Morgunblaðið - 04.08.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.08.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Kvöldsól Þótt leiðindaveður hafi verið ferðamönnum til ama um verslunarmannahelgina var hægt að njóta kvöldsólarinnar, sem dró fram allar fegurstu hliðar Víðidals í Vestur-Húnavatnssýslu. Eggert Ísland er um margt einstakt í náttúrufarslegu tilliti. Eyjan okkar er stærsta land ofansjáv- ar á hryggjakerfi úthafanna, baðað af hlýjum hafstraumum þrátt fyrir norðlæga legu. Landið hefur orðið til fyrir eld- virkni og því er viðhaldið af eldgosum og gliðnun sem veg- ur upp á móti því sem hafið nagar af ströndum þess. Þjóðin sem hér hefur þraukað í nær 1150 ár hefur lagað sig að þessum veruleika náttúruaflanna, lengi ómeðvitað en á síðustu mannsöldrum með vaxandi þekkingu á þeim kröftum sem skapa henni örlög. Jarðskjálftar og eldgos hafa gengið sem rauður þráður gegnum Íslandssöguna og borið fréttir víða af þessu sérkennilega eylandi. Öðrum þræði erum við stolt af þessari sérstöðu, en hefur þó enn ekki lærst sem skyldi að búa við hana af forsjálni og taka tillit til hennar í skipulagi. Segir fátt af jarð- sögulegum stórviðburðum Á öldum áður varð þjóðin að taka því sem að höndum bar vegna náttúruhamfara á borð við landskjálfta og eldgos og afleiðingarnar voru margþættar og óumflýjanlegar. Um það vitna m.a. eyðing Héraðs milli sanda á 14. öld, þar sem eftir stóð Öræfasveit. Síðar komu Skaftáreldar seint á 18. öld sem snertu landsmenn alla vegna móðuharðindanna í kjölfarið. Þeir atburðir eru ekki fjarlægari en svo að móðir mín skaftfellsk heyrði af þeim frásögur nær milliliðalaust frá sínum for- mæðrum. Meiri þoka hvílir yfir öðrum stór- gosum, sem hulunni hefur þó að nokkru verið svipt af með rann- sóknum jarðfræðinga und- anfarið. Þar ber hæst Eldgjár- gosið mikla á 10. öld, sem nú er talið stærsta eldgos Íslandssög- unnar og rakið til ársins 939. Það er fyrst með ítarlegum rann- sóknum Guðrúnar Larsen sem hulunni hefur verið svipt af þess- um stórviðburði (Náttúrufræð- ingurinn 1 –2, 2018) sem þó er getið í Landnámu (s. 331/1968), þar sem segir um Álftaver, að það var fjölbyggt „áðr jarðeldur rann þar ofan. Þá flæðu allir vestur til Höfða- brekku…“. Gossprungan um 75 km löng er talin hafa náð sem næst jökla á milli frá Kötluöskju norður undir Síðujökul. Annar stórviðburður sem Íslandssagan er fáorð um er Veiðivatnagosið 1477, en þeim mun fyr- irferðarmeira er það í jarðlögum um landið norðaustanvert. Heppnin með okkur í seinni tíð Sá viðburður sem kom eldgosum rækilega inn í vitund elstu núlifandi Íslendinga var Heklugosið 1947. Ógleymanleg er mér bein lýsing Sigurðar Þórarinssonar úr flugvél í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins 27. mars á fyrsta degi gossins eftir um aldarlangt hlé hjá þessari drottningu íslenskra eldfjalla. Þá blés vindur af norðaustri sem færði risavax- inn gosstrókinn suður til hafs líkt og gerðist aftur í gosinu í Eyjafjallajökli 2010. Þannig má segja að aðstæður í tíð núlifandi kynslóða hafi oft verið hliðhollar þegar náttúruham- farir eins og eldgos voru annars vegar. Með vissum hætti má segja