Morgunblaðið - 04.08.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Atburðarás helgarinnar var svo
hröð að ekki var alltaf auðvelt að
henda reiður á því hvaða stefnu
deilan um TikTok var að taka. Á
mánudag virtist niðurstaðan vera
að Microsoft ætli að halda til streitu
viðræðum um að kaupa starfsemi
TikTok í Bandaríkjunum, Kanada,
Ástralíu og Nýja-Sjálandi og ganga
frá kaupunum með hraði. Donald
Trump Bandaríkjaforseti, sem áður
hafði sagst ætla að banna TikTok á
bandarískri grundu, hefur gefið
Microsoft og ByteDance, móður-
félagi TikTok, 45 daga frest til að
semja að því er FT og Reuters
greina frá.
Áður en lengra er haldið er viss-
ara að útskýra TikTok fyrir þeim
lesendum Morgunblaðsins sem
komnir eru yfir þrítugt. Um er að
ræða einn vinsælasta samfélags-
miðil unglinga í dag en með TikTok-
forritinu má búa til stutt myndskeið
við vinsæl lög og t.d. dansa við tón-
listina eða þykjast syngja með.
Virkir notendur TikTok eru um 800
milljón talsins og skákar forritið því
rótgrónum samfélagsmiðlum á borð
við Twitter, Snapchat og LinkedIn.
Vöxtur forritisins hefur verið ævin-
týri líkastur og er TikTok mest
sótta snjallsímaforritið það sem af
er þessu ári. Í Bandaríkjunum eru
virkir notendur um 30 milljónir
talsins og flestir þeirra á aldurs-
bilinu 13 til 24 ára.
Þó að myndskeiðin á TikTok séu
eins kjánaleg og innihaldsrýr og
hugsast getur þá er það ekki þess
vegna sem bandarísk stjórnvöld
amast við forritinu. Um nokkurt
skeið hefur grunur leikið á að Tik-
Tok safni svo miklu magni gagna
um notendur sína og fari þannig
með gögnin að ógni bandarískum
öryggishagsmunum. Víða um heim
hafa kviknað efasemdir um ágæti
TikTok og þannig tóku Indverjar
sig til í lok júní og bönnuðu TikTok
og nærri 60 önnur kínversk snjall-
símaforrit af ótta við að upplýsing-
um um indverska ríkisborgara væri
deilt með kínverskum stjórnvöld-
um. Þá eru áströlsk stjórnvöld með
það til skoðunar að banna forritið.
Ýmsar varnar- og öryggismála-
stofnanir Bandaríkjanna hafa um
alllangt skeið bannað starfsfólki
sínu að nota TikTok á vinnusímum
sínum og mælast til þess að fólk
noti forritið ekki á þeirra einka-
snjalltækjum.
Gögn sem væri
hægt að misnota
Talsmenn TikTok hafa mótmælt
ásökunum um að forritið safni óeðli-
lega miklu magni gagna og hafa
bent á að bandarísku samfélags-
miðlarnir séu litlu skárri í þessum
efnum. Gagnrýnendur benda hins
vegar á að gloppur séu í öryggis-
vörnum TikTok og hætta á að kín-
versk stjórnvöld hafi greiðan að-
gang að þeim upplýsingum sem
forritið safnar. Þessar upplýsingar
mætti síðan nota til að spilla fyrir
bandarískum hagsmunum með
ýmsum hætti, s.s. ef um viðkvæmar
persónulegar upplýsingar er að
ræða sem nota mætti til að beita
fólk þvingunum. Er þess skemmst
að minnast þegar bandarísk stjórn-
völd knúðu kínverska félagið Bei-
jing Kunlun Tech til að selja hlut
sinn í stefnumótaforritinu Grindr
sem karlmenn nota til að komast í
kynni við aðra karla. Var talið að
með því að hafa mögulega aðgang
að gagnasafni Grindr gætu kín-
versk stjórnvöld t.d. haft uppi á
skápahommum í stjórnsýslu og her
Bandaríkjanna og beitt þá þving-
unum og hótunum til að fá sínu
framgengt.
Móðurfélagið ByteDance er ekki
skráð á markað, enda ekki nema
átta ára gamalt félag, en að sögn
Bloomberg var áætlað markaðsvirði
félagsins í vor á bilinu 105 til 140
milljarðar dala og mikill hugur í
stjórnendum um áframhaldandi
vöxt í ýmsar áttir, sem m.a. fæli í
sér að ráða um 40.000 nýja starfs-
menn á þessu ári.
Fleiri forrit sett út
af sakramentinu?
Með því að skikka eigendur Tik-
Tok til að selja, frekar en að banna
forritið, er Trump að velja tiltölu-
lega skynsamlegan meðalveg. Að
loka á svona vinsælt forrit hefði
vakið úlfúð meðal stórs hóps ungra
kjósenda á kosningaári og eflaust
leitt til langdreginna málaferla þar
sem deilt væri um lögmæti ákvörð-
unarinnar. Þá er Bandaríkjaforseti
með þessu útspili líka að þrengja að
kínverskum stjórnvöldum sem
verða fyrir álitshnekki heima fyrir –
enda TikTok óskbarn kínverska
snjallforritageirans – auk þess að
verða af öflugu njósnatæki ef grun-
semdir um gagnaöflun TikTok eru á
rökum reistar. Gangi kaupin eftir
mun Microsoft líklega greiða hag-
stætt verð fyrir starfsemi TikTok í
Bandaríkjunum og um leið ná betri
fótfestu á samfélagsmiðlamarkaði.
Fleiri vinsæl kínversk forrit virð-
ast í sigti bandarískra stjórnvalda
ef marka má ummæli utanríkisráð-
herrans Mike Pompeo í viðtali við
Fox News á sunnudag: „Þessi kín-
versku hugbúnaðarfyrirtæki sem
eru með rekstur í Bandaríkjunum,
hvort sem þau heita TikTok eða
WeChat – þau eru ótalmörg, og eru
að beina gögnum beint til kínverska
kommúnistaflokksins og hernaðar-
yfirvalda,“ sagði hann. „Trump seg-
ir að nú sé nóg komið og við ætlum
að laga vandann, svo hann mun
grípa til aðgerða á komandi dögum
til að tækla fjöldann allan af ógnum
við þjóðaröryggi sem hafa að gera
með hugbúnað sem tengist komm-
únistaflokki Kína.“
Utanríkisráðuneyti Kína mót-
mælti ákvörðun Bandaríkjastjórnar
á mánudag og sagði hana til marks
um tvöfalt siðferði bandarískra
stjórnvalda þegar kemur að því að
standa vörð um frelsi og réttlæti.
Segja kínversk stjórnvöld þvingaða
sölu TikTok jafnframt brjóta í bága
við viðmið Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar um gagnsæi í viðskiptum og
bann við mismunun. Frá sjónar-
horni athafnafólks í Peking og
Sjanghæ er ekki ósennilegt að inn-
gripin í starfsemi TikTok þyki sýna
að bandarískir ráðamenn séu vísir
til að reyna að koma böndum á ár-
angur kínverskra tæknifyrirtækja
þegar þau ná vissri stærð og út-
breiðslu, en mörg þessara fyrir-
tækja hafa þó náð að þrífast vel ein-
mitt vegna aðgangshindrana
kínverskra stjórnvalda sem banna
t.d. notkun Facebook, Google og
YouTube innan Kína.
Tíminn að renna út hjá TikTok
AFP
Efi Brugðið á leik fyrir TikTok-myndskeið með Brooklyn-brúna í baksýn.
TikTok dreifir laufléttu efni en safnar alls kyns upplýsingum um notendur.
Bandarísk stjórnvöld hafa sett einum vinsælasta samfélagsmiðli heims afarkosti vegna hættu á að
gögnum notenda sé beint til kínverskra stjórnvalda Microsoft vill kaupa hluta af starfsemi TikTok
Donald Trump Michael Pompeo
4. ágúst 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 134.78
Sterlingspund 177.01
Kanadadalur 100.41
Dönsk króna 21.468
Norsk króna 14.855
Sænsk króna 15.531
Svissn. franki 148.47
Japanskt jen 1.288
SDR 190.51
Evra 159.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 192.2214
Hrávöruverð
Gull 1974.7 ($/únsa)
Ál 1685.5 ($/tonn) LME
Hráolía 43.29 ($/fatið) Brent
Á öðrum ársfjórðungi dróst hagnað-
ur alþjóðabankans HSBC, stærsta
banka Evrópu, saman um 96%.
Bankinn birti ársfjórðungsuppgjör
sitt á mánudag og segir niðursveifl-
una í rekstrinum einkum skýrast af
efnahagslegum afleiðingum kórónu-
veirufaraldursins. Vaxandi spenna
milli Bandaríkjanna og Kína hefur
einnig haft neikvæð áhrif á bankann
sem er mjög umsvifamikill í Asíu.
Hefur bankinn séð sig knúinn til að
gera ráð fyrir allt að 3,8 milljarða dala lánatapi á fjórðungnum sem FT
segir um það bil einum milljarði
meira en markaðsgreinendur höfðu
vænst. Það sem af er þessu ári hefur
bankinn búið sig undir allt að 6,9
milljarða dala lánatap og spáir því að
þurfa að taka á sig allt að 8 til 13
milljarða dala skell áður en árið er á
enda.
Til að létta á rekstrinum ætlar
HSBC m.a. að flýta fyrirhugaðri
fækkun starfsfólks um 35.000 og er
jafnframt til skoðunar að ráðast í
frekari uppstokkun á starfsemi
bankans.
Hagnaður HSBC á fjórðungnum
nam aðeins 192 milljónum dala en
markaðsgreinendur höfðu vænst 1,3
milljarða hagnaðar. Tekjur drógust
saman um 4% og námu 13 milljörð-
um dala. ai@mbl.is
Hagnaðurinn guf-
ar upp hjá HSBC
Kórónuveiran litar ársfjórðunginn
AFP
Högg HSBC væntir mikils lánataps.