Morgunblaðið - 31.07.2020, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
Versailles frá Fantasie
Ný sending af
SUNDBOLUM
Létt aðhald og rykktur yfir maga
Stærðir 34-40 DD-G
Verð 12.990kr
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Áætlað er að halda Bláa lóninu
opnu þrátt fyrir hertar sóttvarn-
araðgerðir sem kynntar voru í gær
og taka gildi í dag. Á meðal þess
sem gerir stjórnendum Bláa lónsins
erfitt fyrir er samkomubann sem
takmarkast nú við 100 manns í
senn. Á meðan faraldurinn stóð
sem hæst hérlendis var Bláa lónið
lokað og meirihluta starfsmanna
sagt upp. „Það er mikilvægt að
fylgja reglum yfirvalda í hvívetna.
Við erum að vinna að útfærslu til
þess að geta brugðist hratt og vel
við. Við búum að skipulagi frá því í
mars þegar takmarkanirnar voru
svipaðar. Til að mynda hefur öllu
okkar svæði nú verið skipt upp og
verður talið inn á þau,“ segir Helga
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
sölu-, markaðs- og vöruþróunar-
sviðs Bláa lónsins. „Við höfum einn-
ig þegar takmarkað allt framboð
okkar til að tryggja það að dreif-
ingin verði á þann veg að hún komi
til móts við þær kröfur sem gerðar
eru,“ bætir hún við.
„Það er reynsla okkar að bókanir
í sumar koma inn með mjög stutt-
um fyrirvara og því höfum við fyrst
og fremst verið að bregðast við síð-
ustu klukkustundir vegna versl-
unarmannahelgarinnar en munum
svo í framhaldinu meta bókunar-
stöðuna og bregðast við eftir þörf-
um,“ segir Helga.
Reyna að halda lóninu opnu
Morgunblaðið/Eggert
Sóttvarnir Bláa lónið var vel sótt eftir opnun en nú horfir öðruvísi við.
100 manna samkomubann krefst aðgerða hjá Bláa lóninu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kristófer Oliversson, formaður
Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu,
FHG, segir hertar aðgerðir í sótt-
varnamálum hafa
meiri áhrif á
hótelrekstur úti á
landi en á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Heilt yfir þá
höfum við skiln-
ing á þessum við-
brögðum til að
stöðva útbreiðslu
veirunnar og við
eigum mikið undir
í því að teljast til
öruggra landa. Við viljum ekki lenda í
því sama og Spánn þar sem breskir
ferðamenn fengu sólarhring til að
koma sér heim áður en 14 daga
sóttkví var beitt.
Nýjar reglur virðast engin áhrif
hafa á ferðamenn sem koma í styttri
tíma en tíu daga og öruggu löndin,
Þýskaland, Danmörk, Finnland, Nor-
egur, Færeyjar og Grænland eru enn
undanþegin þessum reglum um ann-
að próf svo enn er ekki fokið í öll
skjól.“
Reynslan nýtist vel
Helst séu bundnar vonir við breska
markaðinn í vetur. „Við vitum að
Bretarnir eru farnir að rýna betur í
hvaða lönd séu örugg svo þeir fái að
klára fríið sitt án þess að vera kallaðir
heim. Það veitir okkur e.t.v. sam-
keppnisforskot ef vel tekst til. Okkur
björtustu vonir hér í Reykjavík er að
eitthvað fari að rofa til 1. október og
að Bretarnir fari þá að koma, því að
þeir eru duglegir vetrarferðamenn,“
segir Kristófer um væntingarnar nú.
Hann segir væntingarnar grund-
vallast á samtölum við starfsfólk
ferðaskrifstofa erlendis. Það hafi ver-
ið tilbúið til að selja ferðir frá og með
fyrsta september. Eftir atvikum sé
nú orðið enn erfiðara en áður að spá
með einhverri vissu um þróunina í
haust.
Ljóst sé að hertar aðgerðir og um-
fjöllun um útbreiðslu veirunnar á Ís-
landi muni hafa áhrif á ferðavilja til
landsins.
Meiri röskun fyrir
hótelin úti á landi
Formaður FHG segir hafa staðið til
að selja Bretum ferðir frá 1. september
Kristófer
Oliversson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Áætlanir Icelandair miðast við að
fyrirtækið geti komist í gegnum aðra
bylgju kórónuveirusmita. Fyrirtækið
er jafnframt vel í stakk búið til að tak-
ast á við slíka áskorun. Þetta segir
Birna Ósk Einars-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
sölu- og þjónustu-
sviðs Icelandair.
Í kjölfar frétta
af útbreiðslu veir-
unnar hér á landi
hefur Icelandair
nú yfirfarið þjón-
ustustig og upp-
lýsingagjöf fyrir-
tækisins. „Við
erum að snúa hlutunum við einu sinni
enn til að vera tilbúin. Við erum í
startholunum fyrir hvað sem er. Nú
erum við að skoða innanlandsflugið
og þjónustustigið þar,“ segir Birna.
Hefur takmörkuð áhrif
Í gær voru kynntar hertar sótt-
varnareglur hér á landi. Hefur m.a.
verið komið á grímuskyldu á
ákveðnum stöðum og fjöldasamkom-
ur verið takmarkaðar við hundrað
manns auk þess sem tveggja metra
reglan er orðin skylda á ný.
Spurð hvort nýjar reglur stjórn-
valda hafi áhrif á félagið segir Birna
að þau verði ekki mikil. „Til að byrja
með lítum við svo á að þetta hafi tak-
mörkuð áhrif en við sjáum hvað setur.
Þetta er auðvitað talsverð óvissa en
sveigjanleiki fyrirtækisins gerir okk-
ur kleift að bregðast hratt við breytt-
um aðstæðum,“ segir Birna, sem
kveðst vona að ekki verði gripið til
lokunar landamæra. Þá kveðst hún
bjartsýn fyrir hönd félagsins sama til
hvaða ráðstafana verði gripið.
„Icelandair er sterkt fyrirtæki í
einstakri stöðu til að veita ákveðna
þjónustu. Það eru allir meðvitaðir um
að við séum á tímabili þar sem óvissan
er mikil. Hins vegar erum við klár að
taka flugið þegar tækifæri gefst.“
Icelandair kemst í
gegnum aðra bylgju
Takmörkuð áhrif til að byrja með
Birna Ósk
Einarsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Icelandair Félagið gæti þurft að
bregðast við nýjum aðstæðum.