Morgunblaðið - 31.07.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG
RÓMANT Í SK GAMANMYND.
KAT I E HOLMES JOSH LUCAS
Sýnd með
íslensku tali
HEIMSFRUMSÝNING!
Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki.
Djassklúbburinn Múlinn heldur
áfram göngu sinni og í kvöld er það
kvartett Sigurðar Flosasonar sem
kemur fram í Flóa á jarðhæð Hörpu
og hefjast leikar kl. 20. Kvartettinn
mun leika úrval djassstandara úr
amerísku söngbókinni í eigin út-
setningum. Ásamt Sigurði koma
fram píanóleikarinn Kjartan
Valdemarsson, bassaleikarinn
Birgir Steinn Theódórsson og Ein-
ar Scheving sem leikur á trommur.
Miðaverð er kr. 3.000 en 2.000
fyrir eldri borgara og nemendur.
Mðar fást í miðasölu Hörpu, á
harpa.is og tix.is
Kvartett Sigurðar leikur í Múlanum
Blæs Sigurður Flosason mun blása í saxó-
fóninn í Flóa í Hörpu í kvöld kl. 20.
65 listaverk frá sjö öldum voru seld
á uppboði Sotheby’s í London sem
fór þó fram fyrir tómum sal. Upp-
boðshaldari var í beinu streymi á
netinu sem og þeir sem buðu í
verkin. Yfirskrift uppboðsins var
Rembrandt til Richter, með vísan í
það breiða tímabil sem verkin náðu
yfir. Uppboðshaldarinn Oliver Bar-
ker endurtók leikinn frá uppboði
sem haldið var í síðasta mánuði á
netinu og stóð uppboðið nú yfir í
þrjár klukkustundir.
Veki verk ekki umtal og áhuga
fyrir uppboð er hætta á því að þau
verði dregin til baka af eigendum
þeirra, sem gerðist í tilfelli verks
eftir Francis Bacon, „Study for a
Portrait of John Edwards“, sem
metið var á 12 milljónir sterlings-
punda. Var það eitt af sex verkum
sem hætt var við að bjóða upp.
Önnur verk fóru svo yfir ásett verð.
Verk Joan Miró frá árinu 1927,
„Peinture (femme au chapeau
rouge)“, var talið að myndi seljast
fyrir 20 milljónir punda og fór að
lokum á 22,3 milljónir. Sjálfsmynd
eftir Rembrandt frá 1632 var metin
á 12 milljónir punda en seldist á
14,5 milljónir. Þrískipt verk eftir
Banksy, „Mediterranean Sea View
2017“, málverk í 19. aldar stíl sem
sýnir björgunarvesti fljótandi á
strönd, var metið á 800.000 pund en
seldist á 2,2 milljónir punda. Renn-
ur ágóði af sölunni til barnaspítala í
Betlehem.
Verk Banksy slegið á 2,2 milljónir punda
Ljósmynd/Sotheby’s
Ádeila Verk Banksy vísar til flóttamanna sem drukknað hafa við strendur Miðjarðarhafs.
Rómantíkin sveif yfir vötnum í Feneyjum í fyrradag
þegar boðið var upp á báta- og gondólabíó við Arsenal-
höfnina þar í borg. Kvikmyndin var þó ekki mjög róman-
tísk, The Prestige eftir leikstjórann Christopher Nolan.
Mun þetta vera fyrsta báta- og gondólabíó borgarinnar
og var gripið til þess vegna takmarkana kórónuveiru-
kófsins. Allt að 50 bátar og 200 manns geta sótt þetta
sérstaka bíó daglega fram til 1. ágúst.
AFP
Gondóla- og bátabíó í Feneyjum
Myndlistarmennirnir
Aðalsteinn Þórsson,
Joris Rademaker og
Þóra Sólveig Berg-
vinsdóttir opna sýningu
í Segli 67, tómu verk-
smiðjurými á Siglufirði,
í dag kl. 17. Listamenn-
irnir eru búsettir í Eyja-
firði og hafa haldið
margar einka- og sam-
sýningar. Það sem tengir þau saman er áhugi þeirra á
náttúrunni, endurvinnslu, náttúruvernd og sjálfbærni,
segir í tilkynningu og er náttúran efniviður þeirra í
mismunandi listformum, t.d. gjörningum, skúlptúrum,
innsetningum, vídeóum og málverkum. Segull 67 er að
Vetrarbraut 8-10 á Siglufirði og verður sýningin opin
laugardagana 1., 8. og 15. ágúst og sunnudagana 2., 9.
og 16. ágúst.
Náttúran í ólíkum formum á
samsýningu í Segli 67
Morgunblaðið/Skapti
Listamaður Joris Radmaker.
Tónlistarmennirnir Helgi Björns og
Ingólfur Þórarinsson, jafnan kall-
aður Ingó veðurguð, munu
skemmta landanum í beinni útsend-
ingu í Sjónvarpi Símans um
helgina. Helgi mun bjóða upp á sér-
staka verslunarmannahelgarútgáfu
af Heima með Helga, þættinum sem
naut mikilla vinsælda í samkomu-
banninu. Sem fyrr er leyndarmál
hverjir verða gestir Helga um
helgina en beinar útsendingar
verða frá Hlégarði á laugardags- og sunnudagskvöld
frá kl. 20 til 21.30. Reiðmenn vindanna verða Helga
til halds og trausts og eiginkona hans Vilborg Hall-
dórsdóttir. Að loknum þætti á sunnudag kl. 22 tekur
Ingó við og „telur í brekkusöng eins og hefð er fyrir
á þessum tíma helgarinnar“, eins og segir í tilkynn-
ingu.
Helgi og Ingó í beinni um
verslunarmannahelgina
Helgi Björns