þetta um Vest- mannaeyjagosið 1973, þótt þar yrði stórtjón á mannvirkjum, einnig um Kröfluelda nokkru síðar, Gjálpargosið 1996 með eftirfarandi Skeiðarárhlaupi og eldgosið mikla í Holu- hrauni 2014 með upptök í Bárðarbungu. Ég minnist ekki mannfalls af þessum miklu nátt- úruhamförum, eldgosum og jarðskjálftum, utan fráfalls Steinþórs Sigurðssonar nátt- úrufræðings í Heklugosinu 1947, en hann vann þar að kvikmyndatöku og varð fyrir hraunrennsli. Stóraukin þekking á jarðeldum ásamt góðri vöktun hefur átt þátt í þessu sem og aðvaranir og bætt aðgengi fyrir almenn- ing. Við þurfum þó að vera meðvituð um að vel heppnuð sambúð við þessi náttúruöfl er ekki sjálfgefin og miklu skiptir að taka tillit til náttúrufarslegrar áhættu við skipulag og aðgengis ferðamanna. Eldgosatíðni gæti farið vaxandi Jarðsögulegar heimildir frá ísaldarlokum benda til að búast megi við tíðari eldgosum í kjölfar þess að jöklar eru nú að rýrna hér sem annars staðar og landris á sér stað af þeim sökum. Þetta varðar megineldstöðvar eins og Kötlu og Öræfajökul sem nú eru und- ir jökulfargi sem og Bárðarbungu og Gríms- vötn. Í sömu átt bendir landris á Reykjanes- skaga og að innan ekki langs tíma megi þar búast við eldsumbrotum eftir goshlé sem var- að hefur frá árinu 1240. Atburðir síðustu mánaða í grennd við Grindavík og Svartsengi benda í þessa átt og sömuleiðis er talið að hlé á gosvirkni á skaganum öllum frá Brenni- steinsfjöllum og vestur úr sé orðið óvenju- langt í sögulegu samhengi. Skammsýnar skipulagsákvarðanir Góð þekking á jarðsögu, jarðskjálftum og eldgosum, er forsenda góðs skipulags til lengri tíma þar sem taka þarf tillit til lík- legrar þróunar og áhættu við hönnun og staðsetningu mannvirkja. Taka þarf mið af jarðskjálftahættu, m.a. Suðurlandsskjálftum sem lögðu Skálholtsstað ítrekað í rúst á liðn- um öldum og ollu miklu tjóni á Selfossi og víðar um síðustu aldamót. Nýleg bygging kísilmálmverksmiðju á Tjörnesbrotabeltinu við Húsavík hefur eðlilega verið gagnrýnd af jarðfræðingum. Álverið í Straumsvík stendur á Kapelluhrauni sem talið er hafa runnið frá Undirhlíðum um miðja 12. öld. Hugmyndir hafa verið um að byggja nýjan alþjóða- flugvöll á Hvassahrauni sunnan Hafnar- fjarðar, en ekkert heildarmat liggur fyrir á eldvirkni honum tengdri. Eitt ljósasta dæmi um fádæma skammsýni í skipulagsmálum birtist okkur svo í þeirri kröfu borgaryfir- valda Reykjavíkur að Reykjavíkurflugvöllur víki og öllu alþjóðaflugi verði beint suður á Reykjanes þar sem fyrirsjáanleg eru elds- umbrot innan ekki langs tíma. … Vinnubrögð eins og hér hafa verið nefnd dæmi um varðandi skipulag og staðsetningu mannvirkja eru í hrópandi ósamræmi við vaxandi þekkingu á jarðfræði lands okkar. Brýnt er að finna leiðir til úrbóta, m.a. með skýrri leiðsögn í landsskipulagi. Eftir Hjörleif Guttormsson » Vel heppnuð sambúð við náttúruöflin er ekki sjálf- gefin og miklu skiptir að taka tillit til náttúrufarslegrar áhættu við skipulag og aðgeng- is ferðamanna Hjörleifur Guttormsson Eldgosahætta, jarðskjálftar og skipuleg viðbrögð gegn náttúruvá Höfundur er náttúrufræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.