Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 26
ÍTALÍA
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Juventus varð um helgina ítalskur
meistari í knattspyrnu níunda árið
í röð. Félagið hefur haft algjört
tak á ítalska boltanum í tæpan
áratug, ráðið þar lögum og lofum
og félagið ávallt státað af mikilli
velmegun. Nýliðið tímabil var þó
langt frá því að vera fyrsta flokks
í Tórínó og þó leikmenn liðsins
hafi auðvitað brosað sínu breiðasta
við verðlaunaafhendinguna á
laugardaginn, þá var eitthvað
dapurlegt og fálátt við fögnuðinn
miðað við oft áður.
Stjóraskipti urðu hjá Juventus
fyrir leiktíðina, Maurizio Sarri tók
við af Massimiliano Allegri sem
gerði liðið að meisturum öll fimm
árin sín, oft með nokkrum yf-
irburðum, en liðið var einnig bik-
armeistari fjórum sinnum á ár-
unum fimm. Margir voru í vafa
um hvort Sarri gæti tekið við kefl-
inu, enda unnið til fárra afreka á
ferlinum og átti hann erfitt upp-
dráttar sem stjóri Chelsea á Eng-
landi árið þar á undan. Honum
tókst þó ætlunarverk sitt, naum-
lega.
Munurinn aldrei mjórri
Juventus tryggði sér meist-
aratitilinn með 2:0-sigri á Sam-
pdoria í þriðju síðustu umferð
tímabilsins en tapaði svo næstu
tveimur leikjum, þeim síðasta á
heimavelli gegn Roma á laugar-
daginn, 3:1. Þetta var fyrsta tap
Juventus á heimavelli í 40 leikjum
og liðið vann aðeins tvo af síðustu
átta á tímabilinu. Að lokum endaði
liðið með 83 stig, stigi meira en
Inter sem náði einu af efstu
tveimur sætum deildarinnar í
fyrsta sinn síðan 2011. Munurinn
hefur aldrei verið mjórri.
Sarri getur þó enn afrekað það,
sem forveri hans gat ekki. Hann
gæti stýrt liðinu til sigurs í Meist-
aradeild Evrópu í fyrsta sinn síð-
an 1997. Juventus mætir Lyon frá
Frakklandi í síðari viðureign lið-
anna í 16-liða úrslitunum á föstu-
daginn en ítölsku meistararnir eru
þar 1:0 undir eftir fyrri leikinn.
Atalanta, sem skoraði alls 98
mörk á tímabilinu, var í þriðja
sæti og Lazio í því fjórða en efstu
fjögur liðin unnu sér inn þátttöku
Juventus heldur enn yfirráðum
Meistarar níu ár í röð en aldrei með eins litlum mun og nú Eftirminnilegt og
ógleymanlegt tímabil Íslendinganna Markakóngur Evrópu frá Ítalíu í fyrsta sinn í 13 ár
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
England
Bikarkeppnin, úrslitaleikur:
Arsenal – Chelsea......................................2:1
Skotland
St. Mirren – Livingston........................... 1:0
Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á sem
varamaður á 77. mínútu hjá St. Mirren.
Svíþjóð
Kalmar – AIK........................................... 0:0
Kolbeinn Sigþórsson lék ekki með AIK
vegna meiðsla.
Gautaborg – Malmö................................. 0:3
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 69
mínúturnar fyrir Malmö.
Helsingborg – Hammarby...................... 1:1
Aron Jóhannsson lék fyrstu 64 mínút-
urnar fyrir Hammarby.
Norrköping – Mjällby ............................. 1:1
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping.
Djurgården – Häcken ............................. 3:1
Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik-
mannahópi Häcken.
Staðan:
Norrköping 12 7 4 1 28:15 25
Malmö 12 7 4 1 24:11 25
Elfsborg 12 5 6 1 20:17 21
Djurgården 12 6 2 4 17:11 20
Häcken 12 4 6 2 22:12 18
Sirius 12 4 5 3 20:20 17
Varberg 12 4 4 4 17:15 16
Hammarby 12 4 4 4 13:15 16
Mjällby 12 4 3 5 13:19 15
Örebro 12 3 4 5 10:15 13
AIK 12 3 4 5 11:17 13
Gautaborg 12 2 6 4 13:18 12
Falkenberg 12 2 5 5 14:19 11
Östersund 12 2 5 5 9:15 11
Helsingborg 12 1 7 4 9:16 10
Kalmar 12 2 3 7 14:19 9
B-deild:
Brage – Trelleborg.................................. 3:0
Bjarni Mark Antonsson var allan tímann
á bekknum hjá Brage.
