Morgunblaðið - 31.07.2020, Page 18

Morgunblaðið - 31.07.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 ✝ Halldóra K.Thoroddsen fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1950. Hún lést 18. júlí 2020. Foreldrar henn- ar voru Ásdís Sveinsdóttir silf- ursmiður og Sig- urður Thoroddsen verkfræðingur. Systkini Hall- dóru eru Jón Sig- urður, Guðbjörg og Ásdís. Hálf- systkini hennar eru Dagur, Signý og Bergljót Njóla Sigurðarbörn. Að loknu stúdentsprófi frá MR dvaldi Halldóra eitt ár í Danmörku og stundaði nám í sálarfræði við Kaupmannahafn- arháskóla. Heim komin settist meðal skálsöguna Tvöfalt gler, en fyrir hana hlaut hún Fjöru- verðlaunin 2016 og bókmennta- verðlaun Evrópusambandsins árið eftir. Þar að auki ritstýrði hún og skrifaði formála ævi- sögu föður síns. Hún skrifaði blaðagreinar, stýrði útvarpsþáttum, stýrði námskrárgerð og vann við umönnun langveikra barna. Halldóra eignaðist tvo syni, þann eldri, Bergstein, með Jóni Bergsteinssyni og þann yngri, Sigurð, með eftirlifandi eig- inmanni sínum, Eggerti Þor- leifssyni. Hún eignaðist sjö barnabörn; Vöku, Bjart, Kjartan, Birnu, Jóhönnu, Sunnu og Dóru. Útför Halldóru verður frá Neskirkju í dag, 31. júlí 2020, klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á eftirfarandi rásum: https://youtu.be/NUirxEycDc8 https://www.facebook.com/ sigurdur.eggertsson hún í Kenn- araskólann og lauk þaðan kenn- araprófi sem handmenntakenn- ari. Vann eftir það við kennslu nokk- ur ár, lengst í Öskjuhlíðarskól- anum. Halldóra venti síðan kvæði sínu í kross og hóf nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og út- skrifaðist þaðan eftir sex ára nám úr textíl- og nýlistadeild. Hún hélt þrjár sýningar á text- ílverkum sínum. Árið 1990 sendi Halldóra frá sér sína fyrstu ljóðabók. Þær urðu alls fjórar. Auk þess sendi hún frá sér fjögur skáldverk, þeirra á Ég kveð í dag kæra vinkonu, tengdamóður og ömmu barna minna, Halldóru K. Thoroddsen. Okkar allra besta kona, klettur- inn sem alltaf var á sínum stað og við áttum alls ekki von á að myndi haggast neitt að sinni. Dóra kom inn í líf mitt fyrir sex árum þegar ég hóf samband við Sigurð son hennar. Mér fylgdi fjöldi barna sem þau hjónin tóku frá fyrstu stundu eins og eigin barnabörnum, hún varð nær sam- stundis amma Dóra fyrir þeim öllum. Mér varð fljótt ljóst hví- líkur fengur var ekki bara í syn- inum sæta heldur einnig í hans einstöku fjölskyldu. Dagleg kaffi- stopp á Fjölnis urðu hluti af rút- ínunni þar sem farið var yfir það helsta hverju sinni. Dóra lét sig allt varða frá eldhúsborðinu sínu, þaðan hafði hún yfirsýn yfir ver- öldina og var ótæmandi brunnur reynslu og þekkingar, í bland við djúpt innsæi og skilning bæði á mannlegu eðli og hverju því sem samfélagið varðaði. Yfir þeim daglega kaffibolla lærði ég meira en í öllu mínu háskólanámi. Um- fram allt var hún okkur þó um- vefjandi mamma og amma, móðir jörð, yfir og allt um kring. Á afmælisdeginum hennar, 2. ágúst, fyrir tveimur árum boðaði Dóra litla nafna hennar fyrst komu sína. Dóra og Eggert komu í kaffi þann sama dag og við sögð- um þeim strax fréttirnar og skulf- um dálítið saman. Eins og með allt sem okkur varðaði tók Dóra innilegan þátt, samgladdist af öllu hjarta þegar vel gekk og tók að sama skapi samviskusamlega andvökunætur yfir minnsta ves- eni. Svo hafði hún gjarnan sam- band og bauð upp á bestu ráðin, eftir að hafa farið vandlega yfir allar hliðar málsins. Frá henni kom aldrei neitt vanhugsað, hún sá heildarmyndina og vildi öllum svo vel. Elskaða Dóra mín, fyrirmynd og vinkona. Mikið mun ég sakna þín, þú varst mér svo dýrmæt. Takk fyrir allt og allt, og takk fyr- ir hann Sigga þinn. Ég skal reyna að passa að hann sé stilltur. Þín Bryndís. Ég man glöggt þegar Eggert bróðir minn mætti í hið hefð- bundna sunnudagskaffi hjá for- eldrum okkar á Grenimelnum með unga glæsikonu sér við hlið. Dóra var mætt á svæðið. Síðan eru liðin fjörutíu ár. Það var ekki auðvelt að koma inn í þennan fjöl- menna, nokkuð málglaða og oft háværa hóp, en Dóra var ekki lengi að marka sér sinn bás. Enda engin miðlungskona á ferð. Glæsileg, eins og fyrr segir, með sterkt svipmikið andlit, dökkt fal- legt hár, fögur, brún og blíðleg augu, snör og glettin í senn. Fata- stíll Dóru var sérstakur og óhefð- bundinn, en þó var alltaf eins og það væri einmitt nýjasta tískan. Hún klæddist oft sterkum litum, stórmynstruðum flíkum og bar stóra skartgripi. Djúprauður litur prýddi varir sem breitt bros lék oft um. En Dóra var ekki bara glæsi- kona hið ytra. Hún var „stór kona“ í öllu tilliti. Skarpgreind, íhugul, leitandi og fjölfróð. Blíð- lynd og glaðlynd, fyndin og skemmtileg og samræðulistin var henni í blóð borin. Hún hafði mjög ákveðnar og sterkar skoðanir, en þær voru ekki úr lausu lofti gripn- ar því fróðleiksfýsn Dóru, í bland við óvenjuleitandi og skapandi hug, var óþrjótandi. Aldrei setti hún skoðanir síðan fram af offorsi heldur þeirri mýkt sem einkenndi skapgerð hennar, hlustaði á aðra og sveigjanleg þegar svo bar und- ir. Skopskyn Dóru var frjótt og hugmyndaríkt og deildu þau Eggert sannarlega húmor, sem var mjög sterkur þáttur í þeirra sambúð. Dóra kom víða við þar til hug- urinn beindist að skriftum. Þar fann hún hilluna sína. Eftir hana liggja ljóðabækur, smásögur og skáldsögur. Henni hlotnuðust bæði verðlaun og vinsældir. Ekki ætla ég að dæma um hvar Dóra naut sín best, en mér þykja „90 sýni úr minni mínu“ lýsa afar vel lífsafstöðu hennar og lífsspeki. Þessar örstuttu sögur eru ein- faldar og djúpar í senn – auk þess að vera óborganlega fyndnar. Til vitnis um ágæti þessarar bókar nægir að nefna stuttan formála, en þar er að finna heimspekilega dýpt. Sambúð þeirra Dóru og Egg- erts í fjóra áratugi var einstök eins og allir vita sem þekktu þau. Þau voru alltaf saman, deildu öllu og voru sjálfum sér næg – svo vel leið þeim báðum í návist hins. Með sanni get ég sagt að ég hafi aldrei upplifað aðra eins ást, ein- drægni og alúð og ríkti milli þeirra hjóna. Ég hef það eftir Sig- urði syni þeirra að hann hafi aldr- ei heyrt styggðaryrði falla milli þeirra. Ég trúi því vel. Bergsteinn og Sigurður sjá nú, alltof snemma, á bak móður sem þeir elskuðu og virtu. Mikill er missir þeirra. En mestur er miss- ir Eggerts bróður míns sem hefur nú misst ástina sína, sinn besta vin og sálufélaga. Sorgin er sár og hverfur aldrei, en ég á þá ósk heitasta bróður mínum til handa að hann megi sem fyrst finna gleðina í góðum minningum. Þótt eftirfarandi ljóðlínur séu orð móður sem vaggar barni finnst mér eins og Eggert geti mælt til Dóru sinnar: Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak sem tafðir þú hjá mér var sólskinsbros og sæludraumur hár. (Halldór Kiljan Laxness) Þórhildur Þorleifsdóttir. Dóra frænka mín er látin. Brotthvarf hennar er svo brátt og sárt. Minningin um Dóru allt frá blautu barnsbeini er fersk og hlý. Fyrstu minningabrotin tengj- ast Bárugötu 14, myndarheimili ömmu okkar og afa, Halldóru og Sveins, hannyrðakonunnar og járnsmiðsins. Þar ólust mæður okkar Ásdís og Fríða upp, ásamt Auði elstu systur. Ég minnist fagnaðarfunda þar sem við systrabörnin komum saman og sterk frændsystkinabönd voru hnýtt. Í fallega garðinum á Báru- götunni leit Dóra, elsta frænkan, til með mér og við lékum okkur innan um litríkan gróðurinn og gæddum okkur á því sem garð- urinn gaf. Á bernskuheimili Dóru á Vest- urbrún 4 átti ég ótal stundir, enda leiksystir yngri heimasætanna og mæður okkar nánar og mikill samgangur milli fjölskyldnanna. Því fylgdi ætíð tilhlökkun að koma á Vesturbrúnina. Heimilið var glæsilegt og frjálslegt og þar var nútímalegur alþjóðlegur andblær og umhverfi, byggt á traustum grunni íslenskrar menningar. Þar sat Ásdís við gullsmíðaborðið og mótaði sína frumlegu og fögru skartgripi úr silfri og íslenskum steinum, á milli þess sem hún hélt ósérhlífin stórt heimilið. Sigurður sinnti fjölbreyttum hugðarefnum við teikningu og gróðurrækt, þar og í sumarbústaðnum Ljótalandi, væri hann ekki á verkfræðistof- unni. Mikill gestagangur var til heimilismanna, oft óforvarandis og allir aufúsugestir. Vinir og frændfólk soguðust að, enda um- ræðuefnin fjölbreytt og þeim fylgdu gjarnan ferskir vindar ut- an úr heimi. Forsmekkinn af menntaskólaárum og ’68-bylting- unni fékk ég þar, en unga fólkið naut opins huga foreldranna á for- dómalausan hátt. Í þessu frjóa fjölskyldulífi ólst Dóra upp og átti sinn stóra þátt í að skapa. Það sópaði að Dóru þegar hún fór um götur miðbæjarins, falleg, glöð og smart. Hún var skemmti- leg, klár og hæfileikarík, frjáls í hugsun og sjálfstæð í háttum. Hafði sterka nærveru og maður fór sannarlega ríkari af hennar fundi. Dóra var listrænn fagurkeri til orðs og æðis eins og hún átti kyn til. Hún hafði ákveðinn smekk, myndlistarmaðurinn með næmt auga og rithöfundurinn með skarpan hug. Verk hennar voru gædd listfengi og frumleika. Hún var líka frjó á fésbókinni varðandi ólíkustu málefni, sjaldnast án er- indis, frekar en í raunheimum. Dóra var foreldrum mínum, Fríðu og Braga, ljúf og gefandi frænka. Síðustu ár þeirra fylgdi því ljómi að fá heimsóknir Dóru og Eggerts og voru þau endurnærð að þeim loknum. Síðast þegar við Dóra hittumst, á förnum vegi, rétt fyrir faraldur, bar margt á góma. Nonni bróðir hennar var fluttur á Fjölnisveginn og við flutningana fundust magn- aðar myndir eftir Nonna sem Dóra dró fram í dagsljósið á fés- bók. Bæst hafði í hóp barnabarna, lítil Dóra Sigurðardóttir var fædd. Og nú leikur nafnan sér í fal- lega blómagarðinum afa Eggerts og ömmu Dóru á Fjölnisveginum, eins og við Dóra gerðum forðum á Bárugötunni. Elsku Eggert, Beggi og Siggi, Nonni, Bauja, Ádí og fjölskyldur, megi minningarnar um Dóru ylja og styrkja. Við Jói, systkini mín Dóra og Sveinn og fjölskyldur okkar biðjum merkri konu bless- unar á nýjum vegum. Helga Bragadóttir. Hún Dóra dáin, farin? Það get- ur ekki verið, hún hefur alltaf ver- ið hér. Við vorum eitthvað um 10 ára þegar ég kom fyrst í ævin- týrahöllina Vesturbrún 4 og kynntist systrunum þremur og Nonna bróður þeirra en Rannveig systir mín var ráðin til að líta til með yngri systrum Dóru. Næst hittumst við fermingar- sumarið mitt um borð í Dronning Alexandrine sem flutti okkur og sjö aðra unglinga til Kaupmanna- hafnar en þaðan lá leiðin áfram til Tékkóslóvakíu þar sem við áttum dásamlegan tíma í sósíalískum skátabúðum. Enn hittumst við í MR og stunduðum þar nám og ýmislegt annað í fjögur ár. Svo tók lífið við og við sáumst sjaldnar en alltaf var jafngaman að hitta Dóru. Hún var svo fyndin og skemmtileg, með sinn drama- tíska húmor sem gat sprengt heilu partíin í hláturskasti þegar hún setti upp mæðusvip og gaf út yfirlýsingar um vonsku heimsins. Þar hæfði kjaftur skel, ef svo má segja, þegar hún tók saman við Eggert. Fésbókin lífgaði upp á sam- skipti okkar en þar var Dóra mjög virk og setti fram sterkar og góðar skoðanir sem oft höfðu sömu áhrif og mæðusvipurinn. Síðast hittumst við fyrr í sumar, raunar á biðstofu heilsugæslunn- ar. Enn kviknaði brosið sem náði alltaf til fallegu augnanna og hlýj- aði um hjartarætur. Ekki grunaði mig þó að þetta yrði í síðasta sinn sem ég sæi hana, en svona er lífið víst. Ólíklegasta fólk hverfur eins og hendi sé veifað. Systkinum, Eggerti, sonum og öðrum ástvinum Dóru sendi ég samúðarkveðjur, þeirra missir er mestur. Þröstur Haraldsson. Þegar ég loka augunum sé ég fyrir mér lýsandi veldi í fallegri mussu úr einhverju gæðaefni með faðm- inn útbreiddan, streymandi frá sér hlýju. Hún/það situr við borðstofu- borð með kaffibolla fyrir framan sig. Það er móðursystir mín Dóra. Heimsóknirnar til Dóru og Egg- erts hafa verið eins og logn í lífs- ins ólgusjó, vörður í lífi, allt mitt lífsskeið. Þar eru rædd heimsmál- in, heimspeki, bókmenntir og sagðar sögur. Grátbroslegar hversdagssögur. Áður fyrr hlust- aði ég með öðru eyranu, og grúfði mig á meðan yfir Andrésarblaði. Fyrir furðu stuttu síðan fór mað- ur að telja sig viðræðuhæfan, þó var enn bara best að hlusta – og þá sérstaklega á Dóru, en viturleiki hennar var djúpur; pæl- ingar um líðandi málefni og heim- inn, fagurfræðileg álit sem maður saug í sig og hafa gert mig að þeim sem manni sem ég er í dag. Hún var mótandi fyrirmynd, fagurfræðilegt álit hennar gilti mest, fannst mér þá. Ef Dóru fannst eitthvað smart gat ég verið viss um að það væri smart enda var Dóra alltaf smart, með hárfínan grúví smekk. Vel snyrt kona er ávallt ánægð, sagði hún lakkandi á sér neglurnar eða bætandi á sig varalitinn. Hún hafði haft þetta af forsíðu Vikunn- ar. Frænka mín góða sem passaði mig, gaf mér fyrstu snyrtivöruna, þegar ég var þrettán, stuðnings- maður í lífi og listum, það er engin sem ég myndi vilja frekar kíkja í kaffi til núna að ræða andann, efnið og dauðann en til hennar. Sæl að sinni, elsku Dóra. Þín, Gunnur. Halldóra Thoroddsen virtist hafa endalaust þrek til að dispú- tera. Það var ekki af því að hún sæktist eftir átökum því þetta gerði hún af örlæti með rödd sem var hlý og sönn, en ekki síst full af kómískri sjálfsgagnrýni: „Get ekki svarað því hvernig mér leið fyrir mánuði á skalanum 1 til 10.“ Auðvitað ekki! Lítið og fyndið en gott dæmi um aðferð Halldóru til að benda á augljósan vanda vísindanna, skýr og réttmæt gagnrýni á gagnaöfl- un vegna rannsóknar á líðan Ís- lendinga í Covid-19. Orðalagið er þó alls ekki ásakandi og tónninn gefur til kynna að hún fríi sjálfa sig ekki alveg allri ábyrgð á vand- anum. Þannig lét hún skoðanir sínar og ríka réttlætiskennd aldr- ei villa sér sýn. Í því fólst sann- færingarkraftur hennar og sú staðreynd að maður þreyttist aldrei á að hlusta. Dóra var fögur og glæsileg kona. Hún var gott ljóðskáld, en sem prósahöfundur kannski meira fræðilega þenkjandi en pó- etísk, enda innblásinn og skarpur greinandi á bæði bókmenntir og samfélag. Hún hóf rithöfundar- feril sinn fremur seint á ævi- skeiðinu, að loknu kennaranámi og námi í myndlist. Fyrsta bók hennar, Stofuljóð, kom út árið 1990, en hún vakti þó fyrst veru- lega athygli með örsagnasafninu 90 sýnir úr minni mínu árið 2002, bók sem í huga margra er algjör- lega einstök. Þar bregður Hall- dóra upp myndum úr lífi sínu og af samferðafólki frá bernsku til fullorðinsára; nýtir sér það sem „ekki er í frásögur færandi“ til að búa til glimrandi skemmtilegar sögur og hárbeittar athuganir. Þessi litla bók er óborganlega fyndin, og ekki laust við að tónn- inn minni stundum á prósaskrif Steins Steinarr. Árið 2016 sendi Halldóra frá sér sína fyrstu skáldsögu, nóvell- una Tvöfalt gler. Bókinni mætti lýsa sem ástarsögu sem sögð er frá sjónarhóli gamallar konu og óvirks áhorfanda í samfélaginu. Stíll sögunnar er knappur og lág- stemmdur, og litaður af þeim elegans sem einkenndi öll skrif Halldóru. Sérstaða bókarinnar er þó ekki síður fágætt söguefnið; Tvöfalt gler fjallar öðrum þræði um lífsþorsta á efri árum en líka um einangrun kynslóðanna. Fyr- ir bókina hlaut Halldóra bæði Fjöruverðlaun og Bókmennta- verðlaun Evrópusambandsins. Síðasta prósaverk Halldóru var skáldsagan Katrínarsaga, bók sem ber öll hennar bestu ein- kenni, nokkurs konar kynslóðar- uppgjör – stór efniviður sem hún þjappar saman og dregur einföld- um en kröftugum dráttum; leyfir þeim sem les að kveikja í púðrinu. Andlát Dóru var óvænt og mikið áfall fjölskyldu og vinum. En það er líka sjónarsviptir að þessari hrífandi konu fyrir ís- lenskar bókmenntir og bók- menntasamtal ólíkra kynslóða. Því þótt skáldskapur Dóru hafi staðið sér, og sannfæring hennar verið sterk, var hún alltaf opin fyrir athugunum og gagnrýni úr öllum hugsanlegum áttum. Það