Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Atli Steinn Guðmundsson skrifar frá Ósló Lögreglan í Tromsø í Noregi hefur hafið rann- sókn á norsku farþegaskipaútgerðinni Hurtig- ruten og hver tildrög þess voru að á fjórða hundrað farþegum í tveim- ur vikulöngum siglingum MS Roald Amundsen var ekki tilkynnt fyrr en undir kvöld á föstudag, að farþegi í fyrri siglingunni greindist með kórónuveirusmit á miðvikudaginn var. Eru stjórnendur Hurtig- ruten grunaðir um stórfellt brot á norskum sóttvarna- lögum með því að hafa fyrst sniðgengið tilmæli læknis í Vesterålen, sem meðhöndlar farþegann, og í kjölfarið skýr fyr- irmæli Lýðheilsustofnunar Noregs (FHI) um að hafa tafarlaust samband við alla farþega siglinganna tveggja og greina þeim frá því að þeir yrðu að fara í sóttkví og gangast undir veirupróf. Norska dagblaðið VG greindi frá því í gær, að stjórnendur Hurtigruten hefðu lagst ein- dregið gegn því að sveitarfélag farþegans, sem fyrst greindist með veirusýkingu, sendi út fréttatilkynningu um málið, þar sem þeir vildu ekki að sýkingin um borð yrði gerð heyrum kunn. Hefur blaðið fengið að sjá tölvupóst- samskipti, er að þessu lúta, og birti í gær eftir- farandi klausu úr tölvupósti frá Martin Larsen Drageset, sóttvarnalækni í Hadsel í Vester- ålen, til FHI: „Hurtigruten óskar eftir því að málið komist ekki í hámæli. Þetta kom fram í samtali við upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. Þeir biðja um að fá að leysa málið sjálfir,“ ritar læknirinn í pósti sínum. Öllum siglingum aflýst Af farþegahópunum tveimur var sá síðari, 209 manns, um borð í Roald Amundsen þegar boðin bárust frá Line Vold, deildarstjóra hjá FHI, en enginn þeirra fékk þó að vita neitt fyrr en í land var komið í Tromsø tveimur dögum síðar. Hurtigruten hefur rifað seglin í kjölfar máls- ins og hætt öllum farþegasiglingum, en eins og greint var frá á mbl.is um helgina kom upp úr kafinu að 34 úr áhöfn skipsins reyndust smit- aðir og hafa nú fimm farþegar að auki greinst með kórónuveirusmit svo alls hafa, að með- töldum þeim fyrsta sem greindist, 39 manns af skipinu greinst með smit (um helgina var talað um 36 úr áhöfn, en tveir, sem í fyrstu virtust smitaðir, reyndust það ekki og leiðrétti FHI töluna í gærkvöldi). Farþegar siglinganna tveggja búa í 69 sveitarfélögum vítt og breitt um Noreg og kepptust heilsugæslustöðvar og starfsfólk Hurtigruten við að ná sambandi við fólkið með tölvupósti, SMS-skeytum og hringingum frá því síðdegis á föstudag og alla helgina. Þegar mest var sátu 60 í sóttkví í Tromsø, en í gær hafði þeim fækkað í 40. „Ég varð hreinlega fyrir áfalli,“ segir Lise Horgmo, 46 ára gamall geðhjúkrunarfræðing- ur frá Þrándheimi, í samtali við Morgunblaðið. Horgmo var í sumarfríi og með seinni siglingu Roald Amundsen frá Tromsø til Svalbarða og til baka. Vissi hún ekkert af málinu fyrr en hún hafði tekið leigubíl, flogið til Þrándheims, farið í búðina og svo heim. SMS klukkan hálfníu Greinir hún frá því að hún hafi verið með þeim fyrstu frá borði þegar skipið kom til Tromsø, farið á hótel skammt frá höfninni og pantað