A-deild kvenna:
Rosengård – Piteå ................................... 2:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Umeå ............................... 1:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
leikinn með Kristianstad, Elísabet Gunn-
arsdóttir þjálfar liðið. Sif Atladóttir er í
barnsburðarleyfi.
Växjö – Djurgården ................................ 1:0
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården en Guðbjörg Gunnars-
dóttir er í barnsburðarleyfi.
Eskilstuna – Uppsala............................... 1:3
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Uppsala.
Staðan:
Gautaborg 8 6 2 0 18:3 20
Rosengård 8 6 1 1 18:4 19
Linköping 8 5 1 2 12:8 16
Kristianstad 8 3 3 2 16:17 12
Piteå 8 3 2 3 10:11 11
Uppsala 8 3 1 4 13:13 10
Eskilstuna 8 2 2 4 13:15 8
Djurgården 8 2 2 4 10:13 8
Örebro 8 2 2 4 8:14 8
Växjö 8 2 2 4 5:14 8
Vittsjö 8 2 1 5 12:15 7
Umeå 8 1 3 4 9:17 6
Noregur
Sarpsborg – Aalesund............................. 4:0
Hólmbert Aron Friðjónsson lék fyrstu
88 mínúturnar fyrir Aalesund, Davíð Krist-
ján Ólafsson var á varamannabekknum en
Daníel Leó Grétarsson var ekki í hópnum.
Bodø/Glimt – Strømsgodset .................. 3:2
Alfons Sampsted var á varamanna-
bekknum hjá Bodø/Glimt.
Ari Leifsson var á varamannabekknum
hjá Strømsgodset.
Start – Mjøndalen .................................... 3:0
Guðmundur Andri Tryggvason lék ekki
með Start vegna meiðsla. Jóhannes Harð-
arson þjálfar liðið.
Dagur Dan Þórhallsson kom inn á í upp-
bótartíma.
Sandefjord – Molde ................................. 2:1
Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 73 mínút-
urnar fyrir Sandefjord og Emil Pálsson
fyrstu 45 mínúturnar.
Viking – Kristiansund............................. 1:2
Axel ÓskarAndrésson var á varamanna-
bekknum hjá Viking.
Staðan:
Bodø/Glimt 12 11 1 0 43:15 34
Molde 12 9 1 2 34:13 28
Odd 12 7 1 4 20:14 22
Vålerenga 12 6 4 2 16:15 22
Kristiansund 12 4 6 2 23:16 18
Rosenborg 12 5 3 4 17:10 18
Stabæk 12 4 5 3 16:17 17
Brann 12 4 3 5 16:19 15
Strømsgodset 12 4 3 5 16:23 15
Haugesund 12 4 3 5 10:17 15
Sarpsborg 12 4 2 6 14:12 14
Sandefjord 12 4 1 7 11:20 13
Viking 12 3 2 7 14:23 11
Start 12 1 6 5 13:19 9
Mjøndalen 12 2 2 8 10:18 8
Aalesund 12 1 3 8 16:38 6
Arna-Bjørnar – Vålerenga..................... 0:3
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn fyrir Vålerenga.
B-deild:
Åsane – Tromsö ....................................... 0:1
Adam Örn Arnarson lék ekki með
Tromsø vegna meiðsla.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Góðgerðarmótið skemmtilega,
Einvígið á Nesinu, fór fram á Nes-
vellinum á Seltjarnarnesi í gær
venju samkvæmt. Hert tilmæli
sóttvarnalæknis settu þó sinn svip
á mótshaldið því engir áhorfendur
voru leyfðir í þetta skiptið.
Þeir hafa í gegnum árin myndað
góða stemningu á mótinu. Meðal
annars vegna þess að þeir kylf-
ingar sem fá boð um að keppa á
mótinu eru allir í sama ráshópi og
áhorfendur því á sama stað en ekki
dreifðir eins og alla jafna á golf-
mótum.
Hvað um það, snjallir kylfingar
þáðu boð um að keppa og láta gott
af sér leiða. Von, félag til styrktar
skjólstæðingum gjörgæsludeildar
E6 á Landspítalanum í Fossvogi,
fær að njóta góðs af mótinu í ár.
