
framt að erfitt verður að fá ferða-
menn til Íslands, óháð ástandinu
hér á landi. Segir Guðrún að óviss-
an sé verst enda sjái ekki fyrir end-
ann á faraldrinum. „Það er allur
heimurinn undir og það veit enginn
hvenær þessu lýkur. Það skiptir
miklu máli hvernig til tekst í lönd-
unum nærri okkur. Það hefur gert
okkur erfitt fyrir hversu illa Banda-
ríkin hafa farið út úr þessu því
ferðamenn þaðan eru mjög mikil-
vægir, sérstaklega utan háanna-
tíma,“ segir Guðrún, sem gerir ráð
fyrir að höggið verði þyngst þar
sem uppbyggingin hefur verið
mest. Vísar hún þar til höfuð-
borgarsvæðisins og Suðurlands í
heild sinni.
„Við sáum þetta mjög skýrt í Vík
og á Reykjanesi þegar þetta skall á
í vor. Þá rann upp fyrir manni
hversu mikilvæg ferðaþjónustan er
og hvað hún spilar stóra rullu víða,“
segir Guðrún.
Dýrt að gera ekki neitt
Þegar heimsfaraldurinn barst
hingað til lands í vor kynnti ríkis-
stjórnin nokkra björgunarpakka.
Miðuðu þeir að því að gera fyrir-
tækjum kleift að komast í gegnum
erfiðleikana. Ljóst er að ef önnur
bylgja veirusmita verður að veru-
leika er alls óvíst að viðbrögðin
verði sambærileg. Þannig verði að
teljast fremur ólíklegt að ríkis-
stjórnin muni bregðast við af sama
krafti í þágu ferðaþjónustufyrir-
tækja.
„Það er stóra óvissan, það veit
enginn hvernig þetta verður. Það
er ekki hægt að koma endalaust inn
með risastóra björgunarpakka, en
það er sömuleiðis dýrt að gera ekki
neitt. Það er ljóst að útspil stjórn-
arinnar verður ekki af sama skala
og í vor.“
Hætta á gjaldþrotahrinu
ferðaþjónustufyrirtækja
Júlímánuður var í raun svikalogn Erfiðleikar blasa við
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Seljalandsfoss Fossinn hefur notið vinsælda meðal erlendra ferðamanna.
Ljóst er að ferðamönnum mun fækka ef önnur bylgja smita raungerist.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI