Morgunblaðið - 31.07.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.07.2020, Qupperneq 26
8. UMFERÐ Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Eyjakonan Olga Sevcova átti stór- leik er ÍBV vann frækinn sigur á stjörnum prýddu liði Selfoss í 8. umferð Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í vikunni. Heimakonur lentu snemma tveimur mörkum undir í Vestmannaeyjum gegn liði Selfoss, sem ætlar sér að vera í toppbarátt- unni. Lettneski framherjinn minnkaði hins vegar muninn fyrir ÍBV snemma í síðari hálfleik og lagði svo upp í tvígang, fyrst jöfn- unarmark á 85. mínútu og að lok- um sigurmark leiksins í uppbótar- tíma. Lokatölur urðu 3:2. ÍBV hefur nú unnið tvo leiki í röð og er með níu stig í 6. sæti eft- ir sjö leiki. Liðið vann nýliðana Þrótt í fyrstu umferð en tapaði svo fjórum í röð. Eftir það brösuglega gengi er liðið betur farið að finna taktinn og er fótboltinn eftir því. Mikið var um mannabreytingar í Vestmannaeyjum í vetur. Sevcova var einn þriggja leikmanna frá Lettlandi sem komu til liðsins, en hún er landsliðskona og spilaði gegn Íslandi í október á síðasta ári. Hún segir það viðbrigði að hafa komið til Íslands en í Vest- mannaeyjum sé vel hugsað um hana. „Það voru mikil viðbrigði að koma til Íslands og auðvitað erfitt að vera hérna á tímum kórónu- veirunnar, þar sem fjölskyldan mín er öll í Lettlandi,“ sagði hún í sam- tali við Morgunblaðið, en hún fékk 2 M fyrir frammistöðu sína gegn Selfossi og er leikmaður umferð- arinnar. „Mér líður samt mjög vel og það er hugsað vel um okkur í Vestmannaeyjum.“ Meiri harka á Íslandi Sevcova viðurkennir að fótbolt- inn sé nokkuð öðruvísi því sem hún er vön. Hjá ÍBV reyni meira á lík- amlegan styrk, en það henti henni engu að síður vel. „Það er meiri kraftbolti hérna á Íslandi, meiri harka og við þurfum að mæta með öðru hugarfari í leik- ina. Við þurfum að vera tilbúnar í baráttu og ég þarf að venjast því að vera minna með boltann en ég er vön.“ Sevcova hefur spilað alla leiki ÍBV á tímabilinu og skorað tvö mörk, sigurmarkið gegn FH í þar- síðasta leik og svo markið sem hóf endurkomuna gegn Selfossi. Hún, eins og allt liðið, er smátt og smátt að finna taktinn. „Ég er fyrst og fremst framherji og vil skora mörkin. Ég spila svo sem bara þar sem þjálfarinn stillir mér upp en mín staða er frammi.“ Með leikskilning og gæði Andri Ólafsson, þjálfari ÍBV, segir að það hafi auðvitað tekið tíma að slípa liðið saman enda fengu Eyjamenn um tíu nýja leik- menn í vetur og misstu jafn marga. Hann er hæstánægður með framlag Sevcova og hinna tveggja leikmannanna frá Lettlandi, Eliza Spruntule og Karlina Miksone. „Við fengum þrjár stelpur frá Lettlandi í prufu í vetur og sömd- um við þær eiginlega um leið. Það sást strax að Olga er klár í fót- bolta, með mikinn leikskilning og gæði. Hún er líka aðeins eldri en aðrir í liðinu, 28 ára, og kemur þar af leiðandi með mikla reynslu inn í ungt lið,“ sagði Andri við Morg- unblaðið, en sem dæmi má nefna að meðalaldurinn í byrjunarliði ÍBV gegn Selfossi var aðeins rúm- lega 22 ár. Þá er Sevcova einmitt sú tegund af framherja sem liðið vantaði, stór og sterkur leikmaður sem getur haldið boltanum og dreift honum til annarra leikmanna þegar Eyja- konur snúa vörn í sókn. „Okkur vantaði góðan framherja sem heldur boltanum. Auðvitað hefur svo tekið smá tíma fyrir þessa leikmenn að komast inn í þetta, læra betur að tala ensku, öðlast sjálfstraust og komast inn í hópinn. Þetta tekur auðvitað alltaf smá tíma en við erum á réttri leið.