Er hún einnig kölluð Covid-deild
Landspítalans. Í tilkynningu frá
Nesklúbbnum kom fram ekki að
hafi fundist styrktaraðili fyrir mót-
ið í þetta sinn og er það visst
áhyggjuefni. Í tilkynningunni kom
fram að forráðamenn klúbbsins
telja það einfaldlega tengjast því
hversu viðkvæmt efnahagsástandið
er þetta sumarið. Þess í stað voru
einstaklingar og fyrirtæki hvött til
að leggja málefninu lið með frjáls-
um framlögum.
Fjögur efstu úr GR
Haraldur Franklín Magnús, úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, sigraði á
mótinu og er það í fyrsta skipti
sem hann sigrar á mótinu en Ein-
vígið á Nesinu hefur verið haldið
árlega frá árinu 1997.
Fyrir þá lesendur sem ekki
þekkja þá er fyrirkomulagið
óvenjulegt. Nesklúbburinn býður
tíu snjöllum kylfingum að vera
með. Eru þau öll í sama ráshópi og
einn dettur út á hverri holu. Er
gripið til bráðabana eftir hverja
holu ef þörf er á að útkljá hver fell-
ur úr keppni og þess vegna er mót-
ið einnig kallað „shoot out“. Þá
standa einungis tveir eftir á 9. teig
og í þetta skiptið voru það Har-
aldur og félagi hans úr GR, Andri
Þór Björnsson.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir náði
lengst þeirra þriggja kvenna sem
voru í hópnum en hún féll úr
keppni á 7. flötinni. Í 3. sæti hafn-
aði Hákon Örn Magnússon og GR-
ingar náðu því fjórum efstu sæt-
unum.
Úrslit:
1. sæti: Haraldur Franklín Magnús.
2. sæti: Andri Þór Björnsson.
3. sæti: Hákon Örn Magnússon.
4. sæti: Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir.
5. sæti: Björgvin Sigurbergsson.
6. sæti: Bjarki Pétursson.
7. sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
8. sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
9. sæti: Ólafur Björn Loftsson.
10. sæti: Axel Bóasson.
Nýtt nafn ritað á bikarinn
Haraldur Franklín Magnús sigraði á Seltjarnarnesi Glímdi við annan GR-
ing, Andra Þór Björnsson, á 9. flötinni Jóhanna náði lengst kvenna í ár
Ljósmynd/nærmynd.is
Sigurvegarinn Haraldur Franklín Magnús stillir sér upp með sigurlaunin á Nesvellinum í gær.
Von
» Þeir sem vilja leggja málefn-
inu lið geta lagt inn á reikning
512-26-633, kt: 580169-7089.
» Einnig eru styrktarlínur sem
hægt er að hringja í:
9071502 = 2.000 krónur.
9071506 = 6.000 krónur.
9071510 = 10.000 krónur.
Hlynur Andrésson sló í fyrradag
sitt eigið Íslandsmet í 3.000 metra
hlaupi á móti í Hollandi. Hlynur
kom í mark á tímanum 8:02,60 og
bætti því eigið met um rétt tæpar
tvær sekúndur.
Fyrra metið setti Hlynur þann
10. júlí og sló hann þá 37 ára gamalt
met Jóns Diðrikssonar sem var sett
árið 1983, tíu árum áður en Hlynur
fæddist. Hann var einni sekúndu
frá sigri í hlaupinu í gær en endaði
rétt á eftir Dananum Stan Niesen.
Hann keppir næst í 5.000 metra
hlaupi eftir tvær vikur.
Hlynur með enn
eitt Íslandsmetið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmethafi Hlynur Andrésson
Guðni Bergsson, formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, sagðist í
viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolt-
i.net vera bjartsýnn á að hægt verði
að ljúka Íslandsmótinu en hlé hefur
verið gert vegna hertra aðgerða
stjórnvalda vegna kórónuveir-
unnar. Guðni segir varaáætlun til
staðar sem gengur út á að spila
fram í nóvember ef á þarf að halda.
Til stendur að fulltrúar KSÍ fundi
með yfirvöldum snemma í þessari
viku og þá verða næstu skref vænt-
anlega rædd. Til að byrja með var
mótahaldi frestað til 5. ágúst.
Formaðurinn
er bjartsýnn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Formaðurinn Guðni Bergsson hefur
í mörg horn að líta þessa dagana.