Morgunblaðið - 31.07.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 31.07.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 ins í Lausanne, sem aflétti banninu, lækkaði sektina um tvo þriðjunga og gaf, að margra mati, fjármála- reglum UEFA reiðarslag. City vann þetta stríð en níutíu og þriggja blað- síðna úrskurðurinn sýnir að félagið gengur ekki ósært frá borði. Dóm- urinn segir mál UEFA fullkomlega réttlætanlegt en að ekki hafi verið sýnt fram á, með óyggjandi hætti, að forráðamenn City hafi reynt að hylma yfir brot á reglunum með því að m.a. breyta dagsetningum styrktarsamninga. Mikill sigur fyrir City Aðalatriðin virðast þó vera tvö. Annars vegar vildi meirihluti dóms- ins, sem samanstóð af þremur evr- ópskum lögmönnum, ekki taka af- stöðu til Etisalat-greiðslnanna, einfaldlega vegna þess að þær voru meira en fimm ára gamlar þegar niðurstaða í rannsókn UEFA lá fyr- ir, en ekki er hægt að sækja til saka fyrir brot á reglunum eftir þann tíma samkvæmt lögunum. Annars vegar lá sönnunarbyrðin hjá UEFA og varð sambandið því að bera hall- FRÉTTASKÝRING Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Manchester City sýndi af sér ósvífið skeytingarleysi gagnvart rannsókn UEFA á meintum brotum félagsins á fjármálareglum sam- bandsins (FFP) en þó taldist ekki sannað að félagið hefði blekkt UEFA með því að gefa ekki upp að stór hluti af öfluðum styrktarsamn- ingum hefði í raun komið frá eigand- anum Sheikh Mansour. Sú varð niðurstaða Alþjóða- íþróttadómstólsins (CAS) í síðasta mánuði sem aflétti tveggja ára banni Manchester City frá Evr- ópukeppnum og lækkaði sekt félags- ins úr þrjátíu milljónum evra niður í tíu. Dómstóllinn birti í vikunni 93 blaðsíðna úrskurðinn og segir þar að þótt City hafi vanrækt þá skyldu að sýna samvinnuþýði við rannsókn málsins hafi þau sönnunargögn sem UEFA lagði fram ekki þótt nægileg til að sanna sekt félagsins. En hvað á City að hafa gert og hvað er CAS og FFP? Fjármálaleg lyfjanotkun Alþjóða íþróttadómstóllinn er al- þjóðlegur gerðardómur með höf- uðstöðvar í Lausanne í Sviss. CAS er sjálfstæður dómstóll og er æðsta dómstig sem fjallar um lögfræðileg álitaefni og ágreining á sviði íþrótta á heimsvísu. Dómstóllinn er al- mennt lokadómstig ákvarðana og úrskurða innan íþróttahreyfing- arinnar. Í stuttu máli má svo segja að FFP, eða „financial fair play“, snú- ist um það að knattspyrnufélög þurfa að afla sér tekna sem standa undir því sem þau eyða. Lögunum, sem sett voru 2011, er ætlað að tryggja fjárhagslegan stöðugleika evrópskra félaga, hvetja til aukinna sjálfbærra fjárfestinga og viðhalda eftirliti með ofneyslu. Michel Platini, þáverandi formaður UEFA, sagði lögin eiga að koma í veg fyrir „fjár- málalega lyfjanotkun,“ og vísaði þar í að íþróttamenn hafa stundum not- að ólögleg en frammistöðubætandi lyf til að ná forskoti á samkeppnina, rétt eins og ósjálfbær fjáraustur inn í félög er tilraun til að kaupa sér ár- angur án þess að vinna fyrir honum. Þyngsta refsing sögunnar Mál Manchester City, sem CAS tók ákvörðun um í júlí, á rætur sínar að rekja til umfjöllunar þýska blaðs- ins Der Spiegel í nóvember 2018. Þar birti blaðið mikið magn af gögn- um sem hafði verið lekið af tölvu- þrjótum, meðal annars ótal tölvu- pósta milli forráðamanna City. Þar kom fram að þeir höfðu ítrekað blekkt UEFA með því að gefa ekki upp að margir styrktarsamningar, auglýsingar framan á búningi liðsins og nafnarétturinn á leikvanginum, til að nefna dæmi, komu í raun frá eigandanum, Sheikh Mansour. Þar að auki voru samningarnir óhófleg- ir; það var verið að greiða félaginu mikið hærri fjármuni en viðskipta- legar forsendur voru fyrir. Málið snerist sérstaklega um meintar greiðslur fyrirtækis í eigu Mansour til félagsins sem City gaf upp sem auglýsingatekjur frá símafyrirtæk- inu Etisalat. City neitaði að tjá sig um málið og í mars 2019 hóf UEFA formlega rannsókn. 14. febrúar tilkynnti sam- bandið svo að City hefði verið dæmt í tveggja ára keppnisbann frá Meist- aradeild Evrópu vegna „alvarlegra brota“ á fjármálareglum sambands- ins sem og tilrauna til að fela brotin eftir á. Þar að auki var félagið sekt- að um 30 milljónir evra, en aldrei áð- ur hafði félag hlotið jafn þunga refs- ingu fyrir brot á reglum FFP. Manchester-liðið áfrýjaði svo banninu til Alþjóða íþróttadómstóls- ann af því að geta ekki stutt allar staðhæfingar sínar, sem þóttu því ósannaðar. Margir hafa einnig velt því fyrir sér hversu sjálfstæður og hlutlaus þriggja manna dómstóllinn var. Samkvæmt reglum CAS eiga gerðardómsmenn að vera hlutlausir, sjálfstæðir og óháðir aðilum málsins en bæði UEFA og City fengu að til- nefna einn lögmann til að sitja við dóminn. Andrew McDougall, sem var tilnefndur af City, hefur áður haft bæði Etisalat og Etihad sem skjólstæðinga en útskýringar for- ráðamanna City voru á þá vegu að McDougall hefði aldrei komið ná- lægt málum þeirra fyrirtækja sem snertu Manchester City sér- staklega. Þá ber að hafa í huga að UEFA mótmælti ráðningunni ekki. Þegar öllu botninn er á hvolft mun Manchester City áfram keppa í Meistaradeild Evrópu og hefur fé- lagið verið sýknað af helsta ákæru- liðunum. Það verður ekki annað sagt en að slíkt sé mikill sigur fyrir félag- ið og eigendur þess, sem enn bíða eftir sigri í stærstu keppni álfunnar.  