Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 9
Tekjur hátæknifyrirtækisins Adv- ania Data Centers (ADC) jukust um 37,4% á árinu 2019 í kjölfar mikilla fjárfestinga við uppbygg- ingu félagsins, að því er fram kem- ur í tilkynningu frá Advania. Heildarvelta nam 51,5 milljónum dala, eða því sem nemur í dag tæp- um sjö milljörðum íslenskra króna. Hagnaður af rekstrinum var 3,8 milljónir dala, eða sem nemur rúm- um 500 milljónum króna, saman- borið við þriggja milljóna dala hagnað árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,3 milljónum dala eða sem nemur 1,4 milljörðum króna, eða um 20% af tekjum fé- lagsins, samanborið við 23% EBITDA-hlutfall árið 2018. Aðstæður kallað á hagræðingu Rekstrarárið einkenndist af auk- inni alþjóðlegri samkeppni, sem knúin var af lækkandi orkuverði á öllum helstu samkeppnismörkuðum, segir í tilkynningu. Aðstæður köll- uðu því á talsverða hagræðingu í rekstri ADC, sem gripið var til í upphafi ársins. Væntur vöxtur gagnaversiðnaðarins í Evrópu næstu fimm árin er sagður um 15% á ári. Bent er á að hann verði drif- inn af aukinni þjónustu við fyrir- tæki sem þurfi aðgang að miklu reikniafli og gervigreindarlausnum. Eyjólfur Magnússon, forstjóri ADC, segir útlitið ágætt en ljóst að samdráttur í hagkerfum heimsins vegna faraldurs kórónuveirunnar muni hafa umtalsverð áhrif á af- komu þessa árs. Samdráttur hefur áhrif  Tekjur Advania Data Centers jukust um 37,4% í fyrra FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Björn Líndal Traustason, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Strandamanna, segir að for- svarsmenn sjóðsins vilji koma því á hreint að sjóð- urinn þjónusti ekki fyrirtæki sem koma að smálánastarfsemi. Þessi mál hafi þegar verið tekin til endurskoðunar og tilgangurinn sé að leiðrétta umræðu undanfarinna daga. Nýkjörin stjórn Sparisjóðs Strandamanna ákvað að grípa til viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir aðkomu sjóðsins að smá- lánastarfsemi, meðal annars með uppsögn á viðskiptasamböndum, að því er fram kom í yfirlýsingu stjórnar á föstudag. Var þar jafn- framt vakin athygli á því að út- greiðsla smálána hafi aldrei verið heimil í gegnum Sparisjóðinn, hvorki í gegnum bankareikninga né öpp með tengingar við Spari- sjóðinn. „Allir nýir sem koma í viðskipti við okkur fara í gegnum ansi þröngt nálarauga,“ segir Björn í samtali við Morgunblaðið, og bendir á að gengið sé úr skugga um að fyrirtæki, sem sjóðurinn þjónusti, komi ekki að starfsemi smálánafyrirtækja. Björn segir að ýmis fyrirtæki í gegnum tíðina hafi verið í við- skiptum við sjóðinn, sem tengjast smálánastarfsemi, en hann tók við sem sparisjóðsstjóri í ágúst 2018 og kveðst ekki hafa vitað af teng- ingu Sparisjóðsins við smálánafyrirtæki fyrr en um ára- mótin 2018-19. „Þegar fyrirtæki koma í við- skipti þá koma þau í ákveðnum til- gangi en með þróun þeirra breyt- ist gjarnan tilgangurinn. Alla jafna er ekki mikið um það að fyrirtækin séu að taka nýjan kúrs,“ segir hann. Ætli ekki að taka þátt í þessu Viðskipti Sparisjóðsins við inn- heimtufyrirtækið Almenna inn- heimtu ehf. verður rædd á næsta stjórnarfundi Sparisjóðsins, sem haldinn verður í lok ágúst. „Með þessu erum við að stað- festa það að við ætlum ekkert að taka þátt í þessu,“ segir hann. Spurður hvaða fyrirtæki sjóðurinn þurfi að hætta viðskiptum við vegna þjónustu þeirra við smá- lánafyrirtæki segir Björn: „Viðskiptaskilmálar okkar eru þannig að við getum ekki tjáð okkur um það.“ Neytendasamtökin sendu frá sér yfirlýsingu í júlí síðastliðnum þar sem fullyrt var að ólögleg smálánafyrirtæki þrifust í skjóli sjóðsins, þar sem sjóðurinn veiti Almennri innheimtu ehf. aðgang að greiðslumiðlunarkerfi bank- anna. Kölluðu Neytendasamtökin eftir því að ný stjórn Sparisjóðsins sýndi „samfélagslega ábyrgð í verki“ og segði upp viðskiptum við Almenna innheimtu. Morgunblaðið/Golli Smálán Björn segir langt síðan viðskiptasambönd voru tekin til skoðunar. Vilja ekki tengj- ast smálánum  Sparisjóðurinn endurskoðar sam- bönd við viðskiptavini allt frá 2016 Björn Líndal Traustason Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.