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikilvæg Olga Sevcova hefur skorað tvö mörk í síðustu tveimur leikjum ÍBV og verið mikilvæg liðinu. Vel er hugsað um okkur í Vestmannaeyjum  Lettneska landsliðskonan hefur verið öflug í síðustu leikjum fyrir ÍBV 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 Fram og ÍBV úr Lengjudeildinni, 1. deild, komust í gærkvöld áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta með sigrum á liðum úr úr- valsdeildinni. ÍBV gerði góða ferð til Akureyrar og vann KA eftir fram- lengdan leik, 3:1. Sigur Fram á Fylki á heimavelli eftir vítakeppni var öllu óvæntari en Fram hefur ekki leikið í efstu deild síðan 2014. Brasilíumaðurinn Fred var hetja Framara. Jafnaði hann metin í upp- bótartíma áður en hann skaut Fram áfram í vítakeppninni. Ríkjandi meistarar Víkings R. verja ekki bikartitilinn að þessu sinni eftir tap á heimavelli fyrir Stjörnunni, 2:1. Þá unnu Breiðablik og KR örugga sigra á nýliðum Pepsi Max-deildarinnar á heimavelli. Breiðablik vann Gróttu 3:0 og KR hafði betur gegn Fjölni, 2:0. Loks vann HK sannfærandi 6:2-sigur á Aftureldingu úr 1. deild. Afturelding komst yfir snemma leiks, en HK- ingar voru mun sterkari á heima- velli. Fóru allir leikir fram fyrir lukt- um dyrum vegna fjöldatakmarkana. Tvö 1. deildarlið áfram á kostnað úrvalsdeildarliða Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Einvígi KR er komið áfram í átta liða úrslit eftir sigur á heimavelli. Bikarkeppni karla 16-liða úrslit: KA – ÍBV........................................... (frl) 1:3 Hallgrímur Bergmann 20. – José Sito 8. Víðir Þorvarðarson 98., Gary Martin 120. FH – Þór.................................................... 3:1 Daníel Hafsteinsson 2., Þórir Jóhann Helgason (víti) 61., Steven Lennon 67. – Guðni Sigþórsson 88. Fram – Fylkir ......................... (1:1) 5:4 (víti) Fred 90. – Þórður Gunnar Hafþórsson 44. Breiðablik – Grótta ................................. 3:0 Kwame Quee 45., Gísli Eyjólfsson 66., Brynjólfur Willumsson 85. KR – Fjölnir.............................................. 2:0 Óskar Örn Hauksson 54., Kristján Flóki Finnbogason 62. HK – Afturelding..................................... 6:2 Guðmundur Þór Júlíusson 3., 76., Atli Arn- arson 19., Stefan Ljubicic 45., Ívar Orri Gissurarson 88., Ari Sigurpálsson 89. – Andri Freyr Jónasson 3., Alexander Da- vorsson 51. Víkingur – Stjarnan ................................ 1:2 Nikolaj Hansen 57. – Emil Atlason 1., Hilmar Árni Halldórsson 54. 2. deild karla Völsungur – Víðir ..................................... 2:1 Staðan: Haukar 8 6 0 2 18:9 18 Kórdrengir 8 5 2 1 16:4 17 Fjarðabyggð 8 4 3 1 15:6 15 Njarðvík 8 4 2 2 12:9 14 Þróttur V. 8 3 4 1 8:6 13 Selfoss 8 4 1 3 11:10 13 KF 8 4 0 4 13:14 12 Kári 8 3 2 3 13:9 11 ÍR 8 3 1 4 15:14 10 Víðir 9 2 0 7 5:25 6 Dalvík/Reynir 8 1 2 5 9:16 5 Völsungur 9 1 1 7 13:26 4 3. deild karla Álftanes – Reynir S. ................................. 1:4 Sindri – Einherji....................................... 2:0 Staðan: Reynir S. 9 7 2 0 27:12 23 KV 8 6 0 2 23:10 18 Tindastóll 8 4 3 1 18:15 15 Sindri 9 4 2 3 18:21 14 Augnablik 8 2 4 2 16:15 10 KFG 8 3 1 4 17:18 10 Ægir 8 3 1 4 13:16 10 Einherji 9 3 1 5 14:20 10 Vængir Júpiters 8 2 3 3 9:13 9 Elliði 8 2 2 4 14:16 8 Höttur/Huginn 8 2 1 5 12:16 7 Álftanes 9 1 2 6 10:19 5 2. deild kvenna Hamrarnir – Fjarðab/Höttur/Leiknir.... 2:1 Staðan: HK 7 7 0 0 32:1 21 Grindavík 6 4 0 2 18:7 12 Fjarð/Hött/Leikn. 6 4 0 2 14:13 12 Hamrarnir 6 3 1 2 9:9 10 Álftanes 5 3 0 2 8:15 9 ÍR 6 2 2 2 14:13 8 Hamar 6 1 1 4 10:20 4 Sindri 7 1 0 6 8:19 3 Fram 7 0 2 5 10:26 2 England Umspil, undanúrslit, seinni leikur: Fulham – Cardiff ...................................... 1:2  Fulham vann samtals 3:2 og mætir Brentford í úrslitaleik um laust sæti í úr- valsdeildinni næsta vetur. Svíþjóð Bikarkeppnin, úrslitaleikur: Gautaborg – Malmö.........................(frl.) 2:1  Arnór Ingvi Traustason var allan tímann á bekknum hjá Malmö. B-deild: Brage – Akropolis ................................... 1:1  Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik- mannahópi Brage. A-deild kvenna: Gautaborg – Rosengård ......................... 1:1  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård. Staða efstu liða: Gautaborg 7 5 2 0 16:3 17 Rosengård 7 5 1 1 16:3 16 Linköping 7 5 1 1 12:6 16 Piteå 7 3 2 2 9:9 11 Kristianstad 7 3 2 2 15:16 11 Eskilstuna 7 2 2 3 12:12 8 Noregur Stabæk – Bodø/Glimt.............................. 2:2  Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodø/Glimt. Rosenborg – Viking................................. 3:0  Axel ÓskarAndrésson var allan tímann á bekknum hjá Viking. Staðan: Bodø/Glimt 11 10 1 0 40:13 31 Molde 11 9 1 1 33:11 28 Odd 11 6 1 4 18:13 19 Vålerenga 11 5 4 2 14:14 19 Rosenborg 11 5 3 3 16:8 18 Stabæk 11 4 5 2 15:14 17 Kristiansund 11 3 6 2 21:15 15 Brann 11 4 3 4 15:17 15 Strømsgodset 11 4 3 4 14:20 15 Haugesund 11 3 3 5 7:16 12 Sarpsborg 11 3 2 6 10:12 11 Viking 11 3 2 6 13:21 11 Sandefjord 11 3 1 7 9:19 10 Mjøndalen 11 2 2 7 10:15 8 Start 11 0 6 5 10:19 6 Aalesund 11 1 3 7 16:34 6 KNATTSPYRNA Aðeins þrír leikmenn af ellefu sem eru í úrvalsliði 8. umferðar Pepsi Max- deildar kvenna í fótbolta hjá Morgunblaðinu hafa verið áður í úrvalsliðinu í sumar, en liðið má sjá hér fyrir ofan. Hlín Eiríksdóttir úr Val er í þriðja skipti og Olga Sevcova hjá ÍBV og Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/ KA, eru í annað skipti. Agla María Albertsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir úr Breiðabliki og Elín Metta Jensen hjá Val eru efstar í M-gjöf Morgunblaðsins með 8 M. johanningi@mbl.is 8. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2020 3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Harpa Jóhannsdóttir Þór/KA Gyða Kristín Gunnarsdóttir Stjörnunni Hlín Eiríksdóttir Val Olga Sevcova ÍBVKarólína Lea Vilhjálmsdóttir Beiðabliki Hanna Kallmaier ÍBV Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Þrótti Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðabliki Guðný Árnadóttir Val Thelma Lóa Hermannsdóttir KR Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA 2 2 3 Átta valdar í fyrsta sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.