Manchester City hafði betur í deilunni og verður áfram í Meistaradeildinni Úrskurðurinn mikið reiðarslag fyrir UEFA AFP City David Silva, einn af reyndustu mönnum Manchester City, og knattspyrnustjórinn, Pep Guardiola. Landsliðskonan Díana Dögg Magnús- dóttir hefur skrifað undir samning við þýska félagið Sachsen Zwickau sem leikur í B-deildinni í handknattleik þar í landi. Díana hefur verið lykilmaður í liði Vals undanfarin ár en hún varð Ís- landsmeistari með liðinu í fyrra og verið hluti af íslenska landsliðinu og á þar 20 leiki. Hún gekk til liðs við Val frá ÍBV árið 2016. Díana skoraði 70 mörk í 18 leikjum á síðustu leiktíð. Hægri skyttan, Þórey Anna Ásgeirsdóttir, sem gekk nýverið til liðs við Val frá Stjörnunni, mun væntanlega fylla í skarð hennar.  Knattspyrnumaðurinn Nói Snæ- hólm Ólafsson gerði í gær tveggja ára samning við Senica í efstu deild Sló- vakíu. Nói hefur síðustu ár leikið með Frej, Nyköping og Syrianska í Svíþjóð. Nói er annar íslenski leikmaðurinn sem semur við félag í Slóvakíu í vik- unni en Birkir Valur Jónsson gekk í raðir Spartak Trnava á fimmtudag.  Enska knattspyrnufélagið Brighton hefur staðfest kaup á reynslumikla miðverðinum Joel Veltman frá Ajax. Veltman kemur til Englands fyrir um 900 þúsund pund sem þykir ekki ýk- jahá upphæð þessa dagana. Hollend- ingurinn er 28 ára gamall og á að baki 22 landsleiki fyrir Holland. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. Gerði hann þriggja ára samning við Brighton.  Bournemouth, sem er nýfallið úr ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur samþykkt 41 milljónar punda til- boð frá Manchester City í varn- armanninn Nathan Aké. Félögin hafa átt í viðræðum undanfarnar vikur en það var alveg ljóst að varnarmaðurinn væri á förum þegar Bournemouth mis- tókst að halda sæti sínu í deildinni. Aké er 25 ára gamall miðvörður en hann kom til félagsins frá Chelsea á 20 milljónir punda árið 2017.  Ekkert verður af kaupum fjárfest- ingahóps frá konungsríkinu Sádi- Arabíu á enska knattspyrnufélaginu Newcastle. Hafa viðræður staðið yfir síðustu mánuði. Guardian greinir frá því að fjárfestingahópurinn hafi gefist upp á viðræðum við Mike Ashley, nú- verandi eiganda félagsins.  Fulham tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitaleik umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Cardiff, 1:2. Ful- ham vann fyrri leikinn 2:0 og einvígið því 3:2 og mætir Brentford næstkom- andi þriðjudag á Wembley í úrslitaleik.  Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék annan hring- inn á opna pólska Gradi-mótinu á 66 höggum eða fjórum undir pari. Mótið er hluti af Pro Golf- mótaröðinni. Leikið er á Gradi-vellinum sem er fyrir utan borgina Wroclaw í Póllandi. Guð- mundur er sem stendur jafn í 30. sæti á samtals tveimur höggum undir pari og í baráttunni um að vera á meðal tuttugu efstu kylfinga á mótinu. Eitt ogannað Stjórn KSÍ samþykkti á fundi í gær að fresta öllum leikjum í meistara- og 2. flokki karla og kvenna frá og með deginum í dag til 5. ágúst næstkomandi. Verður staðan endurmetin í samráði við heilbrigðisyfirvöld eftir það. Valur og ÍA áttu að mætast í Mjólk- urbikar karla í kvöld. Sóttust Vals- menn eftir að spila leikinn í gær, en forráðamenn ÍA samþykktu ekki tillögu Vals og því óljóst hve- nær leikurinn fer fram. Þá herma heimildir Morgunblaðsins að knattspyrnudeild Stjörnunnar hafi sent beðni til KSÍ þess efnis að karlaliðið fái að spila áfram í úr- valsdeild en án áhorfenda. Sam- kvæmt heimildum lýsti Stjarnan yfir áhyggjum sínum af framhaldi deildarinnar færi svo að ekki yrði spilað næstu tíu daga, en karlalið Stjörnunnar hefur þegar misst af leikjum í Pepsi Max-deildinni eftir að liðið þurfti allt að fara í sóttkví í kjölfar þess að leikmaður liðsins smitaðist. Stjarnan telur að verði hlé gert á mótinu muni það ekki klárast fyrir veturinn, en leikja- plan gerir ráð fyrir því að spilað verði í Pepsi Max-deild karla út október. Ekki spilað næstu daga Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Frestað Það verður ekki leikinn keppnisfótbolti á Íslandi næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.