þangað leigubíl. „Svo fór ég bara upp á flugvöll þar sem ég átti pantað flug heim til Þrándheims,“ segist Horgmo frá, en hún gekk þá með öllu grunlaus um smit sem stjórnendur Hurtigruten höfðu vitað um í tvo sólarhringa. Hún flaug heim grímuklædd eins og reglur um innanlandsflug í Noregi gera ráð fyrir, settist upp í bifreið sína, kom við í búðinni og fór svo á heimili sitt þar sem hún býr ein. „Ég fékk tölvupóst [frá Hurtigruten] klukk- an 18:27, en ég les aldrei póstinn minn. Svo klukkan hálfníu fæ ég SMS-skilaboð um smit- ið,“ segir Horgmo og þá kom áfallið. „Þessi háttsemi er með ólíkindum, ég var búin að taka leigubíl, fara í flug og kaupa í matinn og ég vissi ekki neitt,“ segir hjúkrunarfræðingurinn. Hún hafi svo fengið símtal frá Hurtigruten þar sem hún hafi verið beðin afsökunar á þess- ari handvömm. „Það breytti nú satt að segja ekki miklu,“ segir Horgmo sem gekkst undir veirupróf seint á föstudagskvöld og fékk sér til mikils léttis að vita, um hádegi á laugardag, að prófið hefði reynst neikvætt. Sjö tímar eftir af fríinu Það í sjálfu sér var þó skammgóður vermir. Þar sem hún starfar í heilbrigðisstétt þarf hún að gangast undir annað próf í dag og hvað sem öllum niðurstöðum líður er hjúkrunarfræð- ingnum nauðugur einn kostur að sitja í sóttkví á heimili sínu það sem eftir lifir sumarfrísins. „Það verða sjö klukkutímar eftir af fríinu mínu þegar sóttkvínni lýkur,“ segir Horgmo og vottar fyrir hlátri þrátt fyrir umgjörð málsins. „Ég ætlaði að nota vikuna núna til að aka niður eftir til Sognsævar og Firðafylkis [nú Vest- landet-fylki] og skoða mig um þar, ég bjó þar einu sinni,“ segir Lise Horgmo í Þrándheimi sem fer beint úr sóttkví í vinnuna í næstu viku. AFP Smitfleyið MS Roald Amundsen við bryggju í Tromsø. Lögregla þar hefur hafið rannsókn á málinu, en stjórnendur Hurtigruten reyndu að koma í veg fyrir að smitið kæmist í hámæli. „Ég varð hreinlega fyrir áfalli“  Farþegi af smitskipinu ræddi við Morgunblaðið  Hurtigruten reyndi að þagga málið niður  Lög- reglan í Tromsø hefur hafið rannsókn  Auk 34 úr áhöfn Roald Amundsen eru fimm farþegar smitaðir Lise Horgmo Geimfararnir Bob Behnken og Doug Hurley, sem ferðuðust með Crew Dragon, geimferju SpaceX, fyrir- tækis Tesla-jöfursins Elon Musk, til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í lok maí, lentu heilu og höldnu í Mexíkó- flóa á sunnudaginn. Þeir skutu sér frá stöðinni til jarð- ar á laugardaginn eftir 64 daga dvöl í geimnum og lenti hylki þeirra undan Pensacola-ströndinni í Flórída. „Þetta var heilmikið ferðalag,“ sagði Hurley stjórnendum banda- rísku geimferðastofnunarinnar NASA og SpaceX í heimkomuhófi sem þeim félögum var haldið í John- son-geimferðamiðstöðinni í Houston. „Að vera í okkar sporum núna, fyrsta flugi Dragon með áhöfn, er ekkert annað en ótrúlegt.“ Tilgangur fararinnar var meðal annars að ganga úr skugga um hvort geimferju Musk væri kleift að flytja geimfara á og af sporbaugi, sem hafði fram að þessu ekki verið á færi einkafyrirtækja. SpaceX-menn heilir heim eftir geimferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.