er vont til þess að hugsa að því samtali sé nú formlega lokið, sárt að ekki sé hægt að halda spjallinu við þau Eggert áfram. Því þótt minningarnar séu margar og góðar áttum við eftir að taka miklu fleiri sýni, ekki til að krukka í – það var ekki endilega í anda Dóru – heldur til að dást að, undrast og hlæja. Bragi Ólafsson og Sigrún Pálsdóttir. Við Dóra urðum vinkonur þeg- ar við sátum saman í þriðja bekk í MR haustið 1967. Hún hafði ein- staka persónutöfra og ég sóttist eftir vináttu hennar. Ég átti því láni að fagna að verða heima- gangur á æskuheimili Dóru, á Vesturbrúninni, sem stóð alltaf ættingjum og vinum opið, var frjótt og skemmtilegt og fullt af ást og umhyggju. Dóra var ári eldri en við bekkjarfélagar henn- ar. Hún hafði sleppt árinu á und- an úr skólagöngu sinni vegna þess að hún hafði svo margt að hugsa um. Heimurinn var stór og hún var ofurnæm, féll ekki inn í rammann sem skólinn setti henni, og þurfti að fá að vera í friði. Þegar hún ákvað að byrja aftur í menntaskóla var hún full af áhuga. Í ritgerðum og bréfa- skriftum var frábær penni og hafði þá þegar þann stíl sem var einkennandi fyrir hana alla tíð; hún var stuttorð, hnitmiðuð og hitti beint í mark. Dóra hafði allt- af mikinn áhuga á þjóðfélagsmál- um. Hún var herstöðvaandstæð- ingur, á móti kerfi kapítalismans, og nýfrjálshyggjunnar þegar sú fór að breiða úr sér á áttunda ár- tugnum. Hún hafði sterka rétt- lætiskennd og logandi áhuga á öllu sem gerðist í samfélaginu, bæði innanlands og utan, setti sig Halldóra Kristín Thoroddsen ✝ HeiðarStefánsson fæddist 12. ágúst 1963. Hann lést á Spáni 3. júlí 2020. Heiðar var sonur hjónanna Ernu Fannbergsdóttur, f. 23. júní 1938, og Stefáns Ein- arssonar, f. 6. júlí 1931, d. 12. febrúar 1980. Systkini Heiðars eru fimm. Þau eru: Valdís, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018; Fann- berg, f. 30. júlí 1957, d. 6. janúar 2014; Ómar, f. 24. janúar 1961; Erlingur Valur, f. 17. febrúar 1967; Linda Mary, f. 21. maí 1972. Heiðar eignaðist fjögur börn með barnsmóður sinni Birnu Sigrúnu Har- aldsdóttur en þau slitu samvistum. 1) Fannberg Einar. 2) Helga Dís, maki Kristinn Aron Hjartarson og eiga þau þrjú börn: Írisi Rán, Guðna Maron og Magnús Maron. 3) Magnús Daði. 4) Erna Lind, maki Ingvar Þór Alberts- son. Útför Heiðars fór fram 25. júlí 2020. Elsku Heiðar, nú ertu horfinn frá okkur, þú sem hefur verið hluti af lífi okkar hjóna í 35 ár. Ekki átti ég von á því að símtalið 2. júlí sl. yrði okkar síðasta, en daginn eftir varstu dáinn. Við minnumst þín með mikilli hlýju og kærleika. Margar góðar minn- ingar eigum við um þig og sam- verustundir okkar. Ein minning er okkur ofarlega í huga og dýr- mæt en það var þegar þú komst vestur og varst hjá okkur yfir jól með Fannberg Einar og Ernu Lind. Við sungum og báðum sam- an alla daga. Takk fyrir kærleik- ann og gleðina sem þú gafst mér með símtölunum. Elsku Heiðar við söknum þín þú varst dýrmæt perla fín. Á himni hjá Jesú ertu En ætíð í hjörtum okkar sértu. Jesús lifir. Helga Ben. og Haraldur (Halli). Heiðar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.